Þjóðviljinn - 10.11.1973, Síða 10

Þjóðviljinn - 10.11.1973, Síða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 10. nóvember 1973. Réttarhöld yfir þremur portúgölskum skáldkonum vekja heimsathygli „Sá sem gefur sig ástinni á vald er þjáningunni ofurseld- ur”. Svo hljóðar portúgalskur málsháttur. Sú þjáning er þó alveg ákveðið ekkert á móti þeirri reynslu, sem sá verður fyrir er fjallar um ástina i bókmenntum. Það hafa þrjár portúgalskar konur mátt sanna. Kéttarhöld gegn þeim hófust tuttugasta og fimmta október sl. Málið gegn þessum þremur portúgölsku rithöfundum hef- ur ekki einungis verið á hvers manns vörum i Portúgal, heldur og vakið mikla athygli erlendis. Þegar portúgölsku yfirvöldin handtóku skáldkon- urnar þrjár árið sem leið, stóðu erlend kvennasamtök fyrir mótmælaaðgerðum I tólf vestrænum stórborgum. Landssamband bandariskra kvenna samþykkti á ráðstefnu að láta þetta mál ganga fyrir öllum öðrum málum kvenna á alþjóðavettvangi. Heims- þekk,tir rithöfundar i Bret- landi, Bandarikjunum og öðr- um vestrænum löndum hafa lika mótmælt handtökunum. Hinar þrjár ákærðu eru Mária Isabel Barreno, Maria Velho da Costa og Maria Ter- esa Horta. (Almenningur kall- ar þær nú „Mariurnar þrjár”, en svo heitir stjörnumerkið Orion lika i alþýðumunni). Allar hafa þær áður sent frá sér bókmenntaverk, en of- sóknirnar gegn þeim hófust út af bók, sem þær skrifuðu sam- an. Sú bók heitir „Ný portúg- ölsk bréf ”, og er þar á sniðug- an hátt höfðað til frægrar bók- ar, „Bréf frá portúgalskri nunnu”, sem er frá árinu 1659 og fjallar um eldheitar ástir fransks liðsforingja og portu- galskrar nunnu. Atlar eru höfundarnir á fer- tugsaldri, giftar og eiga börn. Kftir að bókin kom út, voru þær fangelsaðar og sakaðar um að hafa „misnotað prent- frclsið” og „misboðið opin- beru siðferði". Bókin var tekin út umferð og bönnuð, og höf- undarnir geta átt von á tveggja ára fangelsisdómi fyrir vikið. Vegna þeirrar miklu at- hygli, sem málið hefur vakið erlendis, er þó hugsanlegt að þær sleppi með sektargreiðsl- ur. Maria Teresa Horta hefur áður gefið út niu bækur, og var ein þeirra kvæðabók — bönn- uö. Hinar Mariurnar tvær eru starfsmenn efnahagsráðu- neytisins og mega búast við uppsögn að felldum dómi. Taf- ist hefur að hefja réttarhöldin i fimmtán mánuði, og er ástæð- an til þess að Maria Horta veiktist af berklum. Þær hafa nú allar þrjár verið látnar lausar gegn tryggingu. I sameiginlegri bók sinni, sem inniheldur bæði ljóð og laust mál, láta skáldkonurnar þrjár i Ijós fordæmingu sina á stöðu konunnar i portúgalska samfélaginu. Portúgölsku yf- irvöldin segja að bókin sé „klámfengin”. Hið fjörutiu ára einræöisskeið Salazars einkenndist af útvortis guðs- frukti og dyggðarhræsni, sem gerði Portúgal að siöferðis- strangasta landi Vestur- Evrópu, að minnsta kosti á yfirboröinu. Salazar var sjálf- ur skólaður af jesúitum og feiminn piparsveinn alla ævi. 1963 var vændi bannað i land- inu og vændishúsunum lokað. Engu að siður er talið að vændiskonur séu fleiri i land- inu nú en þá, og voru þær þó þegar bannið gekk i gildi þrjá- tiu þúsund i Lissabon einni. Kynvillingar eru handteknir. 1967 var stjórn Salazars að falli komin vegna vændis- hneykslis, sem allmargir menn i hæstu stöðum voru ílæktir i (að sjálfsögðu var þeim ekki stefnt fyrir rétt) og var athyglisvert einkum vegna spillingar og öfugugga- háttar þeirra sem hlut áttu að máli. „Bannhelgin á kynlifinu hefur haft slik afskræmandi á- hrif”, sagði skáldkonan Isabel da Nóbrega við mig, „að karl- menn hvisla klámyrðum að konum á götunum, þegar þeir i raun og veru vilja slá þeim gullhamra”. 1 Portúgal er staða konunn- ar mestanpart ennþá sú sama og verið hefur i aldaraðir, jafnvel ennfrekar en á Spáni. Eftir aðra heimsstyr jöld reyndu fáeinar konur að fá þvi framgengt að kvenþjóð lands- ins fengi kosningarétt, en stjórnin bannaði hreyfingu þeirra og kvað hana grafa undan samfélaginu og ástunda fjandskap við rikið. „Dagur móðurinnar” er hátiðlegur haldinn með mikilli viöhöfn og tekur forseti landsins þá á móti barnflestu fjölskyldun- um. Siðan Marcello Caetano tók við af Salazar hafa konur fengiðkosningarétt næstum til Eftir Halldór Sigurðsson jafns við karlmenn. Það breytir varla miklu fyrir stjórnina, sem sjá má af þvi að við þingkosningarnar núna fyrir mánaðamótin bauð að- eins einn flokkur fram — svo- kallaður einingarflokkur Cae- tanos. En lagalega séð hafa konur enn ekki jafnrétti við karl- menn, þótt giftar konur þurfi að visu ekki lengur leyfi karl- mannsins til þess að ferðast erlendis. Þegar umbótalög nokkur gengu i gildi 1966 lýsti Varela dómsmálaráðherra þvi yfir, að þessi nýju lög um borgaraleg réttindi „færu ekki út i þær fáránlegu öfgar að hjón væru jöfn fyrir lögun- um”. Karlmaðurinn væri kon- unni æðri vegna „ójafnræðis frá náttúrunnar hendi, sem stæði mjög djúpt”. „Nú er nóg komið! Það er kominn timi til þess að við hrópum það upp og myndum viglinu úr likömum okkar”, yfirlýsa Mariurnar þrjár i bókinni. En þær hafa ekki einungis komið illa við siðferðilegar viðmiðanir i samfélagi, sem aldrei hefur þekkt annað en einræðisstjórnir i ýmsum myndum og karlræði, heldur og — og það er öllu alvarlegra, lagalega séö — lög um prent- frelsi, sem gengu i gildi árið sem leið og Caetano yfirlýsti að „mörkuðu timamót i sögu portúgalskrar , blaðaútgáfu”. Lög þessi hafa sinar sniðugu hliðar. 1 þeim felst að hætt er að ritskoða blöð og bækur fyrir útkomu, en hinsvegar eru blaðamenn og rithöfundar þvingaðir til sjálfsritskoðun- ar, hvað hefur reynst miklu á- hrifameira, eins og búist var við. Ritskoðararnir skipta sér sem sagt ekki af ritsmiðunum fyrr en þær eru komnar út, en telji þeir þá að lögunum hafi verið misboðið, þá dugir úr- skurður þeirra einn til þess að yfirvöldin liti á þann ákærða sem glæpamann. Sá brotlegi getur átt von á þriggja til tutt- ugu og fjögurra mánaða fang- elsi og sektum upp á 75.000 til 900.000 krónur. „Samfélagið og kúgun þess”, skrifar Maria Velho da Costa, „er ekki einungis sköp- unarverk karlmannanna, heldur og þess sem sagan hef- ur byggt upp i aldanna rás og hugsanamunstra, sem þrúga okkur öllum”. Það er ónota- lega athyglisvert að kúgun af versta tagi. gagnvart þeim, sem hugsa öðruvisi en valda- aðilar, á sér stað i samfélög- um, sem auglýsa sig sem hina sönnu mannkynsfrelsara. Það á jafnt við um viss sósialisk lönd og „brautryðjendasam- félag margra litarhátta”, ný- lendustyrjaidarikið Portúgal. Örfáar sýningar eft ir á Ögurstundinni Þetta segja kennarar á Austurlandi Um kjara- mál, nám- skeið og námstjóra Aöalfundur kennarasambands Austurlands var haidinn á Vopna- firði dagana 15. og 16. september siöastliöinn. Erindi fluttu á fundinum Kári Arnórsson skólastjóri, Ingi Kristinsson skólastjóri og Ingvar Sigurgeirsson kennari. Stjórn sambandsins skipa Steinn Stefánsson, Guðmundur Þórðarson, Jóhann Hansson og til vara Valgeir Sigurðsson, allir á Seyðisfirði. Eftirfarandi samþykktir voru gerðar: Námsstjóri Aðalfundur Kennarasambands Austurlands, haldinn á Vopna- firði 15. og 16. september 1973 beinir þeirri eindregnu ósk til menntamálaráðherra að hann hlutist til um að settur verði hið fyrsta til starfa hér á Austurlandi námstjóri með búsetu i fjórð- ungnum. Kjarainál Aðalfundur Kennarasambands Austurlands, haldinn á Vopna- firði 15. og 16. september 1973, lýsir fyllsta stuðningi við fram komin frumdrög launa og kjara- nefndar SIB að sérkröfum vegna væntanlegra kjarasamninga. Fundurinn leggur sérstaka áherslu á eftirtaldar kröfur: 1. Stytting kennsluskyldunnar i 30 klukkustundir á viku. 2. Að rikið greiði staðaruppbætur til kennara i dreifbýlinu, þar sem það er staðreynd, að mörg sveitarfélög greiða nú þegar staðaruppbætur, sem skapa óvið- unandi misrétti milli skóla og einnig milli kennara innan sömu stofnunar. Askorun Aðalfundur Kennarasambands Austurlands, haldinn á Vopna- firði dagana 15. og 16. september 1973, harmar hve litil tengsl virðast vera milli nýsköpunar námsefnis og kennsluhátta, sem á sér stað á skyldustigi annars vegar, og Kennaraháskóla Islands hins vegar. Yfirleitt munu nýútskrifaðir kennarar verða að sækja námskeið á þessu sviði, áður en þeir hefja kennslustarf. Aðalfundurinn telur þetta ástand óviðunandi og skorar á Kennaraháskóla Islands að bæta ráð sitt i þessum efnum. Namskeið Aðalfundur Kennarasambands Austurlands, haldinn á Vopna- firði dagana 15. og 16. september 1973, beinir þeim eindregnu til- mælum til menntamálaráðu- neytisins, að það sjái svo um að kennaranámskeið verði i fram- tiðinni eigi siður haldin á Austur- landi, en i öðrum landshlutum. Fundurinn litur svo á, að slikt sé vænlegt til örvunar á sviði skóla- mála i fjórðungnum, auki auk þess tengsl manna og land- kynningu Verkakvenna félagið Framsókn Basar félagsins verður 1. des. Vinsamlegast komið gjöfum I skrifstofu félagsins sem allra fyrst. Stjórnin Basar Kvenfélags Laugarnessóknar verður laugardag 10. nóv. kl. 2 i Laugarnesskóla. A boð- stólum kökur, lukkupakkar, prjónavörur o.fl. Stjórnin. Prentvillu- púkinnáferð 1 frásögn Þjóðviljans á fimmtudaginn var af tillögu Oddu Báru Sigfúsdóttur i borgarstjórn um samstarfs- nefndir kennara, foreldra og nemenda við skóla borgarinnar slæddust nokkrar prentvillur, sem nauðsynlegt er að leiðrétta. Meinlegasta villan var i sam- bandi Við tilvitnun i könnun á samfelldni, en þar stendur að gefið hafi veriö i verkefninu að sundlaug þyrfti að vera við hvern skóla og það atriði nemi i kostnaðaráætlun 210 miljónum króna, miðað við að hver laug kosti 4 miljónir, en á að vera 14 miljónir hver laug. Þá segir, að bréf skólastjóra Vogaskóla hafi borist fræðsluráði 4 dögum eftir að tillaga öddu Báru var lögð fyrir borgarstjórn, en á að vera áður. Að lokum brengluðust linur framarlega i greininni, en þar á að standa að tilefni tillögunnar væru viðbrögð fræðsluskrifstofu borgarinnar við vaxandi kröfum um samfelldni, námsvinnu i skól- um og skólamáltiðir. Aðeins örfáar sýningar eru nú eftirhjá Leikfélagi Reykjavikur á bandariska sjónleiknum Ótrygg er ögurstundin, eftir Edward Albee i þýðingu Thors Vilhjálms- sonar. Ýmsir hafa verið forvitnir um nafngiftina á leiknum, en orð- ið ögurstund heyrist nú sjaldan Þetta fallega orð var fyrrum not- að um stutta friðsæla stund, þeg- ar sjór er kyrr um fallaskiptin, eða það sem vestanlands er kall- að „á liggjandanum”. Með orðinu var svo myndaður málshátturinn „Ótrygg er ögurstundin”. Leik- ritið heitir á frummálinu „Deli- cate Balance” og fjallar á hressi- legan hátt um ýms vandamál sem steðja að okkur nútimafólki, af- stöðu til fjölskyldu og vina og sið- ast en ekki sist brennivinsins. Sigriður Hagalin leikur húsfreyj- una i leiknum, sem leitar ögur- stundarinnar fyrir umhverfi sitt, og Þórunn M. Magnúsdóttir margfráskilda dótturina, sem er komin heim með enn eitt hjóna- bandið i rúst. Tilboð óskast i nokkrar fólksbifreiðar, Pick-Up og sendiferðabifreið, er verða sýndar að Grensásvegi 9 þriðjudaginn 13. nóvember kl. 12-3. Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri kl 5. Sala varnarliðseigna

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.