Þjóðviljinn - 22.06.1974, Síða 3

Þjóðviljinn - 22.06.1974, Síða 3
Laugardagur 22. júni 1974 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Framboð frjálslyndra í hreinni stjórnarandstöðu Rœtt við Kjartan Ólafsson um kosningabaráttuna á Vestfjörðum Átökin hér á Vestfjörðum eru með nokkuð sérstökum hætti, að þvi leyti til að hér er framboð Samtaka frjálslyndra hreint stjórnarandstöðuframboð. Þannig komstKjartan Óiafsson, efsti maður G-listans að orði, er Þjóðviljinn ræddi við hann i gærmorgun. Þá var Kjartan staddur á Patreksfirði, en þar hafði verið fundur kvöldið áður. Kjartan sagði: Yfirleitt er alls staðar tékist á um hægri eða vinstristefnu, en hér er framboð Samtaka frjáls- lyndra hreint stjórnarandstöðu- framboð. Þeir sem kjósa F-list- ann á Vestfjörðum eru að skrifa upp á vantrauststillöguna á nú- verandi rikisstjórn. Ég hef sagt við kjósendur að kosningarnar séu fyrst og fremst þjóðaratkvæði um van- traustsyfirlýsinguna, sem borin var fram i þinglokin. Sá sem hér skipar efsta sætið á F-listanum réði úrslitum um það i þing- flokki Samtaka frjálslyndra, að formaður Samtakanna, Hanni- bal Valdimarsson, flutti van- trauststillöguna, en tillagan var samþykkt i þingflokknum með fjórum atkvæðum gegn þremur. Þetta hefur margoft komið fram opinberlega, einkum i kringum þingrofið. Eins og kunnugt er studdi mikill fjöldi vinstri manna Hannibal Valdimarsson i kosn- ingunum hér 1971. Stór hluti þeirra kjósenda trúði þvi að þarna væri verið að byggja upp stjórnmálaafl, vinstra megin við Framsóknarflokkinn. Menn töldu og það með réttu að á sliku væri mikil nauðsyn. Og þörfin er ekki minni i dag á þvi. Ég legg áherslu á að það er brýn nauð- syn að veita Framsóknar- flokknum sem allra sterkast að- hald frá vinstri, en það er jafn- framt ljóst, að þetta verður að- eins gert með þvi að efla Al- þýðubandalagið. A þvi leikur enginn vafi að framboð van- traustsmanna er stjórnarand- stöðuframboð, sem stefnir að þvi að tryggja Sjálfstæðis- flokknum varalið á alþingi, ef hann þarf á þvi að halda. Það er athyglisvert að hér á Vestfjörðum halda frambjóð- endur Alþýðuflokksins þvi fram að flokkur þeirra sé ekki vinstri flokkur og heldur ekki hægri flokkur, heldur eins konar mið- flokkur. Þeir neita þvi meira að segja aðspurðir mjög eindregið að þeir séu i framboði fyrir vinstriflokk. Ég vil bæta þvi við, sagði Kjartan, að ég hef lagt á það þunga áherslu, að með tilliti til herstöðvamálsins sé sérstök nauðsyn á eflingu Alþýðubanda- lagsins Þannig þarf að koma i ljós eindreginn vilji kjósenda til þess að knýja Framsóknar- flokkinn til að styðja markaða stefnu rikisstjórnarinnar um brottför hersins. Framsókn brosir nú mjög til beggja handa i sambandi við herstöðvamálið og talsmenn hennar láta að þvi liggja að ekki verði hróflað við herstöðinni nema með ljúfu samþykki Bandarikjamanna. Það er hægt að bjarga Framsókn og tryggja að forusta hennar haldi höfði, en það verður aðeins gert með þvi að hernámsandstæðingar fylki sér um Alþýðubandalagið. íslensk og bandarísk verka- lýðsfélög taka höndum saman í baráttu gegn dótturfyrirtæki sölumiðstöðvarinnar i Bandarikjunum — Verkföll ytra gætu snert þúsundir verkafólks og sjómanna hér Einar Sigurðsson og Eyjólfur Isfeld, forráðamenn Sölumið- stöð.var hraðfrystihúsanna, neituðu báðir að ræða við banda- rlskan fulltrúa verkalýðsfélags, sem kom hingað til landsins, til að reyna að leita samninga i vinnu- Æran reynist ýmsum kær Fjöldi fólks hafði samband við Þjóðviljann i gær til þess að láta I ljós skoðanir sinar á meiðyrða- máli forustukiiku Sjálfstæðis- flokksins, VL-klikunnar, gegn Þjóðviljanum og fleiri aðilum. Meðal annars fengum við þessa visu simieiðis: Æran reynist ýmsum kær ýtum bæði fjær og nær tJt á hana aura slær auminginn, sem stefndi igær. Og þessi visa kom einnig inn á blaðið: Margir reynast mér og þér mórauðir i gærunni. Ætli þeir hafi hugsað sér heildsölu á ærunni. Þryms- kviða um helgina Þrymskviða, hin nýja ópera Jóns Ásgeirssonar, verður sýnd i kvöld og einnig á sunnudagskvöld og þriðjudagskvöld. Óperan hefur verið vel sótt, enda hlotið ágæta dóma. deilu, sem risin er upp i Cold- water Seafood, en það er dóttur- fyrirtæki Sölumiðstöðvarinnar i USA. Er það jafnframt lang- stærsti söluaðili islenskra sjávar- afurða i Bandarikjunum og rekur- 325 manna verksmiðju, sem eingöngu nýtir islenskt sjávar- hráefni við vinnu sina. Kjarasamningar við verk- smiðju Sölumiðstöðvarinnar i Cambridge, sem heitir Maryland, renna út i október. Verkalýðs- félaginu ytra hefur ekki tekist að skapa samingsgrundvöll við verksmiðjustjórnina þar, sem er að langmestu skipuð islenskum fulltrúum frystihúsanna hér. Verkfall virðist i aðsigi og gæti það haft gifurleg áhrif hér á landi, þar sem svo mikil islensk sjávar- vinna tengist þessu fyrirtæki. Maryland stendur á láglauna- svæði, þar sem atvinnuleysi er mikið. Starfsfólk verksmiðjunnar á nokkuð óhægt um samninga, þvi verksmiðjustjórnin hótar að gripa til þess ráðs, að segja upp vinnukrafti, sem erfélagsbundinn I verkalýðsfélögum, og taka i staðinn fólk, sem gengur um atvinnulaust og vill vinna fyrir minna en samningsbundið kaup. Verkalýðsfélag starfsfólks Marylands hefur óskað eftir sam- bandi við verkalýðsfélög á Framhald á bls. 13 Kjósendafundir á Austurlandi Alþýðubandalagið á Austur- landi efnir til þriggja almennra kjósendafunda i næstu viku. Eru þeir sem hér greinir: Á Höfn I Hornafirðiþriðjudags- kvöldið 25. júni klukkan 21:00 i Sindrabæ. Ávörp flytja: Helgi Seljan, Sig- urður Blöndal, Adda Bára Sigfús- dóttir, Már Karlsson, Þorbjörg Arnórsdóttir og Þorsteinn Þor- steinsson. Einsöngur: Elin Sigurvinsdótt- ir. Undirleik annast Sigriður Sveinsdóttir. Gamanvisur úr kosningahrið- inni: Þóra Sigurðardóttir og Haukur Þorvaldsson. Kvartettinn Þokkabót syngur og leikur. Fundarstjóri verður Sigurður Hannesson. A SEYÐISFIRÐI FIMMTU- DAGINN 27. júni klukkan 21:00 i Herðubreið. Flutt verða ávörp og meðal dagskráratriða verður ein- söngur Elinar Sigurvinsdóttur, þattur úr leikriti Svövu Jakobs- dóttur, Ertu nú ánægð kerling, fluttur af Bryndisi Steinþórsdótt- ur og Hlin Agnarsdóttur, þjóð- lagasöngur Kjuregei Alxöndru og gamanvisur fluttar af Þóri Gisla- syni. A Reyðarfirði föstudaginn 28. júni klukkan 21:00 i Félagslundi. Flutt verða ávörp og skemmtiat- riði, hin sömu og á fundinum á Seyðisfirði, en að loknum fundi verður dansleikur þar sem Þór- arinn og félagar leika. Kjósendafundir þessir eru að sjálfsögðu öllum opnir og er þess að vænta að Austfirðingar fjöl- menni á þá til þess að hlýða á málsvara Alþýðubandalagsins og njóta góðra skemmtiatriða. Kaffibrennsliimar hér sérstaklega vemdaðar í skjóli verndartolla og hafta setti O. Johnson og Kaaber upp hunds- haus gegn neytendum. Fellur kaffi ekki undir hugtakið „Frjáls verslun”? Hversvegna fæst ekki kaffi? spyr fólk þessa dagana. Frétta- maður Þjóðviljans kannaði þetta mál i gær og fékk þær upplýsing- ar að vegna sihækkandi verðs á kaffi á heimsmarkaði þyrftu kaffibrennslurnar að fá milli 60-70 króna hækkun per kg. til að hafa sama i aðra hönd og þær höfðu áður en verðstöðvunarlögin voru sett. O. Johnson og Kaaber hafði enga biðlund Fyrirtækið O. Johnson & Kaaber, sem hefur efni á að aug- lýsa i öllum dagblöðum nema Þjóðviljanum, skrifaði verðlags- stj^ra bréf, þremur eða fjórum dögum eftir að verðstöðvunarlög- in tóku gildi og fór fram á hækk- un. Beiðni þeirra var afgreidd á fundi hjá Verðlagsstjóra 12. júni og þaðan fór hún til athugunar i viðkomandi ráðuneyti. En þetta merka fyrirtæki, O. Johnson & Kaaber, hafði enga biðlund og neitaði að dreifa kaffi til lands- manna og hefur svo staðið i þrjár vikur. Aftur á móti hélt Kaffi- brennsla Akureyrar, sem fram- leiðir BRAGA kaffi, áfram að selja af gömlu birgðunum meðan þær entust, en nú er svo komið að allar gömlu birgðirnar eru upp- urnar og fyrirtækið treystir sér ekki að brenna og mala nýju birgðirnar, sem það á i vöru- geymslu, nema að fá hærra verð. Af hverju hætta þeir svona fljótt? Allt er þetta gott og blessað, en hvernig stóð á þvi að O. Jonson & Kaaber treysti sér til að stöðva kaffibrennsluna svona þegar i stað? Jú, á þvi er sú einfalda skýring, að erlent kaffi, sem hefði getað komið i staðinn fyrir „inn- lent” kaffi er leyfisvara og þar að auki tolluð til að vernda innlendar kaffibrennslur, þannig að kaup- menn eða kaupfélög, sem hefðu viljað flytja inn kaffi, geta það ekki nema með sérstöku leyfi og með alllöngum undirbúningi. Það er sem sagt i skjóli hafta, sem þeir frá O. Johnson & Kaaber treystu sér til að vera svona snúð- ugir svona snemma. Talið er liklegt að þetta mál verði tekið fyrir hjá rikisstjórn- inni innan tiðar, en það er á valdi forsætisráðherra hvað gert verð- ur i málinu. sj

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.