Þjóðviljinn - 02.11.1973, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 02.11.1973, Blaðsíða 15
Köstudagur 2. uóvember 1973 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 UMSJÓN: SJ HEIMS- PRESSAN lingir l'iðluleikarar mættu nv- lega til keppni i Lissabon og deildu Ida Kalavian frd Banda- rikjunum og Gerardo Riviero frá Portúgal með sér fyrstu verð- laununum sem voru 4000 dollarar. ■ A6 uudanförnu helur hi6 ill- ræmda fangelsi Aleatras vi6 San Fransiskó verið almenningi til sýms, og hafa ferjumenn ekki haft undan að l'lytja forvitið fólk lil staðarins. Ilætl var að reka þetta langelsi árið 1903 vegna of mikils kostnaðar. l’atriek White, sem fókk Nóbelsverðlaunin i bókmenntum i ár (120 þúsund dollara), hefur á- kveðið að verja þessu fó til ár- legrar viðurkenningar handa áströlskum rithöfundum. Keitli Hichardgitarleikari hjá Holling Stones var nýlega dæmd- ur i 205 punda sekl lyrir notkun eiturlyfja og ólöglega meðferð skotvopna. lClvis 1‘resley, siingvarinn kunni, sem nú er 38 ára og nýskil- inn, hefur undanlarið verið á spit- ala i Bandarikjunum, þreyttur á taugum. l na-sta mánuði ætlar Anna prinsessa að giftast Mark Phillips kafteini, og hún mun lofa þvi að „hlýða” maka sinum. Kven- rótt indakonur i Knglandi hafa einmitt verið að berjast gegn þvi að þetta orð verði notað Iramveg- is við giftingaralhalnir og höfðu vonast eftir þvi að Anna prinsessa riði á vaðið, en Anna tetlar sem sagt að verða „hlýðin” i hjóna- handinu. Duke Kllington, sem er orðinn 74 ára, hólt á dögunum konsert i Westminster Abbey kirkjunni og frumflutti þar tónlist, sem hann tileinkaði Sameinuðu þjóðunum. Detta er i fyrsta skipti sem jass - konsert er fluttur i hinni frægu kirkju. Þessi ágæta ljósmynd fckk viðurkenningu i ljósmyndasam- keppni i Danmörku er fjallaði um dýr i dýragarði. Þátttaka I ÚR MYNDASAFNINU Tollvarðafélag íslands hefur gefið út tvö eintök af málgagni sinu Tolltiðindum. Að sjálf- sögðu fjallar blaðið fyrst og fremst um ýmis félagsmál, en þar er þó að finna glettnar greinar og birtum við hér með tvö sýnishorn: Fuglalíf Fyrir allnokkrum ár- um voru sendir til Reykja- vikur, að gjöf frá er- lendri vinaborg, fuglar stór- ir og fagrir. Ýmsir voru staddir á flugvelli til móttöku á þessum innflytjendum, og að sjálfsögðu þar á meðal toll- gæslumenn. Að loknum helstu formsatriðum iengu réttir við- takendur leyfi til þess að flytja dýrin til si-nna nýju heim- kynna. Þá er fuglar þessir voru „nýflognir” ekur bifreið að flugstöðinni og fer geyst. út úr bifreiðinni snarast maður með fasi nokkru og spyr hvar fuglarnir séu niðurkomnir. Við svörum verður forsvars- PLOKK maður viðstaddra tollvarða og segist hafa veitt heimild til af- hendingar fuglanna, enda réttum viðtakanda með full- gilda pappira. Bregður komu- manni þá mjög, segist vera á- byrgur fyrir heilsufari lands- ins dýra og spyr hvort toll- menn viti ekki að fuglar þessir gætu borið bráðsmitandi sjúkdóma, stórhættulega öll- um búfénaði, og hvers vegna i ósköpunum fuglunum hafi verið hleypt inn i landið án sinnar heimildar. Tollheimtu- manninn setti hljóðan augna- blik, en siðan svarar hann af hægð: Segið mér þá eitt, hvað með allar lóurnar og spó- ana?” Hundalíf t fyrravor kom til landsins sending ein fyrirferðarlitil. Þá er tollverðir opnuðu sending- una var þar að finna krukku dularfulla og i henni undarlegt duft. Minnugir þess aö lands- menn treysta þvi, að tollgæsl- an sinni hlutverki sinu með sóma og verji landið erlendum plágum, kölluðu tollverðir sér til halds og trausts sórfræðing sinn i þeim efnum, hundinn Prins. Lótu þeir hann kanna innihald krukkunnar. Kkki taldi hann að hun hefði að geyma nein þau efni ha-ttuleg er hann þekkti. Var nú haft samband við eiganda sendingarinnar, og hann boðaður á ákveðnum tima næsta dag, ef svo vel vildi til, að hann renndi grun i hvað verið væri að senda hon- um. A tilsettum tima næsta dag sat yfirmaður viðkomandi tolldeildar i skonsu sinni með krukkuna á skrifborðinu og beiðeigenda. Þá er koma hans dróst nokkuð, opnaði tollmað- urinn krukkuna af rælni, drap ihana fingri, veiddi upp nokk- ur korn og bar að vörum sér. Sem hann sleikir l'ingurinn verður honum litið upp og sér þá standa i dyrunum unga konu, ekki ósnotra. Stúlkan var nánast stjörf af skell'ingu og hryllingi, en hrópar svo i örvæntingu: ,,Hjálp, hjálp, hann er að éta hana ömmu!” Matreiðsla og þjónusta Sá hvitklæddi með hendur á mjöðmum heitir Kjörn Ólafs- son og er cinn af átta mat- reiöslunemum llótel- og veitingaþjónaskólans, sem er að Ijúka prófum i ár. i fyrra- dag mátti sjá verklegan árangur kennslunnar i salar- kynnum Sjómannaskólans og kom þar margt manna til að lita á hvernig nemarnir hefðu leyst sin verkcfni. Þarna voru lika fagurlega skreytt borð, en senn bætast i hóp þjóna fimm nýir liðsntenn. Kr athyglisvert að þessi fimm manna hópur hefur allur verið i læri hjá Hótel Loftleiöum. Námstim- inn hjá matreiðslumönnum er fjögur ár, en þrjú ár hjá þjón- um. Björn ætlar nú að byrja að vinna hjá Brauðbæ, en form- leg skólaslit verða siðar. SALON GAHLIN samkeppninni var óvenju góð og voru sendar nær 300 myndir, ýmist svarthvitar eða lit- m vndir. SÍÐAN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.