Þjóðviljinn - 05.09.1973, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 05.09.1973, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJOÐVILJINN Miftvikudagur 5. september 1973 Við höfum ákveðið að stofna rit- stjórn 5 krakka. Þið sem áhuga hafið fyrir að vera með skrifið til LITLA GLUGGANS C/O ÞJÓÐVILJINN SKÓLAVÖRÐUSTÍG 19, REYKJAVÍK og skrifið greinilega fullt nafn, heimilisfang og aldur, og ef þið hafið sima, þá simanúmer. Við biðjum ykkur svo að senda bréfin fyrir 10. september. Við minnum ykkur svo á að vera dugleg að skrifa okkur og senda myndir og sögur og visur og frá- sagnir og skritlur og spurningar og hvað ykkur nú kann að detta i hug. Hundurinn og hrafninn Hundur hafði stolið kjötstykki úr eldhúsi, og með því að hann var ekki svangur í þann svipinn, þá gróf hann það niður í mykju, svo hann gæri étið það seinna. En hrafn nokkur, sem sat í tré þar nálægt og sá til hans, flaug óð- ara til, er hundurinn var farinn, gróf með nefi sínu eftir stykkinu, tók það upp úr mykjunni og hafði á burt með sér. Rétt í því kemur hundur- inn og sér hrafninn fljúga með ránsfeng sinn og setjast í tréð. „Bölvaður bófinn og fanturinn!" kallaði hann til hrafnsins, ,,hvað átt þú með að fara burt með kjötið mitt?" „Vertu ekki svona bráður, seppatetur!" svaraði hrafninn og kom feng sínum örugglega fyrir, „veiztu ekki að ég er við lögregluna? Ég er settur til höfuðs þjófun- um og skila þýfinu í rétt- ar hendur." Þetta er mynd af löggu, segir Helgi 6 ára. Þessar 3 stelpur eru áreiðanlega að fara i skólann. Það er Jósef sem teiknaði þær. Ekkjan og hœnan Ekkja nokkur átti hænu, sem verpti einu eggi á hverjum morgni. Nú hugsaði ekkjan með sér: „Ef ég gef hænunni helmingi meira í mál, þá mun hún eflaust verpa tvisvar á dag." Hun gerði svo, en það varð til þess að hænan hljóp í hold og varð svo feit að hún hætti með öllu að verpa. Skyldi hann vera á leið i skólann þessi? Það er Ari Gisli 6 ára sem teiknaði. Þessa mynd teiknaði Arna Björk Birgisdóttir. Þetta er Lina langsokkur á hestinum sinum, en hver er á hinum hestinum? / ^ v . s , Þessa myna teiknaöi hún Eilen. Hún er 8 ára. Óskum eftirfimm krökkum í ritstjórn Litla gluggans

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.