Þjóðviljinn - 05.09.1973, Page 9

Þjóðviljinn - 05.09.1973, Page 9
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 5. september 1973 Miövikudagur 5. september 1973 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9 • Meðan Sviar loka opinberum ferðaskrifstofum sinum erlendis taka Spánverjar við 34 miljónum ferðamanna i ár, jafnmörgu fólki og i landinu býr. • Þótt þjóðartekjur hafi aukizt, hefur straumur þessi fyrst og fremst þau áhrif að dýpka bilið milli rikra og fátækra, milli þróaðra og vanþró- aðra héraða. Ferðmannaframkvæmdir eru oft- ar en ekki greiddar á kostnað framkvæmda i almannaþágu, og gróðinn er að verulegu leyti fluttur úr landi. Risavaxnar ferðamannanýlendur gera Spánverja að óvelkomnum, blönkum ættingjum i eigin landi. • Og gestagangur þessi hefur engin áhrif á hina afturhaldssömu stjórnskipan i landinu. Allt er vanrækt, sem kvæmda heyrir, nema gefur skjótan gróða. til fram- það sem Ferðamannaiðnaður gerir Spánverja að útlendingum í þeirra eigin landi Þaö ætti aö vera óþarfi aö fara mörgum oröum um alla þá lof- dýrð um ferðamannalandiö Spán, sem sungið er á hinu eina bjart- sýnismáli samtiðarinnar, tungu auglýsinganna. Og það vita llka flestir að þessi áróður fyrir sól og sjó Spánar ber árangur. Á tiu árum hafa 200 miljónir útlendinga varið sumarleyfum sinum á Spáni. I fyrra voru þeir 32 miljónir. í ár veröa þeir að likindum 34 miljónir, eða jafn- margir og ibúar Spánar. I þorpinu Lloret de Mar á Costa Brava búa utan ferðamanna- timans 5000 manns — samt eru þar 213 hótel og pensjónöt, og það er miklu meira en i helmingi rikja heims hvers um sig. Þessi verzlun með sól, sjó, nautaöt og flamenco er helzti atvinnuvegur þessa lands, sem ekki er auðugt að öðrum náttUru- auðlindum og illa farið eftir margra alda rányrkju. Spánn fékk i fyrra 2,5 miljarði dala i gjaldeyristekjur af ferða- mönnum, og nægir það til að jafna að niu tiund'u hlutum við- skiptajöfnuð landsins. Svo- kallaðar vergar þjóðartekjur hafa tvöfaldazt á tiu árum. Vaknað við vondan draum En til eru þeir Spánverjar, sem vara við trU manna á ferðamannastrauminn sem það Gullland, E1 Dorado, sem frægt er i sögum. Einhverju sinni vakna menn af þeim draumi. Ekki barasta ferðamennirnir, sem vakna við skruðninga steypuvél- anna i stað fuglasöngs, og sjá ekki annað af hótelsvölum sinum en sementseyðimörk, og stiga ofan i sjó sem er ekki lengur blár, heldur skitgrár af skólpi Ur háhýsum þeim sem hafa sprottið upp á ströndinni eins og gorkúlur Æ fleiri Spánverjar spyrja sjálfa sig að þvi, hver hagnist i raun og veru á þessu gullæði? Kannski Spánverjar sjálfir? Einhver hluti þeirra, já. En fyrst og fremst þó þeir erlendu fjár- festingaraðilar, sem beina með framkvæmdum sinum gjald- eyrisstraumi inn i landið, án þess að landinu miði áfram svo um muni. Þvi i skugga ferðamanna- straumsins eykst munurinn á þeim fátæku, sem eru að sjálf- sögðu margir.og þeim riku, sem eru að sjálfsögðu fáir. Mismunur á þróuðum og vanþróuðum héruðum eykst. Allt er vanrækt sem ekki færir skjótan gróða. Pólitiskt sprengiefni hleðst upp. Örfáum kilómetrum frá sund- laugum, börum og tennisvöllum Costa del Sol hima vesældarleg miðaldaþorp. I þrem húsum af hverjum fjórum i sveitahéruðum Malaga er ekkert rennandi vatn og i mörgum ekkert rafmagn. Tekjur manna eru þar aðeins þriðjungur af tekjum strandbúa. Mörg þorp breytast i draugabæi; karlmennirnir eru farnir að heiman til að byggja hótel. 1 nánd við ferðamannastaðina liggur uppskeran undir skemmdum vegna manneklu. Og yfirvöld kæra sig kollótt um hnignun þess landbúnaðar sem er, þratt fyrir allt, næstmesti atvinnuvegur Spánar. Þetta kemur fram einnig i efnahagslegum furðum. Gestir á hótelum á Tenerife fá i eftirmat ferskjur frá Kaliforniu meðan ávextir rotna á trjánum i nokkurra kilómetra fjarlægð. Hvað kosta ferðamenn? Ibúar Kanarieyja — svo dæmi sé tekið — verða þess æ betur varir, að ferðamenn koma ekki aðeins með peninga, þeir kosta lika fé. Til dæmis hefur ofneyzla ferðamannamiðstöðvanna á vatni skapað ærinn vanda. Steypiböð og sundlaugar fyrir túrista á eld- fjallaeynni Lanzarote hafa leitt til þess að i júli kostaði rúmmetri af vatni þar 400 peseta (600 kr). Innfæddir geta ekki keppt við þann pris. Spænski flotinn flytur þeim drykkjarvatn á tankskipum til að þeir farizt ekki úr þorsta. Og allar framkvæmdir sem almenningi mega til heilla verða eru látnar sitja á hakanum. Kanarieyjarhafa mikla þörf fyrir skóla; þar fæðast allmiklu fleiri börn en á Spáni, og þar eru 8-12% manna ólæsir. En i stað þess að reisa skóla ver sýslustjórn eyjanna 200 miljónum peseta til að búa til nýja sandströnd, La Teresita. I þvi skyni voru fluttar inn frá Saharaeyðimörkinni 200 þúsund rúmmetrar af gulum sandi, sem ferðamönnum likar betur en hinn dökkgrái sandur heimamanna. Og i Puerto de la Cruz var ströndin fyrst eyðilögð með röð háreistra hótela, siðan var öðrum 200 miljónum varið til að stækka landiö út i sjóinn. Yfirleitt sleppa eigendur hótela og sumarhýsa við að greiða kostnað af slikum fram- kvæmdum, sem eru þó allar i þágu viðskiptavina. Aðeins i neyðartilfellum eru þeir neyddir til að opna peningakassa sina. Eins og þegar þvi var lýst yfir að ef 2,3 miljörðum peseta yrði ekki variðtilað hreinsa strendurnar á Costa del Sol, þá yrði tjónið af þvi skólpi, sem hingað til hefur streymt hindrunarlaust út i sjóinn frá mannvirkjum túrismans orðið innan þriggja ára óbætanlegt. Mörg fleiri dæmi mætti nefna um framkvæmdir sem verða einungis til fyrir ferðamanna- iðnaðinn, en allur almenningur verður að borga. Miljarði peseta hefur nú siðast verið varið i það eitt að bæta flugstjórn á spænskum flugvöllum. Þar eð ferðamenn koma flestir á eigin bflum (8 1/2 miljón bila i fyrra), þá er áformað að lengja hrað- brautarnetið ur 450 km i 3000 km á næstu árum — enda þótt 14ndi hver Spánverji eigi sér bil. Hvert fer gróðinn? Mjög er um það deilt, hve mikið af þvi fé sem inn kemur á ferðamannasvæðunum, komi þeim i raun og veru til góða. Ýmsir spænskir hagfræðingar telja það vera aðeins 30-40%. Hitt fer i aö greiða innflutning og i ágóða. Agóðinn fer ,,til sins upphafsstaðar”. Og hvar er sá staður? Hópur spænskra hag- fræðinga sem vildi rannsaka f jár- magnsstrauminn til og frá Costa del Sol, komst að þvi, að spænskir opinberir aðilar vilja ekkert vita um hlut erlendra aðila i ferða- mannaiðnaðinum. En haft er eftir starfsmanni spænska ferðamála- ráðuneytisins, sem „biður um að nafns hans sé ekki getið”telur að hlutur erlends auðmagns sé 60%. Samkvæmt spænskum lögum mega útlendingar aðeins eiga innan við 50% i spænskum fyrir- tækjum, en það er enginn vandi að fara i kringum það meö leppum. Og það eru engar hömlur á erlent eignarhald lagðar á eina grein atvinnurekstrar; hótel- rekstur. Erlendum aðilum er leyft að flytja aftur heim fjármagn sitt og ágóða, eignar- og tekjuskattar eru litlir og rikið veitir af stóru örlæti lán til að byggja ferðamannamiðstöðvar. Það er þvi ekki að undra þótt útlendingar kaupi upp stærðar landspildur — ekki sizt af spænskum aðals- mönnum. Við Malaga hefur hol- lenzkt-belgiskt fyrirtæki keypt 1,25 miljónir fermetra af veiði- lendum greifans af Larios. A Kanarieyjum hafa þýzkir aðilar Lúxushverfi; Læröu ensku áður en þú ferð til Ibiza. Þýzkt eldhús á Spáni: Fleiri útlendar áletranir en spænskar. Hótelbyggingar viö ströndina: Steinsteypueyöimerkur og skólpfljót. Hverjir hagnast á miklum feröamannastraumi? keypt átján kilómetra af strönd Gran Canaria af greifanum de la Vega. A 450 hektörum við Costa Blanca er bandariskur marg- miljónungur að reisa forstjóra- paradis með fjórtán gervivötnum og tveim golfvöllum. A hverju horni á götum ferðamannabæj- anna eru lóðir auglýstar til sölu — og verðið tútnar út eins og púki á fjóshaugi. Lóðabrask Eins og að likum lætur taka spænskir auðkýfingar virkan þátt i þvi sjálfir að selja landið undan þjóð sinni efnuðum útlendingum, ekki sizt þeir sem fara einnig með pólitisk völd i riki Francos. Antonio Toré y Roré er maður nefndur, sem hefur á sl. tiu árum reist 63 háhýsi á Torre del Mar með um 4000 ibúðum — þar af hefur hann selt Þjóðverjum . einum um 2500. Toré þessi er lika i þeirri þægilegu aðstöðu að vera um leið borgarstjóri i Torre del Mar og geta þar með ráðið, hvort húsateikningar verða sam- þykktar eða ekki. Borgarstjórinn i Lloret del Mar reisti lúxus- hótelið Clúa Marsol beint á móti ráðhúsi bæjarins. Svipað gerði borgarstjórinn á Puerto de la Cruz á Tenerife — hann reisti mikið hótel á svæði sem ætlað var fyrir skemmtigarð, en friðaði það að öðru leyti. Þar með var hótel hans komið i friðsælla og gróður- sælla umhverfi en önnur slik mannvirki. Áhrif á spænskt samfélag Þetta er mikill slagur — og sá sem bitur harðast frá sér hefur rétt fyrir sér. Og niðurstaðan er sú, að spænskar fjölskyldur sem láta sér detta i hug að njóta sólar og stranda i eigin landi, eru með- höndlaðar eins og annars flokks fólk , blankir ættingjar á herra- garði. Madridblaðið, blaðið ABC. segir að til að fara til Ibiza verði menn að tala ensku og bóka hjá ferðaskrifstofu i London. Af þessum ástæðum finnst mörgum Spánverjum aö þeir séu útlendingar i eigin landi, oft eins og erlendir verkamenn i Þýzka- landi. „Þýzka hornið”, „Vinar- svalir”, „Þýzka kaffihúsið” eru á hverju horni, eða þá „Café Berlin”. Maturinn á veitinga- húsunum er þýzkur eða brezkur. Ýmsir flottheitastaðir eru bein- Egill Jónsson, Asgarði 49, hringdi: Ég sé ekki nokkra á^tæðu til þess að breyta fyrirkomulaginu, sem var við björgun mannslifa á brezka togaraflotanum fyrir landhelgisdeiluna. Þá var það regla að ef koma þurfti manni á sjúkrahús i landi var hann fluttur til hafnar á þvi skipi, sem hann var starfandi á. Islenzka rikis- stjórnin ætti sem fyrst að tilkynna brezku stjórninni og brezkum togaraeigendum, að venjan um þetta, sem i gildi hefur verið und- anfarna áratugi, verði tekin upp á ný. Þá ráðabreytni væri hægt að verja án þess að málstaður okkar biði nokkurn skaða. Svo tek ég undir kröfur ótal annarra Islend- inga um að brezka sendiráðinu verði lokáð tafarlaust og brezki sendiherrann sendur heim. Eins og málum er komiö höfum við ekkert með að gera neitt stjórn- málasamband við brezku stjórn- ina, i hæsta lagi mætti vera hér fulltrúi frá brezkum togaraeig- endum til að leysa út þá veiði- þjófa, sem dæmdir hefðu verið eftir islenzkum lögum. Er ekki timabært að athuga hvort rétt sé að opna sjúkrahús landsins upp á gátt fyrir brezkum sjómönnum hvenær sem þeir þykjast þurfa á þvi að halda. Allir linis lokaðir Spánverjum, sem og vissar' strendur. Trúaðir geta ekki einu sinni rætt við guð sinn i friði i kirkjunum fyrir glymj- andanum i leiðsögumönnum, teymandi ferðamannahópa á eftir sér. Að sjálfsögðu hefur ferða- mannastraumur þessi haft mikil áhrif á hefðbundið spænskt sam- félag, komið með nýja drykkju- siðu, losað um viðhorf i kynferðis- málum og þar fram eftir götum. En mestu skiptir, að hér hefur aðeins verið um „ytri stæiingu á erlendum hegðunarreglum” að ræða eins og félagsfræðingur einn i Madrid kemst að orði. Skyndi- áhlaup tugmiljóna útlendinga valda engum breytingum á hinum lokaða pýramida spænsks þjóðfélags. Enn sem fyrr eru ekki leyfðir neinir pólitiskir flokkar i landinu og aðeins fimmtungur hins svokallaða þings eru kosnir. Vinnudeilur eru bannaðar og verkamenn þving- aðir til að sitja i samtökum meö atvinnurekendum. Fjórðungur allra Spánverja lifir enn á barmi neyðar með um 7500 króna mánaðartekjur á fjölskyldu. En litill hópur óðalsfjölskyldna á enn heil þorp og héruð. öryggisleysi Samfélag túristanna lifir út af fyrir sig eftir eigin lögmálum, raunveruleg samskipti við lands- menn eru afar litil. Ferðamenn- irnir veröa i reynd einskonar risavaxin yfirstétt og skapa nýja öreigastétt. Skarar af dyra- vörðum, burðarmönnum, hrein- gerningastúlkum og þjónum puða einatt tólf tima á dag fyrir útelndingana, aðskilin frá fjöl- skyldu og vinum úr þorpunum i Islendingar vita hversu erfitt er fyrir landsmenn sjálfa að fá sjúkrahússvist, og margir þurfa að biða lengi þó að mikið liggi við. Það hefur nú áþreifanlega sannazt hversu litils Bretar virða islenzk mannslif, en um leið og þeir halda áfram að brjóta is- lenzk lög og alþjóða siglingaregl- ur, er þeim viðstöðulaust látin i té hvers konar sjúkrahússaðstaða hér. Væri ekki sanngjarnt til að byrja með að bjóða hinum svo- kölluðu eftirlitsskipum að koma með sjúklingana inn á hafnir og liggja þar sem sjúkraskip og þeim gefinn kostur á læknishjálp en fengju ekki innhlaup i islenzk sjúkrahús? örvar Óþolandi Hvernig hyggst forsætis- ráöherra sýna i verki samúð sina með hinum fallna varðskips- manni? Það er óþolandi, ef maður á að heita Isendingur, að þurfa að horfa upp á, að ekkert sé gert. Það minnsta væri að rikis- stjórnin sendi brezka sendi- herrann heim og segði Island úr NATO. H.M. grennd. Og þótt tekjur þessa fólks séu vissulega miklu betri en áður, þá er öryggi þeirra næsta litið. Ferðamannastraumurinn er ekki allt árið nema á einstaka stað, annatiminn er kannski svosem þrir mánuðir á Costa Brava til dæmis. Og þegar ferðamanna- timinn er búinn eru þúsundir manna atvinnulausar. Hvergi er atvinnuleysi meira á Spáni en i Malagahéraði, enda þótt þangað komi árlega 1,5 miljónir ferða- manna. Svo er nefnilega mál með vexti, að i ferðamannahéruðunum er bókstaflega ekkert gert fyrir aðrar atvinnugreinar, græðgin i skjótan gróða ræður öllu. Það er lika hagkvæmt fyrir ferðamanna- iðnaðinn að hafa alltaf nóg af fólki til að gripa til á annatimanum. Eitt dæmið er að fiskiskipaflótinn á Kanarieyjum er svo úreltur, að fiskiskip frá Japan og Kóreu ráða lögum og lofum á fiskimiðunum kringum eyjarnar. Byggingar- iðnaðurinn er að sjálfsögðu i örum vexti — en hann sér aðeins um túrismann, opinberar hús- næðisbyggingar hafa td. dregizt saman. Einmitt byggingariðnaðurinn sýnir vel hættueinkenni. Senn kemur að þvi að hótelbygginga- þörfin verður „mettuð”. A Kanarieyjum var byggt helmingi meira af hótelherbergjum i fyrra en hitteðfyrra — en ferðamönnum fjölgaði aðeins um fimm prósent. Og þegar þörfinni er fullnægt þá munu t.d. 70% ibúa Torre del Mar (en svo margir hafa unniö við byggingar) verða atvinnulausir. Ofurseldir þeirri eymd sem ferðamannastraumurinn átti að leysa þá undan. (Byggt á der Spiegel) bréf til blaðsins Alla hval- bátana til gæzlustarfa Ég vil eindregið hvetja til þess að öll hvalveiðiskipin verði tekin leigunámi i haust um leið og hval- vertið lýkur og notuð til að skera á vörpur landhelgisbrjóta. Til þess eru þau ágætlega fallin. Auk þess fengju varðskipin þá rýmri tlma til að vinna að raunverlegi landhelgisgæzlu og taka togara. Hér á árum áður var manni vikið frá störfumvið Landhelgis- gæzluna. Hann var þá skipstjóri og þótti framtakssamur og duglegur. Nú starfar einn maður hjá Gæzlunni sem er algjör andstæða þess manns; það er forstjórinn sjálfur. Honum á að vikja úr starfi fyrir ódugnað og lélega stjórnsemi. Þessar hugmyndir eru settar fram og miðaðar við, að ætlunin sé að við náum einhverntima yfirráðum yfir okkar eigin fisk veiðilögsögu. Það gerist ekki nema með hörku og stjórnsemi. Gamall varðskipsmaður. Togararnir komi sjálfir meö sjúklingana í land

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.