Þjóðviljinn - 01.12.1973, Page 13

Þjóðviljinn - 01.12.1973, Page 13
V byrjaði Rósamunda. en um leið tróðst Lindy framhjá röðinni af bökum og öxlum sem lokaði skotið beirra frá stofunni. — Nú, þarna siturðu, Basil. hrópaði hún áköf. — Komdu snöggvast. þá ertu vænn. Það er manneskja sem vill endilega hitta þig... Hún þreif i höndina á honum og dró hann með sér gegnum þvöguna, þrátt fyrir hlæjandi andmæli hans, meðan Rósa- munda stóð eftir og reyndi að melta þessar nýju upplýsingar. Svo að þetta var þá Basil, fyrr- verandi eiginmaður Eileenar — ungi maðurinn sem Lindy sagði að hefði yfirgefið Eileen, vegna þess að hún var alltaf taugaspennt og þreytt og það olli honum samviskubiti. Hvernig kom þessi skýring heim og saman við skoðanir Basils á hjónabandinu, sem virtust byggjast á hans eigin reynslu? Það var erfitt að hugsa i sam- hengi i þessum hávaða og ys, en að þvi er hún fékk best séð var ekki mikið likt með þessum tveim kenningum — þótt þær gætu ekki kallast ósamrýmanlegar. Auðvitað var hægt að mótmæla hjónabandinu sem sliku og vera um leið gramur út i konuna sina....Rósamundu varð allt i einu ljóst að ef hún stæði þarna áfram, niðursokkin i eigin hugsanir, ætti hún á hættu að sýnast van- rækt — og það var ófyrirgefan- leg synd i samkvæmi — og hún ákvað þvi að troðast gegnum fjöldann uns hún kæmi auga á einhvern sem hún þekkti. En stofan sem i fyrstu hafði virst full af nágrönnum, geymdi nú að þvi er virtist aðeins bláókunnugt fólk og sifellt bættist fleira við eins og flóttafólk sem flykktist að frá ein- hverjum ólýsanlegum náttúru- hamförum — og hinir heppnu sem lifað höfðu ósköpin af ruddust nú i skjól hjá Lindy og elskusemi hennar.... Og þarna var Lindy enn, aðeins nokkra metra frá henni. Yfir varnarvegg af herðum sá Rósa- munda Basil heilsa manneskj- unni „sem vildi endilega hitta hann”. Það var Eileen. Rósa- munda heyrði ekki orðaskil, hún sá aðeins undrunar-og hræðslu- svipinn á andliti Eileenar, furðu- svipinn á Basil. Og brosið, hlýlegt og þokkafulU húsmóðurbrosið sem lék um varirnar á Lindy og munnur hennar sem opnaðist og lokaðist og ruddi út úr sér fjör- legum orðum sem ekki heyrðust. Hvað skyldi hún vera að segja? Af hverju virtist Eileen svona skelkuð? Og Basil svona undr- andi? Hafði hann ekki vitað að Eileen yrði þarna? Hafði hann kannski ekki einu sinni vitað að Eileen átti þarna heima? Skyldi Lindy vera að reyna að „koma þeim saman aftur” með þessu barnalega bragði? Nei. Svo vit- laus gat Lindy ekki verið — og ekki svo blátt áfram. Ef hún var með eitthvað á prjónunum, þá var það eitthvað flókið, eitthvað langsótt og vandlega undirbúið. Eitthvað sem minnti á spilagald- ur — öll þessi eðlilegu, innilegu bros og handapat myndu fyrr eða siðar enda i einhverju furðulegu, til að mynda þvi, að Lindy myndi CELIA FREMLIN KÖLD ERU KVENNA- RÁÐ allt i einu glitra og ljóma á kostn- að einhvers annars — i þessu til- viki trúlega Eileenar. En það var engin leið að fylgjast með smáatriðunum úr þessari fjarlægð, svo að Rósa- munda hélt áfram að troða sér áfram uns hún kom að frönsku gluggunum, sem stóðu opnir út i septemberkvöldið. Enn var hlýtt, næstum eins og um hásumar. I gullregninu skein luktin sem Geoffrey hafði hengt upp.á dökkri grasflötinni stóðu eða sátu gestir i smáhópum. Þarna var tiltölulega kyrrlátt og dálitið svigrúm. 1 einum hópnum gat Rósa- munda greint Dawsonhjónin. Hún þekkti holduga bera handleggina á frú Dawson og 'gráyrjótt hárið, og hún heyrði að Dawson var að halda fyrirlestur um hauka með rödd sem i senn var eðlileg og drengjaleg. Rósamunda gat ekki Brúðkaup Laugard. 28. júli voru gefin sam- an i Mosfellskirkju af séra Bjarna Sigurðssyni, Katrin Olafsdóttir og Jón Sveirísson. Heimili þeirra verður að Álfaskeiði 10 Rvk. Ljósmyndastofa Þóris Laugavegi 178. Simi 85602 Laugardaginn 9. júni voru gefin saman i Selfossk-irkju af séra Sig- urði Sigurðssyni, Vilborg Þór- mundsdóttir og Benedikt Benediktsson. Heimili þeirra verður að Ingólfi Eyrarbakka. I.jósmyndastofa Þóris Laugavegi 178. Simi 85602. séð hvern hann var að uppfræða, en hún þekkti að minnsta kosti kosti hann og konuna hans, svo að hún þokaðist hljóðlega inn i hóp- inn og brosti um leið til frú Daw- snn — ibyggnu brosi milli kvenna sem umbera þá óskiljan- lega áráttu karlmanna að tala um staðreyndir þegar allt mögulegt annað er miklu áhugaverðara. — Og ég veit að það var ekki dúfa. sagði Dawson einbeittur og herskár gagnvart imynduðum andstæðingi. Þvi að and- stæðingurinn hlaut að vera i- myndaður, hann gat hvorki verið konan hans né ljóshærða og lakkaða konan sem horfði á hann alúðlega en dálitið efablandin yfir , ginglasið sitt,— Haukarnir hringsóla nefnilega ekki alltaf. Allir halda það, en það er ekki rétt. Þeir þjóta oft fram og aftur undir trjánum. Það er hlægilegt að halda þvi fram, að það hafi verið dúl'a. bara vegna þess að nann hnitaði ekki hringa. Enda hafði lakkaða konan ekki haldið þvi fram, og smám saman varð svipur hennar ekki aðeins efablandinn, heldur einnig dálitið gremjulegur. En hún mátti ekki taka þetta illa upp. llún hefði átt að skilja að hún kom i stað áheyr- andaskara, einvalaliðs af sér- fræðingum i dýrafræði og fugla- fræði. — Sumir halda lika að þeir sjáist aldrei i borgum, hann var að nálgast lokaorðið. — En það er fjarri sanni. Enda er ekki með góðri samvisku hægt að kalla þetta borg, eða hvað?... 011 þessi stóru álmtré... Hann baðaði út höndunum og starði út yfir þökin með þrá og löngun úthverfis- búarís i svipnum. — Eiginlega er þetta skógur handan við tennisklúbbinn. Þar gæti sem best verið hreiður. Og meira að segja fleiri en eitt. — Já, áreiðanlega, sagði ljós- hærða konan dálitið vandræða- lega. Rósamunda sá, að hún var að reyna að bæta upp fáfræði sina með skilningsriku augnaráði og með þvi að dreypa á glasi sinu i sifellu. Rósamunda fór að vor- kennaherra Dawson og reyndi að finna upp á einhverju uppörvandi að segja um hauka. Það var gott að vita af þeim þarna, og hún óskaði þeim alls hins besta.en það gat hún ekki látið út úr sér. En Dawson virtist ekki kippa sér upp við áhugaleysi við- staddra. llann hélt áfram hinn ánægðasti: — En auðvitað sér fólk aldrei neitt. Það tekur aldrei eltir dýralifinu hérna, vegna þess að það hefur engan áhuga á þvi. Af þvi að það á heima i götu með húsum og fólki, þá heldur það að ekkert annað sé til. Vissuð þér það, — og hann sneri sér aftur að ljóshærðu konunni, — að þaö eru til fleiri ormar en manneskjur i London. Vissuð þér það? llvernig hafði hann komist að þvi? Eða réttara sagt: hvernig hafði hölundur greinarinnar, sem hann hafði lesið þetta i, komíst að þvvi? Skyldi borgarráð greiða fólki kaup fyrir að telja orma? Eða skyldu háskóiarnir styrkja fólk til þess arna? Það var hægt að lifa iifinu á hinn furðulegasta hátt, ef manni sýndist svo. En vesalingsDawson virtist biða eftir svari við þessari merkilegu upp- sljóstrun sinni. Og það var ekki nóg að segja: — Að hugsa sér! — Mér finnst skemmtilegt að heyra það, sagði Rósamunda. — Eg á viö að þegar maður horfir á allan manngrúann i Oxford- stræti og les um hina yfirþyrm- andi fólksfjölgun, þá er reglulega notalegt að hugsa til þess, að ormarnir skuli fara eins að. Það er eins og maður verði fremur hluti af náttdrunni. Dawson horfði á hana dálitið ringlaður Þrátt fyrir góðan vilja hafði henni bersýnilega ekki tekist að slá á réttan streng. En nú lagði frú Dawson orð i belg með rólegri rödd sinni: — Harold hefur alltaf haft svo mikinn áhuga á öllu þvi sem náttúrunni við kemur, sagði hún og reyndi að afsaka allt samtalið, lika framlag Rósamundu. — Þegar hann var yngri, lét hann sig alltaf dreyma um að setjast að uppi i sveit. — Yngri...mig hefur alltaf dreymt um þetta. Alltaf. Það veistu. Mig hefur alltaf langað til að vera bóndi. En lifið lagöi mér aðrar skyidur á herðar. Og ég varð aö horfast i augu við það, að smjörblómaakrar yrðu aldrei mitt hlutskipti. Hann stundi þungan. Laugardagur l.desember 7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.20. Frétti kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.l, 9.00 og 10.00. Morfíunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Asthildur Egilsson heldur áfram lestri sögunnar „Bróðir minn i Afriku” eftir Gun Jacobsen (3). Morgunleikfinii kl. 9.20. Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög á milli liða. Morgun- kaffið kl. 10.25: Páll lleiðar Jónsson og gestir lians ræða um útvarpsdagskrána. Auk þess er sagt frá veðri og vegum. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Óskaliig sjúklinga. Kristin Sveinbjörnsdóttir kynnir. 14.00 Kullveldishátið stúd- enta: Útvarp frá lláskóla- biói. Hátið er helguð kjör- orðinu island úr NATO — lierinn burt. Flutt dagskrá i tali, ljóðum og söng. Erlendir gestir l'lytja ávörp, þ.á.m. lulltrúi sendinefndar frá Chile. Aðalræðu dagsins flytur Vésteinn Lúðviksson rithöfundur. 15.30 Útvarpsleikrit barna og unglinga. „Siskó og Pedró” eftir Estrid Ott i leikgerð Féturs Sumarliðasonar. Sjiitti þáttur. Leikstjóri: Klemen/. Jónsson. Fersónur og leikendur: Siskó Borgar Garðarsson. F e d r ó Þórhallur Sigurðsson. Vél- stjóri Flosi Olafsson. Stýrimaður Sigurður Skúla- son. Varðmaður Knútur R. Magnússon. Þriðji meistari Randver Þorláksson. Send- ill Kjartan Itagnarsson. Sögumaður Fétur 4, Jt- -sOt. jUi; •áJi. TfTfTfty Fullveldisdagur íslands Sumarliðason. 16.00 Fréttir 16.15 Veðurfregnir. Tiu á toppnum. örn Petersen sér um dægurlagaþátt. 17.15 Framburðarkeunsla i þýsku. 17.25 islenskt mál. Jón Aðal- steinn Jónsson cand. mag. flytur þáttinn. 17.45 Tónleikar. Tilkynningar. 18.30 Fréttir. 18.45 Veðurfregnir. 18.55 Tilkynn- ingar. 19.00 Veðurspá. Fréttaspegill. 19.20 Framhaldsleikritið: „Snæbjörn galti" eftir (■unnar Benediktsson. Fimmti þáttur. Leikstjóri: Klemenz Jónsson. Persónur og leikendur: Hallgerður Kristbjörg Kjeld. Snæbjörn galti Þorsteinn Gunnarsson. Hallbjörn Gunnar Eyjólfs- son. Tungu-Oddur Jón Sigurbjörnsson. Jórunn Guðbjörg Þorbjarnardóttir. Asleií Þóra Friðriksdóttir. Sögumaður Gisli Halldórs- son. 19.55 lláskólakantata eftir Fál ísólfssou. Guðmundur Jóns- son, Þjóðleikhúskórinn og Sinfóniuhljómsveit Islands flytja, Atli lleimir Sveins- son stj. 20.25 Úr nýjuiti bókum. 20.55 Frá Bretlandi. Agúst Guðmundsson talar. 21.15 IIIjómplöturabb. Þor- steinn Hannesson breður plötum á fóninn. 22 00 Fréttir. 22.15 Veðurf regnir. Dans- skemmtuii úlvarpsinsý'Auk danslagaflutnings af hljóm- plötum leika Karl Jónatans- son og Jónatan sonur hans á elektrovox-harmoniku og trumbu. (23.55 Fréttir i stuttu máli). 01.00 Dagskrárlok. LAUGARDAGUIl 1. desember 197IJ 17.00 tþróltir. Meðal efnis er mynd frá Norðurlandamóti kvenna i handknattleik og mynd frá leik ensku knatt- spyrnuliðanna Coventry og Sheffield United, og hefst hún um kl. 18.15. Umsjónar- maður ómar Ragnarsson. 19.15 Þingvikan. Þáttur um störf Alþingis. UMsjónar- menn Björn Teitsson og Björn Þorsteinsson. 19.45 Illé. 20.00 Fréttir. 20.20 Vcður og auglýsingar. 20.30 Söngclska fjölskyldan. Bandariskur söngva- og gamanmyndaflokkur. Þýð- andi Guðrún Jörundsdóttir. 20.55 Vaka. Dagskrá um bók- menntir og listir. Umsjón- armaður ólafur Haukur Símonarson. 21.45 Uxa skal með arði reyna.Stutt, kanadisk kvik- mynd um dráttarkeppni uxa. Þýðandi Gylfi Gröndal. 22.00 Mærin frá Parls. (Joan af Paris) Bandarisk bió- mynd frá árinu 1942, byggð á frásögnum eftir Jacques Théry og Georges Kessel. Leikstjóri Robert Steven- son. Aðalhlutverk Michéle Morgan, Paul Henreid og Thomas Mitchell. Þýöandi Heba Júliuscióttir. Myndin gerist i Frakklandi árið 1941. Landið er hersetið af Þjóðverjum, en Bretar halda uppi stöðugum loft- árásum. Bresk orrustuflug- vél er skotin niður. Áhöfnin kemst lffs af, en gengur erf- iðlega að felast fyrir Þjóð- verjum. Loks tekst ungri Parisarstúlku að koma Bretunum i samband við frönsku neðanjaröarhreyf- inguna. 23.30 Dagskrárlok. UAFLAGNIR SAMVIRKI annast allar almennar raflagnir. Ný- lagnir, viðgerðir, dyrasima og kaíl- kerfauppsetningar. Teikniþjónusta. Skiptið við samtök sveinanna. Verkstæði Barmahlið 4 SÍMI 15460 milli 5 og 7. Auglýsingasíminn er 17500

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.