Þjóðviljinn - 22.06.1974, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 22.06.1974, Qupperneq 15
Laugardagur 22. júni 1974 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15 © Hluti ráðstefnusalarins. Það eru Guörún Hallgrimsdóttir og Helga Sigurjónsdóttir, sem sitja i fundarstjórasæti fyrir endanum. (Myndirnar tóku Eirikur Guðjónsson og Edda óskarsdóttir). Ráðstefnan að Skógum Starfshópur 1 I þungum þönkum yfir stefnunni. „Barátta kvenna fyrir jafnrétti kynjanna verður ekki slitin úr tengslum við baráttu undirokaðra stétta fyrir þjóðfélagslegum jöfnuði, né heldur verður sigur unninn í verkalýðs- baráttunni án virkrar þátt- töku kvenna". Þannig hefst stefnuyfirlýsing Rauðsokkahreyfingarinnar, sem samþykkt var á ráðstefnu Rauð- sokka að Skógum undir Eyjafjöll- um um siðustu helgi. Og þar sem Morgunblaðið hefur þegar fengið tækifæri til að skrumskæla þetta plagg þýðir ekki annað en birta það hér orðrétt i heild, þótt upp- haflega hafi verið ætlunin að það kæmi fyrst á prent i málgagni Rauðsokka, „Forvitin rauð”. Framhald stefnuyfirlýsingarinn- ar er svohljóðandi: ,,t aðaldráttum er baráttan tvi- þætt; annars vegar fyrir breyttu þjóðfélagi gegn kúgunar- og afturhaldsöflum, samfara tima- bundnum umbótum i þjóðfélag- inu, og hins vegar sú uppbygging, sem snýr að konum sjálfum, vit- undarvakning, andspyrna gegn bælandi uppeldis- og umhverfis- áhrifum og aldagömlum fordóm- um og hefðum. Undirokun kvenna er efnahags- legs og kynferðislegs eðlis. Lang- varandi bæling kvenna hefur fyrr og nú verið framkvæmd vitandi vits i þeim tilgangi að hagnast á vinnuafli þeirra innan heimilanna og á vinnumarkaðinum, og að viðhalda kynferöislegri kúgun. Rikjandi efnahagskerfi byggist að miklu leyti á hreyfanlegu vinnuafli, sem gripa má til eftir þvi hvort um er að ræða þenslu eða samdrátt i atvinnulifinu. í- hlaupavinnuaflið er fyrst og fremst konur, og konur eru meginþorri hinna lægst launuöu hvar sem er i atvinnulifinu. Þess vegna verður að heyja baráttu kvenna fyrir frelsi og jafnrétti með vopnum stéttarbar- áttu”. Um þessa yfirlýsingu, sem er raunar fyrsta stefnuyfirlýsing Rauðsokkahreyfingarinnar, urðu miklar umræður tvo daga ráð- stefnunnar. Áður hafði hreyfingin aðeins sett sér markmiðsgreinar, og þótti sumum sem það ætti að nægja áfram sem hingað til, en flestum, að timabært hefði verið að taka'þær til endurskoðunar fyrir löngu. Meirihlutinn var á þeirri skoðun, aðséð væri, að ekki yrði haldið lengra án fastari grundvallar, — hitt yröi hjakk i sama farinu og bæri ekki frekari árangur en þann sem þegar hefði náðst, semsé að vekja athygli fólks á misrétti á ýmsum sviðum en ekki beinlinis ráða bót á þvi. Hræðsla við pólitík? Satt að segja kom fram i um- ræðum um stefnuna meiri grund- vallarágreiningur en fólk hafði kannski órað fyrir, að til væri inn- an hreyfingarinnar, af þvi að mörg mál hafa aldrei verið rædd i botn af ótta við sundrung eftir flokkspólitiskum linum. Sem dæmi um þetta má nefna, að fram kom skoðun um að hægt væri að berjast fyrir jafnrétti án þess að vera að berjast fyrir þjóðfélags- legum jöfnuði. Einnig kom fram viss hræðsla við pólitik, einkum við að allt yrði meira og minna túlkað flokks- pólitiskt. En það er rétt að taka það fram hér, að Rauðsokka- hreyfingin hefur aldrei verið og stendur ekki til að hún verði tengd neinum ákveðnum flokki. Og vegna nafnlausra skrifa i Morgunblaðinu sl. miðvikudag skal lika tekið fram, að hvorki Al- þýðubandalagið né neinn annar flokkur hefur okkur vitanlega ætlað sér að „gleypa Rauðsokka” og „mistekist” sú „tilraun”. Hinsvegar var áberandi vilji fyrir þvi innan hreyfingarinnar að marka stefnu hennar ákveðnar en áður, og það tókst vissulega á þessu þingi. Ársf jóröungsfundir En það var reyndar fleira gert á ráðstefnunni en að fjalla um stefnuyfirlýsinguna, sem héðani- frá verður endurskoðuð árlega. Skipulag hreyfingarinnar var lika mótað heldur fastar en verið hef- ur, þótt ekki væri hafnað þvi starfshópakerfi sem hreyfingin hefur unnið eftir með ágætum árangri. En nauðsyn þótti að setja á fót nokkra fasta starfs- hópa til að tryggja að alltaf ynnu einhverjir að þeim verkefnum, sem þeim væru ætluð, en þá gert ráð fyrir nokkuð örum manna- skiptum i þessum föstu hópum. Þá var ákveðið að halda auk funda starfshópa og funda sem boðað er til af sérstöku tilefni fasta ársfjóröungsfundi við sól- stöður og jafndægur. Fjallað var um verkefnaskrá komandi vetrar og ákveðið að ganga betur frá henni á haust- fundi.og ræddir voru húsnæðis- möguleikar, útgáfustarfsemi og fleira. Verkfall íslenskra kvenna? Starfshópur um Kvennaárið 1975 skýrði frá hugmyndum i þvi sambandi og samstarfi, sem haf- ið er við kvenfélög, en ákveðið var að leita nánara samstarfs við verkakvenna- og verklýðsfélög bæði um þetta og önnur málefni. Tekið var með fögnuði hugmynd hópsins um að beita sér fyrir samvinnu um að koma á verkfalli allra islenskra kvenna, bæði á vinnumarkaðnum og heimilun- um, einhvern ákveðinn dag næsta ár til að undirstrika kröfur þeirra um jafnrétti á við karla. Líka slappaö af Þótt fundarsetur yrðu bæði langar og strangar á þessari fyrstu ráðstefnu Rauðsokka gleymdist þó ekki að slappa af á milli, taka sundsprett, ganga á fjöll og syngja saman. Á laugar- dagskvöldið var haldin kvöldvaka með glaumi og gleði og miklum söng að ógleymdum leiksýning- um nokkurra barna sem með hópnum voru. Leikritin voru frumsamin á staðnum og vöktu mikla hrifningu. —vh Belgurinn bíður Þótt margir hafi lagt orð i belg siðan siðast verður hann að biða að þessu sinni vegna rúmleysis i blaðinu. Hann fær þvi meira pláss á siðunni i næstu viku, svo ykkur er óhætt að halda áfram að senda i hann. —vh. með kaffinu síöasta daginn tertu i Mikil kátina rikti á kvöldvökunni á laugardaginn, þar sem Hjördis Bergsdóttir spilaði undir sönginn. Til hægri sést kokkur hótelsins, sem bar fram skreytta alþjóðamerki kvenfrelsisbaráttunnar, krcpptum hnefa inni kventákni liffræðinnar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.