Þjóðviljinn - 09.07.1974, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 09.07.1974, Blaðsíða 3
Þriðjudagur ». jiiH 1974 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Karlakór í sjóklœðum Kanar æstir í ullina Bandarísk stórverslun hyggst margfalda sölu á íslenskum ullarfatnaði Hér á landi eru nú staddir fimm fulltrúar banda- riskrar stórverslunar sem nefnist Carson, Pirie & Scott og er til húsa i Chicago auk þess sem hún rek- ur fjölda útibúa um allt Illinois-fylki. Hingað eru þeir komnir til að undirbúa söluherferð með is- lenskar vörur á markaðssvæði sinu. VIÐLAGASJÓÐUR AUGLÝSIR Skrá yfir tjónamat ibúðarhúsa i Vest- mannaeyjum hefur verið lögð fram. Skrifstofur Viðlagasjóðs i Reykjavik og Vestmannaeyjum veita upplýsingar um matið. Frestur til að koma á framfæri athuga- semdum við matið er til mánudags 29. júli 1974. Skriflegar athugasemdir skulu ber- ast skrifstofum Viðlagasjóðs i Reykjavik eða Vestmannaeyjum á þar til gerðum eyðublöðum, sem liggja frammi. Viðlagasjóður Happdrættisvinningur Dregið var i byggingarhappdrætti Blindrafélagsins 5. júli sl. Upp kom vinn- ingur á miða nr. 1922. Vinningurinn er Toyota Mark II, 2300 1974, aö verðmæti kr. 700.000,00. Handhafi vinningsmiöa er beöinn aö vitja vinnings I skrifstofu Blindrafélagsins, Hamrahliö 17, slmi 38180. Blindrafélagiö þakkar landsmönnum öllum auösýnda vel- vild og stuöning. Blindrafélagið Á blaöamannafundi sem út- flutningsmiöstöö iönaöarins boö- aöi til kom fram aö á slöasta ári nam salan á islenskum vörum hjá versluninni 250 þúsund dollurum á smásöluveröi>en söluverö vör- unnar héöan er um þriöjungur þess verös. Nú er i bigerö aö stór- auka söluna og veröur I þvi skyni variö 30 þúsundum dollara I aug- lýsingar og aöra útbreiöslustarf- semi á Islenskum vörum. Herferöin veröur fólgin I þvi aö koma upp tslandsdeildum I sex stærstu verslunum Carson’s. Gef- inn veröur út myndskreyttur aug- lýsingapési um Islenskar vörur og tvær siöur af jólapöntunarlista verslunarinnar veröa lagöar und- ir islenskar vörur. Listum þess- um er dreift til allt aö hálfri miljón manns. Ekki vildu þeir fimmmenning- ar segja nákvæmlega til um, hve mikiö þeir byggjust viö að selja en bentu á að möguleikar Is- lenskrarvöru og þá einkum ullar- fatnaðar væru góðir á þeirra markaðssvæði eins og sú staö- reynd sannaði að á siöasta ári seldust allar pantanir verslunar- innar á islenskum vörum upp. —ÞH Tap og gróði r hjá B.U.R. Reikningslegt heildartap Bæjarútgerðar Reykjavikur á ár- inu 1973 varö rúmar 43 miljónir. Tapiö af togurunum nam rúm- lega 51 miljón, en hagnaður af fiskverkun nam rúntlega 13,3 miljónum. 1 reikningum BÚR kemur fram aö bókfært verö þriggja eldri tog- aranna er rúml. 7,6 miljónir, en tveggja nýju togaranna Bjarna Benediktssonar og Snorra Sturlu- sonar, hvorki meira né minna en 353 miljónir, en eignir BÚR voru bókfærðar samtals fyrir rúmum 410 miljónum. Eignir samkvæmt efnahagsreikningi námu 641,8 milj. en skuldir 773,4 miljónum. Af bókfærðu tapi BÚR eru af- skriftir rúmar 17 miljónir. Launagreiöslur til sjómanna, verkamanna og annarra starfs- manna BÚR námu rumlega 190 miljónum króna, en alls komust 1474 á launaskrá á árinu. Aö staö- aldri vinna þar á milli 300 — 400 manns. Aöeins einn togari skilaöi hagn- aði á árinu 1973, Þorkell máni, rétt tæpum 2 miljónum króna. Mest tap varö á Bjarna Bene- diktssyni, rúmar 19 miljónir. Hagnaöur af rekstri fisk- vinnslustöövar BÚR nam eins og áöur segir rúml. 13,3 miljónum, en tap varö af þessum restri áriö 1972, þá tæplega 2,8 miljónir. Samkvæmt eignabreytinga- reikningi nam eignaaukning á ár- inu 461 miljónum, og á árinu voru fengin ný lán aö upphæö 485 miljónir króna. —úþ OSLO Rúmlega helmingur alffa norskra karlmanna, eða 52%, reykir á hverjum degi, en 31% af öllum konum á aldrinum 16 til 74 ára. T vísýnar kosningar MONTREAL 8/7 1 dag var gengiö til þingkosninga I Kanada, og eru úrslit tvisýn. Siöustu skoöana- kannanir bentu til þess aö Frjáls- lyndir nytu stuönings 36% kjós- enda, Ihaldsmenn 30 og Nýir demókratar, sem eru sósial- demókratiskur flokkur, 14%. Aör- ir flokkar fengju um 5% alls, en 15% voru enn óákveönir. ! kosningunum 1972 fékk flokk- ur Trudeaus forsætisráöherra, Frjálslyndir, 109 þingsæti, en I- haldsmenn 107. Nýir demókratar komust I oddaaöstööu með 31 þingmann, en aörir fengu samtals 17. Prósentutölur segja ekki allt um kosningahorfur, þar eð kosiö er I einmenningskjördæmum. T.d. kveöst Trudeau eiga von á 11 nýjum sætum I Ontario, og gæti þaö skipt sköpum. ROM S0RRENT0 Róm — borgin eilífa, sem engri borg er Ifk. Sögufraegir staðir og byggirigar við hvert fótmál. Vatikanið og minjar hinnar fomu rómversku menningar frá dögum hinna einu sönnu keisara. Sorrento er einn af fegurstu bœj- um [talfu við Miðjarðarhafið sunnan við Napoli. Sannkölluð peria Napoliflóans. laus við alla mengun, sem hrjáir nú svo marga staði Norður-italiu, þar sem mið- stöð iðnaðar og efnaframleiBslu er. I Sorrento eru góðar bað- strendur og einstœð náttúrufeg- urB. Stutt að fara til margra skemmtilegra staða, svo sem eyjunnar Kapri, Pompei, Vesuviusar og Napoli, en þaðan er aðeins tveggja stunda ferð til Rómaborgar. MeB þotuflugi Sunnu til Rómar gefst almenningi nú t fyrsta sinn kostur á ódýrum ferðum til eftir- sóknarverðustu staða Italiu. HRflflSKHIFSTBfftH SlMftR 1B400 12070 €•

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.