Þjóðviljinn - 09.07.1974, Page 11
Þriðjudagur 9. júli 1974 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 11
Sumargaman
Leikfélagsins
ÍSLENDINGA-SPJÖLL
Revia eftir Jónatan Rolling-
stón Geirfugl.
1. sýn. miðvikud. kl. 20.30.
2. sýn. fimmtudag kl. 20.30.
3. sýn. föstud. kl. 20.30.
4. sýn. laugard. kl. 20.30.
Aðeins örfáar sýningar.
Aðgöngumiðasalan i Iðnó er
opin frá kl. 14. Simi 16620.
Eiginkona undir
eftirliti
"Foliow MEÍff
whofellforhis
assignmentr
aHALWALLIS
PRODUCTION
m- MIA /
Farrow/
A CAROL REED FILM
Frábær bandarisk gaman-
mynd i litum, með islenskum
texta. Myndin fékk
gullverðlaun á
kvikmyndahátiðinni i San
Sebastian.
Leikstjóri: Carol Reed.
Aðalhlutverk: Mia Farrow og
Topol sem lék Fiðlarann á
þakinu og varð frægur fyrir.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Hvar er pabbi?
Simi 31182
Óvenjulega skemmtileg, ný
bandarisk gamanmynd, Afar
vel leikin.
Hlutverk: George Segal, Ruth
Gordon (lék i Rosmary*s
baby), Ron Leibman.
Leikstjóri Jack Elliott.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
ISLENSKUR TEXTI.
Myndin, sem slær allt út
Skytturnar
Glæný mynd byggð á hinni
heimsfrægu skáldsögu eftir
Alexandrc Dumas
Heill stjörnuskari leikur i
myndinni, sem hvarvetna
hefur hlotið gifurlegar vin-
sældir og aðsókn; meðal leik-
ara eru Oliver Reed, Charlton
Heston, Geraldine Chaplin
o.m.fl.
tslenskur texti
Sýnd kl. 5, 7 og 9
Ath: Sama verð er á öllum
sýningum.
Það leiðist engum, sem fer i
Haskólabió á næstunni.
Leið hinna dæmdu
Qi i/~L- anrl Tho Proarhor
Vel leikin og æsispennandi ný
amerísk kvikmynd i litum.
Myndin gerist i lok Þræla-
striðsins i Bandarikjunum.
Leikstjóri: Sidney Poitier.
Aðalhlutverk: Sidney Poitier,
Harry Belafonte, Ruby Dee.
Sýnd 'kl. 5, 7, 9 og 11
Síöasta sinn.
Hell house
FORTHESAKE
OFYOURSANITy
PRAY
ITISNTTRUE!
mfm,
ISLENSKUR TEXTI.
Ógnþrungin og mjög mögnuð
ný litmynd um dulræn fyrir-
brigði.
Pamela Franklin
Roddy Mc Dowell
Bönnuð yngri en 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
fer frá Reykjavik sunnudaginn
14. þ.m. vestur um land I hring-
ferð.
Vörumóttaka: þriðjudag, mið-
vikudag og til hádegis á fimmtu-
dag.
A MIÐVIKUDAG 10/7.
Þórsmörk.
Sumarleyfisferðir.
11/7—17/7. Hornstrandir.
11/7—21/7 Suðursveit —
Hornafjörður — Lónsöfæfi.
12/7—28/7 Kerlingarfjöll —
Arnarfell.
Fcrðafélag tslands,
öldugötu 3,
simar: 19533 — 11798.
Rangæingafélagið
fer sina árlegu skemmtiferð
inn i Veiðivötn helgina 13.—14.
júli. Lagt af stað kl. 9 á
laugardagsmorgun og komið
aftur á sunnudagskvöld. Þeir
félagsmenn, sem hafa ekki
þegar tilkynnt þátttöku sina
(og gesta sinna ef einhverjir
eru) en ætla með, þurfa að
hafa samband við Arna
Böövarsson i þessari viku,
slmi 73577.
Nafn mitt er
mister Tibbs
Spennandi sakamálamynd
með Sidney Poitier og Martin
Landau. Leikstjóri: Gordon
Douglas. Tónlist: Quincy
Jones.
ÍSLENSKUR TEXTI.
Endursýnd kl. 5,15 og 9.
Bönnuð börnum.
Djöfladýrkun í
Dunwiche
lunwssií
f >
\. 3 ^
Afar spennandi og dulúðug ný
bandarisk litmynd, um
galdrakukl og djöfladýrkun.
Sandra Dee, Dean Stockwell.
Bönnuð innan 16 ára.
ISLENSKUR TEXTI.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
Bókhaldsaðsíoð
með tékkafærslum
flpÚNAÐAEBANKINN
\f\/ REYKJAVÍK
Gísli Árni seldi
fyrir 4,6 milj.
I siðustu viku seldi sildveiði-
skipið Gisli Arni þrisvar i dönsk-
um höfnum og fékk fyrir aflann
þessa einu viku tæpar 5 miljónir
króna.
Nánar tiltekið varð söluverð-
mæti sildar þeirrar sem Gisli
Árni fékk vikuna 1.—6. júli
4.635.109,00 kr. Alls seldu islensku
skipin fyrir 39,7 miljónir i Dan-
mörku þessa viku. Meðalverð
bátanna var 23,39 krónur fyrir
kilóið.
Hæst meðalverð fyrir sild fékk
Orn KE, en hann seldi 56,4 lestir
fyrir rúmar tvær miljónir, og
fyrir hvert kiló fékk hann 35 krón-
ur 97 aura. Næst-hæst meðalverð
fékk Skinney SF, 35,85 krónur kg.
Hæst verð fyrir makril Keflvik-
ingur KE, 61,61 kr. kg.
Til 7. júli i fyrra höfðu islensku
sildveiðiskipin selt i erlendum
höfnum 8.417,9 tonn fyrir 171,5
miljónir. Meðalverð var þá 20,38
kr. kg. Nú hafa islensku bátarnir
hins vegar selt 9.810,1 tonn fyrir
224 miljónir, og er meðalverð i
sumar 22,84 kr. kg.
Aflahæstur er Guðmundur RE,
og hefur hann selt fyrir 27,2
miljónir. Næstir koma Loftur
Baldvinsson, sem selt hefur fyrir
rúmar 20 miljónir, og Faxaborg
GK, sem selt hefur fyrir tæplega
17,6 miljónir. Guðmundur RE er
einnig með hæst meðalverð fyrir
hvert kiló, 26 krónur 79 aura.
—úþ
Kynskipti
ekki viður-
kennd
JÓHANNESARBORG. Yfir-
völd í Suður-Afriku hafa neitað að
viðurkenna kynskipti. Maður einn
hafði sótt um breytingu á fæðing-
arvottorði sinu, þar sem á var
kveðiðum að hann væri karlkyns,
en hann hafði siðar látið breyta
sér i konu með skurðaðgerð. Um-
sókninni var hafnað á þeirri for-
sendu, að engar þær reglur væru
til, sem leyfðu að fólk væri að
skipta um kyn.
Umsækjandi hefur sagt við
blaðamenn, að synjun þessi hefði
gert honum lagalega ómögulegt
að gifta sig og taka sér fóstur-
barn.
Skagamenn
Framhald af bls 8.
Mikil harka var I leiknum og
þurftu tveir leikmenn, þeir Jó-
hannes Guðjónsson hjá IA og
Hörður Hilmarsson hjá Val, að
yfirgefa völlinn vegna meiðsla.
Valsmenn áttu upptökin að þess-
ari hörku. Þeir ætluðu sér greini-
lega að brjóta Skagamennina nið-
ur með höröum leik, en til þess er
Skagaliðið allt of leikreynt. Þess i
staö fóru þeir að taka á móti og úr
varð haröur leikur og oft á tiöum
grófur.
Valsmenn áttu tvö góð mark-
tækifæri i fyrri hálfleik.en i bæði
skiptin bjargaði Davið Kristjáns-
son markvörður IA snilldarlega. I
fyrra sinnið var það um miöjan
hálfleikinn að Hörður Hilmarsson
skaut af nokkuð löngu færi, en
skothans var mjög fast og stefndi
boltinn i bláhornið. Davið náði að
vippa boltanum yfir slá. En hitt
tækifærið átti Kristinn Björnsson
er hann komst einn innfyrir IA-
vörnina og skaut af stuttu færi.
Þetta skot varði Davið á þann
hátt, að nær óskiljanlegt er.
Skagamenn áttu einnig tvö
mjög góð færi fyrir utan það sem
vitaspyrnan kom uppúr. I annað
sinnið mistókst Eyleifi skot innan
vitateigs þar sem hann stóð einn
og óvaldaður, en i hitt skiptið
„kiksaði” Matthias þar sem
hann fékk boltann á vitapunkti og
allt var opið fyrir framan hann.
Jóhannes Eðvaldsson bar af i
Vals-liðinu eins og áður segir, og
væri það illa statt án hans. Þá átti
Alexander Jóhannesson sinn
besta leik i sumar. Hörður átti
einnig mjög góðan leik meðan
hann var inná.
Hjá IA bar Karl Þórðarson af.
Hann er orðinn einn okkar allra
besti framlinumaður með mikla
knatttækni, hraða og hefur sér-
lega gott auga fyrir samleik og
reynir hann alltaf. Og hæfileiki
hans til að vera óvaldaður á mik-
ilvægum augnablikum er undra-
verður. Þeir Jón Gunnlaugsson,
Þröstur, Jón Alfreðsson og Ey-
leifur áttu einnig mjög góðan leik
að ógleymdum Birni Lárussyni,
en hann verður Karl að hafa með
sér. Samvinna þeirra er til fyrir-
myndar.
—S.dór
Landskj örst j órn
kemur saman i alþingishúsinu miðviku-
daginn 10. þ.m. kl. 10 árd. til að úthluta 11
uppbótarþingsætum.
Reykjavik, 5. júli 1974
LANDSKJÖRSTJÓRN
Eiginmaður minn
ENOK INGIMUNDARSON
Suðurlandsbraut 74A,
er andaöist 2. júli, verður jarðsettur frá Fossvogskirkju
miðvikud. 10. júli kl. 10.30 f.h.
Blóm vinsamlegastafþökkuö,en þeim, sem vildu minnast
hins látna, er bent á að láta liknarstofnanir njóta þess.
F.h. vandanianna,
Kristin Björnsdóttir.