Þjóðviljinn - 18.12.1973, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 18.12.1973, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 18. desember 1973. UÚOVIUINN MÁLGAGN SÓSÍALISMA VERKALYÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. Ctgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson (áb) Fréttastióri: Evsteinn Þorvaldsson Kitstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 linur) Askriftarverð kr. 360.00 á mánuði Lausasöluverð kr. 22.00 Prentun: Blaðaprent h.f. HERINN FARI - STJÓRNIN SITJI Að undanförnu — ekki sist eftir full- veldisleiðara Tómasar Karlssonar — hefur nokkuð borið á tortryggni i garð forustumanna Framsóknarflokksins vegna herstöðvamálsins. Á það hefur verið bent hér i blaðinu að ályktanir kjör- dæmisþinga Framsóknarflokksins væru mjög eindregnar i þá átt að kref jast brott- farar hersins og vitnað hefur verið til ummæla formanns og varaformanns Framsóknarflokksins, sem hafa verið mjög ótviræð. Á fundi Samtaka her- stöðvaandstæðinga á laugardaginn var bættist ritari Framsóknarflokksins, Stein- grimur Hermannsson, i þennan hóp. Hann lýsti þvi yfir að sér væri það kappsmál að herinn færi á skömmum tima. Það væri stefna Framsóknarflokksins að herinn færi, spurningin væri aðeins hvernig hann færi og á hvað löngum tima. Mikilvægast nú væri að ná samkomulagi, sem allir stjórnarflokkarnir gætu staðið að sam- eiginlega, um það hvernig brottför hersins yrði háttað og siðan yrði Bandarikja- mönnum gert að samþykkja þá niðurstöðu islensku ríkisstjórnarinnar ella verði gripið til uppsagnar samningsins frá 1951. Slika úrslitakosti taldi Steingrimur að við ættum að setja Bandarikjamönnum sem allra fyrst. Steingrimur Hermannsson ræddi enn- fremur það fyrirheit frá samningnum um aðild að NATO 1949, að hér skyldi ekki vera her á friðartimum. Taldi hann ólikt friðvænlegra i heiminum i dag en þegar Atlantshafsbandalagið var stofnað. Stein- grimur harmaði þær raddir innan Fram- VANRÆKSLA VIÐREISNARSTJÓRNARINNAR Athygli almennings hefur að undan- förnu beinst nokkuð að ástandinu i raf- orkumálum. Það stafar ekki sist af þvi að stjórnarandstöðublöðin hafa tiundað bil- anir i rafmagnskerfum ákaflega sam- viskusamlega, sem telja nú óhætt að ráðast á núverandi rikisstjórn i raforku- málum i trausti þess að almenningur þekki ekki undirrót vandans. Staðreyndin er sú, að flest vandamálanna stafa af van- rækslu viðreisnarstjórnarinnar, sem i raf- orkumálum sá ekkert nema i tengslum við erlenda fjárfestingu. Núverandi rikis- stjórn hefur hins vegar efnt til margvis- legra framkvæmda i raforkumálum og er með annað i athugun sem mun gjörbreyta ástandinu þegar þar að kemur. En allar framkvæmdir við mikil mannvirki taka langan tima. Frá þvi að Magnús Kjartansson tók við forustu i raförkumálum Islendinga hefur átt sér stað gjörbreyting. Nú er stefnt að samtengingu með þvi að leggja raflinu norður i land, framkvæmdir eru að hef jast við Sigöldu og framkvæmdir eru i fullum gangi við Mjólká og Lagarfljótsvirkjun, sóknarflokksins sem mæltu gegn þvi að herinn færi i samræmi við margitrekaðar flokkssamþykktir Framsóknarflokksins og samkvæmt loforðunum frá 1949. Steingrimur kvaðst ekki vera sáttur við tillögu Alþýðuflokksins — það yrði að vera alveg ótvirætt að herinn færi. ,,Ég vil leysa þetta mál á þann hátt að herinn fari, en núverandi rikisstjórn sitji,” sagði Steingrimur Hermannss on ennfremur á fundi herstöðvaandstæðinga. Þjóðviljinn birtir kafla úr ræðu Stein- grims Hermannssonar annars staðar i blaðinu, en vill sérstaklega taka undir það sem siðast var vitnað til úr máli hans. Það bendir til þess að framsóknarmenn geri sér glögga grein fyrir þvi að efndir þeirra fyrirheita sem gefin hafa verið eru for- senda stjórnarsamstarfsins. stefnt er að virkjum Kröflu og þannig mætti lengi tiunda. Auk þessa hefur iðnaðarráðuneytið falið verkfræðistofu að gera áætlun um það hvernig unnt megi vera að flýta framkvæmd áætlunar um hagnýtingu innlendra orkugjafa til húshit- unar i stað oliu. Þannig er nú og hefur frá myndun núverandi rikisstjórnar verið unnið markvist að framkvæmdum i raf- orkumálum sem munu leysa þann vanda sem vanræksla viðreisnarflokkanna skapaði og er enn að koma niður á lands- mönnum. Hvað gerir ISI vegna framkomu iþrótta- manna i þjónaverk- falli? Þjóðviljinn spurði forseta tþróttasambands Islands, Gisla Halldórsson, að þvi i gær hvað tSl hyggðist gera vegna fram- komu þeirra iþróttamanna, glimu- og lyftingamanna, sem hafa gefið sig i að varna þjónum verkfallsvörslu i deilu þeirra við veitingahúsaeigendur. — í lögum okkar er voðalega litið um það þegar menn brjóta af sérúti i bæ, sagði Gisli, þannig að við eigum erfitt með að taka á svona máli fyrr en það hefur þá verið rannsakað. Ég tel að þeir séu ekki fengnir i þetta sem iþróttamenn. Við ætlum að ræða þetta á fundi á miðvikudag, en það er ákaflega erfitt fyrir okkur að taka á þessu. Mér finnst leitt að menn sem eru framarlega i iþróttum skuli vera að blanda sér i svona deilu. En það er erfitt fyrir iþróttahreyf- inguna að bera ábyrgð á þessu, þar sem innan hennar eru 50 þúsund manns, sagði Gisli enn- fremur. úþ BIBLIAN i heild — eða einstök rit hénnar — hefur nú verið þýdd og prentuð á 1500 tungumálum af um 3000 núlifandi málum, og um 90% jarðarbúa hafa Ritninguna á móðurmáli sinu nú. Islendingar voru meðal fyrstu 20 þjóða heims, er eignuðust Ritninguna á móður- máli sinu, þ.e. Nýja Testamenti Odds Gottskálkssonar árið 1540 Ekkert lát á frostinu „Stendur sennilega í marga daga ”, segja veðurfrœðingar Enn lierjar froslið grimmt ogaðsögit veðurfræðinga mun svo lialda frani um skeið. i fyrrinótt var kaldast i bvggð 21 stig á Grimsstöðum en 23 stig á hálendinu. Þá voru 13 stig i Kevkjavik. 15 á Akur- eyri, 17 á llæli i Hreppum og 14 stig viðast á Vestfjörðum. Unt miðjan dag i gær var enn 13 stiga frost i Reykjavik. Astæðan fyrir þessum gaddi er þrálát norðanátt sem komin er norðan úr tshafi og hefur safnað i sig brunakulda á ferð sinni yfir hafisbreiðuna milli Grænlands og Jan Mayen. Að þvi er Knútur Knudsen veður- fræðingur tjáði blaðinu, megum við búast við að þetta kuldakast standi i marga daga. Mikil ófærö Hjá Vegagerðinni fengum við þær upplýsingar að frá líeykjavik er fært um Borgar- fjörð og i Dali um Heydalsveg en vestan Gilsfjarðar er allt ófært og allir fjallvegir á Vest- fjörðum lokaðir. Holtavörðu- heiði er lokuð og færð var mjög tekin að þyngjast um Skagafjörð i gær. Bjuggust menn við þvi að ófært væri orðið um Vatnsskarð og til Siglufjarðar. A Norðausturlandi voru allir fjallvegir ófærir. Út frá Egils- stöðum var fært til Reyðar- fjarðar og Eskifjarðar en að öðru leyti var allt ófært á Austurlandi. Öfært er um Lónsheiði og Almannaskarð og Breiðamerkursandur var ófær i gær en þar stendur til að reyna að moka i dag. A Suðurlandi er allt fær* austur að Mýrdalssandi en hann hefur verið iokaður i viku og sömuleiðis Skaftar- tungurnar. Þar var gerð til- raun til að moka i gær en ekki vitað um árangur af þvi. Þótt fært sé talið i nágrenni Reykjavikur er mjög viða mikil hálka á vegum. -ÞH Túrbínan komin til Hafnar Átti að fara í gang í nótt Um fimmleytið i gær kom Hekla meö túrbinu- vélina langþráöu til Hafnar og stóöu vonir til þess aö hægt væri að koma henni i gang i nótt. Geta þá Hornfirðingar aftur kynt hús sin á fullum dampi. Ástandiö skánaði heldur um helgina en þá barst Kaupfélagi A- Skaftfellinga 200 kólóvatta vél sem sá fyrirtækjum þess fyrir rafmagni. Fyrir bragðið var hægt að tviskipta bænum i skömmtunarsvæði og fékk hvort svæði rafmagn i tvo tima i einu en var rafmagnslaust i tvo tima á móti. í gær var 14stiga gaddur á Höfn og norðanrok. Að sögn frétta- ritara blaðsins á staðnum voru öll Viðlagasjóðshúsin tóm. Flestir ibúanna höfðu flúið til Rey-kja- vlkur en nokkrir bjuggu á hótelinu. Túrbínan nægir orkuþörfinni Gastúrbina sú sem Horn- firðingar fá frá Seyðisfirði fram- leiðir 1200 kilovött. Henni til við- bótar eru disilstöðvar sem fram- leiða 690 kilóvött. Er þvi örkuþörf staðarins fullnægt þvi hámarks- álag er 1600 á þessum tima árs en nokkuð hærra þegar vertiðin stendur. liins vegar brennir hún mun meiru en venjulegar disilstöðvar. Er talið að hún þurfi hálfu meira magn af hráoliu til að framleiða sömu orku og venjuleg disilstöð eyðir. Ekki truflanir annars staöar Ekki urðu neinar bilanir á öðrum orkusvæðum en á Höfn. Viða olli krap þó erfiðleikum. 1 Laxá féll orkuframleiðslan úr 18 megavöttum niður i 15 i fyrrinótt. Olli þetta talsverðum erfiðleikum þvi álagið var geysimikið vegna kuldans. Hjá Landsvirkjun dró einnig úr afköstum en ekki svo að til vandræða yrði. Andvigir frumvarpi um ly f j af ramleiðslu Þingmenn Sjálfstæðisflokksins i efri deild lögðust gegn þvi að frumvarp það sem Magnús Kjartansson hefur lagt fram fyrir hönd rikisstjórnarinnar um lyfja- framleiðslu nái fram að ganga. Þrir þingmenn ihaldsins i efri deild töluðu gegn frumvarpinu og vildu, að þvi yrði 'visað frá með rökstuddri dagskrá. Frumvarpinu var að umræðu lokinni visað til 3. umræðu, og voru brevtingartillögur dregnar baka til 3. umræðu svo og tillögur ihaldsins um frávisun með rök- studdri dagskrá. Helgi F. Seljan, formaður heil- brigðis- og tryggingamálanefnd- ar efri deildar, átti i höggi við ihaldsfulltrúana. Helgi gagnrýndi afstöðu Sjálfstæðisflokksins. Rikið er fólkið i landinu: á mál- efni þess verður að lita með hags- muni heildarinnar fyrir augum, en ekki til þess að koma fótum undir gróðaspekúlanta, sagði Helgi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.