Þjóðviljinn - 22.06.1974, Page 5
Laugardagur 22. júni 1974 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Fiskiðnaðurinn verði
okkar stóriðja
55 skuttogarar til 30 útgerðarstaða
Fréttamaður Þjóðviljans hitti
Lúðvik Jósepsson, sjávarútvegs-
ráðherra, að máli og spurði hann
um helstu störf og stefnumál
rikisstjórnarinnar i sjávarút-
vegsmálum.
— Hvað telur þú, Lúðvik, að
séu helstu verkefni, sem rikis-
stjórnin hefur unnið að i sjávarút-
vegsmálum sl. 3 ár?
— Það sem ég tel vera mikil-
vægast af þvi, sem við höfum að
unnið i sjávarútvegsmálum á
liðnum þremur árum er fyrst og
fremst landhelgismálið. í þvi
máli hafa unnist þýðingarmiklir
áfangasigrar, við höfum fært
fiskveiðimörkin út i 50 sjómllur,
og eftir þvi sem við komumst
næst við athugun á sókn út-
lendinga á fiskimið okkar nú og
áður, teljum við að þvi megi slá
föstu að sókn þeirra hafi minnkað
að ninnsta kosti um 40% frá þvi,
sem áður var. Eins og kunngt er,
þá eru það aðeins Bretar einir,
sem hér halda áfram verulegum
fiskveiðum, þótt þær veiðar séu
allmiklu minni en áður var, en
flestar aðrar útlendar þjóðir eru
horfnar af okkar fiskimiðum. V.-
Þjóðverjar veiða hér eitthvað
litilsháttar enn, en það er ekki
orðiö mikið. Við höfum þvi i
þessum efnum náð mjög
þýðingarmiklum sigri, og horfum
reyndar til þess, að eftir um það
bil eitt ár eigum við að hafa losað
okkur við veiðar útlendinganna
að öllu leyti.
I landhelgismálinu tel ég þvi,
að viðhöfum lagt undirstöðuna að
þvi, sem við erum að gera og
höfum verið að vinna að i okkar
s jávarútvegsmálum.
— Hvað álitur þú um horfur á
þvi, að við íslendingar fáum 200
milna fiskveiðilögsögu?
— t þeim efnum vil ég benda á
það, að á siðasta Alþingi beitti
rikisstjórnin sér fyrir þvi, að
samþykkt voru lög um það að
islensk stjórnvöld gætu einhliða
lýst yfir 200 sjómilna fiskveiði-
lögsögu við tsland hvenær sem
það er talið hafa eitthvert gildi
fyrir okkur. Með þvi höfum við
breytt okkar eldri lögum, þ.e.a.s.
landgrunnslögunum frá árinu
1948, sem við höfum byggt alla
okkar landhelgisútfærslu á til
þessa, á þann veg að við getum
samkvæmt þeim fært fiskveiði-
landhelgi okkar út i 200 milur með
einhliða reglugerðarútgáfu.
Ég er ekki i neinum vafa um
það, að við tslendingar munum
ná 200 milna efnahagslögsögu
áður en langt um liður, en að
sjálfsögðu hefur slik útfærsla litið
gildi fyrir okkur mtðan Bretar
veiða hér miklu nær landinu,
samkv. sérstökum samningi, að
ég tali nú ekki um ef einnig yrði
samið við V.-Þjóðverja um
hliðstæð veiðiréttindi, eins og
sterk öfl I þjóðfélagi okkar
vinna að, að gert verði, þá
auðvitað hefur 200 milna lögsaga
litið gildi undir slikum kringum-
stæðum þegar stórir erlendir
flotar hafa hér aðstöðu til að
veiða miklu nær landi.
— En telur þú þá, að við séum í
rauninni búnir að vinna sigur i
landhelgismáiinu og að þar sé
ekki að óttast um frekari átök úr
þvi, sem nú er orðiö?
— Nei, ég tel að sá ágreiningur,
sem að enn er á milli okkar i
rikisstjórninni annars vegar og
forustumanna stjórnarand-
stöðunnar hinsvegar um viss
mjög þýðingarmikil atriði land-
helgismálsins feli enn i sér miklar
hættur I landhelgismálinu. Eins
og öllum er ljóst, þá hefur verið
ágreiningur á milli okkar um það,
að við höfum lagt á það áherslu að
lýsa þvi yfir að landhelgis-
samningarnir við Breta og V-
Þjóðverja frá árinu 1961 væru úr
gildi fallnir og við Islendingar
ekki af þeim bundnir lengur.
Forustumenn Sjálfstæðis-
flokksins og Alþýðuflokksins
hafa hinsvegar lýst þvi yfir, að
þeir séu ekki samþykkir þessari
stefnu rikisstjórnarinnar og telja
að samningarnir frá 1961 séu I
fullu gildi. Þeir eru sem sagt i
þessum efnum á sömu skoðun og
Bretar og V.-Þjóðverjar.
1 beinu framhaldi af þessu
hefur stjórnarandstaðan viljað
senda málflutningsmann af okkar
hálfu til alþjóðadómstólsins i
Haag og taka þar upp varnir i
málssókninni gegn okkur, og
viðurkenna á þann hátt lögsögu-
rétt hins erlenda dómstóls i þessu
máli. Ég óttast það, ef Sjálf-
stæðisflokkurinn og Alþýðu-
flokkurinn næðu stjórnar-
taumunum i sinar hendur á nýjan
leik, að þá breyttu þeir um stefnu
varðandi þessi mikilvægu atriði
og þeir héldu sig þá við það, sem
þeir hafa áður lýst yfir, að land-
helgissamningarnir frá árinu 1961
séu i gildi og taka þátt i mála-
rekstrinum I Haag. Slikt gæti
augljóslega leitt til þess að
heimila Bretum og V.-Þjóð-
verjum meiri eða minni fiskveiði-
réttindi i allmörg ár enn, þvi
enginn veit með neinni vissu
hvenær alþjóðaráðstefna verður
búin að koma sér saman t.d. um
200 milna lögsögurétt strandrikis
eða hvenær slik samþykkt, þótt
hún yrði gerð á alþjóðaráðstefnu,
fengi fullnaðargildi. Þetta eru að
minum dómi miklar hættur, sem
við blasa i landhelgismálinu, og
skiptir hér öllu um hvort sú
stefna verður ofan á, sem rikis-
stjórnin hefur markað i þessum
efnum,eða hvort tekin verður upp
sú stefna, sem forustumenn
stjórnarandstöðunnar hafa
túlkað.
Uppbyg&ng
fiskiskipaflotans
— Rikisstjórnin hefur gert
mikið að þvi að greiða fyrir
kaupum á skuttogurum. Finnst
þér þar hafa verið of geyst af staö
farið, eins og látið hefur verið I
veöri vaka af ýmsum?
— Ég tel að sú stefna, sem
rikisstjórnin markaði i þeim
efnum hafi haft gifurlega mikla
þýðingu varðandi atvinnumál
okkar. Nú er svo komið að
ákvarðanir hafa verið teknar um
kaup á 55 skuttogurum. Þessir
skuttogarar munu verða gerðir út
frá rúmlega 30 útgerðarbæjum i
öllum landshlutum. Meginhlutinn
af þessum skipum hafa verið
keypt vegna þeirrar fyrir-
greiðslu, sem núverandi rikis-
stjórn hefur beitt sér fyrir. Eins
og kunnugt er hafði fyrrverandi
rikisstjórn beitt sér fyrir
nokkrum skuttogarakaupum, en
þau voru svo að segja algjörlega
bundin við Reykjavik og Faxa-
flóasvæðið. Hún hafði samið um
kaup á 4 stórum togurum á Spáni;
af þeim fara 3 til Reykjavikur og
1 til Hafnarfjarðar. Einnig hafði
hún samþykkt kaup á tveimur
togurum frá Póllandi fyrir
útgerðaraðila i Reykjavik. Um
önnur skuttogarakaup var ekki að
ræða á vegum fyrrverandi
rikisstjórnar, sem fengu staðist.
En aðalatriðið hefur verið gert
samkvæmt fyrirgreiðslureglum,
sem núverandi rikisstjórn hefur
sett.
Kaup skuttogaranna hafa
gifurlega mikla þýðingu i hinum
ýmsu útgerðarbæjum landsins.
Stefna rikisstjórnarinnar var sú
að greiða þannig fyrir þeim, sem
voru að kaupa skuttogara, að þeir
gætu fengið rikisábyrgð og opin-
ber lán, sem næmu allt að 85% af
kaupverði skipanna, en almennt
var til þess ætlast að kaupendur
þeirra legðu fram 15% af
kosnaðarverðinu. Þá hefur rikis-
stjórnin beitt sér fyrir viðbótar-
framlögum við þessi almennu lán
til nokkurra útgerðarbæja, þar
sem fjármagn heima fyrir var
sáralitið, en þó var um brýna þörf
að ræða að byggja upp atvinnu-
lifið.
— Þýðir þessi mikla áhersla,
sem rikisstjórnin hefur lagt á
það, að byggja upp skuttogara-
flotann og koma þeim til hinna
ýmsu útgerðarbæja, að rikis-
stjórnin telji að fiskiskipafloti
landsmanna eigi nær eingöngu að
vera skuttogarar á komandi
árum?
— Nei, þvi fer fjarri. Þó að
skuttogararnir komi til með að
hafa gifurlega mikla þýðingu að
þvi leyti til, að þeir veita sjó-
mönnunum meiri möguleika
almennt séð til þess að hafa
góðan aflahlut og tryggja þeim
miklu betri vinnuskilyrði en
almennt gerist á okkar fiski-
skipum og einnig miklu meira
öryggi og öruggt hráefni til fisk-
vinnslu i landi og geti þannig
gjörbreytt aðstöðu til fisk-
vinnslunnar og skapað mikið
samfelldari vinnu og meira at-
vinnuöryggi, þá er það eigi að
siður min skoðun að það þurfi
jafnhliða kaupunum á skuttogur-
unum að stuðla að þvi, að i
flestum útgerðarbæjum sé til fjöl-
breytilegur annar fiskiskipafloti,
þeas. bátar af ýmsum stærðum
eftir aðstæðum á hinum ýmsu
stöðum, og jafnvel einnig litlir
bátar. Þetta hefur einnig verið
gert af hálfu rikisstjórnarinnar
með þvi að greitt hefur verið fyrir
þvi, að slik skip væru keypt. Mjög
þýðingarmikið i þessum efnum
er einmitt það, að búa þannig um
hnútana að fiskverð sé á hverjum
tima eðlilegt og sanngjarnt, til
þess að þessi útgerð geti einnig
verið til staðar og meiri fjöl-
breytni þannig i útgerðar-
rekstrinum.
— Telurðu að skuttogararnir
hafi reynst vel og er það rétt, sem
allmikið hefur verið um talað, að
á þeim sé mikill taprekstur?
— Ég tel, að reynslan hafi
þegar sýnt, að þessi skip henta
mjög vel viðast hvar á landinu. A
þvi leikur enginn vafi, að á Vest-
fjörðum veita þessi skip mögu-
leika til þess að afla hráefnis til
fiskvinnslustöðvanna reglulega
allt árið um kring. Það sama er
að segja um Norðurland, þvi skip
af þessari stærð, 500 tonn og þar
um, gjörbreyta aðstöðunni þar á
fjöldamörgum stöðum til fisk-
öflunar og vinnslu i landi og þau
hafa þegar sannað það, að þau
henta mjög vel. Sama er að segja
um Austurland. Þar hafa þessi
skip reynst þannig að það er
enginn vafi á þvi, að þau eru mjög
þýðingarmikið og stórt framfara-
spor frá þvi sem áður þekktist.
Varðandi rekstursafkomu
þessara skipa vil ég aðeins segja
það, að hann er tvimælalaust
hagstæðari en rekstur þeirra
fiskibáta, sem almennt voru
reknir á þessum stöðum áður,
þeas. báta sem eru frá 150 — 250
rúmlestir að stærð og voru gerðir
út sem togveiðiskip. Hallinn sem
talað er um á rekstri skuttog-
aranna er fyrst og fremst halli
sem stafar af afskriftum. Skipin
eru eðlilega nokkuð dýr ný, og
það reynist ekki vera unnt að
afskrifa þau að fullu. Það tel ég
ekkert stórvandamál, vegna þess
að þegar á allt er litið er
raunveruleg afkoma mjög góð. A
þvi leikur heldur enginn vafi, að
rikisstjórnin mun tryggja það, að
rekstur þeirra geti haldið áfram
með eðlilegum hætti.
Frystihúsin og
fiskiðnaðurinn
— Hvað viltu segja um þær
miklu framkvæmdir sem átt hafa
sér stað við uppbyggingu frysti-
iðnaðarins?
— Samhliða kaupunum á
nýjum skuttogurum og dreifingu
þeirra tii hinna ýmsu ut-
gerðarbæja, hefur verið unnið
samkvæmt áætlun að nýbyggingu
allmargra frystihúsa i landinu og
einnig að endurbyggingu flestra
annarra.
Hér er um feiknarlega stórt
átak að ræða, og áætlað er að
þetta verkefni i heild muni kosta
um 6 þúsund miljónir króna, og
nú er svo komið, að búið er að
vinna að þessum endurbótum
sem nemur i kring um 60% af
heildarverkefninu.
Nú eru sem sagt I byggingu
allmörg algjörlega ný frystihús,
en áður hafði ekki verið byggt
nýtt frystihús um langan tima.
Mörg önnur eru nú i slikri endur-
byggingu, að i rauninni er eins
hægt að tala um nýbyggingar.
Þessi frystihús kosta ný frá 100
milj. króna upp I 300 miljónir,
en mjög er algengt að endur-
byggingarkostnaður i frysti-
húsum sé frá 30 og upp i 80
miljónir króna. Hér er þvi um
gífurlega stórt verkefni að ræða,
sem unnið hefur verið að, og
leggur að sjálfsögðu grundvöll að
þvi, að gjörbreyta fiskvinnslu
okkar. Vinnuaðstaða fólksins
gjörbreytist, vélvæðing i
húsunum er stóraukin og hrein-
lætisaðstaða öll er nú færð á það
stig, sem kröfur almennt standa
til.
Loðnuveiðar og
loðnuvinnsla
— Þessar miklu framkvæmdir
I uppbyggingu skipaflotans og
við endurbyggingu frystihúsanna
hafa að sjálfsögðu kostað mikið fé
og stóraukin lán úr stofnlánasjóði
sjávarútvegsins.
— Það er rétt. Lánveitingar
Fiskveiðasjóðs i þessu skyni hafa
aukist gifurlega mikið. A siðustu
árum viðreisnarinnar voru
heildarútlán Fiskveiðasjóðs rétt i
kring um 500 miljónir króna á ári.
Á yfirstandandi ári er gert ráð
fyrir þvi, að heildarútlán Fisk-
veiðasjóðs, þegar útlán til hinna
nýju togara eru einnig tekin með,
verði rúmlega 3700 miljónir
króna. Að sjálfsögðu hefur
þurft að afla Fiskveiðasjóði
nýrra tekjustofna til þess að
standa undir þessu mikla
verkefni, og það hefur verið gert.
Auk þess hefur svo þurft að út-
vega Fiskveiðasjóði allmikið af
lánum til þess að hann gæti fram-
lánað i þessu skyni.
Ég vil vekja athygli á þvi, að
þcssi verkefni, endurbygging og
uppbygging frystiiðnaðarins og
kaupin á skuttogurunum og
dreifing þeirra til hinna ýmsu
staða, eru einhver stærstu
atvinnuverkefni, sem unnið hefur
verið að á tslandi um iangan
tima, og hafa meiri og almennari
áhrif á þróun atvinnumála en
aðrar framkvæmdir.
— Talsverðar breytingar hafa
orðið á loðnuveiðum og loðnu-
vinnslu landsmanna. Nú er til
dæmis farið að vinna loðnu á
miklu fleiri stöðum en áður. Hvað
viltu segja um þessa þróun?
— Fyrir forgöngu rikisstjórnar
voru sett lög um loðnulöndun og
sérstaka nefnd sem átti að
stjórna henni. Að þvi hefur verið
unnið að koma i gagnið I loðnu-
vertiðinni miklu fleiri sildarverk-
smiðjum en áður var og nýta
þannig miklu betur þann verk-
smiðjukost sem við eigum. Það
hefur þurft að leggja i allmikinn
Framhald á bls. 13
Rætt við Lúðvík Jósepsson,
sjávarútvegsráðherra
Lúðvik Jósepsson undirritar reglugerð um útfærslu landhelginnar við
Island I 50 mflur.