Þjóðviljinn - 02.11.1973, Page 4
4 SiDA — t»Jó»Vll,.IINN! Föstudagur 2. nóvemher l!)7:t
ÁKVÖRÐUN UM ÞJÓÐMINJASAFNSHÚS 1944
Því ekki sjóminjasafn 1974?
Sagt frá rœðu Gils Guðmundssonar á alþingi
Gils Guömundsson mælti i gær
fyrir tillögu er hann flytur — á-
samt Geir Gunnarssyni — um
byggingu sjóminjasafns islands.
íslensk nauðsyn
1 upphafi ræðu sinnar gerði Gils
grein fyrir þvi hvernig hann heföi
sjálfur kynnst sjóminjasöfnum er
hann skoðaði slik söfn í Dan-
mörku og Sviþjóð fyrir fullum 27
árum. Siðan sagði þingmaðurinn:
„En allt frá þeirri stundu er ég
sumarið 1946 horfði á danskan og
sænskan æskulýð virða fyrir sér
skip og skipslikön og spyrja um
margvislega hluti af brennandi á-
huga, hef ég verið sannfærður
um, að þaö væri bæði skylda okk-
ar Islendinga af sögulegum á-
stæðum og nauðsyn vegna sam-
tiðar og framtiðar, að koma hér
upp veglegu sjóminjasafni. Fyrst
slik söfn voru Dönum og Svium
mikiis virði og sjálfsagður liður i
varðveislu menningarsögulegra
heimilda, hversu mikilvægara
var þá ekki íslendingum að efna
til sjóminjasafns, — þjóð sem
byggði tilveru sina fyrst og
fremst á sjónum og auðlindum
hans. Og sé einhver i vafa um
fjárhagslega getu okkar til að
reisa sliktsafnahús liggur beinast
við að benda á frændur okkar i
Færeyjum, sem fyrir allmörgum
árum komu sér upp einkar snyrti-
legu og fallegu safni, þar sem öllu
er prýðilega fyrir komið.
Hugmyndin um islenskt sjó-
Magnús Torfi ólafsson mennta-
málaráöherra gerði i gær grein
fyrir frumvörpunum um skól-
akerfi og grunnskóla I neöri deild
aiþingis. Lagði ráðherra i upphafi
ræðu sinnar áherslu á megin-
stefnu þessa frumvarps, en þar er
um að ræða jöfnun námsaðstööu
og kennsluskilyrða um allt land
og að laga skólakerfið að þörfum
hvers og eins nemenda. Mark-
miðið er að jafna aðstöðu til al-
menns undirbúningsnáms og er
við þaö miöað að allir sem geta
notið almennrar menntunar hljóti
fyllsta stuðning á námsbrautinni.
Þá kvað ráðherra reynt að taka
fyllsta tillit til þess aö menn séu
misjafnlega til náms fallnir. Það
er féiagsieg nauðsyn og réttlætis-
mái aö enginn sé vegna búsetu
eða efnahags útiiokaður frá full-
gildri aimennri undirstöðumennt-
un og að sfðan eigi nemendur kost
á þeirri sérhæfingu sem þeir óska
eftir.
Þá gerði menntamálaráðherra
grein fyrir þeim breytingum sem
grunnskólafrumvarpið I núver-
andi mynd felur i sér og telja má
breytingar frá frumvarpinu eins
og pað var lagt fyrir siöast þing.
Lán til sveitar-
félaga
í nýrri gerð gerir frumvarpið
ráð fyrir aö veitt verði á fjárlög-
um ár hvert ákveðin upphæð til
þess aö lána sveitarfélögum sem
eiga við fjárhagsörðugleika að
etja, en þurfa að efna til fram-
kvæmda til þess að uppfylla
fræösluskylduna.
Fræðsluráðin
Þá er það breyting frá fyrra
frumvarpi að gert er ráð fyrir að
heimilt verði að hafa 5 til 7 menn i
minjasafn er og orðin gömul,
a.m.k. 75 ára, eins og frá er sagt i
greinargerð tillögu þeirrar, sem
hér er til umræðu. I greinargerð-
inni er einnig rakið i stórum
dráttum, hvað gerst hefur i mál-
inu fram til þessa, og skal það
ekki endurtekið”. (Greinargerðin
áður birt i Þjóðviljanum).
Ræðumaður vitnaði siðan til
greinar er hann ritaði 1946 um
nauðsyn sjóminjasafns, en þá
reyndist áhugi ekki nógur. Margt
hefur glatast á þeim tima, sem
mikil eftirsjón er i og sómt hefði
sér vel á Þjóðminjasafninu. En
þess ber að geta sem gert hefur
verið. Og þrátt fyrir allt hefur
mikið verk verið unnið undan-
farna áratugi á söfnunar- og
varðveislusviði. Gat þingmaður-
inn um söfnun Þjóðminjasafnsins
á bátum og gömlum veiðarfærum
og áhöldum. Þá minntist ræöu-
maöur á ómetanlegt söfnunar-
starf byggðasafnanna.
fræðsluráði, en menn þessir skulu
kjörnir af viökomandi lands-
hlutasamtökum. Er hér komið til
móts við óskir utan af lands-
byggöinni.
Skólatíminn
Þá er i frumvarpinu um að
ræða breytingu frá ákvæðum
upphaflegs frumvarps um skóla-
timann. Gerir frumvarpið nú ráö
fyrir þvi, aö þessar reglur gildi:
„Reglulegur starfstimi grunn-
skóla skal vera 9 mánuöir. Skal
skólaárið að jafnaöi hefjast 1.
sept. og ljúka 31. mai. 1 skóla-
hverfum þar sem helmingur
nemenda eöa meira verður að
aka til og frá skóla eöa dveljast i
heimavist, er skólanefnd, aö
fengnum meðmælum fræðsluráös
Starf Lúðvíks
Siðan sagði Gils: „Þá vil ég
ekki láta þess ógetið, sem hvað
merkilegast hefur gerst á varð-
veislusviði sjóminja undanfarna
áratugi. A ég þar við ævistarf
Lúðviks Kristjánssonar rit-
höfundar i Hafnarfirði, sem hefur
af óþrotlegri elju og vandvirkni
safnað efni i mikið rit um islenska
þjóðhætti til sjávar. Er þar um að
ræða söfnun og skráningu hvers
kyns vitneskju er snertir sjóferðir
og fiskveiðar á liðnum öldum,
jöfnum höndum um farkostina
sjálfa, seglabúnað, veiðarfæri og
allt annað, sem skipum og bátum
átti að fylgja, sem og verbúðir,
vinnubrögð á sjó og við nýtingu
afla. Má óhætt fullyrða, að meö
starfi sinu hefur Lúðvik
Kristjánsson bjargað frá tortim- .
ingu margvislegri vitneskju og
fróðleik, sem annars væri nú með
öllu glataður. Er ég ekki i nokkr-
og fræöslustjóra, heimilt að stytta
árlegan starfstima skóla allt aö
eftirtöldum lágmarkstima:
a) i I. — 3. bekk i 7 mánuöi.
b) i 4. — 6. bckk I 7 1/2 mánuð.
c) i 7. — 9. bekk i 8 l/2mánuð.
Þá er heimilt að veita öðrum
skólahverfum sérstakar undan-
þágur allt að þvi lágmarki sem
minnst var á.
Þá gerði ráðherra grein fyrir
þeim breytingum öðrum sem orð-
iö hafa milli frumvarpanna.
Lagði hann siðan til aö frumvarp-
inu yrði visað til nefndar og að
starfi hennar verði hraðað. Gunn-
ar Thoroddsen tók til máls og
viidi m.a. kveða skýrt á um að
um vafa um að hið mikla eljuverk
Lúðviks á eftir að koma islensku
sjóminjasafni að ómetanlegum
notum, hvenær sem það verður
stofnaö.
Og þar sem ég hef — að sjálf-
sögðu — vikið hér að verki Lúð-
viks Kristjánssonar sem einnig
hefur samiö ágæt rit á öðrum
sviðum islenskrar sögu og menn-
ingarsögu, langar mig til aö bæta
þessu við: Svo merkilegt er lifs-
starf þessa ágæta visindamanns,
að það væri Háskóla tslands mik-
ill heiður ef Lúðvik Kristjánsson
vildi þiggja þaðan doktorsgráðu
fyrir fágætlega mikið og gott
framlag i þágu islenskra sagnvis-
inda”.
Tvö meginatriði
Þá sagði ræðumaður:
„Þingsályktunartillaga okkar
Geirs Gunnarssonar felur i sér
grunnskólinn ætti að byggjast á
kristilegu siðgæði. Bjarni Guðna-
son kvaðst telja að stytta mætti
frumvarpið.
Bjarni taldi að kanna þyrfti
með félagslegum rannsóknum
hver áhrif framkvæmd frum-
varpsins mundi hafa á dreifbýlið.
Þá taldi ræðumaður nauðsynlegt
að tengja frumvarpið betur at-
vinnuvegum þjóðarinnar. „Mér
finnst einkenna þetta frumvarp
einhver „útópiskur” blær, óraun-
veruleikablær.”
Ennfremur tók til máls Pálmi
Jónsson (S), en siðan töluöu aftur
Bjarni Guðnason, Gunnar
Thoroddsen og menntamálaráð-
herra.
Aö umræðu lokinni var báðum
frumvörpunum visað til nefndar
og 2. umræöu.
Gils Guðmundsson.
stefnumörkin i þessu máli, og er i
aðalatriðum i tillögunni sjálfri
lögð áhersla á tvö atriði.
Hið fyrra, og það sem megin-
máli skiptir, er að taka ákvörðun
um það að alþingi feli rikisstjórn-
inni, i samráði við þjóðminja-
vörð, að hef ja nú þegar undirbún-
ing að stofnun sjóminjasafns.
Siðara atriðið, sem við flutn-
ingsmenn teljum einnig skipta
verulegu máli, er að fela stjórn-
völdum að leita samvinnu við
Hafnarfjarðarkaupstað um hent-
ugt land fyrir slikt safn, svo og
um byggingu þess og rekstur.
Yrði þá, ef samningar tækjust,
gerður sérstakur samningur milli
rikisins annars vegar, um öll
þessi atriði og skiptingu kostnað-
ar i þvi sambandi, þar sem meg-
inþunginn hlyti eðli málsins sam-
kvæmt að hvila á rikisvaidinu,
þvi hér yrði um safn allrar þjóð-
arinnar að ræða”.
Hafnarfjöröur
En af hverju benda þeir flutn-
ingsmenn á Hafnarfjörð? Um það
sagði Gils:
„1 fyrsta lagi virðist okkur
Hafnarfjörður eiga yfir einkar
hentugu landssvæði að ráða undir
slikt safn, og komi jafnvel fleiri
en einn staður til greina, þótt
einna álitlegast sé um að litast i
þessu skyni við sjóinn vestarlega
i bæjarlandinu, skammt frá þar
sem dvalarheimili aldraðra sjó-
manna mun risa af grunni...
í öðru lagi teljum við Hafnar-
fjörð vel að þvi kominn, sem
gamlan siglinga- og útgerðarstað,
að Sjóminjasafn lslands risi þar
af grunni...
Þriðja og mikilvægasta ástæð-
an til þess að við flutningsmenn
bendum á Hafnarfjörð sem æski-
legan stað fyrir Sjóminjasafn fs-
lands, er sú að þar i bæ er vakn-
aður verulegur áhugi á þvi að
slikt safn megi risa þar, enda þótt
það yrði sameign þjóðarinnar
allrar”.
Þá kvaðst Gils hafa rætt mál
þetta við þjóðminjavörð, sem
teldi ekkert þvi til fyrirstöðu að
safnið risi i Hafnarfirði.
Rœtt um frumvarp til hjúkrunarlaga á alþingi:
Verða það nú hjúkrunarfrœðingar?
Rœtt um ný starfsheiti hjúkrunarfólks
Magnús Kjartansson heil-
brigðismálaráöherra mælti i
gær fyrir lagafrumvarpi ríkis-
stjórnarinnar til hjúkrunar-
laga. Ráðherra kvað frum-
varpið — sem var lauslega
sagt frá hér á þingsiðunni i
gær — vera niðurstöðu endur-
skoðunar gildandi hjúkrunar-
laga. Hefði endurskoðunin
verið talin nauðsyn, þar sem i
gildandi lög vantaöi ákvæði
um réttindi þeirra sem hefðu
aflað sér sérmenntunar i
hjúkrunarfræðum. Talsvert
hefði verið um það að
hjúkrunarfólk heföi aflað sér
menntunar á sérsviði, einkum
erlendis. Þó væri hér á landi
kostur á nokkru sérnámi, sem
þyrfti aö aukast.
1 frumvarpinu er gert ráð
fyrir þvi að heilbrigðisráöu-
neytið veiti hjúkrunarleyfi, en
nú eru hjúkrunarskólarnir
orðnir tveir og námsbraut i
hjúkrunarfræöum tekin til
starfa i háskólanum.
Ráðherrann skýrði loks frá
þvi aö i athugun væri nýtt nafn
handa hjúkrunarfólki, þar
sem jafnan væri talaö um
h j ú k r u n a r m e n n og
hjúkrunarkonur. Hefðu veriö
nefndar hugmyndir eins og
„hjúkrunarfræðingar”,
iÍ^l,riT'r” —„beveist eins og
i^íí.T; 9§ fAeiri hugmyndir
hefðu komiö fram.
Að lokinni ræðu ráðherra
tók Oddur ólafsson (S) til
máls, en siðan var málinu
visað til nefndar og 2. umræðu
i deildinni — efri deild.
Grunnskólafrumvarpið á dagskránni í gœr:
Heimild til styttingar
skólatíma rýmkuð
þíngsjá þjóðviljans