Þjóðviljinn - 16.05.1974, Qupperneq 7
SÚM sýnir
Fimmtudagur 16. mai 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
ALÞÝÐULIST
Á LISTAHÁTÍÐ
Eins og fram hefur
komið i fjölmiðlum
Sláttumaður dauöans skorinn út
af Selfyssingi undir áhrifum
frétta frá Vietnam um jólaleytið
1972.
auglýsti SÚM eftir list-
munum frá alþýðu
manna á sýningu sem
félagið hyggst efna til i
tilefni þjóðhátiðar. Er
hugmyndin að reyna að
gefa nokkra mynd af
þvi hvað islensk alþýða
er að fást við i list-
sköpun sinni á þjóð-
hátiðarári.
Guðbergur Bergsson sýndi
blaðamanni og ljósmyndara
blaðsins nokkur sýnishorn af
þeim munum sem borist hafa.
Var hann ánægður með undir-
tektir fólks við tilmælum félags-
ins og kvaðst hafa fengið list-
muni viðsvegar að af landinu,
mest þó úr Reykjavik.
Hann kvað þessa listsköpun
vera mjög einstaklingsbundna
og virðist ekkert samband vera
á milli þessa fólks sem fæst við
listsköpun i tómstundum sinum.
Athyglisvert væri einnig að list-
sköpun alþýðu virtist engm
tengsl hafa við hefðina i
islenskri list.
Munir þeir sem hann sýndi
okkur voru frá Strandasýslu,
Kópavogi og Selfossi. Stranda-
maðurinn tók sér efnivið úr
umhverfinu og hafði gert fagra
blómamynd úr fiskbeinum,
einnig hafði hann málað haus-
kúpu úr sel. Kópavogsbúinn
notaði rekavið og steina i and-
litsmyndir en Selfyssingurinn
skar út i tré. Ein mynd þess
siðastnefnda var af sláttumann-
inum með bandariska fánann og
hakakross á. Kvaðst hann hafa
gert hana um jólin 1972 undir
áhrifum frétta af sprengjukasti
Nixons á Hanoi.
Guðbergur bað okkur að
koma á framfæri hvatningu til
fólks um að halda áfram að
senda muni og yrði tekið við
þeim fram að mánaðamótum.
Sýningin verður svo opnuð 7.
júrii og verður bæði i Galerie
SÚM og Ásmundarsal við
Freyjugötu.
-1>II
Ægir Sigurgeirsson, kennari, —
efsti maður á lista
Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði
fólksfjölgunar i bænum og
fjölgunar ungra kjósenda?
,,Ég tel það ekkert vafamál
vera, að Alþýðubandalagið
stendur mjög vel i Hafnarfirði
núna. Það þarf ekki annað að
gera en skoða framboðs-
listann til að sannfærast um að
félag, sem hér hefur allt of
lengi rikt.”
Styrkir fólksfjölgunin stöðu
Alþýðubandalagsins?
,,Já, tvimælalaust. Það er
að verulegu leyti ungt fólk
sem nú bætist i hóp hafn-
firskra kjósenda, og Alþýðu-
Alþýöubandalagiö
sterkt í Firðinum
Ægir Sigurgeirsson,
kennari,er í fyrsta sæti
framboðslista Alþýðu-
bandalagsins i Hafnar-
firði.
Ægir er 29 ára að aldri
og hefur ekki búið ýkja
lengi í Hafnarfirði — en
það er raunar sameigin-
legt einkenni flestra
frambjóðenda Alþýðu-
bandalagsins í Hafnar-
firði, að þeir er ungir að
árum og hafa fæstir
boðið sig fram áður. Og
Iíka hitt, að jafnréttis
kynjanna er vandlega
gætt, konur á framboðs-
listanum eru ellefu
talsins og karlar ellefu.
Hvernig sýnist þér að
Alþýðubandalagið standi núna
i Hafnarfirði með tilliti til
ungt fólk tekur Alþýðubanda-
lagið fram yfir aðra flokka.
Ungt fólk kýs félagslega
lausn þeirra vandamála sem
nú er við að glima. ”
Staða Alþýðubandalagsins i
Hafnarfirði var ekki ýkja
sterk eftir siðustus bæjar-
stjórnarkosningar — þá fékk
bandalagið engan mann i
bæjarstjórn. Er staðan
áberandi sterkari núna?
,,Um það leyti,er siðast var
kosið, átti Alþýðubandalagið i
erfiðleikum. Þá hurfu nokkrir
þekktir liðsmenn úr okkar
röðum. Það hefur hins vegar
sýnt sig á siðustu árum, að
Alþýðubandalagið er eini
raunverulegi vinstri flokk-
urinn i landinu, sem mark er á
takandi.
Þetta hefur æ fleira fólk gert
sér ljóst, og þá ekki sist unga
fólkið, sem vill brjóta niður
hið gamla samkeppnisþjóð-
bandalagið á meira fylgi
meðal unga fólksins en nokkur
annar flokkur,”
— Hvað telurðu brýnast að
gera i svo ört vaxandi bæjar-
félagi sem Hafnarfjörður er?
„Brýnustu verkefnin tel ég
annars vegar vera atvinnu-
uppbyggingu, úrbætur i
hafnarmálum, og hinsvegar
er þörf stórfelldra umbóta i
skóla- og félagsmálum.
I því sambandi bendi ég sér-
staklega á það öngþveiti sem
rikir i málefnum yngstu
borgaranna. Einkum i sam-
bandi við dagvistunarstofn-
anir, sparkvelli og fleira.”
Ertu nokkuð smeykur við að
lenda i karpi við hina æfðu
pólitikusa sem hinir flokk-
arnir bjóða fram?
„Þótt ég sé ekki atvinnu-
pólitikus, þá ber ég engan
kviðboga fyrir þeim þætti
málsins”.
GG
Ekki fáum við betur séð en að þetta eigi að vera ugla sem Kópa
vogsbúi hefur raðað saman úr rekaviðarbútum og steinum. (Ljósm
AK)
Andiit gert af Kópavogsbúa úr steinum og viðarbútum
Þessi blómamynd er gerð úr fiskbeinum máluðum sterkum litum af
Strandamanni.