Þjóðviljinn - 05.08.1973, Page 16
UOBVIUINN
Sunnudagur 5. ágúst 1973.
Almennar upplýsingar um
læknaþ.jónustu borgarinnar
eru gefnar i simsvara Lækna-
félags Reykjavikur, simi
18888.
Nætur- kvöld- og helgi-
dagavarzla lyfjabúðanna
vikuna 3. — 9. ágúst er i
Holtsapóteki og Laugavegs-
apóteki.
Slysavarðstofa Borgarspital-
ans er opin allan sólarhringinn.
Kvöld- næ tur- og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
Rúmeni á fornsagnaþingi:
Á fornsagnaþingi þvi,sem nú
cr haldið i Reykjavik er einn
maður rúmenskur, Valeriu
Muntcanu, kennari i germönsk-
um málum við háskólann i
Búkarest. Hann hefur nú verið i
Uppsölum uin sex mánaða skeið
og er að lesa til kandidatsprófs
þar.
— Ég verð að játa, sagði
Munteanu i stuttu viðtali við
Þjóðviljann, að norræn fræði
eru mjög á byrjunarstigi i
Rúmeniu. Það eru 4-5 ár siðan
ég sjálfur fór að lesa dönsku og
sænsku og nú kenni ég þau mál
stúdentum, sem yfirleitt hafa
þýzku að aðalfagi. En ég hefi
mikinn áhuga á að færa þetta
starf út, og þvi er ég nú i Svi-
þjóö. Þar hefi ég fengið nokkra
tilvisun i islenzku, og mér finnst
mér stórlega fara fram hérna,
þótt ég sé ekki búinn að vera
nema þrjá eða fjóra daga.
Og ég veit af undirtekum við
mina sænskukúrsa að stúdentar
eru áhugasamir um norræn
mál.
Af þvi sem fyrr segir leiðir
það nokkuð af sjálfu sér, að ég
er ekki hingað kominn á forn-
sagnaþing til að fræða aðra
menn, heldur til að hlusta,
kynnast fólki og landi. Ég ætla
að hafa héðan með mér sem
mest af bókum islenzkum sem
við höfum alltof litið af i Búka-
rest, sem og myndaefni, þvi oft
erum við i háskólunum beðnir
að fara i fyrirlestraferðir út um
landið og segja frá löndum,sem
við höfum kynnzt.
Og ég vona að mér takist að
koma þvi svo fyrir, að ég geti
komið hingað á næsta ári og
tekið duglegan sprett i islenzku.
Ég hefi þýtt á rúmensku Pan og
Victoriu eftir Hamsun og
Viðreisn i Vadköping eftir
Hjalmar Bergman og bráðum
kemur Strindberg út i minni
þýðingu. Ég hefði gaman af að
spreyta mig á tslendingasögum
— ef nokkuð af þeim hefur yfir-
leitt komizt yfir á rúmensku, þá
er það áreiðanlega um þýzku en
ekki úr frummálinu.
Valeriu Munteanu: Við erum
rétt að byrja...
Gjama vildi ég reyna að
þýða íslendingasögur
Menningarmálanefnd Norðurlandaráðs hélt fund á Höfn í Hornafirði
Eina deilumálið
er norrænn
kj arnaklj úfur
i fyrradag lauk tveggja daga
fundi Menningarmálanefndar
Norðurlandaráðs, sem haldinn
var á Höfn I Hornafirði, og hélt
ncfndin þing með fréttainönnum i
Norræna húsinu i Reykjavik.
Mcnningarmálanefndin er ein
af fjölmörgum nefndum Norður-
landaráðsins, en hún hefur þó
sérstöðu meðal þeirra siðan
gerður var menningarmála-
samningurinn i llelsinki, sem
skipulagði samvinnu Norðurland-
anna á þessu sviði og kom henni á
fastan kjöl. Tengd starfi hennar
er Nordisk Kultursekretariat i
Kaupmannahöfn, sem sér um
frainkvæmd á samþykktum
Norðurlandaráðsins.
Nefndin hefur til umráða sér-
staka fjárveitingu til menningar-
mála, sem nemur 510 milj.
islenzkra króna og er stærsta
styrknum úr henni veitt til
samnorrænna rannsóknarstarfa
(165 milj. króna), en einnig er
veitt fé til menntunarmála og al-
mennrar menningarstarfsemi.
Menningarmálanefnd Norður-
landaráðsins hefur unnið mikið
starf frá upphafi, og eru tvö verk
hennar einkum tengd fslandi.
Annað þeirra er Norræna húsið i
Reykjavik, sem Norðurlandaráð,
kom á laggirnar fyrir tilstilli
nefndarinnar, og hitt er Eldfjalla-
rannsóknarstofnun, sem stofnuð
verður hér. Þessar tvær stofnanir
verða af svipaðri stærð, þvi að til
Norræna hússins er veitt 16,1 milj.
króna á ári, og til Eldfjallarann-
sóknastofnunarinnar verður veitt
13,3 milj. króna.
En nefndin hefur einnig mörg
önnur verk i undirbúningi. M.a
hefur reynslan af Norræna húsinu
i Reykjavik vakið áhuga á þvi að
stofna annað slikt hús i Þórshöfn
IFæreyjum.og er það nú i undir-
búningi. Erlendur Patursson
sagði fréttamönnum frá þvi,að
Færeyingar biðu eftir þvi með
mikilli eftirvæningu. Svo verður
einnig stofnuð mála- og
upplýsingamiðstöð I Helsinki.
Loks er ákveðið að stofna
samnorræna stofnun um
lappneska menningu (Nordisk
Sameinstitut) i Kautokeino á
næsta ári.
Nefndin fæst þó við miklu
meira en að koma á fót
menningarstofnunum, og hefur
hún nú rætt um mál eins og sam-
starf milli útvarps- og sjón-
varpsstöðva á Norðurlöndum,
samræmingu skólakerfis og
gagnkvæma viðurkenningu á
prófum frá Norðurlandaskólum,
aukna æskulýðssamvinnu og
þýðingastarf bæði þýðingar milli
norðurlandamálanna og þýðingar
Fjórðungsmót hesta-
manna á Austurlandi
Fjórðungsmót hestamanna á
Austurlandi var haldið á Iða-
völlum á Héraði um siðustu
helgi. 1 kappreiðunum gerðist
það m.a. að hinn frægi gæðingur
Stormur, sem þeir Hörður G.
Albertsson og Sigurbjörn
Báðrarson eiga, setti nýtt
islandsmet i 800 m stökki á 61,9
'sek. óðinn, sem er eign Harðar
G. Albertssonar, sigraði i 250 m
stökki á 18,3 sek., en þessi
hestur er frægur fyrir að hafa
aldrei tapað kcppni.
En á hestamannamótinu fór
lika frain góðhestasýning og
gæðingakeppni. A myndinni
sést einn kunnur hestamaður á
Austurlandi, Þorkell Steinar
Ellertsson skólastjóri á Eiðum,
sýna einn gæðinginn.
Fulltrúar i menningarmálanefnd Norðurlanda fyrir utan Norræna húsið, nýkomnir frá Höfn i Horna-
firði. (Ljósm. EMJ).
úr þeim á ensku. M.a. er væntan-
legt á markaðinn safn af
fslenzkum leikritum á ensku.
Yfirleitt rikir eining meðal
nefndarinnar, en eitt mál voru
nefndarmenn þó ekki sammála
um og það var hvort byggja ætti
norrænan kjarnakljúf til
kjarnorkurannsókna, og fannst
ýmsum það nokkiíð dýrt fyrir-
tæki, þar eð hann myndi kosta 100
milj. danskra króna i gerð, og
rekstrarkostnaður væri um 12
milj. d.kr. á ári.
Á fundinum bentu nefndar-
menn einkum á nauðsyn
þýðingarstarfsemi og norænnar
æskulýðsstarfsem i. Tönnes
Andenæs frá Noregi benti á að nú
gæti það verið ódýrara að fljúga
til Mallorca heldur en milli
Norðurlanda, þannig að auðséð
væri að styrkja þyrfti kynnis-
ferðir unglinga um Norðurlöndin.
Þorfinnur
á flugi á ný
ef tir viðgerð
Þorfinnur Karlsefni,
farþegaþota Loftleiða, sem
hlekktist á i lendingu á
Kennedyflugvelli i júni-
mánuði, hefur aftur byrjað
farþegaflutninga.
Þorfinnur lenti á
Keflavikurflugvelli hinn 30.
júli i áætlunarflugi til Oslóar
og Stokkhólms.
Hafði flugvélin þá verið i
viðgerð hjá bandariská
flugfélaginu United Airlines i
um fjórar vikur, eða frá þvi
skömmu eftir að óhappið varð
i lendingu vélarinnar á
Kennedvflugvelli að inorgni
laugardags hinn 23. júni si.
Ráðstafanir, er gcra varð til
að afla flugvéla til að halda
uppi áætlunarflugi félagsins
til Norðurlanda á þessu
timabili, inæddu mjög á
starfsfóiki flugrekstursdeiidar
okkar hér i Rcykjavik, auk
þess sem breytilegur flug-
kostur olli stórkostlega auknu
álagi á félaga okkar i
farskrárdeildum og mebal
flugafgreiðslufólks á flugvöll-
um á viðkomustöðum okkar,
einkum á Norðurlöndum, i
New York og hér heima.