Þjóðviljinn - 10.11.1973, Síða 1

Þjóðviljinn - 10.11.1973, Síða 1
Laugardagur 10. nóvember 1973 38. ágr. 259. tbl. ÞAÐ BORGAR SIG AÐ VERZLA f KRON AF BRASKI EYKONS MORGUNBL AÐSRITST J ÓR A 150 þúsund gefa af sér 50 miljónir! Öxnalækur í ölfusi er i eigu „hins góðkunna at- hafnamanns" Eyjólfs Konráðs Jónssonar Morgunblaðsritstjóra. Réttara væri kannski að segja var. Margsinnis hefur Eyjólfur seit spildur úr landi sínu og nú síðast 13ha. til Hvergerðinga fyrir 6.5 milj. Fasteignamat jarðarinnar er 150 þús. og skal nú tínt til hvert verð Eykoninn hefur fengið fyrir spildur úr þessu 150 þús. króna landi. Vegagerð rikisins vegna vega- lagningar um Oxnalæk 1 miljón, 394 þúsund krónur. Hveragerðishreppur, 13 ha. fyrir norðan þjóðveginn austur i sveitir 6 milj. 500 þúsund krónur. 12 hektarar til einstaklinga norðan þjóðvegar, 150 kr. pr, fer- meter, samt. 18 miljónir. Landsvirkjun vegna lagnar há- spennulinu yfir landi öxnalækjar. Kröfur ekki fram komnar. Lög- fræðingur Landsvirkjunar, Hjört- ur Torfason, mun væntanlega semja um verðið við eiganda öxnalækjar, eða við lögfræði skrifstofu þá sem annast umsvif Eykons, j)að er lögfræðistofa Eyjólfs Konrúðs Jónssonar og Hjartar Torfasonar'. Eftir er að selja sunnan vegar 25 ha. og ef að likum lætur nær Eykon sér þar i svipaða upphæð og fyrir 25 hektarana norðan vegar tæpar 25 miljónir. Samtals hefur Eykon þvi fengið 25 miljónir 894 þúsund krónur og á liklega eftir að fá annað eins. Það eru þvi dýrðartimar á fs- landi fyrir braskara, þvi varla er hægt að mótmæla þvi að gott er að eiga eign upp á 150 þúsund sem gefa mun af sér 50 skattfriar mil- jónir án þess aö i hana sé eytt eyrisvirði. -úþ Ragnar Arnalds með tillögu á alþingi: Votmúlamál útilokuð með lagasetningu Er frumvarp ríkisstjórn- arinnar til jaröalaga var til umræðu i efri deild alþing- is í fyrradag, lagði Ragnar Arnalds, formaður Al- þýðubandalagsins fram tillögu, er miðar að því að koma í veg fyrir, að brask- arar geti náð í sinn hlut stórfelldum gróða með kaupum og sölu á landi, sem hækkar ört i verði, vegna þróunar kaupstaða eða kauptúna i nágrenninu. 27, grein frumvarpsins er á þessa leið: ,,Sé söluverð eignar ó- eðlilega hátt, miðað við liklegt raunverð að áliti byggðaráðs, getur forkaupsréttarhafi krafist mats dómkvaddra manna á eign- inni, og gildir það þá sem sölu- verð.” Ragnar sagði, að i slikum til- vikum væri samkvæmt núgild- andi lögum jafnan miðað við markaðsverð, en hvað það snertir teldi hann rétt aö gera undan- tekningu, þegar hugsanlegt sölu- verö lands hefði tekið stökkbreyt- ingum, vegna þróunar þéttbýlis- svæðis .i næsta nágrenni. Siðan lagði Ragnar fram tillögu sina, sem kæmi aftan við 27.gr. frum- varpsins, og var á þessa leiö: „Við matiö skal ekki taka tillit til vcröhækkunar, sem stafar af þvi, aö skipulagt þéttbýlissvæöi, sbr. 4. gr. þcssara laga, er aö byggjast upp i næsta nágrenni og veldur ó- venjulegri eftirspurn eftir landi, hcldur ber að miöa verðmæti hliöstæöra eigna fjarri skipulags- skyldum þcttbýlissvæöum.” Ragnar sagði, það alkunnugt að oft ætti sér stað gifurleg verð- Framhald á bls. 14 Stjórn Alþýðubandalagsins Á fundi miðstjórnar Alþýðu- bandaiagsins á miðvikudags- kvöld var kjörin ný fram- kvæmdastjórn flokksins. 1 framkvæmdastjórn eiga nú sæti formaður, varaformaður og ritari flokksins, þau Ragnar Arnalds, Adda Bára Sigfúsdóttir og Jón Snorri Þorleifsson, en auk þeirra kaus miðstjórn eftirtalda félaga: Lúðvik Jósepsson, ráðherra, Magnús Kjartans- son, ráðherra, Sigurð Magnússon, rafvélavirkja, Guðjón Jónsson, form. Félags járniðnaðarmanna, Ólaf R. Einarsson, kennara og Sigur- jón Pétursson, borgarráðs- mann. Varamenn voru kjörnir Svava Jakobsdóttir, al- þingism. óttar Proppé, starfs- maður Alþýðubandalagsins, og Haukur Helgason, hag fræðingur. ÞURR HELGI FRAM- UNDAN Verkfall framreiðslumanna hófst á hádegi i gær. Eftir þann tima fá ekki aðrir notið þjónustu á hótelum borgarinnar en þeir sem skráðir eru gcstir þeirra. Na'sti l'undur deiluaðila verður á þriðjudag. A siðasta fundi aðila deilunnar, en hann var á föstudaginn, lögðu þjónar fram tilboð að vinna þar til samningar tækjust eins og ekkert hefði i skorist ef þeir fengju þess i stað gert upp frá 1. nóvember eflir þeim samningum sem takast kunna. Þessu hafnaði sveit veitinga- húsaeigenda, og þvi verða bar- mennin i höfuðstaðnum að láta sér það vel lynda að drekka i heimahúsum. -pþ BHM gagnrýnir ASÍ og BSRB Bandalag háskólamanna hefur sent frá sér ályktun þar scm gagnrýnd er afstaða Alþýðusam- bands Islands til visitölumálsins. Telur BIIM að með afstöðu ASl væri brotið blað i samskiptum launamanna ,,og er slikt aðeins til þess lallið að koma af stað illind- um milli launþega innbyrðis” eins og segir i ályktun Bandalags háskólamanna Irá 8. nóv. sem blaðinu barst i gær. Telur lundurinn að kröfur ASl um visitöluskerðingu á laun sem eru hærri en 50 þúsund á mánuði bitni á launþegum, sem ekki eru innan ASl. Einnig er talað um lilraunir BSRB til að hafa áhrif á kjaramál BHM með þvi að setja fram krölur fyrir launaflokka, sem eru að mestu leyti skipaðir háskólamönnum. OSLO 9/11. — Norsku oliufélögin Shell, Esso og BP óttast það að þau neyðist til þess að draga úr innflutningi um 15% á næstunni sökum oliuskortsins sem gerir nú hvarvetna vart við sig i Vestur- Evrópu vegna aögerða Araba. Móðurfélag Esso, sem er Exxon-hringurinn i New York, hefur tilkynnt aö oliusölutak- markanir Araba hafi nú þegar haft þau áhrif að það oliumagn sem hringurinn fær daglega til starfsemi sinnar minnki um 190 miljónir litra eöa um 17%. Gildi samstarfs- ins er meira en GALLAR samningsins Þjóðviljanum er skylt að leiðrétta villu i fyrirsögn á for- siðuviðtali blaösins i gær við Ragnar Arnalds formann Al- þýðubandalagsins. 1 viðtalinu er rætt um samningana sem nú eru mest á dagskrá við Breta. Fyrirsögnin átti að hljóða svo: Gildi samstarfsins er meira en gallar samningsins. Þjóðviljinn biður lesendur sina velvirðingar á þessum mistökum.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.