Þjóðviljinn - 02.11.1973, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 02.11.1973, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 2. nóvember 1973 FLUG- BJÖRG- UNAR- SVEITIN óskar eftir sölubörnum á morgun, laugardag. Komið i eftirtalda skóla kl. 13. Reykjavík: Álftamýrarskóla Árbæjarskóla Austurbæjarskóla Breiðagerðisskóla Breiðholtsskóla Fellaskóla Langholtsskóla Laugarnesskóla Melaskóla Vogaskóla Kópavogur: Kársnesskóla Digranesskóla Hafnarf jörður: Öldutúnsskóla. Söluverðlaun eftir fyrstu 15 seld merki. Hraðkaup Fatnaður i fjölbreyttu úrvali á alla fjölskyld- una, á lægsta fáan- lega verði. Opið þriðjudaga, fimmtudaga og föstu- daga til kl. 10 e.h. — Mánudaga, miðviku- daga og laugardaga til kl. 6 s.d. HRAÐKAUP Silfurtúni, Garðahreppi v/Hafnarfjarðarveg. • Nú stendur yfir mikil krossferð sem beinist að þvi að hreinsa til i þeim menningarkima sem nefnist fiknilyfjaneytendur. Undanfarna daga hafa allra handa lögreglumenn, dómarar og tollheimtumenn ekki unnt sér hvildar frá húsleitum, handtökum og yfirheyrslum við fjölda fólks. • Hér á eftir verður enginn dómur lagður á sekt eða sakleysi þeirra sem fyrir yfirganginum hafa orðið en einungis fjallað um aðferðir framkvæmdavalds- ins við að ná fram játningu á þvi sem mönnum er borið á brýn. ojsoKmr Fruntalegar aðferðir fík n i lyfja lögreglu n n a r Er maður sekur um leið og hann er handtekinn? Aölerftir lögreglunnar hala ekki einkennst al' virftingu efta tillits- semi viö málsaðila nó heldur hef- ur sú regla veriö í heiöri höfð að sakborningur skuli álitinn sak- laus þar til sekt eða sýkna hefur verið sönnuð. Lögreglan kemur akandi i mörgum lögreglubilum að hinum viðurstyggilegu „eiturly fjabæl- um”. Nokkrir lögreglumenn taka sór stöðu utan við húsið, aðrir kveða dyra á misjafnlega kurt- eislegan hált, ibúum og gest- komandi smalað saman, jalnvel leitað, á þeim eða þeir fluttir i langageymslur lögreglunnar til yfirheyrslu. Varðandi húsleitir er lögreglan olt útbúin heimild til sliks en fyrir kemur að svo er ekki. 1 siðara til- vikinu eru húsleitir samt oft framkvæmdar eða þá að hús eða húshlutar eru innsiglaðir meðan beðið er eftir heimild sem getur dregist. Sem dæmi má nefna að eitt sinn réðst lögreglan inn i verslun eina hér i bæ, sýndi enga húsleitarheimild, réðst á einn við- skiptavininn og hóf á honum lik- amsleit. Létu þeir ekki af þessari iðju fyrr en eigandi búðarinnar veifaði framan i þá pappirum sem sýndu hver hann var. Yfirheyrslutaktik Til yfirheyrslu eru menn teknir án tillits til likamsástands sem stundum hefur verið bágborið. Við yfirheyrslur hafa verjð born- ar ýmsar sakir á menn — i sum- um tilvikum mjög alvarlegar — og sagt beinlinis eða gefið i skyn að lögreglan hafi sannanir fyrir áburðinum án þess að neinn stað- festur vitnisburður sé lagður l'ram. „Það þýðir ekkert að þræta, við vitum allt um þig”, er iðulega viðkvæðið. llótunum er jafnvel beitt. Ef menn makka ekki rétt að mati yfirheyrenda við fyrstu yfir- heyrslu er þeim iðulega hótað gæsluvarðhaldi eða öðrum þving- unum. Séu menn úrskurðaðir i gæslu- varðhald taka við langar og strangar yfirheyrslur dögum saman. Neiti menn að viðurkenna það sem lögreglunni þóknast að bera upp á þá er þeim oft hótað á- framhaldandi gæsluvarðhalds- vist þar til játning liggur fyrir. Til dæmis sat maður nýlega inni i þrjár vikur. Var honum sagt að Innkaupastjórar Jólavörurnar eru komnar Snyrtivðrur — llmvötn Búsóhöld — Leikföng Ljósakrónur — Lampar Spegiar o.fl. Heildverzlun ^^étur^éturóóon Wl\ Suðurgata 14 Símar 2-10-20 og 2-51-01 honum væri fyrir bestu að játa strax þvi þá munaði ekkert um að láta hann dúsa þarna fram yfir jól. Meðvitaðar ofsóknir Hvað sýnir þessi meðferð? Er lögreglan að ofsækja vissan minnihlutahóp meö áberandi handtökum og augljósum tilburð- um til að hrekja fólk úr húsnæði sinu?(Eitt sinn fengu þeir Heil- brigðiseftirlitið til að úrskurða húsnæði óibúðarhæft. Þá stóð ekki á framkvæmdum af þess hálfu þótt ekkert sé aðhafst á vinnustöðum sem margitrekaðar kvartanir hafa borist yfir). Eða er fiknilyfjadeild lögreglunnar og fiknilyfiadómstóllinn að höfða til fjárveitingavaldsins nú þegar fjárlög eru til afgreiðslu með þvi að sýna fram á hvað þeir eru nauðsynlegir og þurfi meira fé til öflugri herferða? Eitt sýnir þessi meðferð þó svo ekki verður um villst: lögreglan skirrist ekki við að beita þeim að- ferðum sem henni sýnist til að fá sinu framgengt. Jafnframt er augljóst að i aðferðum sinum skákar lögreglan i skjóli van- þekkingar fólks á rétti sinum gagnvart henni. Misbeiting gæsluvarðhaldsins og óprúttnar, ef ekki ólöglegar handtöku- og yfirheyrsluaðferðir þeirra renna stoðum undir þessa skoðun. Hvaö segir lögreglan? Við töluðum við Ásgeir Frið- jónsson yfirmann Hannsóknar- réttarins og Sigurð Hall Stefáns- son og bárum undir þá örfáar af þeim fjölmörgu sögum sem við höfum heyrt frá fyrstu hendi um framkomu lögreglunnar og hér hefur að nokkru verið getiö. Svöruðu þeir öllu neitandi: „Hér er engum hótað neinu. Gæsluvarðahaldi er einungis beitt til að einangra vitni”. Eru þessi viðbrögð ekki dálitið keimlik þeim handarþvotti sem embættismenn Landhelgisgæsl- unnar hafa haldið uppi i fjölmiðl- um að undanförnu þar sem vest- firskir skipstjórar eru gerðir að lygurum? Nú hefur komið fram sú hug- mynd að rannsókn fari fram á málefnum Gæslunnar. Vegna þess misræmis sem er á milli frá- sagna sem fiknilyfjadeildin lætur frá sér fara annars vegar og þess sem þeir sem orðið hafa fyrir barðinu á henni segja hins vegar. gerum við það að tillögu okkar að embættismönnum deildarinnar verði vikið frá meðan starfsað- ferðir þeirra eru rannsakaðar. ÞH/HS/GG Um hvað á að semja? — Siðasta þorskinn? tslenskir forráðamenn vilja nú verðlauna ofbeldismenn og ræn- ingja hennar hátignar Breta- drottningar með þvi, að veita of- beldismönnunum veiðiheimild irinán 50 sjóm. fiskveiðilögsögu okkar. 4 Hugmyndin er, að veita þessum „mönnum" veiðiheimild i næstu tvö árin eftir að þeir eru búnir aö skarka og skafa islensk fiskimið i rúmt ár frá útfærslu i 50 sjómilur, með ofbeldi. Rikisstjórn er EKKI þjóðin. Vilji þjóðarinnar skal vera grundvöllur að valdi rikis- stjórnarinnar. Þess vegna hlýtur islenska þjóðin að krefjast þjóðarat- kvæðagreiðslu i svo alvarlegu máli, að semja við Breta um framtlð okkar islendinga. t þeirri atkvæðagreiðslu gerir hver og einn tslendingur það upp við sig, hvort hann vill að lsland verði áfram sem sjálfstætt riki, sem getur staöið efnahagslega sjálfstætt. Það getum viö EKKI EF fiski- mið okkar verða eyðilögð. Hvaða tslendingur vill semja um að eyðileggja fiskimiðin og þar með grundvöllinn aö þvi, að lifa lengur á þessu fagra eylandi ÍSLANDI? Hver og einn einasti islenskur sjómaður veit, að ekki er mögu- legt að semja við aörar þjóðir um veiðirétt innan islenskrar fisk- veiðilögsögu vegna þess að fiski- stofninn er i svo mikilli hættu, hann er sem sagt i dauða- teygjunum. Um hvað á að semja? Siðasta þorskinn? Sjómaðurinn veit og gerirsér þaö fytlilega ljóst, að við lifum á fiski, þótt ýmsir virðist ekki gera sér það ljóst, jafnvel þingmenn og ráðherrar. Nú hefur það komið berlega i Ijós, að fjöldi þingmanna ætlar sér að svikja skjólstæðinga sina. Geri þeir það eiga þeir ekki lengur rétt til þess að setjast á bekki Alþingis meir. Hér á ég við þá þingmenn, sem hrópuðu og lofuðu i iðustu kosningabaráttu : ENGAR IVILNANIR VII) BRETA UM FISKVEIÐAR VII) ÍSLANI) OG ÞAD VERDUR ALDREI SAMID VID BRETA EÐA V-ÞJÓÐ- VERJA UM FISKVEIDAR innan fiskveiöilögsögu islar.ds. Að svikja kjósandann er alvar- legt og trúi ég þeim sem það gera til aö ganga i lið með ræningjum og raunar til alls, þvi það eitt er að svikja ÞJöÐINA. Svo ömurlegur er svokallaður „samningskjarni” að við eigum EKKI að fá rétt til þess að taka lögbrjóta. heldur strika þá út. Hvergi er minnst á, að Bretar hverfi frá tslandi. Vestfirðingar neita hverskonar samningaumleitunum við aðrar þjóðir um fiskveiöar á tslands- miðum og hafa staðfest það með undirskrift. Ég skora á alla hugsandi lslendinga. að þjappa sér saman gegn hverskonar samningagerð um fiskveiðar við tSLAND. Við eigum rétt til lifs án samninga um það. Patreksfirði 28.10.1973 Maguús Guðmundsson sjóm.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.