Þjóðviljinn - 16.05.1974, Blaðsíða 16
MÐVIUINN
Fimmtudagur 16. mai 1974.
Almennar upplýsingar um lækna-
þjónustu borgarinnar eru gefnar i
simsvara Læknafélags Reykja-
vikur, simi 18888.
Kvöldsimi blaöamanna er 17504
eftir kiukkan 20:00.
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
varsla lyfjabúöa i Reykjavik
10.-16 mai verður i Ingólfs-
apóteki og Laugarnesapóteki.
Slysavarðstofa Borgarspitalans
er opin allan sólarhringinn.
Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
16 börn létu lífið
er Israelsher lét til skarar skríða gegn palestínsku skœruliðunum
Tel Aviv 15/5 — Sextán börn iétust og um 70 særöust
i þorpinu Ma ’alot i ísrael þegar israelskir hermenn
réðust á skólann i þorpinu og yfirbuguðu skærulið-
ana þrjá sem héldu um 90 börnum i gislingu þar.
Skæruliöarnir sem sagðir eru
vera úr samtökunum Lýðræðis-
lega alþýöufylkingin til frelsunar
Palestinu (PDFLP) eru taldir
hafa komið frá Libanon. 1 nótt
réðust þeir á bil sem varð á vegi
þeirra og drápu hjón sem i honum
voru og tvö börn þeirra. Siðan
fóru þeir að skólanum þar sem
rúmlega eitt hundrað börn voru
sofandi. Um tuttugu þeirra tókst
G-listinn í
Grundarfirði
G-listinn, listi Alþýðubanda-
lagsins i Grundarfirði við
sveitarstjórnarkosningarnar
26. mai n.k.
1. Sigurður Lárusson
2. ólafur Guðmundsson
3. Ragnar Eibergsson
4. Gunnar Kristjánsson
5. Kristinn Jóhannsson
6. Þorsteinn Lárusson
7. Rögnvaldur Guðlaugsson
8. Sigurður Helgason
9. Þorvaldur Eibergsson
1«. Sigurvin Bergsson
að komast undan, en um niutiu
tóku skæruliðarnir i gislingu.
I hátölurum settu þeir fram
kröfur um að tuttugu pólitiskir
fangar sem eru i Israelskum
fangelsum yrðu látnir lausir og að
sendiherrar Frakklands og
Rúmeniu kæmu til samningavið-
ræðna við þá. Kváðust þeir
myndu sprengja húsið I loft upp ef
ekki yrði gengið að kröfum þeirra
fyrir kl. 16 að isl. tima I gær.
tsraelsstjórn lét lengi vel svo
heita að hún ætlaði að ganga að
kröfunum og fór Moshe Dayan til
þorpsins til viðræðna við skæru-
liöana.
En örfáum minútum áður en
fresturinn rann út gerði herinn á-
hlaup á húsið með þeim afleiðing-
um að skæruliðarnir þrir og 16
börn létu lifið og um 70 særðust.
Upplýsingaráðherra stjórnar-
innar, Peres, kvað stjórnina hafa
verið á þvi að láta undan kröfum
skæruliðanna, en herinn hefði
krafist þess að þeir yrðu yfirbug-
aðir. Aðrar heimildir herma að
stjórnin hefði allan timann verið
Alþýðubandalagið
G-listinn Selfossi
Kosningaskrifstofa G-listans á Selfossi er opin frá kl. 17 til kl. 22 dag-
lega. Skrífstofan er i Þóristúni 1, niðri, simi (99)-1888.
á þvi að gera áhlaup. Minna þær á
að hún hefur aldrei látið undan
kröfum skæruliða áður.
PDFLP lýsti þvi yfir eftir að á-
hlaupið á skólann hafði verið
gert, að húsið hefði verið sprengt i
loft upp eins og skæruliðarnir
höfðu hótað.
Þorpið Ma ’alot er I vesturhluta
Gallleu, um 7 kílómetra frá
landamærum Israels og Llbanon.
Yilhjálmur sýnir
í Norræna húsinu
t dag kl. 3 opnar Vilhjálrm’r
Bergsson sýningu á 39 málverk-
um og allmörgum teikningum i
sýningarsal Norræna hússins.
Myndirnar eru málaðar á árun-
um 1964 fram á þennan dag.
Glistrup
bjargaði
stjórninni
Kaupmannahöfn 15/5 — Eftir
mikið baktjaldamakk sem staðið
hefur i nótt og allan dag, var stað-
an i danska þinginu orðin sú að
ekki var búist við að stjórn Hart-
iings féili heldur héidi velli með
naumu meirihlutafylgi með hinu
umdeilda efnahagsfrumvarpi.
Eftir fund i tolla- og skatta-
nefnd þingsins i dag varð ljóst, að
Ihaldsflokkurinn. Kristilegi
þjóðarflokkurinn, Miðdemókrat-
ar, Vinstri radikalar og Fram-
faraflokkurinn ætla að láta af
andstööu sinni við frumvarpið
eftir að nokkrar breytingar voru
gerðar á þvi. Þessir flokkar
höfðu sýnt frumvarpinu fullan
fjandskap fram að þessu. Frum-
varpið fær þvi 106 atkvæði.
Það var Framfaraflokkur
Mogens Glistrups sem kom
stjórninni til bjargar eftir að hann
komst að samkomulagi við hana
um að dregið yrði úr álögum á tó-
bak og áfengi og að dregið yrði úr
rikisútgjöldum árin 1975 og ’76.
Allt útlit er þvi fyrir að ekki
komi til nýrra kosninga og að
ekkert verði af yfirvofandi
stjórnarkreppu sem legið hefur i
loftinu i tæpa viku.
Glistrup kom stjórninni til bjarg-
ar á elleftu stund.
Poul Hartling: vann mikinn
póiitiskan sigur meö þvi að stjórn
hans sem styðst við 22 af 175 full-
trúum á danska þinginu, hélt
vclli.
Stuðningsmannafundur á Selfossi
Fundur verður haldinn I Hótel Selfossi, litla salnum, með stuðnings-
mönnum G-listans I kvöld, fimmtudaginn 16. mai kl. 20.30.
Fundarefni: Sveitarstjórnarkosningarnar.
Alþýðubandalagið Selfossi.
G-listinn, Hafnarfirði
Kosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins I Hafnarfirði er opin frá kl.
17—22 alla daga. Skrifstofan er að Suðurgötu 7, Góðtemplarahúsinu.
Siminn er 53640.
Alþýðubandalagið i Neskaupstað
Félagsfundur I dag, fimmtudaginn 16. mai.
Fundarefni: Bæjarmálastefnuskráin.
Kjördæmisráðið í Austurlandskjördæmi
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins i Austurlandskjördæmi heldur
fund á Reyðarfirði laugardaginn 18. mai kl. 14. Dagskrá: 1) Stjórn-
málaviðhorfið. Frummælendur Lúðvik Jósepsson og Helgi Seljan. 2)
Kjör uppstillinganefndar fyrir alþingiskosningarnar.
Alþýðubandalagið á Reyðarfirði
Kosningaskemmtun G-listans á Reyðarfirði verður laugardaginn 18
maí og hefst kl. 21.
G-Iistinn Keflavik
Kosningaskrifstofan að Tjarnargötu 4 er opin alla daga frá kl. 13 til kl.
23. Simi 3060.
Kjördæmisráð Norðurlandi vestra
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins i Norðurlandskjördæmi vestra
heldur fund laugardaginn 18. mai kl. 20.00 i félagsheimilinu i Varma-
hlið. A dagskrá 1. Framboö i alþingiskosningunum. 2. Stjórnmálavið-
horfið. — Stjórnin
Kjördæmisráð Vesturlandi
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins I Vesturlandskjör-
dæmi verður haldinn I Snorrabúð i Borgarnesi sunnudaginn 19. mai nk.
og hefst fundurinn kl. 14.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Framboð til alþingis. 3. önnur mál. —
Stjórnin.
Grundfirðingar
Kosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins I Grundarfirði er i gamla
sparisjóðshúsinu. Simi 8731.
Sovéskur sagnfræðingur í boði MÍR
Föstudaginn 10. mai sl. kom
hingaö til iands i boði MtR
sovéskur sagnfræðingur, dr. Ro-
bert Fjodorovitsj tvanof. Dvald-
ist hann hér I fimm daga, hélt tvo
opna fyrirlestra um utanrikis-
stefnu Sovétrikjanna og heimsótti
ýmsar stofnanir.
Ivanof er i hópi kunnari sagn-
fræðinga i sinu heimalandi. Hann
varð doktor árið 1964 og fjallaði
ritgerð hans um borgarastyrjöld-
ina i Bandarikjunum og Abraham
Lincoln. Hann hefur gefið út sex
bækur um sögu Bandaríkjanna.
Hann kenndi við ýmsar æðri
menntastofnanir i Moskvu fram
til ársins 1972 en þá var hann
skipaður deildarstjóri við heims-
sögudeild sagnfræðistofnunar
visindaakademiu Sovétrikjanna.
Dr. ívanof hefur ferðast viða
um heim og haldið fyrirlestra og
er Island 18. landið sem hann
heimsækir. Hingað kom hann frá
Danmörku þar sem hann flutti
fyrirlestra i Óðisnvéum og Kaup-
mannahöfn.
A laugardaginn ræddi hann við
islenska starfsbræður sina en á
sunnudaginn for hann til tsafjarð-
ar þar sem hann flutti fyrirlest-
ur og svaraði fyrirspurnum. Urðu
miklar umræður þar um sam-
skipti Kina, Sovétrikjanna og
Bandarikjanna og einnig um ör-
yggismál Evrópu og afvopnunar-
mál.
A mánudagskvöld hélt hann
fyrirlestur að Hótel Loftleiöum og
svaraði fyrirspurnum áheyrenda.
Þá heimsótti hann Arnastofnun
og Háskóla tslands þar sem hann
átti viðræður við rektor, prófess-
ora og stúdenta. Sjónvarpið átti
við hann viðtal sem verður birt
einhvern tima i næstu viku. Héð-
an fór dr. ívanof i morgun og var
ferðinni heitið heim. — ÞH
7. júní verð-
ur opnuð
sýningin
Islensk list
1100 ár
í
r
Islenskir listmunir fengnir að lánifrá mörgum löndum
i gær var byrjað að
taka upp íslenska list-
muni, sem fengnir hafa
verið að láni frá lista-
söfnum í Kaupmanna-
höfn, Stokkhólmi, ósló,
Bergen, Dresden, París,
London og Hollandi.
Þessir munir verða á
sýningu að Kjarvals-
stöðum sem opnuð verð-
ur 7. júní nk. og verður
opin í allt sumar. Sýn-
ingunni hefur verið val-
ið heitið, — íslensk
myndlist í 1100 ár —.
Björn Th. Björnsson list-
fræðingur vann ásamt nokkr-
um öðrum mönnum að þvi i
gær að taka upp þá muni sem
borist hafa erlendis frá. Björn
sagði að milli 20 og 30 munir
væru fengnir að láni erlendis
frá fyrir utan myndir sem
fengnar væru að láni frá Arna-
safni i Kaupmannahöfn.
Hvernig hafa þá þessir
fornu islensku listmunir borist
til safna svo viða um heim?
Jú, það voru islenskir prestar
sem á sinum tima seldu þessa
muni úr landi. Sagði Björn að
þarna yæri að finna marga
bestu og fegurstu gripi is-
lenska sem til væru.
Auk þessara erlendu gripa
verða á sýningunni munir frá
Þjóðminjasafni Islands og
mun þvi sýning þessi gefa gott
yfirlit yfir islenska list fyrr á
timum.
—S.dór