Þjóðviljinn - 02.12.1973, Page 6

Þjóðviljinn - 02.12.1973, Page 6
• StÐA — ÞJÓÐVtLJINN Sunnudagur 2. desember 1973. UOWIUINN MÁLGAGN SÓSIALISMA VERKALYÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. - Útgefandi: Ctgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Gestsson <áb) Fréttastióri: Evsteinn Þorvaldsson Kitstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 linur) Askriftarverö kr. 360.00 á mánuöi Lausasöluverö kr. 22.00 Prentun: Blaöaprent h.f. SKATTAR NÚ OG SKATTAR VIÐREISNARINNAR Nefnd um tekjuöflun rikisins, sem skipuð var fyrir tveim árum, hefur nú skilað stórri bók sem nefndaráliti til fjár- málaráðherra. í skýrslu nefndarinnar er dregið saman heildaryfirlit um fjáröflun opinberra aðila á íslandi og rætt um hina ýmsu möguleika til breytinga á skatta- kerfinu. Það er margt fróðlegt sem kemur fram i þessari skýrslu og ekki að efa að hún mun auðvelda stjórnmálamönnum að marka langtimastefnu i skattamálum. Ýmislegt i skýrslunni mun vafalaust koma mörgum nokkuð á óvart, t.d. sú staðreynd að heildarskattheimta hins opinbera er hér á tslandi mun lægri hluti af þjóðarframleiðslunni en i nálægum löndum, og þó einkum, hversu hlutur beinu skattanna er hér miklu lægri en i þeim löndum, sem tekin eru til saman- burðar. Hér á tslandi eru skatttekjur hins opin- bera i heild áætlaðar 33,5% af þjóðarfram- leiðslunni árið 1972, en i Danmörku, Noregi, Sviþjóð og Bretlandi er þetta hlut- fall frá 35,3%-40,9%. Hér eru beinir skattar það er tekjuskattur og útsvar, og aðrir slikir skattar, aðeins 10,3% af þjóðarframleiðslunni, en i þeim fjórum löndum, sem tekin eru til samanburðar og áður voru nefnd, er þetta hlutfall frá 17,7% og upp i 28,6%. Hér er hins vegar tiltölu- lega mun stærri hluti af tekjum hins opin- bera fenginn með tollum, sem nú hljóta að fara lækkandi vegna samninga við EFTA og Efnahagsbandalagið. Engu að siður er nú mikið rætt um að lækka hlut beinna skatta hér á íslandi, og verkalýðshreyfingin hefur lagt fram til- lögur um tilfærslu i skattheimtu frá tekju- skatti til söluskatts, án þess að slik sölu- skattshækkun kæmi fram i visitölu. Einnig er nú allmjög um það rætt að breyta söluskatti i virðisaukaskatt, en slik breyting hlýtur að kosta alllangan undir- búning, hvað sem öðru liður. Þjóðviljinn vill i þessu sambandi leggja á það megináherslu, að allar breytingar, sem gerðar kynnu að verða á skattkerfinu i þessa átt, mega undir engum kringum- stæðum bitna á þeim þjóðfélagsþegnum, sem við erfiðust kjör búa, lægstar hafa tekjurnar, og borga þar af leiðandi litinn eða engan tekjuskatt i dag, en yrðu að bera almenna hækkun söluskatts, nema sérstakar ráðstafanir væru gerðar jafn- hliða til að bæta hlut þeirra. Vert er að hafa i huga að megingallar núverandi tekjuskattskerfis eru tveir. Annars vegar er það, að skattþrepin eru of fá, stiginn of brattur, og menn með aðeins miðlungstekjur verða þess vegna að greiða sama hlutfall i skatt af siðustu krónunum sem þeir vinna sér inn og hátekjumenn. Þetta er gamalt óréttlæti, sem verður að breyta. Hinn megingallinn er sá, hversu auðvelt hefur reynst að skjóta miklum fjármunum undan tekju- skattsgreiðslum, m.a. vegna hinna fjöl- mörgu frádráttarliða, — og þá ekki sist öllum verðbólgugróðanum. En tilfærslu frá tekjuskatti yfir i sölu- skatt er þvi aðeins hægt að fallast á að breytingin bitni alls ekki á þeim fjölmörgu lágtekjumönnum, sem tekjuskatturinn er ekki til byrði nú. Stjórnarandstæðingar tala gjarnan og skrifa, eins og fólk hafi ekki þurft að borga skatta á íslandi fyrr en eftir siðustu stjórnarskipti. Oftast vill þó litið fara fyrir rökstuðningnum i þessu sambandi, sem máski er von. Hér skulu rifjuð upp nokkur dæmi um það, hvernig beinu skattarnir eru annars vegar nú, og hvernig þeir hins vegar hefðu orðið samkvæmt skattakerfi viðreisnarinnar, sem samþykkt var af Sjálfstæðisflokknum og Alþýðuflokknum undir lok valdaferils þeirra. Þessi dæmi komu fram i fjárlagaræðu Halldórs E. Sigurðssonar fyrir mánuði og hefur þeim ekki verið mótmælt. Einstaklingur, sem hafði á þessu ári 290.000 kr. i brúttótekjur og 242.000,- i nett- ótekjur hefur nú 36.000,- i útsvar og skatta en hefði haft 68.000,- samkvæmt viðreisnarkerfinu. Annar einstaklingur með356 þús. kr. i brúttótekjur og 312 þús. nettó hefur nú 69.300,- i útsvar og skatta, en hefði haft kr. 142.000 samkvæmt viðreisnarkerfinu. Þriðji einstaklingur, sem hefur 453 þús. i brúttótekjur og 373 þús. i nettótekjur hefur nú 102.000,- i skatta, en hefði haft 124.000,- samkvæmt viðreisnarlögunum. Hjón með 2 börn, sem hafa i brúttó- tekjur 581.000,- og nettótekjur 446 þús. hafa nú kr. 71.000,- i skatta, en kr. 141 þús. samkvæmt viðreisnarkerfinu. Iljón með 3 börn, sem hafa 654 þús. i brúttótekjur og 563 þús. i nettótekjur hafa nú 112.000,- i skatta, en 215.000,- sam- kvæmt viðreisnarkerfinu. Hjón með 3 börn sem hafa 885 þús. i brúttótekjur og 605 þús. i nettótekjur hafa nú 162 þús. i skatta,“en 239 þús. samkvæmt viðreisnar- kerfinu. Hjón með 934 þús. i brúttótekjur og 776 þús. i nettótekjur hafa nú 193 þús. i skatta, en 291 þús. samkvæmt viðreisnarkerfinu. Þessi dæmi ættu að nægja til að sýna fram á firrurnar i málflutningi þeirra, sem nú tala og skrifa eins og gamla viðreisnárstjórnin hafi verið i þann veginn að létta skattgreiðslum endanlega af fólki með lágar tekjur eða miðlungstekjur, —- eins og hún reyndar hugðist gera við einn hóp i þjóðfélaginu, þá sem hirða arð af hlutabréfunum slnum,en siðustu skattalög viðreisnarinnar, sem einmitt fjölluðu um það efni, skattfrelsi hlutafjárarðs, komust bara aldrei til framkvæmda vegna stjórnarskiptanna. Margrét Karlsdóttir, frá Eyrarbakka, nemafldi á námskeiöi Fiskmats ríkisins Það eru ekki rétt- indin heldur frœðslan sem skiptir máli Margrét Karlsdóttir frá Eyrar- bakka er nú að nema eitt og ann- aö varöandi fisk og fiskverkun á yfirlýstu siðari námsskeiði Fisk- mats ríkisins af þvf tagi sem þetta er. Margrét er ekki Eyrbckkingur, heldur aðflutt frá Hólmavfk, en þar bjó hún f 11 ár, en hún er fæddur Húnvetningur og ólst upp i Reykjavik. Margrét hefur heimili á Eyrar- bakka, og sagði hún við blaða- mann Þjóðviljans aö þaö hefði verið erfitt i fyrstu að byrja að vinna úti. Hún hefur undanfarið unnið viö frystihúsið á Eyrar- bakka, en auk þess eru þar tveir aðilar aðrir sem vinna fisk, en það eru saltfiskverkendur. Við spurðum Margréti að þvi hvað hún ynni aðallega við i frystihúsinu. — Á sumrin vinn ég aðallega viö flökun, sagði hún, en á vetrum er ég i aðgerð, vinn i tækjunum eða salnum, allt eftir þvi hvar er mest þörfin i það og það sinnið, en ekki i neinu föstu og ákveðnu. — Hefurðu þá ekki fengist við fiskimat til þessa? — Nei, bara almenna vinnu. — Hvað eru margir bátar hjá frystihúsinu? — 3—4 bátar allt árið. Auk þeirra voru i vetur hjá þvi Vest- mannaeyjabátar. Það eru yfir- leitt fleiri bátar hjá okkur yfir. sumartimann þvi við verkum humar, og saltfiskverkendur, sem verka á veturna, setja bát- ana sina ýmist i humar eða troll yfir sumartimann, og þá leggja þeir upp hjá frystihúsinu. — Hvað vinna margir hjá hús- inu? — Um það bil 40 manns yfir veturinn, meiriparturinn kven- fólk. Fleira starfsfólk er hjá hús- inu yfir sumarmánuðina, fleiri unglingar, fleira kvenfólk en færri karlmenn. — Þiö hafið enga vinnutima- tryggingu? — Nei. Hún er ekki komin i lög ennþá. Það er hægt að kalla mann út hvenær sem er, og senda mann heim hvenær sem er. Þeir fá frekar vinnu, ef litið er, sem vinna allt árið heldur en þeir sem eingöngu vinna yfir sumar- mánuðina. Það er engin vinnu- timatrygging hjá neinum i fiskin- um. — Hvað eru margir ibúar á Eyrarbakka og hvað vinna þeir við annaö en fiskverkun og sjó- sókn? — A Eyrarbakka er plastverk- smiðja, sem framleiðir einangr- unarplast, bilaverkstæði og véla- verkstæði, og þar búa um 500 manns, að ég held. — Ber eitthvað á atvinnuleysi hjá ykkur? — Það er alltaf atvinnuleysi á haustin þegar bátarnir fara i slipp og að undirbúa sig undir vetrarvertiðina. Þó var nokkuð samfelld vinna i fyrra. Þá feng- um við skel um haustið. Við feng- um enga skel nú i haust. Svo fer atvinnan eftir loðnunni, hvenær hún kemur eftir áramót- in. — Hvað gerir fólk á Eyrar- bakka sér til gamans i fristund- um? — Það er nú frekar slæmt með félagslif vegna húsnæðisleysis til að stunda hvað sem er á þvi sviði. Þarna er starfandi ungmenna- félag, kvenfélag, slysavarnafélag og verkalýðsfélag. Fólk hefur annars að mestu ofan af fyrir sér sjálft. Nú, svo er stutt á Selfoss og til nágrannabyggðanna. — Af hverju fórstu á þetta námskeið? — Bara af fróðleiksfýsn. Ég hef gaman af þvi að vinna i fiski, og hef áhuga fyrir á fiski. Ég er búin að vinna samfellt i fiski i 6 ár, en byrjaði þegar ég var nitján ára og vann stopult við það fyrstu árin. — Styrkir frystihúsið þig á námskeiðið? — Þaö hefur ekki verið gengið frá þvi. Þeir vildu þó að ég færi, en ætli ég borgi það ekki sjálf fyrir rest. — Hve margar konur eru á námskeiöinu? — 18, frekar en 16, af 55 eöa 56 sem námskeiðið sækja. — Finnst .ér þú hafir haft gagn af námskeiðinu? — Tvimælalaust. Svona lagað vikkar sjóndeildarhring manns, og maður gerir sér grein fyrir ýmsu sem maöur hefur ekki gert sér grein fyrir áður, svo sem gerl- um og sýklum sem eru allt i kringum mann. — Telurðu að fólk sem vinnur að fiskverkun viti nógu mikið um fisk? — Kannski um fiskinn sem Margrét Karlsdóttir slikan. En ég held að fólk geri sér ekki grein fyrir gerlum og sýklum sem i námunda við það er, og ekki heldur fyrir hráefninu sem það er að vinna við. Það þarf að fræða fólk meir og betur um þessa starfsgrein rétt eins og aörar starfsgreinar. — Hvaða réttindi færðu eftir þetta 3ja vikna námskeið? — Eiginlega get ég ekki svarað þvi. Ég hef ekki spurt um það. Ég fyrir mina parta læt það bara ráðast. Mér finnst að þetta nám- skeið hafi verið mér til gagns hvaöa réttindi sem ég svo fæ út úr þvi. Það er nauðsynlegt að halda svona námskeið fyrir fólk i fisk- iðnaðinum og kenna þvi hvernig á að fara með fisk. Slik námskeið þurfa að koma inn i frystihúsin svo að kunnáttan nái til, stærri hóps, en hún gerir nú. —úþ

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.