Þjóðviljinn - 02.11.1973, Síða 11
Fiinmtudagur t. nóvember ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Fram Reykjavíkurmeistari
Framarar urðu Reykja-
víkurmeistarar sl. mið-
vikudagskvöld með þvi að
sigra Val i úrslitum 18:13 og
var sá sigur sanngjarn mið-
að við hve hörmulega slak-
an leik islandsmeistararnir
áttu. Það munu ár og dagur
sóðan Vals-vörnin fræga
hefur átt svo slakan dag.
Og ástæðan?. Jú, einfald-
lega sú að Fram notaði sitt
gamla bragð að leika
gönguhandknattleik og
svæfa Vals-vörnina. Þetta
bragð hefur Fram notað
gegn Val undanfarin ár
með góðum árangri. Og við
þessu er auövitað ekkert að
segja fyrst dómarar leyfa
þetta, þrátt fyrir skýlaus
ákvæði iaganna um að
dæma tafir á lið sem ekki
ógnar langtímum saman
eins og Fram gerði i fyrra-
kvöld. Sumar sóknarlotur
Framara stóðu i allt að 5
minútur án þess að þeir
reyndu að ógna, en hörmu-
lega lélegir dómarar gerðu
ekki neitt. Þar að auki að
Jón Sigurðsson, markvörð-
ur Fram, átti stjörnuleik og
varði frábærlega vel, enda
lá Valsmönnum svo á i
sókninni þá loks þeir fengu
boltann aö mörg skot þeirra
voru vanhugsuð og ótima-
Keykjavlkurmeistarar Fram I!»7:t ásanit þjálfara,.liítsstjóra (»K furmanni handknaltleiksdeildar. (I.jósm. <*SI*>
.
g' ■■
Mf ' 2 U
1
fe 'i&f: '
fe>:v , ; 'r
bær.
Maður hefði haldið, að Vals-
menn væru orðnir svo vanir
gönguhandknattleik að þeir létu
ekki fella sig á svo einföldu
bragði, en svo var alls ekki. Þeir
féllu i þá gryfju að skjóta i tima
og ótima þegar þeir loks fengu
boltann og fyrir bragðið var afar
auðvelt fyrir markvörð Fram að
verja skot þeirra auk þess sem
þetta auðveldaði Fram vörnina.
Framarar aftur á móti héldu
rósemi sinni allan leikinn og töfðu
allt sem þeir gátu og skutu ekki
nema i dauðafærum. Dómararnir
Óli Olsen og Björn Kristjánsson
sáu ekki ástæðu til að dæma töf á
Fram-liöið þrátt fyrir þetta, fyrr
en tæpar 2 minútur voru til leiks-
loka og á þeim tima skoruðu
Valsmenn 3 mörk gegn 1.
Við þetta bættist svo að Vals-
Framhald á bls. 14
Obreytt landslið
gegn Frökkum
ísland verður að leika við Ítalíu
A hlaðnmannafundi i gær
var tilkynnt að island yrði að
lcika við italiu i undankeppni
IIM i handknattleik, en eins og
menn muna var búist við að
italir yrðu að vikja úr keppn-
inni vegn framkomu sinnar á
dögunuin þegar islenska
landsliðið varð að biða i 2
sólarhringa i Kóm, en engir
komu dóniararnir. Þetla er al-
gert rciðarslag fyrir íslenska
liðið, þegar þess er gætt að það
verðurað leika gegn Frökkum
á sunnudaginn, án þess að vita
hvc stórt þarf að sigra til að
komast áfram. Þar að auki
hefur verið ákveðið að siðasti
leikurinn i riðlinum verði milli
Frakka og itala.
Kn livað um það, leikurinn
við Frakka fer fram á sunnu-
daginn kemur i Laugardals-
höllinni, og landslið íslands er
óbreytt frá fyrri leiknum
nema livað Hjalti Einarsson
kemur i liðið, og Geir IIaII-
steinsson. Er liðið þá þannig
skipað:
Hjalti Einarsson FH
Gunnar Einarsson Haukum
Gunnsteinn Skúlason Val,
fvrirliði
Geir Hallsteinsson FH
Viðar Simonarson FH
Einar Magnússon Vikingi
Björgvin Björgvinsson Fram
Ólafur H. Jónsspn Val
Hörður Sigmarsson flaukum
Auðunn Óskarsson FH
Axel Axelsson Fram
Agúst Ogmundsson Val.
Fra m kom a la ndsliðsn ef nd -
ar er i einu orði sagt hneyksli
livað vali þessa liðs viðkemur.
Þetta er svo til óbreytt lið frá
fyrri leiknum, neina livað (jeir
er sóttur og lljalti kemur i lið-
ið, en þetta lið tapaði fyrir þvi
franska með 3ja marka mun.
Enn er mönnum eins og Ólafi
Benediktssy ni og Stefáni
Gunnarssyni haldið utan liðs-
ins, og raunar fleiri sterkir
menn scm fastlega kæmu til
greina, en samt er hausnum
barið við steininn og eins litlu
breytt og hugsanlegt er.
Þar ofan á bætist svo, að
sumir segja að hún springi
innan tiðar; samstarfsgrund-
völlur sé ekki lengur fyrir
hendi. Það sé aðeins beðið eft-
ir þvi hvort það kraftaverk
gerist að islenska liðið komist
ilIM. S.dór
Víkingursigraði
Þrótt án átaka
og hlaut þar með 5. sætið í mótinu
Vikingur átti ekki i nein-
um minnstu erfiðleikum
með að sigra Þrótt i úrslita-
leiknum um 5. og 6. sæti
Reykjavíkurmótsins 21:13.
Var sá munur síst of mikill
miðað við gang leiksins.en
skotnýting Víkinga var
ekki uppá það besta. Þrótt-
urolli vonbrigðum að þessu
sinni. Liðið hefur sýnt mjög
skemmtilega leiki i'mótinu
en nú brást þvi algerlega
bogalistin og var aldrei
neinn broddur í leik liðsins.
Vikingar byrjuðu af miklum
krafti og komust i 6:1 og þar með
var gert út um leikinn, þótt ekki
væru liðnar nema 10 minútur. En
þá var eins og liðið legðist i dvala
og Þróttarar náðu sinum besta
leikkafla og minnkuðu muninn
niöur i eitt mark, 6:5.
Þá fór Vikingsliðið aftur i gang
og i leikhléi var staðan orðin 9:6. 1
siðari hálfleik breikkuðu Viking-
ar bilið jafnl og þétt, 10:6, 14:6,
16:11, 21:11 og lokatölurnar uröu
cins.og áður segir 21:13 sigur Vik-
ings.
Ekki er hægt að dæma Vikinga
eftir þessum leik, lil þess var
Þróttarliðið of veikt. En manni
virðist sem Einar Magnússon
njóti sin betur ef Jón Hjaltalin er
ekki með Vikingi, eins og að þessu
sinni. Einar álti mjög góðan leik.
Bæði ógnaöi hann vel og skoraði
mörk, auk þess sem hann átti
fjöldann allan af fallegum linu-
sendingum sem gáfu mörk. Hins
vegar var varnarleikur liösins
ekki upp á marga fiska frekar en
fyrri daginn, einna helst að Guð-
jón Magnússon kynni þá list.
Nokkra athygli vekur að manni
sýnist á leik Vikings-liðsins sem
það sé ekki i sem bestri æfingu,
hvaö sem veldur.
Júdó-námskeið fyrir
byrjendur á
Júdófélag Keykjavikur efnir til
júdónámskciðs fyrir byrjendur,
sem hefst miðvikudaginn 7. nóv-
ember n.k. og stendur til 5.
dcsember n.k. Kennt verður i
eina klst. i senn, kl. 19 til 20 á ntið-
vikudögum og 13 lil 14 á laugar-
döguin. Tékkneski þjálfarinn
Michal Vachun, 4. dan, mun
kenna á miövikudögum, og einn
af okkar reyndustu keppnismönn-
um, Sigurður Kr. Jóhannsson, 1.
dan. kennir á laugardögum.
vegum JR
Hér er gott tækifæri til aö kynn-
ast júdó hjá reyndum mönnum.
Michal Vachun er auk þess að
verða einn af reyndustu og bestu
keppnismönnum Evrópu, há-
skólamenntaður iþróttakennari,
og hefur sú menntun ekki litið að
segja við þá alhliðaþjálfun, sem
þarf við júdóæfingar.
Júdófélag Reykjavikur hefur
aðsetur i Skipholti 21, inngangur
Nóatúnsmegin.
Umsjón Sigurdór Sigurdórsson