Þjóðviljinn - 16.05.1974, Síða 14
14 SÍÐA — ÞJÓDVILJINN Fimmtudagur 16. maí 1974.
Eggert Guðmundsson vift málverk af Jóhönnu Egilsdóttur, sem hann hefur gefið Verkakvennafélaginu
Framsókn.
Guðmundsson
listmálara,
sem nú sýnir
í Myndlistar-
húsinu á
Klambratúni
Þetta er framlag mitt
til þjóðhátíðarinnar
— Það eru nú liðin ein 15 ár sið-
an ég hef haldið sýningu á borð
við þessa, og ég kalla þessa sýn-
ingu framlag mitt til þjóðhátiðar-
innar i ár, sagði Eggert
Guðmundsson listmálari er við
heimsóttum hann i gær, skoðuð-
um sýningu hans og röbbuðum
við hann.
— Ég opnaði sýninguna á laug-
ardaginn var, 11. mai, á lokadag-
inn, mér fannst það vel við hæfi.
— Þú málar mikið frá sjávar-
siðunni?
— Já, ég geri það, þar hefur
mitt lif verið.
— Er þetta sölusýning?
— Það eru nokkrar myndir til
sölu. Það hafa selst ein 18 mál-
verk siðan ég opnaði og um 20 litl-
ar teikningar; ég hef enga ástæðu
til að kvarta undan þvi.
— Hvað spanna þær myndir
sem þú sýnir hér yfir langt tima-
bil á listamannsferli þinum?
— Við skulum nú sjá, það eru
nærri 40 ár. Ætli elsta myndin á
sýningunni sé ekki siðan 1935 eða
1936, og þær nýjustu eru málaðar
i ár.
— Nú vinnur þú sem kennari,
Eggert, hvenær hefurðu þá tima
til að mála?
— Það eru 24 timar i sólar-
hringnum, vinur minn, og þegar
maður vinnur að hugðarefnum
sinum þarf maður ekki að sofa
nema 3 til 4 tima i sólarhring.
— Getur listmálari lifað á list
sinni á Islandi i dag?
— Ekki yrði það nú neitt sæld-
arlif, en þó hygg ég að einhleypur
maður, eða þá maður með létt
heimili, gæti það.
— Þú virðist ekki hafa látið hina
ýmsu isma eða tiskusveiflur i
myndlistinni trufla þig?
— Nei.það hef ég ekki gert, en
sem svar við þessari spurningu
vil ég vitna til hugleiðinga minna
um þetta mál i sýningarskrá
minni nú.
Þar segir Eggert:
Listamaðurinn á enga samleið
með ismum eða stefnum i list-
sköpun sinni. Ismarnir eru elti-
fiskar listarinnar, ef svo mætti
kalla þá, oft hættulegar afætur og
geta orðið allri listsköpun og
listamönnum óæskilegir afleiðað-
ar til ósjálfstæðis. Allar stefnur
eru afleiðingar af sjálfstæðum
verkum góðra listamanna, sem
hafa verið sérstakir og stórbrotn-
ir i sköpun verka sinna. Þeir
smærri ætla sér að feta i fótspor
meistaranna en glata þó stundum
um tima eða alla framtið sinum
eigin eiginleikum. Þvi miður
verður ástriðufullum eltimönnum
stefnanna það á, að lita sjálfa sig
fróðasta um allt sem við kemur
listum, enda sækjast þeir eftir að
láta ljós sitt skina og veigra sér
ekki við að dómfella sér full-
komnari og betri listamenn. Nei
— sjálfstæður listamaður leggur
og brýtur alla isma undir muln-
ingshamri sinum og skapar verk
sitt i sinni eigin mynd, samanber
fæðingu.
—S.dór
Bændur bjartsýnir
— Bjartsýni bænda er
mikil á þessu fádæma
blíöa vori, sagöi Gísli
Kristjánsson hjá Búnaðar-
félaginu, þegar Þjóðviljinn
ræddi við hann í gær. Vorið
er afskaplega hlýtt — og
hlýindin eru ríkjandi um
allt land.
Gisli sagði að vonir stæðu til að
sauðburðurinn heppnaðist vel
núna, þar eð flestir bændur geta
nú látið féð bera úti, en það færi
mun betur með féð að hafa það
úti, heldur en að láta það bera
inni i misjafnlega góðum fjárhús-
um.
— Gróður er kominn vel á veg,
en einna skemmst þó á Norð-
austurlandi. Þótt hlýindi hafi ver-
ið þar meiri en annars staðar á
landinu, þá hefur varla komið
dropi úr lofti siðan i mars, sagði
Gisli, og þess vegna tók gróðurinn
seint við sér.
— Talar nokkur bóndi um kal?
— Þeir eru nokkrir, sagði Gisli,
og þá helst i uppsveitum Arnes-
sýslu, Borgarfjarðar og á Vestur-
landi. 1 Hreppum, Tungum,
Skeiðum og Grimsnesi er nokkuð
um dreift kal i túnum þar sem
klakalög voru hvað lengst á jörð-
inni.
En Gisli taldi að klaki væri svo-
til alveg horfinn úr jörð og m.a.
þess vegna muni hægt að vænta
góðra heyja i sumar. Ýmsir
bændur fengu áburð sinn siðla á
vorinu vegna verkfalls á farm-
skipaflotanum, en nú mun áburð-
ur kominn til skila á flestum stöð-
um.
— Geta bændur búist við mikl-
um heyjum og að sláttur hefjist
fyrr en venjulega?
— Nú skal ég ekki segja. 1 svo
góðu vori er fé mikið beitt á rækt-
að land, og þannig kippir úr
sprettu — og svo er vont að spá
um veður i júni núna.
—GG
Sauöburður stendur sem hæst og hlýindi um allt
Ekki á móti börnum!
segja Hábœingar
Frétt Þjóöviljans I gær um mót-
mæli til borgarráðs frá nágrönn-
um barnaheimilis, sem foreldra-
hópur ætlar að reka viö Hábæ,
varð til þess, að nokkrir Há-
bæingar höfðu samband við blað-
iðog vildu, að fram kæmi, að þeir
hefðu ekkert á móti börnunum.
Áreiðanlega munu viðkomandi
foreldrar fagna þvi, að það eru
semsé langtifrá allir ibúar þess-
arar götu, sem standa að undir-
skriftunum (enda þvi ekki haldið
fram i fréttinni), heldur aðeins
ibúar i þrem eða fjórum næstu
húsum við barnaheimilið fyrir-
hugaða.
Tveir fulltrúar þeirra hringdu
einnig til blaðsins og fannst sjón-
armið þeirra ekki hafa komið
fram; þau væru ekki á móti börn-
um i sjálfu sér, en á móti barna-
heimili. Annar sagði, að i 4 húsum
Hrafnista
Framhald af bls. 4.
upplýsinga, hjá yfirlækni, skrif-
stofufólki og Tryggingastofnun
rikisins, til þess að örugglega
væri farið með rétt mál. En þegar
þessar upplýsingar lágu fyrir
hafði útgáfa dagblaðanna
stöðvaðst.
Um leið og við látum þessum
skrifum lokið viljum við birta
eftirfarandi yfirlýsingu, sem
okkur barst frá trúnaðarmönnum
Tryggingastofnunar rikisins þann
3. april 1974.
„Samkv. beiðni sendi ég hér
með skýringar á framkv. við
greiðslur vasapeninga á Hrafn-
istu.
Skrifstofufólk Hrafnistu sér um
að sækja um vasapeninga fyrir
vistmenn sina. Á 3ja mánaða
fresti koma 2 trúnaðarmenn
Tryggingastofnunar rikisins með
greiðslurnar i lokuðum um-
slögum og samanlagðan lista i
þririti yfir nöfn og greiðsluupp-
hæðir. Gjaldkerar elliheimilanna
kvitta fyrir allri upphæðinni fyrir
hönd vistfólksins en afhenda
siðan, að viðstöddum trúnaðar-
mönnum Tryggingastofnunar-
innar, umslögin til bótaþega, og
um leið merkir gjaldkeri eða full-
trúi hans við viðkomandi nafn.
Sama gera trúnaðarmenn T.R. á
annað afrit fyrir hönd T.R.
Nú er aldrei hægt að afhenda öll
umslögin þann sama dag og
trúr.aðarmenn T.R. eru á ferð og
koma þar til margar orskir, en
umslög þau eru afhent gjaldkera
ellih., sem siðar kemur þeim til
bótaþega.
Komi það fyrir, sem mjög
sjaldan skeður, að peninganna sé
ekki vitjað, hefur Hrafnista end-
urgreitt T.R. bæturnar.
Tryggingastofnun ríkisins.”
Við viljum ljúka máli okk-
ar með tilvitnun í orð
einnar vistkonu á D.A.S. sem
birtist i siðasta „Hrafnistu-
bréfi”, en þar segir hún
m.a.: — „Ég er búin að vera
hér i 5 ár og hef ekki yfir neinu að
kvarta. Það er allt gert fyrir vist-
fólkið sem hægt er. Starfsfólkið er
allt elskulegt og hjálpsamt. En ég
veit lika að til eru margir hér sem
annars staðar, sem setja útá allt,
finna aö öllu og vanþakka allt.”
Þessa lýsingu vonum við að
fleiri geti tekið i sinn munn en
þann róg sem fram kemur i fyrr-
nefndum blaðagreinum.
Stjórn Sjómannadagsráðs
og D.A.S. Hrafnistu.
Pétur Sigurðsson
Guðm. H. Oddsson
Kristens Sigurðsson
Hilmar Jónsson
Tómas Guðjónsson
i kring væru 15 krakkar fyrir,
hinn sagði 20, og fannst of mikið
að 20 bættust við og það jafnt þótt
þau væru á afgirtri lóð. Þá taldi
annar, að með þessu væri búið að
gera sitt hús að engu og svo skap-
aði þetta fordæmi; ibúarnir væru
á móti að húsin væru notuð sem
fyrirtæki.
Það kom reyndar fram, að við
þessa sömu götu er rekin bila-
leiga i einu húsanna með tilheyr-
andi slysahættu án þess að nokk-
■ur hafi hreyft mótmælum við þvi.
—vh
Olia
Framhjdd af bls. 1
vétmenn miða við. Nú eru ugg-
laust dæmi um lægra verð, en
treysta menn sér til að fullyrða að
svo sé að meðaltali og þegar frá
liður?
Finnar kaupa mikið af oliu af
nágrönnum sinum, og þeir miða
við Rotterdam-prisana. Þeir hafa
unað þvi fyrirkomulagi ákaflega
illa i vetur og sendu meira að
segja sjálfan forsetann, Kekkon-
en, til Moskvu til þess að semjá
um ögn bærilegri kjör.
Forstjóri Shell segir i Morgun-
blaðinu að sjálfsagt væri að olia
væri seld hér innanlands á verði
sem svaraði til innkaupsverðsins
á hverjum tima. Það átti sem
sagt að þrefalda bensin og húsa-
kyndingaroliu og annað i verði
hér i haust þegar verðið steig
skyndilega á braskmarkaðinum i
Rotterdam! Hefði það verið is-
lenskum neytendum hagstætt?
En hvernig er það? A þá ekki að
lækka verðið á húsakyndingaroli-
unni nú þegar i stað um svo sem
20—30%? Eða er það ekki pró-
sentan sem suður-ameriska
skráningin á þeirri oliutegund
lækkar um i þessum mánuði?
Kannske Morgunblaðið, málgagn
Geirs og Shell, vilji útskýra af-
stöðu sina til þess?
hj —
Dómsmála-
nefndin
tekur af
skarið
Washington 15/5 — Dómsmála-
nefnd fulltrúadeildar Banda-
rikjaþings sem ganga á úr skugga
um hvort grundvöllur er fyrir þvi
að stefna Nixon forseta fyrir
rikisrétt, sýndi i dag svart á hvitu
að Nixon og lögfræðingar hans
skulu ekki fá að ákveða hvað er
nægilegt magn af sönnunum og
hvað ekki.
Allir nefndarmenn að einum
undanskildum greiddu þvi at-
kvæði að krefjast þess að nefndin
fái aðgang að 11 segulbandsspól-
um til viðbótar með samtölum
Nixons og aðstoðarmanna hans.
Einnig krafðist nefndin þess að fá
afhentar dagbækur forsetans yfir
samtais niu mánaða skeið á árun-
um 1972 og ’73.
tmmwmmm
Sjálfsbjörg,
Reykjavík
Farið verður i eins dags ferð
25. mai nk. Félagar, látið vita
um þátttöku i sima 25388 fyrir
21. mai.
Ferðanefndin
Þökkum auðsýnda samúð vegna útfarar
Stigs Sælands
fyrrverandi lögregluþjóns i Hafnarfirði.
Auður H. Herlufsen
Eirikur Sæland
Sólveig Sæland
Ragnheiður Pctursdóttir
og barnabörn.
Harry Herlufsen
Hulda G. Sæland
Einar Ingvarsson
Hreiðar Eirlksson