Þjóðviljinn - 02.12.1973, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 2. desember 1973.
Ræöa Lúövíks Jósepssonar sjávarútvegsráðherra á aöalfundi LÍÚ í fyrradag:
FISKIÐNAÐUR ER
OKKAR STÓRIÐJA
Góðir fundarmenn.
Um leið og ég þakka ykkur fyrir
að hafa gefið mé^ kost á að
koma á þennan fund og ávarpa
ykkur vil ég óska ykkur góðs
gengis og farsældar i störfum. Eg
veit að á ársfundum ykkar er
jafnan fjallað um hin fjölbreyti-
legustu mál, sem sjávarútveginn
varða, allt frá minniháttar dæg-
urmálum til stærstu og þýðingar-
mestu mála. Fundir ykkar geta
vissulega haft mikil áhrif á þaö,
hvaða ákvaröanir verða teknar
um rekstur og rekstraraðstöðu
sjávarútvegsins í heild, þeirrar
atvinnugreinar sem öllum öðrum
fremur verður að telja undir-
stöðuatvinnugrein i okkar þjóðar-
búskap.
Þær minútur, sem ég má taka
af ykkar fundartima, vil ég
gjarnan nota til að ræða um þrjú
veigamikil atriöi, sem öll varða
vöxt og viðgang islensks sjávar-
útvegs.
Þessi atriði eru:
i fyrsta lagi landhelgismálið,
I öðru lagi framkvæmdir I fiskiðn-
aði og ný fiskiskip
og i þriðja lagi rekstraraðstaða
sjávarútvegsfyrirtækja og af-
komuhorfur.
Landhelgismálið
Fg þykist vita, að margir séu
orðnir nokkuö þreyttir á umræð-
um um landhelgismálið og telji
jafnvel ekki þörf á frekari um-
ræðum um það, eftir samninga-
gerðina við Breta.
É-g get vel skiiið þá sem þannig
hugsa, eftir þann umræðusprett
sem fram fór um málið I sam-
bandi við þá samninga.
En við verðum að gera okkur
grein fyrir, að við stöndum enn i
miðri baráttunni fyrir þeim þýð-
ingarmikla rétti okkar, sem land-
helgismálið snýst um, þeim rétti,
að við tslendingar ráðum einir
yfir fiskimiðunum við landið, aö
við einir getum sett allar reglur
um fiskveiðar við landið og fram-
fylgt þeim óumdeilanlega.
Með útfærslu fiskveiðimark-
anna í 50 mílur 1. september 1972
gerðumst við tslendingar forystu-
þjóð I baráttu strandrikja fyrir
víðtækum rétti til fiskveiðilög-
sögu.
Nokkrar þjóðir höfðu að visu
áður lýst yfir stækkun fiskveiði-
lögsögu út fyrir 12 milur og allt
upp í 200 milur, en þar voru að-
stæður aðrar en hér, og fram-
kvæmdin önnur og áhrifagildið ó-
sambærilegt við það sem hér var.
Hér var um það að ræða, að litil
og vopnlaus þjóð tók upp barátt-
una, þó að i móti stæðu harðdræg-
ustu andstæðingar viðrar fisk-
veiðilögsögu. nokkrar stærstu og
öflugusutu úthafsveiðiþjóðir i
heiminum. Við mörkuðum skýra
stefnu, tókum okkar rétt, lýstum
vilja okkar til að semja um stutt-
an umþóttunartima, enda væri þá
eftirlitokkar og sérstök aðstaða á
miðunum viðurkennd. Nú hafa
orðið þáttaskil i þessari baráttu
með bráðabirgðasamkomulaginu
við Breta.
bað er auðvitað algjör mis-
skilningur, misskilningur sem
verður að leiðréttast, þegar þvi er
haldið fram að með samkomulag-
inu við Breta höfum við „gefist
upp i landhelgismálinu”, eða að
með þvi samkomulagi hafi bar-
áttu okkar i landhelgismálinu
lokið. Vegna mikilvægis land-
helgismálsins fyrir okkur tslend-
inga, þ.e.a.s. gildis þess að við
einir eigum réttinn til fiskimið-
anna við landið, og vegna þess að
við eigum enn eftir að standa i
mikiiii baráttu fyrir þvi að fá
þann rétt okkar viðurkenndan tii
fulls, — þá er nauðsynlegt, að sem
flestir tslendingar átti sig vel á
þvi, hvað það er, sqm þegar hefir
gerst i landhelgisbaráttu okkar
og hvað er framundan í þeirri
baráttu.
Fyrri lotan
Atök okkar við Breta um út-
færsluna voru i tveimur að-
greindum lolum. Fyrri lotan stóð
frá útfærsludegi 1. sept. 1972 og
til 18. mai 1973, þegar bresku
togaraskipstjórarnir gáfust
formlega upp og sigldu skipunum
út fyrir 50 milna mörkin. Þessi
lota stóð i rúmlega 8 1/2 mánuð. A
þessum tima veiddu bresku tog-
ararnir hér við land um 100 þús-
und tonn af fiski samkvæmt
brcskum fiskiskýrslum, með
ærnum kostnaði og miklu sálar-
slriði. Af okkar hálfu voru átökin
á þessum tima ekki hörð, en þó
áttu sér stað nokkrar góðar klipp-
inga-hrotur. Atökin voru fyrst og
fremst i formi taugastriðs. Bretar
reyndu auðvitað að bera sig vel.
Þeir gortuðu af g góðum afla og
töldu allt ganga vel.
Þvi miður tóku nokkur islensk
blöð upp þennan áróður Breta og
héldu þvi fram að barátta okkar
væri gagnslaus. Þannig voru i
hópi islendinga nokkrir aðilar,
sem beinlinis hjálpuöu Bretum en
drógu úr úthaldi okkar. Þessi
undanhaidsáróður stóð yfir þar til
bresku skipstjórarnir gáfust
formlega upp og játuðu opinber-
lega að þeir gætu ekki stundað
hér veiðar til iengdar i fjandskap
við tslendinga.
Siðari lotan
Siðari lotan i átökunum viö
Breta stóö siðan i 4 1/2 mánuð,
eða nokkuð fram i októbermánuð.
Þann tima veiddu bresku togar-
arnir undir herskipavernd og
héldu sig yfirieitt i tveimur
þröngum hópum við landiö.
Auðvitað var þessi lota. ekki siður
en hin fyrri. taugastriðs-lota. Og i
þessarí lotu, eins og þeirri fyrri,
höfðu Bretar vissulega sina mál-
flytjendur i okkar liði. Dag eftir
dag var á þvi klifað i vissum
blöðum. að útfærsla landhelg-
innarhefði „mistekist" og að allt
gengi vel hjá Bretum. Sannleik-
urinn var þó allt annar eins og
siðar hefir komið i ljós.
Bresku skipstjórarnir voru að
gefast upp á herskipastjórninni.
beir kröfðust þess að mega taka á
sig þá áhættu aö leita út fyrir
verndarsvæði herskipanna.
Nokkrir skipstjórar voru kærðir
og reknir fyrir þvermóðsku i
þessum efnum. Þrýsíingurinn i
deilunni óx og þar kom, að breska
rikisstjórnin taldi sér ekki annað
fært en að sigla herskipunum út
fyrir 50 milurnar. Það samkomu-
lag sem gerta var við Breta um
miðjan október var ekki að minu
skapi. eins og skýrt hefir komið
fram. Það var mitt álit, að um
I.úðvik Jósepsson, sjávarútvegs-
ráðherra.
miðjan október væri staða okkar
m jög sterk i baráttunni við Breta.
Vetur var framundan með ófyrir-
sjáanlegum erfiðleikum fyrir
herskipin, sem aldrei hefðu mátt
koma inn fyrir 12 milurnar. Þau
hefðu þurft að glima við islenska
veturinn með yfirísingarhættu og
öðru af þvi tagi. Og auk þess var
staða Breta að veröa óbærileg
fyrir þá i samskiptum þeirra við
bandamenn sina. Það var skoðun
min, að við ættum að semja við
Breta. þó að staða okkar væri
sterk. En ég dreg enga dul á, að
ég vildi fá fram meira okkur ti'.
handa en fékkst, og álit að til þess
hefðum við möguleika.
Um le.ö og ég segi þetta, vil ég
taka skýrt fram, að vissulega tel
ég þó, að i bráðabirgðasamkomu-
laginu felist all-mikill áfangasig-
ur fyrir okkur.
Viðurkenna lögsögurétt
okkar í reynd
Það er mikilsvert, að fá Breta
til að viðurkenna með samningi,
að það sé við okkur að semja um
veiðireglur innan 50 milna mark-
anna.
Það er mikilsvert, að fá þá til
að draga úr sókn sinni á miðin, og
til að viðurkenna tiltekin
verndarsvæði þannig að skip
þeirra megi ekki veiða nær landi
en að 20 milum úti fyrir Vest-
fjörðum og Austurlandi og á
svæði fyrir Norðurlandi. Það er
lika mikilsvert að þeir skuli i
reynd viðurkenna lögsögurétt
okkar á þessu svæði. 1 samkomu-
lagið vantar hins vegar mörg
mikilvæg ákvæði um að ólögleg
veiðarfæri jafngildi broti á sam-
komulaginu. Það verður hins
vegar að segjast eins og það er,
að litill var stuðningurinn sem
þeir aðilar fengu frá samtökum,
sem unnu að þvi , að fá fram
æskilegar breytinar og lagfæring-
ar á samkomulagsdrögum for-
forsætisráðherranna, þvi forystu-
menn ykkar hröðuðu sér sem
mest þeir máttu að lýsa yfir
stuðningi við samkomulagsdrög-
in, — og töldu sig ekki þurfa að
hafa neitt samband við sjávarút-
vegsráðuneytið.
Nokkur þáttaskil
Samkomulagið við Breta tákn-
ar nokkur þáttaskil landhelgis-
baráttunni. Enn er ósamið við
Vestur- Þjóðverja, sem knýja fast
á um að fá veiðirétt fyrir verk-
smiöjuskip og frystitogara, og
aörar þjóðir biöa og vilja sjá
hvernig fer meö þá kröfu. A haf-
réttarráðstefnunni mun einnig
verða háð hörð og æði tvisýn bar-
átta um grundvallarstefnuna i
fiskveiðiréttarmálum. Það er þvi
miður rangt að við getum búist
við því, að 200 milna reglan verði
þar samþykkt átakalitið. Hið
rétta er það, að margar þjóðir,
sem vel geta fallist á 200 milna
regluna, eru reiðubúnar til að
samþykkja jafnframt viðtækan
„sögulegan rétt” handa þeim
þjóðum sem lengi hafa stundað
veiðar á tilteknu hafsvæði. Verði
eitthvað slikt samþykkt myndi
það gera litið úr okkar eiginlega
landhelgisrétti. Earátta okkar
fyrir fullkomnu valdi yfir fiski-
miðunum við landið mun halda
áfram. Fullnaðar sigur okkar i
þeirri baráttu mun velta á okkar
eigin framgöngu. Ortökuraddir i
okkar eigin liði eru hættulegar og
þó er allt pólitiskt dekur við svo-
nefndar erlendar vinaþjóðir það
hættulegasta af öllu.
Ný frystihús —
ný fiskiskip
Það málefni,sem ég tel að næst
gangi landhelgismálinu að mikil-
vægi fyrir islenskan sjávarútveg,
er þær miklu framkvæmdir sem
nú er unnið að i fiskiðnaði og jafn-
hliða sú endurnýjun fiskiskipa-
flotans sem nú fer fram. 11 ný
frystihús eru nú i byggingu viðs-
vegar um landið og ráðgerðar eru
fleiri nýbygginar stórra fisk-
iðnaðarstöðva. Stofnkostnaður
þessara 11 frystihúsa var áætlað-
ur 1386 miljónir króna, en mun
verða allmiklu meiri. Þegar hefir
verið unnið fyrir 5— 600 miljónir
króna i þessum húsum. t 19 öðr-
um frystihúsum hefir verið unnið
að stórfelldum endurbótum og
breytingum þar sem um hefir
verið að ræða framkvæmdir, sem
áætlað var að kostuðu frá 40
miljónum i húsi til 112 miljónir.
Samtals voru endurbætur i þess-
um 19 frystihúsum áætlaðar kosta
1172 milj. króna, en munu einnig
kosta allmiklu meira i reynd. 1
þessum húsum hefir þegar verið
unnið fyrir 8 — 900 milj. króna.
Auk þessa hafa staðið yfir breyt-
ingar og endurbætur, og fram-
kvæmdir við nýja vélvæðingu i
flestum öðrum frystihúsum er
4385 milj. króna og talið er sam-
kvæmt fyrirliggjandi skýrslum
að þegar hafi verið unnið fyrir
2030 milj. króna, eða sem nemur
46.3% af heildaráætluðum fram-
kvæmdum. Framkvæmdakostn-
aður mun þó vera orðinn nokkru
meiri.
Þessar miklu framkvæmdir
hafa aðallega átt sér stað tvö s.l.
ár. Ég veit, að ekki þarf að út-
skýra i löngu máli fyrir ykkur,
hvílik gjörbreyting hér hefur orð-
ið i mörgum frystihúsum og
hvaða þýðingu þessar fram-
kvæmdir hafa i okkar fiskiðnaði.
En samhliða þessu mikla átaki i
fiskiðnaði hefir svo einnig verið
unnið að stóreflingu fiskiskipa-
flotans. Keyptir hafa verið og
smiðaðir aðallega á tveimur sl.
árum um 60 skuttogarar og all-
mörg stór loðnu- og og sildarskip.
Auk þess hafa bæst i fiskiskipa-
flotann margir bátar af minni
gerð. Hinir nýju skuttogarar hafa
þegar sannað gildi sitt og þó alveg
sérstaklega minni skipin, sem
rekin hafa verið i nánum tengsl-
um við fiskvinnslustöðvar i landi.
Ljóst er af öllu, að þessi skip hafa
mikla yfirburði sem togveiðiskip
yfir þá togbáta sem mest voru
notaðir áður. Þau veita sjómönn-
um miklu betri kjör og betri að-
búnað. Þau eru hagkvæmari i
rekstri miðaö við aflamagn og
mannafla, og þó er kannski breyt-
ingin mest varðandi þá mögu-
leika sem þau veita til að tryggja
fiskiðnaðinum mikið og jafnt hrá-
efni.
Tryggja verður
stöðugan og
jafnan rekstur
Þessar miklu framkvæmdir i
frystihúsum, sem orðnar voru al-
gjörlega óhjákvæmilegar m.a.
vegna nýrra krafna um þrifnað
og hollustuhætti og vegna nýrra
tækniframfara, hafa auðvitað,
ásamt með hinum nýju og miklu
skipakaupum, kostað stofnlána-
sjóð sjávarútvegsins — Fisk-
veiðasjóð — mikið fé i auknum út-
lánum.
Heildarútlán Fiskveiðasjóðs
voru þannig svo nokkur ár séu
tekin til viðmiðunar:
Arið 1969........ 508 milj. kr.
Arið 1970 ....... 496 milj. kr.
Arið 1971........ 842 milj. kr.
Arið 1972........ 1230 milj. kr.
Ariðl973áætl..... 1545milj.kr.
og á næsta ári,1974,eru þau áætl.
1875 milj. kr.
Ég legg áherslu á, að endurnýj-
un frystihúsanna og kaup hinna
nýju og afkastamiklu fiskiskipa
verður að skoða og meta sam-
eiginlega.
Nýtisku frystihús, sem kosta 2
— 300 miljónir króna, eða endur-
byggt- og ný-vélvætt hús, sem
kostar 80 — 100 miljónir, verða
ekki reikin af neinu viti, án þess
að ráðstafanir séru gerðar til að
tryggja mikið og stöðugt hráefni.
Þeir timar eru liðnir að hægt sé
að reka frystihús þannig að unnið
sé aðeins i 2-3 daga i viku, eða 5
— 6 mánuði á ári. Vinnuafl fæst
ekki i slíkan rekstur og útilokað
er að þannig rekstur geti risið
undir vöxt um og afborgunum af
tugmiljóna stofnkostnaði. Nú
verður að skipuleggja hráefnis-
aðdrætti og tryggja stöðugan og
jafnan rekstur. Hrotvinnan með
algjörum eyðum á milli verður aö
hverfa og getur horfið með nýjum
fiskiskipum, nýju útgerðarlagi og ,
nýtisku aðstöðu i landi til að
geyma fiskinn i góðum móttök-
um.
Endurbygging frystihúsanna
og kaup nýju skuttogaranna
hafa ekki gengið hljóðalaust fyrir
sig.
Setja skuttogarar
þjóðarbúið á höfuðið?
1 grini hefir verið talað um, aö
stefnan væri „skuttogari á hvert
heimili” og ýmsir,,hagspekingar’
hafa klifað á þvi látlaust, að
með kaupum þessara nýju skipa
væri verið að stofna til skulda-
söfnunar erlendis, sem sett gæti
þjóðarbúið á höfuðið.
Og þvi er ekki að neita, að jafn-
vel úr röðum útvegsmanna
sjálfra hefir i umræðum um þessi
mál stundum verið meir rætt um
tapið á skuttogurum og um að slik
skip hefðu engan rekstarargrund-
völl en að undirstrika réttlæti
kaupanna og i rauninni lifs-
nauðsyn okkar á þvi að eiga og
geta rekið svona skip.
Auðvitað er það rétt, að nýir
skuttogarar eiga i vök að verjast
rekstararlega séð og að ekki
reynist mögulegt að greiða af
þeim strax i byrjun 20% af afla i
vexti og afborganir. En má ég
spyrja, er það eitthvað nýtt i út-
gerðarmálum okkar, að erfitt sé
að láta ný skip standa undir öllum
útgjöldum, eða 20% i vexti og
afborganir?
Dettur ef til vill einhverjum i
hug, að í dag sé auðveldara að
kaupa nýjan 105 rúml. bát fyrir
um 70 milj. króna og láta hann á
fyrsta ári greiða öll sin tilskildu
útgjöld, að ég ekki tali um 20% af
afla i vexti og afborganir? Og
hvað um aðra nýja fiskibáta?
Og dettur nokkrum i hug, að
gert sé ráð fyrir þvi i samningum
um rekstursgrundvöll hraðfrysti-
húsa við verðákvörðun á fiski, að
afborganirog vextir þeirra miðist
við nýtt frystihús, sem kostar 2-
300 milj. króna?
Nýjum skipum og nýjum
tækjum fylgir viss vandi, vandi
sem erfitt getur veriö að standa
frammi fyrir, en þann vanda
megum við ekki láta verða til
þess að hrekja okkur frá og gera
það, sem er rétt og óhjákvæmi-
legt. Þann vanda verður að leysa,
en ekki á þann hátt að hrópa þá
niður, sem horfir til framfara.
Fiskiðnaðurinn er okkar stór-
iðja. Það er á útgerð fiskiskip-
anna og i fiskvinnslunni i landi,
sem við fyrst og fremst byggjum
okkar þjóðarafkomu á.
Það er þvi furðulegt, að þeir
sem ganga fram fyrir skjöldu og
krefjast meiri almennra bygg-
inga, meiri framkvæmda i skóla-
málum, meiri aðgerða i heil-
brigðismálum, meiri lagningu
vega, meiri ibúðabygginga og
meiri framkvæmda á öllum
sviðum tala um þáð að hættan á
þjóðargjaldþroti stafi einkum af
þvi, að keypt skuli ný fiskiskip og
byggð ný frystihús.
Hvernig hefði þjóðarbúskapur
okkar staðið i dag, ef fiskiskipa-
floti okkar og frystihúsin hefðu
verið látin ganga úr sér og
úreldast á svipaðan hátt og
togarafloti okkar var látinn gera?
Ætli þá hefði ekki komið færri
krónur i rikiskassann og i kassa
sveitarfélaganna og orðið heldur
litið úr framkvæmdum og fram-
förum i landinu.
Rekstursaðstaða
sjávarútvegsins
Og hvernig er þá reksturs-
afkoma sjávarútvegsins i dag?
Þegar á heildina er litið, er hún
tvimælalaust betri en hún hefir
verið um langan tima. En
afkoman er mjög misjöfn, i
hinum einstöku rekstrargreinum.
Rekstursafkoma loðnuverk-
smiðjanna og fiskimjölsverk-
smiðjanna almennt er tvimæla-
laust mjög góð. Afkoma frysti-
húsanna er lika allgóð, einkum
þeirra, sem frysta mikið magn af
loðnu. En staða frystihúsanna er
þó misjöfn.
Afkoma stóru loðnuskipanna og
þeirra, sem jafnframt hafa
stundað sildveiðar i Norðursjó.er
lika góð.
Hins vegar er afkoma togveiði-
báta og humarbáta fremur léleg
og rekstur margra báta og togara
hefir gengið erfiðlega.
Nýju skuttogararnir eru allir á
fyrsta reynsluári. Afli þeirra
hefir yfirleitt verið góður, en ljóst
er að rekstur þeirra stendur ekki
undir öllum umsömdum út-
gjöldum á þessu ári.
Nú hefir fiskverð hækkað mikið
á þessu ári og ætti þvi reksturs-
staðan að batna, ef rekstrargjöld
hækka ekki meir á næsta ári en
nemur fiskverðshækkun á þvi ári.
Fiskveiðar okkar og fiskverkun
er alltaf að verða fjölþættari og
fjölþættari. Nýjar greinar hafa
komið til og enn fleiri hljóta að
bætast við áður en langt um liður.
Ekki getur dregist lengi úr þessu,
að við komum hér upp einni eða
tveimur verksmiðjum, sem full-
vinna sjávarrétti til útflutnings.
Miklar likur eru ti þess, að góður
markaður geti opnast fyrir slika
framleiðslu i Evrópulöndum.
Fiskverð á erlendum
Sunnudagur 2. desember 1973. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Ekki eyðsla og sóun,
heldur varanleg
verðmæti
Góðir fundarmenn.
Ég hefi þegar orðið nokkuð
langorður, en mig langar þó að
lokum að minna hér á nokkrar
athyglisverðar staðreyndir um
rekstur þjóðarbúsins i dag, —
staðreyndir, sem ég hygg að gott
sé að hafa i huga, þegar menn eru
hver um sig að glima við sin
vandamál, eða kvarta og kveina
og tala gjarnan eins og allt sé að
farast.
A þvi ári, sem nú er að liða,
stöndum við ekki aðeins i meiri
framkvæmdum i okkar fiskiðnaði
en dæmi eru um áður, við
stöndum ekki aðeins i þvi að veita
viðtöku 30-40 nýjum skuttogurum
og stórum fiskiskipum, heldur
byggjum við einnig ibúðarhús
fyrir 6 milljarða króna eða 50%
meira en árið áður, sem þá vár
met-byggingarár. Við höfum
hafist handa um byggingar i
þremur fiskihöfnum fyrir 1
miljarð.
Við byggjum vegi á vegum
rikisins fyrir 2 1/2 miljarð. Við
byggjum meira af skólum og
sjúkrahúsum en nokkru sinni
áður.
Viðhöfum flutt inn vörur i októ-
berlok fyrir 24.6 miljarða króna á
móti 16.0 miljörð. á sama tima
árið áður.
Og við tókum á okkur á þessu
ári miljarðaútgjöld vegna jarð-
eldanna i Vestmannaeyjum.
Og höfum við þá ekki eytt og
sóaðöllu, kann einhver að spyrja.
Nei — þvi fer fjarri. 1 fyrsta lagi
er nú það, að flest af þvi. sem ég
hefi hér talið af framkvæmdum
okkar á árinu, er ekki eyðsla eða
sóun, heldur varanleg verðmæti.
En auk þess er svo á það að lita,
að á 10 fyrstu mánuðum þessa
árs hafa innistæður okkar i
bönkum aukist um 5757 miljónir
króna borið saman við 2683
miljónir á sama tima árið áður.
Með öðrum orðum, beinn
peningalegur sparnaður i banka-
kerfinu er helmingi mciri nú en
árið áður.
Og þrátt fýrir gifurlegan vöru-
innflutning og mikla gjaldeyris-
eyðslu á öðrum sviðum, þá hefir
gjaldeyrisstaðan batnað.
Og auk þessa má benda á, að sú
lækkun krónunnar, sem sam-
þykkt var fyrir tæpu ári siðan,
hefir verið unnin upp aftur og
verðgildi krónunnar er beinlinis
meira nú gagnvart dollar en það
var fyrir ári siðan.
Atvinna hefir verið meiri og
almennari um allt land en áður
hefir þekkst.
Kaupmáttur launatekna hefir
aukistum 27% á tveimur árum og
greiðslur til aldraðra og öryrkja
hafa meir en tvöfaldast á sama
tima.
En þrátt fyrir þessa hagstæðu
afkomu er við mörg vandamál að
glima.
Sumir hafa mestar áhyggjur af
nýjum skuttogurum, aðrir af
nýjum frystihúsum, enn aðrir af
Framhald á 14. siðu
Geir Ólufsson við tækin i fjurskiptudeild. (Myndir: A.K.)
Veðurstofan
í nýju húsi
Öll starfsemi Veðurstof-
unnar nema deildin á
Kef lavíkurf lugvelli hefur
nú verið f lutt í nýbyggingu
stofnunarinnar á Öskjuhlíð
austanverðri. Fram að
þessu hefur verið heldur
þröngbýlt hjá Veðurstof-
unni, en stóraukið rými í
nýja húsinu gefur nú, auk
þess sem það breytir allri
vinnuaðstöðu, möguleika á
að taka upp nýjar aðferðir
við veðurspár og að haga
starfseminni í samræmi
við kröfur timans, sagði
Hlynur Sigtryggsson er
hann sýndi blaðamönnum
hin nýju húsakynni á
f immtudaginn.
Veðurstofan hóf starfsemi sina
árið 1920 aö Skólavörðustig 3,
sagði Hlynur. Húsnæði var þar
litið, en þar sem starfsmenn voru
aðeins þrir, mun aldrei siðan hafa
verið rýmra um starfsliö Veöur-
stofunnar fyrr en nú. Bráðlega
þrengdist þó, og árið 1930 flutti
Veðurstofan i Landssimahúsiö.
Þaðan flutti hún um miðjan des-
ember 1945 i Sjómannaskólann,
sem þá var nýreistur, en veður-
spádeild flutti þaðan á Reykja-
vikurflugvöll i janúar 1950.
,,Eins fljótt og
verða mætti" frá 1926
Akveðið var i lögum um Veöur-
stofu tslands frá 15. júni 1926, aö
reist skyldi hús fyrir Veðurstof-
una eins fljótt og verða mætti.
Þetta ákvæði var endurtekið litið
breytt i nýjum lögum um Veður-
stofuna frá 1958.
Nefnd sett 1961 skilaði ári siðar
áliti um húsnæðisþörf Veðurstof-
unnar og gerði þá ráö fyrir, að
hún þyrfti 1900 fermetra eða 5900
rúmmetra fyrir starfsemi sina.
Vilyrði fyrir lóðinni á Oskjuhlið
fékkst hjá borginni i október 1962
og sótti Veöurstofan þá þegar til
fjárveitinganefndar alþingis um
nokkurt fé til að geta hafið fram-
kvæmdir næsta ár. Litið gerðist
þó i málinu um sinn, en 1967 veitti
alþingi 300 þús. kr. til undirbún-
ingsvinnu við bygginguna, en ári
áður hafði minnihluti fjárveit-
inganefndar borið fram tillögu til
fárveitingar i sama skyni.
1970 voru veittar tiu miljónir til
byggingaframkvæmda, næsta ár
15 og siðan 26 árin 1972 og '73 og á-
ætlun er um 9,5 árið 1974. Það
heföi þvi ekki staðið á fjárveiting-
um siðan verkið hófst, i ágúst
1970, sagði veðurstofustjóri, og
var þakklátur viðkomandi ráð-
herrum.
6679 rúmmetrar
1 húsinu, sem er mjög vandað
og fallega frá gengið, rúmast all-
ar deildir Veðurstofunnar, en þær
eru veðurspádeild, fjarskipta-
deild, veðurfarsdeild, áhalda-
deild, jarðeðlisfræðideild og
skrifstofa stofnunarinnar, en
flugveðurstofa er eftir sem áður
starfrækt á Keflavikurflugvelli.
Er húsið 16x40, 5 metrar, 6679
rúmm., heildargólfflötur 2183
ferm ., það er 3 hæðir og kjallari,
efsta hæðin inndregin að hálfu.
Veðurstofan notar ekki alveg allt
húsnæðið nú, er hálf hæð leigð
Veiðimálastofnun rikisins.
Fyrsta verkiö
Arkitekt var Skarphéðinn
Jóhannsson, en að honum látnum
sáu Guðmundur Kr. Guðmunds-
son og Olafur Sigurðsson um
teiknun innréttinga. Aðrar teikn-
ingar gerðu Verkfræðistofa
Braga Þorsteinssonar og Eyvind-
ar Valdemarssonar, Sigurður
Halldórsson verkfræðingur og
Verkfræðistofa Sigurðar Thor-
oddsen, en verktakar voru Ingi-
mar llaraldsson og Hafsteinn
Júliusson, Trésmiðja Austurbæj-
ar, Þórir Lárusson, Geislahitun
hf. og Nýja Blikksmiðjan.
Innkaupastofnun rikisins,
l'ramkvæmdadeild.annaðist útboð
og framkvæmd verksins i heild.
Mun bygging Veðurstofuhússins
vera fyrsta verk, sem gert er
samkvæmt lögum frá 12. mai 1970
um skipan opinberra fram-
kvæmda.
Talan 40
Það kom fram i spjalli við
veðurstofustjóra og nánuslu sam-
starfsmenn hans, að alls vinna
hjá Veðurstolunni á sjötta tug
manna, 35 i deildum Veðurstof-
unnar i Reykjavik og 22 á Kefla-
vikur flugvelli.
Talan 40 gengur i gegn i starf-
seminni og eru þannig samanlagt
um 40 veðurathuganastöðvar úti
um land auk um 40 svokallaðra
veðuifarsstöðva, sem senda
fregnir 3svar á dag, 40 úrkomu-
mælingastöðvar senda lregnir
daglega og u.þ.b. 40 skip scnda
Veðurstofunni skeyti.
Alræmt
fyrir lægðirnar
Ekki álitu þeir veðurfræðing-
arnir erfiðara að spá fyrir veðri
hér á lslandi en annarsstaðar,
Framhald á 14. siðu
Úr veöurspádeild. Knútur Knudsen veðurfræöingur i símanuin.