Þjóðviljinn - 09.07.1974, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 09.07.1974, Blaðsíða 12
UOmiUINN Þriðjudagur 9. jiili 1974 Almennar upplýsingar um lækna- þjónustu borgarinnar eru géfnar i simsvara Læknafélags Reykja- Vikur, simi 18888. Kvöldsimi blaðamanna er 17504 eftir klukkarr 20:00. r Fulltrúi Islands í Caracas: Kvöld,- nætur-, og helgar- varsla lyfjabúðaiReykjavik 5r 11 júli er i Holtsapóteki og Laugavegsapóteki. 200 mílna efnahagslögsagan feli í sér fiskveiðilögsögu Kosningar í Japan: ÍHALDIÐ BEIÐ ÓSIGUR TOKIO 8/7 óðaverðbólga hefur að likindum orðið til þess að stjórnarflokkurinn i Japan, hinn ihaldssami fiokkur Frjáislyndra demókrata, hefur tapað verulegu fylgi I kosningunum i gær. Kosið var um 130 af 252 sætum i neðri málstofu þingsins. 1 kvöld hafði stjórnarflokkurinn fengið 58, sósialistaflokkurinn 28, Komeito-flokkurinn 14, Kommún- istaflokkurinn niu, Sókialdemó- kratar 4 og óháðir 7. Kjörsókn var mikil, þrátt fyrir fárviðri sem gekk yfir Japan i gær, eða um 73%. Búast má við að kjósa verði upp á nýtt i nokkrum kjördæmum, þar sem fellibylur- inn Gilda geisaði. Hann kostaði um 80 manns lifið og a.m.k. 130 slösuðust. Tugþúsundir manna urðu að yfirgefa heimili sin. Gamli-Ford á Akranesi Þetta er gamli Ford árgerð 1921, en blllinn er kominn i eign byggðasafnsins á Akranesi og hefur verið sýndur þar síðan nýja byggðasafnshúsið var opnað. (Ljósm. J.S.) Hœstiréttur USA tek- ur mál Nixons fyrir WASHINGTON 8/7 Hæstiréttur Bandarikjanna kemur saman i dag til að skera úr deilu milli Nixons forseta og Leons Ja- worskis, sérstaks rannsóknar- dómara I Watergate-málinu, sem risið hefur út af ágreiningi um valdsvið forsetans, sem og sam- skiptum dómsvalds, löggjafar- valds og framkvæmdavalds. Niðurstaðan kann að hafa mikil áhrif á pólitiska framtið Nixons. Máliö snýst einkum um það, hvort Nixon beri skylda til að af- henda alls 64 segulbandsspólur til rannsóknar og svo um það, hvort sérstakur alrikisdómstóll hafi rétt til aö benda á valdhaf- andiforseta sem „aðila” aö glæp, án þess að bera formlega fram kæru á hendur honum. Þá er að hefjast i utanrikis- málanefnd þingsins athugun á þvi, hvort Kissinger utanrikisráð- herra sé sekur um að hafa fyrir- skipað simhleranir. Ráðherrann hefur sem kunnugt er hótað að segja af sér nema hann verði leystur undan ámæli. CARACAS 8/7 — Hans G. Ander- sen hélt ræðu á hafréttarráðstefn- unni I Caracas i dag, og lagði þar sérstaka áhersiu á að tslendingar beittu sér fyrir 200 milna efna- hagslögsögu, sem fæli I sér ekki aðeins yfirráðarétt yfir auðlind- um á hafsbotni heidur og yfir auð- lindum i hafinu sjálfu. Væri önnur niðurstaða I þessum efnum full- komlega óraunhæf. Hans G. Andersen sagði, að öll islenska þjóðin stæði á bak við kröfuna um viðtæka efnahagslög- sögu, sem hefði hlotiö æ meiri stuðning rikja heimsins. Hann lagði áherslu á það, hve íslend- ingar væru háðirsjávarafla og fagnaði þvi raunsæi, sem ýmis riki, sem áður hefðu verið andvig 200 milna efnahagsiögsögu, hefðu sýnt á ráðstefnunni með þvi að lýsa stuðningi við þá meginreglu. Hans G. Andersen gerði grein fýrir heildarlausn i átta atriðum sem hann taldi aðgengilega fyrir ísland og flesta aðra aðila á ráð- stefnunni: 1. Landhelgi verði 12 mllur, en siglingar um sund verði frjálsar. 2. Komið verði á 200 mílna efna- hagslögsögu, sem færi strand- rikjunt fullan yfirráðarétt yfir fiskistofnum, en með tvihiiða samningum megi leyfa öðrum rikjuin fiskveiöar, þar sein strandriki ekki geti nýtt sjávar- afla. í þessu sambandi lagði full- trúi tslands sérstaka áherslu á þörfina á að efla fiskveiðitækni þróunarlanda. 3. Verndun fiskistofna, og beri strandrikin höfuðábyrgð á henni, en um leið er gert ráð fyrir al- þjóðlegu samstarfi um skynsam- legar veiðar. Að þvi er varðar siðari liði, er vitnað til ýmissa alþjóöasam- þykkta um nýtingu auðæfa hafs- ins utan efnahagslögsögu, um varnir gegn mengun, um rétt til visindarannsókna, um rétt rikja sem ekki eiga lönd að sjó til auð- æfa hafsins. Islandi PÓLSKUR FLOTTAMAÐUR: Vildi setjast að á Sennilega verður þó ekkert úr því þar sem brottvísun hans frá Noregi hefur verið afturkölluð Morgunblaöið skýrði frá þvi i forsiðufrétt á sunnudag að til stæði að hingað flyttist pólskur njósnari og flóttamaður sem nú er búsettur I Noregi. Ekk- ert verður þó af þessu þar sem dómsmálaráðuneytið norska afturkallaði brottvlsun hans. Forsaga málsins er sú að Pólverji þessi, Wojciech Gul- gowski, haföi gert nokkrar ár- angurslausar tilraunir til að fá að flytjast frá heimalandi sinu. Gekk hann þá til liðs við leynuþjónustu landsins og var sendur á hennar vegum til Noregs. Þar dvaldi hann i 2-3 ár þar til I vor, að hann gaf sig fram við norsk yfirvöld og ját- aði upp á sig skömmina, en kvaðst eingöngu hafa gert þetta til að komast úr landi. Gulgowski var úrskuðaður i gæsluvarðhald meðan mál hans var rannsakað. Niður- stöður þeirrar rannsóknar voru þær að hann hefði ekkert þaö gert sem ógnaði öryggi landsins en rétturinn dæmdi hann i fjögurra mánaða fang- elsi fyrir að hafa dvalið i land- inu þennan tima i þeim til- gangi að njósna fyrir land sitt og að hafa ekki fyrr gefið upp starf sitt. Jafnframt var manninum visaö úr landi. Dómsmálaráð- herra ógilti brottvísunina en lögreglustjórinn i Bergen hélt fast við það að visa honum úr borginni og naut hann I þvi stuönings útlendingaeftirlits- ins. Gulgowski áfrýjaði til dómsmálaráðuneytisins sem I gær ógilti brottvisunina end- anlega. En mál Pólverja þessa kom við sögu hér heima vegna þess aö islenskir námsmenn i Bergen fengu samúð með hon- um og fóru þess á leit við is- lensk yfirvöld að honum yrði veitt landvistarleyfi hér á landi. Komu um það tilmæli til dómsmálaráðuneytisins frá Islenska sendiráðinu I Osló fyrir um mánuði siðan. Ráðu- neytið svaraði þvi til að hon- um yrði tekið vinsamlega með þvi skilyrði þó,að hann hefði áður en hingað kæmi útvegað sér atvinnu hér á landi. Siðan hefur ráðuneytið ekkert heyrt um þetta mál. 1 NTB-frétt seg- ir hins vegar að honum hafi veriö heimilað að koma til Is- lands án þess að hafa fengið hér atvinnu. 1 frétt frá NTB segir að ekki sé enn ljóst hvar maöurinn kjósi að dveljasþen búast má við að hann setjist að i Noregi fyrst hann má það. Má i þvi sambandi nefna að hann er trúlofaður norskri stúlku og er I atvinnu við tölfræðideild há- skólans i Bergen. Er alls óvist að hann fái vinnu við svipað starf hér á landi þvi markaður fyrir tölfræðinga er ekki ýkja stór hér. — ÞH. Slysavarðstofa Borgarspitálans er opin allan* sólarhringinn. Kvöld-, nætur-og helgidagavakt á Heilsuverndarstööinni. Simi 21230. Veður- guðunum líst vel á þjóðhátíð Þúsundir Þingeyinga komu saman i Ásbyrgi á laugardag og sunnudag I einstaklega góðu veöri til þess aö halda þjóöhátiö. Aö sögn formanns undirbún- ingsnefndar, Sigtryggs Þor- lákssonar aö Svalbaröi i Þist- ilfiröi, var húöarigning á föstudaginn, og i gær var kom- iö þokuloft og rigningarslitur, svo telja má aö veöurguöun- um litist þjóöhátiö vel. Sigtryggur sagði að fram- kvæmdastjóri þjóðhátiðarinn- ar hefði verið Niels Lund. Þjóðhátiðin var jafnframt héraðsmót Ungmennasam- bands Norður-Þingeyinga, og fór forkeppni i iþróttum fram á laugardaginn og þá um kvöldið var dansað. Avarp á sunnudeginum flutti Aðalsteinh Gunnlaugs- son, formaður UMSNÞ. Marinó Kristinsson i Sauða- nesi prédikaði við messugerð og 80-90 manna kirkjukór söng undir messunni, en kirkjukór- um sýslunnar var þarna slegið saman i einn. Anna Helgadóttir flutti á- varp fjallkonunnar, en Stefán Þorláksson flutti ræðu. Milli atriða sungu kórar úr sýsl- unni. Tvö sýsluskáld, þeir Snæ- björn Einarsson og Þorfinnur Jónsson, fluttu frumsamin ljóð. Hópur Raufarhafnarbúa sýndi þjóðdans, sem nefndur er Vefarinn. Þá sungu sam- einuðu kirkjukórarnir tvö lög. Þessu næst gengu börn, unglingar og iþróttafólk i skrúðgöngu, og að henni geng- inni fór fram úrslitakeppni i i- þróttunum. Um kvöldið var svo dansleikur. Sigtryggur sagði að hátiðin heföi farið mjög vel fram, engin óhöpp átt sér stað og ekki séð vin á nokkrum manni. — úþ. Kissinger á ferð og flugi: Yill ljuka öryggismála- ráðstefnu Evrópu í ár MUNCHEN LONDON 8/7 Það kom fram á fundi Kissingers, ut- anrikisráðherra Bandarikjanna og Helmuts Schmidts, kanslara Vestur-Þýskalands, aö þeir telja, að öryggismálaráðstefnu Evrópu megi ljúka á þessu ári með fundi æðstu manna. Kissinger kom til Miinchen til að horfa á úrslitaleikinn i heims- meistarakeppninni i knattspyrnu, og notaði tækifærið til að ræða við kanslarann um efnahagsmál og orkukreppu. Kissinger kom til London i dag, en þar ræðir hann sömu mál við breska ráðamenn. Þaðan heldur hann til Spánar til aö ræða um nýjan samning um varnarmál milli Bandarikjanna og Spánar. Upplýst hefur verið, að Kiss- inger ætli til Moskvu i haust og þaðan til Peking.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.