Þjóðviljinn - 09.07.1974, Side 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 9. júll 1974
Gamalt
land
Skáldsaga
eftir
J.B. Priestley
aö þér látið mig vita. Og aöeins
eitt i lokin. Herra Belgrave, þér
eruö viss um að þér hafið aldrei
séð eða heyrt hann föður minn
eftir sumarið 1940?
— Oldungis viss, góði minn.
— En þér hefðuð getað heyrt
eða lesiö eitthvað um hann—
— Satt er það, en ég held að svo
sé ekki. Ég er reyndar alveg viss
— En þarna þagnaði hann.
— Var eitthvað að rifjast upp
fyrir yður? sagði Tom.
— Nei, svo einfalt er það ekki —
i sannleika sagt. Það hefur ekkert
ákveðið rifjast upp fyrir mér,
heldur finnst mér eins og það hafi
verið — eða sé — eitthvað sem ég
ætti að muna. Nei, það er of
óljóst, ég get ekki hent reiður á
þvi. Fyrirgefið. Þér verðiö að
muna að ég er farinn að eldast og
þetta hefur verið langur dagur—
— Já, auðvitað. En Tom starði
á andlit leikarans, rétt eins og það
væri óskýr blaðsiða á tungumáli
sem hann skildi naumast. Það
var undarlegt andlit, á yfirborð-
inu tiu árum unglegra en það
heföi átt að vera, rétt eins og
hreinsunarkremið á hverju kvöldi
hreinsaði burt linur reynslunnar,
en samt, eftir fyrstu sýn virtist
það gamalt, ósköp gamalt og dap-
urlegt. Og svo vissi Tom að Bel-
grave var að ljúga, að það var
ekki neitt óljóst og flöktandi sem
hann var að reyna að muna,
heldur eitthvað öldungis ákveðið
og trúlega neikvætt, sem hann
vildi leyna, annaðhvort til þess að
særa ekki Tom, ellegar vegna
Lausn á síðustu
krossgátu..
I = B, 2 = 0, 3 = T, 4 = U, 5 = R,
6 = G, 7 = L, 8 = Á, 9 = P, 10 = A,
II = Þ, 12 = 0,13 = K, 14 = N, 15 = E,
16 = 1, 17 = M, 18 = V, 19 = F, 20 = 1,
21 = S, 22 = Ð,23 = Æ,24 = Ö, 25 = H,
26 = D, 27 = É, 28 = Y, 29 = 0,
30 = Ý.
Brúðkaup
Þann 1/6 voru gefin saman i
hjónaband af séra Óskari J Þor-
lákssyni Svava Eyland og Elias
Eliasson. Heimili þeirra er að
Kleppsveg 66 Rvk.
Studió Guðmundar, Garðastræti
2.
þess aöhann var þreyttur og taldi
sig búinn að segja nóg.
— A ég að reyna að hringja i bil
handa yður? sagði Belgrave.
— Nei, þakk fyrir. Ég geng af
stað — ég er með götukort — og
svo get ég alltaf veifað á bil ef
með þarf.
Oti I hlýju myrkrinu fannst
Tom enn og aftur að hann væri á
ferö i einhverju neðanjarðarríki
eöa borg á hafsbotni. Það var litið
að sjá og heyra, vegna þess að
orðið var áliðið, en samt var allt
sem hann sá eða heyrði þýðingar-
mikið á einhvern leyndan og dul-
árfullan hátt, rétt eins og atvik i
geysilegu leikriti eða kvikmynd,
sem hann skildi ekki til fulls, þótt
hann vissi að alít i þvi væri mikil-
vægt. A einu torginu stansaði
Rolls Royce, bilstjóri opnaði
hurð, og hávaxin, roskin hjón,
stifuð og glitrandi I hátiöabún-
ingi, stikuðu upp þrepin að úti-
dyrum sfnum eins og eftir göngu-
lagi eftir Elgar. Lengra burtu,
undir götuljósi, stóðu fjórir, síð-
hærðir unglingar, tveir þeirra
með gitara, og vögguðu sér og
sungu eitthvað ósiðlegt, allir ber-
sýnilega drukknir. Svefnherberg-
isgluggi var opnaður, rödd hróp-
aði til þeirra að þegja og hypja
sig. — Geispaðu golunni, gamli
minn, hrópaði einn þeirra. Og I
næstu götu, rétt við götuljós, sá
Tom hvar litill bill stansaði og út
úr honum kom ljóshærður piltur i
smóking og stúlka enn yngri og
ljóshærðari i síðum, hvitum kjól.
Stúlkan skildi við hann fyrir neð-
an húsþrepin, en svo sneri hún sér
við og fór að hlæja, þegar hún sá
að hann beið þar ennþá, og hún
sveif niður I fang hans eins og
draumsýn. Og Tom hélt áfram,
vissi eiginlega ekki hvernig hon-
um var innanbrjósts, þrúgaður af
einhverri óljósri byrði, þar sem
gleði, von, angurværð og örvilnun
voru i einni bendu.
Þaö var snemma gengið til
náða á hóteli Toms og næturvörð-
urinn, úfinn og skapstirður, var
Þann l.júni voru gefin saman i
hjónaband I Hallgrimskirkju af
séra Ragnari Fjalari Lárussyni
Guðrún Kr. Jóhannesdóttir og
Rúnar Egilsson. Heimili þeirra er
að Kriuhólum 2 Rvk.
Stúdió Guðmundar, Garðastræti
2.
bersýnilega búinn að sofa góða
stund þegar Tom kom, og hann
þurfti að hringja góða stund.
— Svona, svona, hægan nú.
Óþarfi að vekja alla I húsinu.
Gamli maðurinn var ennþá hálf-
sofandi.
— Ég biðst afsökunar, en ég get
ekki staðið úti alla nóttina.
— Mig var að dreyma. Og svo
hringir bjallan og eyðileggur fyr-
ir mér drauminn.
Tom ákvað að taka öllu með
stillingu. — Hvað var þig að
dreyma?
— Man það ekki. En það var að
minnsta kosti betra en þessi
fjandi.
Þriðji kafli
Næsta morgun var fingerður en
þrálátur úði, svo að andrúmsloft-
ið I London virtist þykkara en
nokkru sinni fyrr. Yfir bragð-
daufu kaffinu og þreytulegu bjúg-
anu og fleskinu rýndi Tom i litlu
vasabókina sina. Hann gerði sér
fljótlega ljóst, að hann varð fyrst
og fremst að fara eftir heilræðum
Belgraves og spyrjast fyrir hjá
leikarasambandinu og siðan i ein-
hverjum af eldri sýningarsölun-
um. Og honum leist ekki þannig á
veðrið að hægt væri að rata um
London á eigin spýtur, og rétt fyr-
ir klukkan tiu tók hann sér leigu-
bil að skrifstofu leikarasam-
bandsins.
Hörkuleg miðaldra kona sem
bauð ekki beinlinis upp á trúnað,
horföi á hann efablandin. —
Charles Adamson? Ég man ekk-
ert eftir þvi nafni og samt hef ég
unnið hér i tuttugu ár. Er það
áriðandi?
— Það er áriðandi fyrir mig,
sagði Tom. — Reyndar stendur
það ekki i neinu sambandi við
leikhúsið. Það er einkamál. En
hann er ættmenni og ég veit að
hann var einu sinni leikari. Siðast
I gærkvöldi sagði Benson Bel-
grave, sem er gamall vinur hans,
að hann hefði verið félagi i sam-
bandinu.
— Nú, herra Belgrave ætti að
vita það. Benti hann yður á að
koma hingað? Jæja? Fáið yður þá
sæti og ég skal athuga hvað ég get
gert. Var nafnið ekki Charles
Adamson?
Eftir svo sem tiu mlnútur kom
hún til baka og hafði meðferðis
bréfmiða, sem hún bar eins og
hann væri steintafla.— Charles
Adamson var félagi i sambandinu
á fjórða áratugnum. Hann missti
réttindin i strlðinu, þegar hann
hætti að leika, hefur trúlega verið
I hernum. Hann hefur ekki látið
skrá sig aftur eftir strlðið, og
sennilega hefur hann ekki leitað
aftur til leikhússins. Og ég er
hrædd um að ég hafi ekki aðrar
upplýsingar handa yður. Siðasta
heimilisfangið sem við höfum er
frá 1939 og það gagnar yður vist
ekki, eða hvað.
— Nei, reyndar ekki. Það má
þvi gera ráð fyrir, að hann hafi
hætt aðleika fyrst hann gekk ekki
i sambandið eftir strið?
— Ég býst við þvi. Og mér þyk-
ir leitt að geta ekki hjálpað yður.
— Ég þakka yður samt fyrir að
reyna. Tom fann eiginlega ekki til
neinna vonbrigða. Á einhvern
óljósan hátt hafði hann vitað með
sjálfum sér, að faðir hans hafði
fyrir löngu hætt að leika. Það var
miklu trúlegra, að hann hefði aft-
ur farið að mála eftir að hann
kom úr hernum, og hugsanlegt
var að hann gæti jafnvel nú unnið
að einhverju leyti fyrir sér með
þvi að mála.
Og það sem eftir var morguns-
ins rölti hann um gömul galleri og
einnig eftir samlokumáltið I troð-
fullri krá. Hvort sem gamlar kon-
ur með evrópumálhreim eða
sléttir og félldir ungir menn svör-
uðu fyrirspurnum hans, þá varð
hann engu nær, enginn tók við
sér, honum fannst hann vera eins
og landlaus maður i leit að föður-
landi. En i siðasta galleriinu sem
hann kom i, sem hét Cadogan,
gerðist dálitið annað.
Þar var allt á ringulreið, verið
að taka upp úr kössum og raöa
uppmyndumogi bendunni miðri
var snaggaralegur roskinn mað-
ur að reykja pipustert. Hvað
nú? hrópaði hann þegar Tom birt-
ist. — Hvað nú?
— Mér þykir leitt að ónáða yð-
ur — byrjaði Tom.
Þriðjudagur 9. júli
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15
(og forustugr. dagbl.), 9.00
og 10.00. Morgunbæn kl.
10.25. Morguntónleikar kl.
11.00: Frantisek Rauch og
Sinfóniuhljómsveitin I Prag
leika Pianókonsert nr. 2 i A-
dúr eftir Liszt / Birgit Nils-
son syngur með Sinfóniu-
hljómsveit Lundúna „Wes-
endonk ”-söng va eftir
Wagner / Filharmóniusveit
Lundúna leikur „Cock-
aigne”, forleik op. 40 eftir
Elgar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Efir hádegið. Jón B.
Gunnlaugsson leikur létt lög
og spjallar við hlustendur.
14.30 Siðdegissagan: Endur-
minningar Mannerheims
Þýðandinn, Sveinn Ásgeirs-
son,les (13).
15.00 Miðdegistónleikar: Is-
lensk tónlist.a. Tilbrigði um
frumsamið rimnalag eftir
Arna Björnsson. Sinfóniu-
hljómsveit íslands leikur,
Olav Kielland stj. b. Lög
eftir Markús Kristjánsson.
Ólafur Þ. Jónsson syngur,
Arni Kristjánsson leikur á
pianó. c. Kvartett fyrir
flautu, óbó, klarinettu og
fagott eftir Pál P. Pálsson.
Flytjendur: David Evans,
Kristján Þ. Stephensen,
Gunnar Egilsson og Hans P.
Franzson. d. „Lög handa
litlu fólki” eftir Þorkel
Sigurbjörnsson. Elisabet
Erlingsdóttir syngur. Krist-
inn Gestsson leikur á píanó.
e. Adagio fyrir flautu,
hörpu, pianó og strengi eftir
Jón Nordal. David Evans,
Janet Baker, GIsli Magnús-
son og Sinfóniuhljómsveit
íslands leika, Bohdan
Wodiczko stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.15 Veðurfregnir.
16.25 Popphornið
17.10 Tónleikar.
17.40 Sagan: „Fólkið mitt og
fleiri dýr” eftir Gerald
Durrell.Sigriður Thorlacius
les þýðingu sina (12).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Húsnæðis- og byggingar-
mái. ólafur Jenssonsér um
þáttinn.
19.50 Ljóð eftir Ninu Björk
Árnadóttur. Höfundur flyt-
ur.
20.00 Lög unga fólksins. Sverr-
ir Sverrisson kynnir.
21.00 Skúmaskot. Hrafn Gunn-
laugsson ræðir við Arna ts-
leifsson um sokkabandsár
og dansiballmenningu
þeirrar kynslóðar, sem nú
er miðaldra, og skemmt-
analifið eftir siðari heims-
styrjöldina; annar þáttur.
21.30 Pablo Casals og Nicolai
Mednikoff leika verk eftir
Bach, Rubinstein, Chopin,
Fauré o.fl.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Jeremlas í Kötlum”
eftir Guðmund G. Hagalln.
Höfundur les (3).
22.35 Harmonikulög. Karl
Grönstedt og félagar leika.
23.00 Frá listahátlð. Kvöld-
stund með Cleo Laine, John
Dankworth, André Previn,
Arna Egilssyni, Tony Heim-
an og Danyl Runswick. Sið-
ari hluti tónleikanna I Há-
skólabíói 13. f.m.
23.40 Fréttir I stuttu máli.
Dagskrárlok.
Ótrúlega Idgf ver6
ÖLL
MET
BIFREIOAUMBOOIO Á ÍSLANOI
BARUM
BREGST EKKI
SOLUSTAÐIR:
Hjólbarðaverkstæðið Nýbarði, Garðahreppi. simi S060í.
Skodabúðin. Kópavogi, simi 42606.
Skodaverkstæðið á Akureyri h.f.,simi 12520.
Varahlutaverzlun Gunnars Gunnarssonar, Egilsstöðum,
simi 1158.
Indversk undraveröld.
Mikið úrvai af sérkenniiegum, handunnum
munum til tækifærisgjafa, m .a. Bali-styttur,
veggleppi. gólf-öskubakkar, vegg- og horn-
hillur, rúmteppi og púðaver, bahk- og ind-
versk bómullarefni, Thai- og hrásilki, lampa-
fætur, gólfvasar, slæður, töskur, trommur,
tekk-gafflar og -skeiðar i öllum stærðum,
skálar, öskubakkar, kertastjakar, borðbjöll-
ur, vasar, könnur og margt fleira nýtt.
Einnig reykelsi og reykelsisker. Mikið úrval
af mussum.
Jasmin
I.augavegi 133 (við Hlemmtorg).
4uglýsingasiininn er 17500
rmSBJ