Þjóðviljinn - 14.07.1974, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 14.07.1974, Qupperneq 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 14. júlt 1974. MOWIUINN MÁLGAGN SÓSÍALISMA VERKALYÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Gestsson (áb) Fréttastióri: Evsteinn Þorvaldsson Kitstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 linur) Prentun: Blaöaprent h.f. VINSTRISTJÓRN Í ÞRJÚ ÁR 1 dag, 14. júli, eru rétt þrjú ár liðin frá myndun vinstri stjórnarinnar, sem nú hef- ur beðist lausnar,- Það voru miklar vonir tengdar við þessa rikisstjórn, sem tók við að loknum 12 ára valdaferli viðreisnarflokkanna. Sumar þær vonir hafa ræst, en aðrar ekki. Af þvi sem áunnist hefur þessi þrjú ár ber hæst útfærslu fiskveiðiland- helginnar i 50 milur, uppbyggingu at- vinnuveganna þá ekki sist sjávarútvegs- ins um land allt, stórbætt lifskjör launa- fólks og bótaþega almannatrygginganna, mörkun sjálfstæðrar utanrikisstefnu, frá- hvarf frá þeirri stefnu, að ætla erlendum auðfyrirtækjum, er ekki lúta islenskum lögum, að verða burðarásinn i atvinnu- uppbyggingu á íslandi, — ný grundvallar- löggjöf á sviði skólamála og heilbrigðis- mála og svo mætti lengi telja. Það er algerlega ljóst, að án tilkomu vinstri stjórnarinnar hefði fiskveiðiland- helgin ekki verið stækkuð. Frá stjórn- málamönnum, sem lýstu þvi yfir fáum vikum fyrir valdatöku vinstri stjórnarinn- ar, að einhliða útfærsla væri „siðlaús ævintýrapólitik”, og höfðu áður með samningum lagt hverja stækkun umfram 12 milur i vald Haagdómstólsins, — frá þeim var svo sannarlega ekki að vænta forgöngu um sókn i landhelgismálinu. Uppbygging innlendra atvinnuvega i tið vinstri stjórnarinnar er mikið afrek. Fjármunamyndun i fiskveiðum var á sið- asta ári t.d. nær fimmfalt hærri á föstu verðlagi en á siðasta heila ári viðreisnar- stjórnarinnar, og nær þrefalt hærri i fisk- vinnslustöðvum. Á þessum þremur árum hefur fram- færsluvisitalan að visu hækkað um 60—70%, en á sama tima hafa laun al- mennt hækkað um 140—150% og tekjur þeirra, sem hafa nær allt eða allt sitt frá almannatryggingum um 285%. Þannig hefur kaupmáttur dagvinnutimakaups verkafólks vaxið um nálægt 30%, og kaup- máttur tekna bótaþega lifeyristrygginga um yfir 100%. Það er svo á hinn bóginn staðreynd, að enda þótt i tið vinstri stjórnarinnar hafi verið færðir til i þjóðfélaginu allmiklir fjármunir frá gróðabröllurum til alþýðu manna, þá hefur engan veginn verið þrengt að braskarastéttinni i þeim mæli sem nauðsyn bar til. Þeir sem spila upp á skjótfenginn verð- bólgugróða mata krókinn enn sem fyrr. Varðandi framkvæmd stefnumála rikis- stjórnarinnar hefur það þó valdið mestum vonbrigðum, að fyrirheitið um brottför hersins var ekki komið til framkvæmda, þegar stjórnin glataði meirihluta sinum á alþingi vegna brotthlaups þriggja þing- manna yfir i herbúðir andstæðinganna, en það brotthlaup leiddi til þingrofs. í herstöðvamálinu hafði þó verið mörk- uð skýr stefna af hálfu rikisstjórnarinnar um brottför hersins á næstu tveimur ár- um, en stjórninni entist ekki lif til að framkvæma þá stefnu, þar sem einn af þremur stuðningsflokkum stjórnarinnar sprakk i loft upp. Nú á þriggja ára afmæli vinstri stjórn- arinnar er allt i óvissu um hvað við tekur, þar sem niðurstaða kosninganna varð jafntefli milli stjórnar og stjórnarand- stöðu. Alþýðubandalagið stefnir að þvi að tryggja áfram vinstri stjórn, en þar dugar þó ekki nafnið eitt, heldur hljóta málefnin að skera úr. Það er nú ekki sist undir Alþýðuflokkn- um komið, hvort unnt reynist að mynda vinstri stjórn á ný. „JÖTUNNINN STENDUR MEÐ JÁRNSTAF í HENDI JAFNAN VIÐ LÓMAGNÚP............” í dag verður hringvegurinn formlega opnaður. Á tæpum tveimur árum hafa árnar á Skeiðarársandi verið brúaðar, 36 kilómetra leið frá Lómagnúp að Skafta- felli. Þetta er stór dagur i sögu þjóðarinn- ar. Landið verður með nokkrum hætti annað en fyrr. Tækni nútimans opnar margar dyr, sem áður voru luktar. Þegar við fögnum á þessum degi tækni- legu afreki, skulum við jafnframt strengja þess heit að kappkosta bætta umgengni við landið og náttúru þess. Okkar mestu auðæfi eru landið sjálft, viðátta þess og ó- spillt náttúra. Á íslandi voru samgöngur löngum erfið- ar, 17 dagleiðir til Þingvalla hjá þeim sem lengst áttu að sækja. Vatnsföll mörg og stór og öll óbrúuð framundir siðustu alda- mót. Hvergi voru þó samgöngur óhægari en i Skaftafellssýslum, vatnsföll hvergi meiri eða ótryggari né kaupstaðarleið lengri, öldum saman á Eyrarbakka eða Djúpa- vog. Við nútimamenn skulum ekki ofmetnast af mikilsverðum tæknilegum sigrum, heldur lúta okkar gamla landi i auðmýkt, um leið og sótt er fram. Þjóðviljinn þakkar öllum þeim, sem unnið hafa að framkvæmdunum á Skeið- arársandi og öðrum þeim, sem átt hafa hlut að framgangi þessarar sögulegu vega- og brúargerðar. Við óskum þjóðinni og Skaftfellingum sérstaklega til hamingju með hringveg- inn. Norskur teinœringur • • ________ _ Orn og Hrafn Hér i blaðinu hefur áður veríð skýrt frá teinæringum þeim sem norskir aðilar hafa ákveðið að gefa islensku þjóðinni I 1100 ára afmælisgjöf. Bátarnir lögðu af stað frá Áfjord þar sem þeir voru smiöaðir þann 7. þ.m. Koma þeir við í Fjaler, Molde, Alasundi, Florö og viðar i Noregi áður en þeir leggja á haf út. Frá Fjaler i Sunnufirði leggja bátarnir út á Atlantshaf 18. eða 19. júli. Efveður leyfir er fyrir- hugað að koina við I Færeyjum en að öllu óbreyttu koma þeir til Reykjavikur á hádegi 4. ágúst. Bátarnirheita örn og Hrafn. Sá fyrrnefndi er hugsaður sem „sögulegt tákn” og er hann hvit- málaður á byrðinginn. Ber hann oddveifu i stafni sem á er málað- ur rauður örn. Hrafn er hins veg- ar tileinkaður baráttunni fyrir verndum lifheimsins á Norður- Atlantshafi. Er hann grænmálað- ur og ber grænan hrafn á oddveifu i stafni. Eftir hingaðkomu bátanna verður Hrafni siglt til Húsavikur og afhentur Sjómannafélagi Húsavikur til varðveislu en jafn- framt mun Landeigendafélag Laxár og Mývatns hafa þar hönd i bagga og er sú ráðstöfun tengd baráttu félagsins gegn virkjun Laxár. Verður báturinn notaður til kennslu i sjómennsku fyrir þingeysk sjómannsefni. Gefendur Arnar eru Osló, Berg- en og Þrándheimur og er hann stilaður á Reykjavik I minningu Ingólfs Arnarsonar. Hrafn er hins vegar gefinn af Æskulýðssam- bandi Noregs, en auk þess eru fleiri félagasamtök og einstak- lingar aðilar að gjöfinni, þ.á m. þingmenn og ráðherrar i norsku stjórninni. Sá aðili sem skipulagt hefur ferðina er Norsk-Islandsk Samband. Alls verða sextán manns i för- inni, þar af fjórir Islendingar eins og skýrt hefur verið frá. Fyrirliði leiðangursins er Jon Godal og er hann jafnframt formaður á Erni. Formaður á Hrafni er Arne Röds- land. Fulltrúi gefenda Arnar verður Brynjulf Bull en hann Til hægri á myndinni er leiðangursstjórinn Jon Godal. kemur um borð i Keflavik. Sá þekktur umhverfisverndarmaður einnig eru þar I hópi þaulvanir sem afhenda mun Hrafn er Sig- i Noregi. Sömu sögu er að segja af siglarar. mund Kvalöy en hann er vel flestum áhafnarmeðlimum en Framhald á 11. siðu. Tilgangurinn að efla samstöðu Noregs og íslands í umhverfisverndarbaráttunni

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.