Þjóðviljinn - 05.09.1973, Side 3

Þjóðviljinn - 05.09.1973, Side 3
Miövikudagur 5. september 1973 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 3 Skólahald að hefjast í Eyjum: 182 nemendur á barna- og gagnfræðaskólastigi 4. bekkur iðnskóla sennilega starfræktur í vetur Mjög bráölega hefst kennsla i barnaskólanum i Vestmanna- eyjum, og samkvæmt könnun, scm gerö var um væntanlegan fjölda nemenda er vilja stunda nám á barna og gagnfræöaskóla- stigi, veröa 182 börn viö nám i Vestmannaeyjum i vetur, og sú tala miðuð viö þá vitneskju sem fyrir lá 31. ágúst sl. Dr Bragi Jósepsson hjá menntamálaráðuneytinu gaf blaðinu þessar upplýsingar. Hann sagði ennfremur, að skóla- stjórarnir Reynir Guðsteinsson og Eyjólfur Pálsson væru komn- ir til Eyja til að undirbúa skóia- haldið i vetur, en bæjarstjórnin hefur þegar látið hreinsa skóla- húsnæðið. 13. ágúst sl. var vitað um 170 börn og unglinga sem ætluðu að Ungir Alþýðu— bandalagsmenn Ræða starf sósíalísks flokks Ungir Alþýðubandalags- menn boða til ráöstefnu helg- ina 6.—7. október, Ekki er enn fullvist, hvar ráðstefnan verð- ur, en frá þvi veröur sagt siö- ar. Ungir Alþýöubandalags- menn og stuðningsm enn þeirra eru hvattir til aö hefja undirbúning fyrir ráöstefn- una. Mikilvægir málaflokkar verða teknir þar til umræöu og cr nauðsynlegt, aö þátttak- endur hafi gaumgæft málin, er þeir koma til ráöstefnunnar. Mun fara vel á þvi, að ungt fólk i sérhverju Alþýöubanda- lagsfélagi komi saman til skrafs og ráðagerða. Hugmyndin er, að ráð- stefnán starfi i að minnsta kosti þremur starfshópum. Einn starfshópur mun fjalla um starfshætti sósialisks flokks. Mun þar m.a. koma til umræðu hvernig lýðræðisleg- ur flokkur eigi að vera upp- byggður og hvernig sé háttað lýðræði innan Alþýðubanda- lagsins. Einnig mun verða fjallað um stööu ungs fólks innan Alþýðubandalagsins. Annar starfshópur mun fjalla um þátttöku sósialisks flokks i rikisstjórn, þátttöku Alþýðubandalagsins i núver- andi rikisstjórn og almennt um þátttöku i borgaralegu rikisvaldi. Þriðji hópurinn fjallar svo um flokkinn og verkalýðs- hreyfinguna. Hóparnir munu væntanlega sitja að störfum allan laugar- daginn, en á sunnudag bera menn saman bækur sinar á allsherjarfundi. Ungir Alþýðubandalags- menn hvarvetna á landinu eru hvattir til að gaumgæfa þessi mál áður en þeir fjölmenna á- samt stuðningsmönnum sin- um til ráðstefnunnar. Þátttaka tilkynnist á skrif- stofu Alþýðubandalagsins i Reykjavik, Grettisgötu 3. Simi 18081. Innan tiðar mun verða skýrt nánar frá þessari fyrirhuguðu ráðstefnu i Þjóðviljanum. stunda nám i Eyjum og var skipt- ingin þá milli skólanna á þann veg, að 127 börn voru á barna- skóla- og forskólastigi og 43 nem endur á gagnfræðaskólastigi. Þar sem aðeins 2 nemendur inn- rituðust i 5. bekk gagnfræðaskóla var gripið til þess ráðs að koma þeim fyrir i heimavistarskóla uppi á landi. Þegar hafa verið ráðnir kenn- arar til Eyja og verða 10 kenn- arar I fullu starfi og einn i hálfu starfi fyrir báða skólana. 1 vetur sem leið var gagnfræða- skólinn i Vestmannaeyjum rekinn Yiðbúnaður i Grímsby Samtökin „Islandsvinir” i Bretlandi hafa ákveðið að halda almennan fund i Grimsby á laug- ardaginn. Er mikill viöbúnaður af hálfu lögreglunnar vegna fundar- ins. Samtökunum hefur gengið illa að fá talsmann brezku stjórn- arinnar eða togaraeigenda til að mæta á fundinum, og er enn ekki ljóst hver sá verður. Jónas Arnason, alþingismaður, mun mæta á fundinum i boði samtakanna. Fimm eftir fénu Hvorki meira né minna en fimm tslendingar munu fara úttil Washington til þess að ganga endanlega frá láni þvi sem Alþjóðabankinn hefur lofaö aö lána til hafnagerðar vegna Vestmannaeyjagossins. Segja gárungar að svo fjölmennt lið sé nauðsynlegt vegna þess að borga eigi lánið út i gengisfelldum eins- dollara seðlum. Þeir sem fara utan eru Brynjólfur Ingólfsson, ráðu- neytisstjóri i samgönguráðuneyt- inu, Aðalsteinn Júliusson, hafna- málastjóri, og frá Seðlabank- anum þeir Davið Ólafsson, Sigurgeir Jónsson og Sveinbjörn Hafliðason. —úþ Hækkun daggjalda Daggjöld heilsuhælis Náttúru- lækningafélagsins i Hveragerði, sem verið hafa 950krónur, hækka i 1200 krónur, en sjúkratrygg- ingar endurgreiða 950 krónur fyr- ir daginn. sem sjálfstæður skóli hér i Reykjavik, en nú ganga Vestmannaeyingar inn i skóla- kerfið á venjulegan hátt, utan hvað reynt verður að hafa sérstaka Vestmannaeyingabekki, þar sem Vestmannaeyingar eru fjölmennastir. Komið hefur fram ósk um það að 4. bekkur iðnskólans verði rek- inn i Eyjum i vetur og taldar eru allar likur á að svo verði. Aftur á móti verða nemendur i Vélskól- anum og Stýrimannaskólanum áfram við nám i Reykjavik. sj Auglýsing um afnám Z I. Eftirfarandi reglur skulu gilda um staf- setningarkennslu í skólum, um kennslubækur útgefnar eða styrktar af rikisfé, svo og um embættisgögn, sem út eru gefin. II. Ekki skal rita zfyrir upprunalegt tannhljóð (d, ð, t)+s, þar sem tannhljóðið er fallið brott í eðlilegum framburði. Til leiðbeiningar skal bent á eftirfarandi atriði: a) i stofnum fallorða skal tannhljóð haldast á undan s, hvort sem svo er framborið eður ei, t.d. lofts (af loft), lats (af latur), lands (af land), skorts (af skortur) o.s.frv. b) i orðstofnum skal tannhljóð haldast á undan s, ef svo er fram borið, t.d. reiðstu (af reiðast), gleðstu (af gleðjast): (hefur) mæðst (af mæða(st)), græðst (af græða(st)), dáðst (af dá(st)): greiðsla breiðsla o.s.frv. c) Ef stof n lýsingarháttar þátíðar sagnar eða lýsingarorðs endar á -tt samkvæmt upp- runa, skal þeim stöfum sleppt, ef endingin - st fer á eftir, t.d. (hefur) sest (af setja(st-), (hefur) flust (af flytja(st)), (hefur) breyst (af breyta(st)), (hefur) hist (af hitta(st)), stystur (af stuttur) o.s.frv. d) Ef lýsingarháttur þátíðar í germynd end- ar á -st eða -sst, skal miðmyndarendingu sleppt, t.d. (hefur) leyst (af leysast), (hefur) breyst (af breytast), (hafa) kysst (af kyss- ast) o.s.frv. III. Reglur þessar öðlast þegar gildi, og jafn- framt eru numdar úr gildi reglur um z í III. lið „Auglýsingar um íslenzka stafsetningu", sem út var gefin af dóms- og kirkjumálaráðuneyt- inu 25. febr. 1929, sbr. Lögbirtingablað 22. ár, nr. 9 (28. febrúar 1929). Men nta má la ráðuney tið, 4. september 1973. Ert þú búin að tala við barnið þitt um umferðarhættuna? Hefur þú lesið bæklinginn frá Umferðarráði um ”Leiðina í skóiann” fyrir barnið þitt oftar en einu sinni? Ætlar þú að fylgja barninu þínu í skólann fyrstu dagana? Það ert þú, sem verður að velja barninu þínu hættuminnstu leiðina í skólann. Barnið treystir þér bezt. UMFÉRÐARRÁÐ <3 Barnið treystir þér

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.