Þjóðviljinn - 14.07.1974, Blaðsíða 13
Sunnudagur 14. júll 1974. þjóDVILJINN — SIÐA 13
Selveiði
með besta móti á
Breiðafirði
en œðarvarp heldur á undanhaldi i
eyjunum, sagð sagði Hafsteinn
Guðmundsson i Flatey
— Selveibi hefur gengiö
meö allra besta móti hér á
Breiðafiröi I vor og má segja
að þetta sé þriðja sumarið i
röö sem selveiðin gengur vel
hjá okkur, sagði Hafsteinn
Guðmundsson i Flatey á
Breiðafirði, er við höföum
samband við hann i gær og
spurðumst frétta úr eyjunum.
— Og það er ekki bara hér i
eyjunum sem selveiðin hefur
gengið vel, heldur hef ég haft
af þvi spurnir að hiin hafi
gengið mjög vel uppi á landi
llka.
— Er gott verö á kópaskinn-
um i ár?
— Já, all-gott, við höfum
heyrt að verðið i ár verði
svona á milli 5 og 6 þúsund
krónur fyrir 1. fl. skinn. 1 fyrra
var verðið um 4 þúsund
krónur, þannig að segja má að
hækkunin nái þeirri hækkun
eða þvi sem næst, sem nauð-
synleg er vegna almennra
hækkana I landinu.
— Er dýr útgerð við sel-
veiði?
— Já, nokkuö svo. Netin eru
orðin mjög dýr, og þótt ekki sé
mikið um skemmdir á þeim,
þá er alltaf nokkuð sem týnist.
Eins fer þaö nokkuð eftir þvi
hvort þeir bátar sem notaðir
eru við selveiðarnar eru i þvi
eingöngu eða hvort þeir geta
einnig veriö á fiskveiðum.
— Hvaö segir þú mér af
æðarvarpi i Breiöafjarðareyj-
um?
— Það gengur nú ekki nógu
vel, ég efast um að það nái þvi
að standa I stað. Vargurinn er
svo óskaplega mikill hér, að til
vandræða horfir. Annars eru
hér mjög stórar varpstöðvar.
Til að mynda munu vera yfir
200 æðarhreiður i Flatey einni.
Svo gerði það lika i vor, að
óvenju miklar rigningar voru
hér um varptimann, þannig að
dúnn skemmdist all-mikið.
— Er dúntekja og selveiði
stór póstur I afkomu manna á
Breiöafirði?
— Já, það má segja þaö.
Hér eru svona 7—8 menn sem
stunda selveiði, og þegar vel
gengur gefur hún mikið af sér,
og sama er að segja um dún-
inn, gottvarp gefur þó nokkuð
I aðra hönd.
— Er sláttur hafinn I
Breiöafjaröareyjum?
— Hann er svona um það bil
að hefjast. Það er fremur illa
sprottiö ennþá, en kal er hér
litið sem ekkert i túnum.
— Og er ekki annars allt
gott að frétta af mannlifi I eyj-
unum?
— Jú, mér er óhætt að segja
það, það hefur verið gott vor
og góð tið i sumar, þótt nokkur
úrkoma hafi verið þarna um
tima, og svo hafa allir nóg að
starfa.
—S.dór
Örn og Hrafn
Framhald af bls. 6.
I bréfi sem blaftinu hefur bor-
ist frá Nore^i segir að tilgangur-
inn sé að Seggja áherslu á aö vist-
fræðikreppan og baráttan um
auðlindir heimsins geri það nauð-
synlegra en nokkru sinni fyrr að
smáþjóðir með svipaöan menn-
ingararf starfi saman að ákveön-
um markmiðum. Meðal þeirra
eru nefnd:
1) Efling menningarlegra sér-
einkenna sem skapa þjóðarvitund
okkar. Gleymum við þvi er hætta
á að viö þurrkumst út sem þjóð.
2) Aukin sjálfsbjargarviðleitni,
bæði hvað snertir notkun eigin
auðlinda og eigin tækni til að
bjarga sér á einfaldan hátt og
með sem minnstri orkueyöslu.
3) Varkárni i nýtingu auölinda
sem ekki endurnýjast og aukin
nýting sólarorku.
4) Efling dreifbýlis.
5) Efling norrænna hefða i
handiönaöi sem skapað geta
grundvöll að dreifðri búsetu.
6) Samstöðu sem gerir okkur
kleift að mæta betur utanaðkom-
andi þrýstingi, efnahagslegum,
pólitiskum og menningarlegum,
frá stórveldum og voldugum iðn-
aðarsamsteypum.
—ÞH
Framhald af 7. siðu.
Og við ökum áfram, höfum
Jökulsá á Sólheimasandi fljótlega
að baki og erum i Vestur-Skafta-
fellssýslu.
Vik i Mýrdal er sérkennilegur
staður. Hún á tilveru sina náö
Kötlu gömlu að þakka. Katla
hefur oft gosið og siðast 1918.
Núna búast margir við Kötlugosi
á hverri stundu, og kannski finnst
einhverjum að Vikurbúum hljóti
að standa ógn af eldfjallinu. Svo
mun þó ekki — og það er rétt að
minna á, að þótt byggð i Vik
geti stafað hætta af gosi, þá á Vik
I raun Kötlu gömlu tilveru sina að
þakka. Jökulhlaupin úr Kötlu
hafa myndað undirlendið, sem
byggðin stendur á,og lika sjávar-
kambinn, sem hlifir henni við
sjávarágangi.
Og við fáum gistingu i Vik og
alla þjónustu, jafnt fyrir blikk-
belju sem okkur sjálf.
Framhald af bls. 16.
byrðar vegna fjárhagsöröug-
leika þjóöarbúsins.
Þessi viðbrögð sýna, svo ekki
verður um villst, að svo sannar-
lega er timi til kominn að
hreinsa til I verslunarstéttinni,
setja henni harðari kosti, láta
hana standa frekari reiknisskil
gerða sinna, og umfram allt:
rýra völd hannar. —úþ
sewBiLAsmmm
Duglegir bílstjórar
Heildsalar
Af heilum hug þökkum við þeim, sem sýndu okkur samúð
við andlát
ÞORVALDAR ÁRNASONAR
Sogaveg 44.
Kristin Sigurðardóttir
Þoryaldur Þorvaldsson Ingibjörg ólafsdóttir
5r",^orv“,dss"n Katrin Kristinsdóttir
Haildóra Arnadóttir og systkini hins Iátna.
Rithöfundar
Framhald af 1. siðu.
Braga og fór þess á leit, að undir-
ritaðir 12 rithöfundar önnuðust
það mat, sem um var beðið i bréfi
hans.
Við höfum kynnt okkur eftirfar-
andi gögn i málinu:
1. Grein Einars Braga.
2. Stefnuna, þar sem m.a. eru
gerðar þær dómkröfur:
aö fyrrgreind orð og ummæli
verði dæmd dauð og ómerk,
að greinarhöfundur verði dæmd-
ur i þyngstu refsingu, sem á getur
reynt skv. 234. og 235.grein laga
nr. 19/1940, en þyngsta refsing
skv. lagagreinum þessum er
varðhald allt að einu ári.
að honum verði gert að greiða
hverjum stefnenda fyrir sig kr.
50.000.00 i miskabætur.
3. Lagagreinarnar, sem stefn-
endur höfða til, en þeirra helstar
eru:
„Hver, sem meiðir æru annars
manns með móðgun i orðum eða
athöfnum,og hver, sem ber sllkt
út, skal sæta sektum eða varð-
haldi allt að 1 ár” (Lög nr.
19/1940, 234.gr.)
,,ef maður dróttar að öðrum
manni einhverju þvi, sem verða
myndi virðingu hans til hnekkis,
eöa ber slika aðdróttun út, þá
varöar það sektum eða varðhaldi
allt að einu ári (235. gr. sömu
laga)
4. Þá grein stjórnarskrárinnar,
sem segir: „Hver maður á rétt á
að láta i ljós hugsanir sinar á
prenti; þó verður hann að ábyrgj-
ast þær fyrir dómi. Ritskoðun og
aðrar tálmanir fyrir prentfrelsi
má aldrei I lög leiða” (72. gr.).
III
A framanrituðu grundvöllum
við eftirfarandi niðurstöðu:
Þaö er alþjóð kunnugt, að Einar
Bragi er andvigur erlendri her-
setu á íslandi og hefur i áratugi
barist gegn henni. Til þess hefur
hann fyllsta rétt samkvæmt
stjórnarskrá landsins.
Hver sem les greinina Votger-
geit-vixilinn hlýtur að viöur-
kenna, að hún er samin og birt af
gefnu tilefni gegn málstaðþeirra,
sem vilja, að erlendur her sitji i
landinu, en ekki til að skaða per-
sónulega æru eða virðingu neins
einstaks manns.
Miðaö við þann tón, sem al-
vanalegur er i opinberri umræðu
um heit deilumál á tslandi, er
grein Einars Braga að okkar mati
hófsamlega orðuð.
Stefnendur krefjast þyngstu
refsingar, sem á getur reynt skv.
234. og 235. grein laga nr. 19/1940,
það er varðhalds allt að einu ári,
og sex hundruð þúsund króna
miskabóta skv. 264. grein sömu
laga. Ef slikum kröfum væri
sinnt, væri sú kvöð stjórnarskrár-
innar, aö menn verði að ábyrgjast
hugsanir sinar fyrir dómi, orðin
svo dýrkeypt, að jafngilti óbæri-
legri skerðingu á rétti manna til
að láta i ljós huganir sinar á
prenti. Þess vegna svörum viö
spurningunni, sem fyrir nefndina
var lögð, á þessa leið:
Kærumál og fjárheimtur af
þessu tagi eru árás á tjáningar-
frelsi manna og stefna að þess
konar tálmunum fyrir prent-
frelsi, sem stjórnarskráin kveður
svo skýrt á um, að aldrei megi i
lög leiöa.
Reykjavik, 11. júli 1974
Andrés Kristjánsson
(sign.)
Gunnar Gunnarsson
(sign)
Thor Vilhjálmsson
(sign)
Hilmar Jónsson
(sign)
Jón Óskar
(sign)
Snorri Hjartarson
(sign)
Björn Bjarman
(sign)
Þorsteinn Valdtmarsson
(sign)
Jón úr Vör
(sign)
Sigurður A. Magnússon
(sign)
Stefán Júliusson
. (sign)
Ólafur Jóhann Sigurðsson
(sign)
Landsmót
hestamanna
Póstlestin
á mótstað
Þúsundir hrossa og mannfólks
var saman komið á Vindheima-
melumí Skagafirði I fyrradagþeg
ar Landsmót hestamanna vai
sett þar.
Póstlestin að sunnan var vænt-
anleg á mótsstað kl. 13.30 I gær,
og var tekið á móti henni meö
viðhöfn.
Um 2000 hross voru komin á
mótsstað úr öllum landshlutum,
3g höfðu margir riðið langan veg
jm fjöll og firnindi.
Sérstakt úrval kynbótahesta er
á þassu móti, og segja hestfróðir
menn, að aldrei fyrr hafi annað
eins hestaval verið á einum stað.
Þarna eru lika kappreiðahestar,
og hlupu tveir undir mettima i 800
m. stökki i gær.
Um 300 útlendingar, aðallega
eigendur islenskra hesta I Evrópu
eru komnir til mótsins.
UH UL SKABIGKIPIH
1 . n 7) kcrnflíus
JONSSON
\ SKOLAVOROUS1IU8
t ♦ U BANKASJR4 U6
IHSH8-18600
Sá tryggir sinn hag,
sem kaupir SKODA í dag!
TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ
Á ÍSLANDI H.F.
AUÐBREKKU 44-6 SfMI 42600 KÓPAVOGI