Þjóðviljinn - 18.12.1973, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 18.12.1973, Blaðsíða 16
DJÚÐVIUINN Þriðjudagur 18. desember 1973. Almennar upplýsingar um lækna- þjónustu borgarinnar eru gefr---- ' simsvara Læknafélags Heykja vikur, simi 18888. Kvöldsimi blaðamanna er 17504 eftir klukkan 30:00. Kvöld-, nætur-, og helgarvarsla lyfjabúöanna i Reykjavik vikuna 14,—20. desember er i Lyfjabúð- inni Iöunni og Garösapóteki. Slysavaröstofa Borgarspitalans ‘ er opin allan sólarhringinn. Kvöld-, nætur-og helgidagavakt á Heilsuverndarstöðinni. Simi 21230. Viðbótarritlaun til rithöfunda 54 fengu 220 þús. kr. hver Ilinn 8. nóvember 1973 skipaði me n n t a m á la r áðu ney t ið út- hlutnarnefnd i samræmi við regl- ur nr. 307/1973 um viðbótarritlaun til islenskra rithöfunda og höfunda fræðirita. I nefndinni áttu sæti: Rannvcig G. Agústsdóttir B.A. samvkæmt til- nefningu It ithöf undafclags is- lands, Bergur Guðnason lög- fræðiugur samkvæmt tilnefningu Kélags islenskra rithöfunda og Þorleifur llauksson lektor sam- kvæmt tilncfningu kennara i is- lenskum bókmcnntum við ilá- skóla islands, og var hann jafn- l'ramt formaður ncfndarinnar. Nefndin auglýsti eftir upplýsingum frá höfundum um ritverk, útgefin eða flutt opinber- legaá árunum, 1972, 1971 og 1970, og bárust henni upplýsingar frá 121 aðila. Skilafrestur rann út 10. desember, siðastliðinn. 54 höfundar urðu fyrir valinu, og nam veiting til hvers þeirra rúm- um 220.000 krónum. Greiðsla þessa fjár hefst eftir næstu ára- mót. Hér á eftir fer listi yfir þá höfunda, sem viðbótarritlaun hlutu: Aöalgeir Kristjánsson, Agnar Þórðarson, Armann Kr. Einars- son, Arni Larsson, Arni Ola, Asi i Bæ, Birgir Engilberts, Björn J. Blöndal, Einar Bragi, Einar Framhald á 14. siðu Kreppuástand í Bretlandi LONDON 17/12 Breta bíða köld jól og myrk, og svo mikið atvinnuieysi. Stjórnin hefur boðað kreppuráðstafanir sem lúta m.a. að því að hækka eignaskatt og söluskatt af munaðar- vöru. Bensin er svo til ófáanlegt i London og jafnvel læknar fá ekki bensin á bila sina. A föstudag var tekin upp raf- magnsskömmtun sem verður að likindum hert á. Stjórnvöld hafa þegar stytt útsendingar sjónvarps og hvatt fjölskyldur til að búa sem mest i einu her- bergi til aö ■ spara rafmagn. Um helgma var bensin- stöðvum lokað, flugferðir féllu margar niður og lestir gengu aðeins fáar. Straumur var tekinn af langtimum sam- an i stórum hlutum landsins. Orkuver fá ekki kol til raf- magnsframleiðslu vegna þess að kolanámumenn neita að vinna yfirvinnu og kolin komast heldur ekki leiðar sinnar vegna þess að lestar- stjórar fara sér hægt i kjara- deilu sinni. Mikill hluti iðnfyrirtækja býr sig undir þriggja daga vinnuviku eftir áramót, en það mun fyrr en siðar leiða til meiriháttar atvinnuleysis. Ótiðindum þessum hafa Bretar svarað m .a. með þvi að kaupa um 40% meira af áfeng- um drykkjum það sem af er desember en þeir keyptu á sama tima i fyrra. Af heimsmethafanum hugumstóra Beinbrot við verkfallsvörslu Sá sein kallaöur hefur vcrið heimsnieistari af islcndiiigum siðau á laugardag, liinii 21 árs unglingur, Gústaf Agnarsson, tók lokaæfingu fyrir hcimsmetið við lyftingar á þjónum við verkfalls- viirslu á llótel Siigu á föstudags- kviildið, er haiin sneri einn þjón- inn niður og sparkaði i hann með þeim afleiðingum að hann ökla- brolnaði. Má þetta kallast iþróttamaniislegt með afbrigð- um. Að sögn Arnar Egilssonar framreiðslumanns komu þjónar nokkuð seint til verkfállsvörslu að Ilótel Sögu á föstudagskvöldið. Var þar þá fyrir mýgrútur af kraftajötnum , og nafngreindi hann eftirtalda iþróttamenn, sem vöruðu þjónum aðgang að húsinu lil þess að þeir gætu varnað verk- lallsbrotum: Gústaf Agnarsson, titlaðan heimsmeitara i lyfting- um, Ómar Úlfarsson úr Glimu- deild KR, Jón Unndórsson glimu- mann, Guðmund Sigurðsson lyft- ingamann, Jón ögmundsson fjöl- bragðaglimumann og nýorðinn formann Lyftingasambandsins, Finn Karlsson. Þessir menn voru klæddir eftir hinu nýja viðhorfi veitingamanna á Sögu sem hing- að til hafa viljað ráða þvi hvernig fólk er klætt sem þangað kemur, en kjötfjöll þessi voru flest bindig- laus og einn á nærbolnum einum klæða ofan beltis. I átökum þessa varnarliðs og þjóna brotnuðu ein- ar fimm rúður á Sögu. Kom lög- reglan á vettvang og tók til yfir- heyrslu og skýrslugerðar 2—3 þjóna og eitthvað af varnarliðs- mönnum. Sagöi örn að ekki færi á milli mála að menn þessir yrðu kærðir. Það var barþjónn af Loftleiða- hótelinu, Jónas Þórðarson, sem öklabrotnaði. Verkfallsvarsla var á Hótel Borg þetta sama kvöld, en þar voru engin kjötfjöll til varnar og tvivegis var þar stólað upp það kvöldið. örn sagði að ASI mundi ræða þetta mál á fundi i dag; hvort það gæti á einhvern hátt blandað sér i þessa deilu og þá hvernig. — Dómsmálaráðherra vill ekk- ert fyrir okkur gera, sagði örn. Hins vegar gefur hann leyfi til handa húsunum að halda skemmtanir á sama tima og hann segist ekki vilja blanda sér i mál- ið. — Élg sé sérstaka ástæðu til að benda á sagði Örn að lokum, að Júdósambandið hefur lýst yfirþvi að menn innan vébanda þess muni ekki taka þátt i slikum of- beldisaðgerðum, sem glimu- og lyftingamenn gera nú, og reyndar furðulegt að iþróttamenn skuli leggja sig niður við slika iðju sem þessa. úþ Poul Hartling myndar stjórn KAUPMANNAHÖFN 17/12 Poul Hartling, formaður Vinstri flokksins danska^ mun mynda miimihlutastjórn sins flokks, að þvi er lilkynnt var i Kaupamnna- liöfn i dag. Sammála um klukkuna Fischer og Spassky urðu strax sammála um eitt, að nota GARDE- skákklukku Við höfum nú fengið GARDE-skákklukkuna aftur á ótrúlegu verði: 1.948.00. — Enn- fremur feiknar úrval af tafl- mönnum og taflborðum, svo og ferðatöflum, sem samboðið er byrjendum og heimsmeisturum. Góöar jólagjafir (líka fyrir stúlkur) Skoðið úrvalið BÓKABÚÐ MÁLS OG MENNINGAR, Laugavegi 18-sími 24242

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.