Þjóðviljinn - 02.08.1974, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 02.08.1974, Qupperneq 3
Föstudagur 2. ágúst 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 ÚR SKATT - SKRÁNNI Bágt er í búðunum Margur hefur ranglega haldið. að kaupmennska gæfi fé i aðra hönd. Hefur fólk þá gjarnan tekið mið af þvi, hversu mikið hinn eða þessi kaupmaðurinn berst á, en það hlýtur að vera sjónhverfing i næstum hverju tilviki.l>vi til sönnunar flettum við skatt- skránni, og litum á afkomu nokkurra verslana úr hinum ýmsu greinum verslunar- innar. Hagnaður hefur til að mynda enginn orðið af rekstri hinnar miklu gólfteppasölu Axminster h.f., þvi tekjuskatt greiðir það fyrirtæki ekki. Blóm og ávextir greiða heldur engan tekjuskatt, og hefur þvi gröðinn af þeirri versluninni ekki þyngt vasa eigendanna til nokkurra muna. Hins vegar þarf þessi verslun að greiða 2.100 krónur i aðstöðugjald og heilar 48 krónur i kirkjugarðsgjald. Hið mikilfenglega verslun- arfyrirtæki á sviði rafmagns- vöru, og einnig i ýmsu öðru, Bræðurnir Ormsson, greiðir enga krónu i tekjuskatt. Aðeins liflegra virðist vera i fataversluninni, en ekki er hægt að segja að rekstur slikra verslana geri meira en brauðfæða eigendur sina, og alla vega getur slikur rekstur ekki staðið undir hnattreisum eigenda. Dömu- og herra- búðin, sem ein slik verslun, hefur i tekjuskatl 15.951 krónu, sem bendir til þess að hagnaðurinn hafi verið um 40 þúsund krónur á heilu ári. Það er ekki lifvænlegt. Stærsta verslunarsam- steypa höfuðborgarinnar, sem fæst við sölu nýlenduvarnings, er að likindum Silli og Valdi. Þessi verslun selur einnig ýmsan annan varning en matvöru, og mætti þar nefna eitt og annað, eins og viðskiptamenn þessarar sam- steypu kannast við. Einnig hefur verslunin með að gera innflutning margs konar. Allt þetta veraldarvafstur gefur Silla og Valda ekki einn einasta eyri i hagnað. Silli og Valdi greiða enga krónu i tekjuskatt samkvæmt skattskrá. Má þvi sannarlega segja að bágt sé i búðunum. Og svona rétt til að létta lundina, og til ihugunar fyrir þá allt of morgu einstaklinga og fjölmörgu fyrirtæki, stofnanir og skrifstofur, sem greiða mismunandi margar krónur i kirkjugarðsgjald, skal það sagt hér og nú, þó vafalaust sé ekkert bogið við það, að Biskupsskrifstofan, þaðan sem kirkjugarðsfé hlýtur að vera ráðstafað, er ein örfárra undantekninga, hvað varðar greiðslur á þessu gjaldi, þvi sá dálkur skatt- skrárinnar er auður þar sem sagt er frá kirkjugarðsgjaldi þessarar umboðsskrifstofu almættisins algóða. —úþ og lagt upp i þjóðarhlaup sem lýkur á Arnarhóli á laugardag breytir sýningartíma Þar verður sex-bióven ekki fimm-bió Stjörnubió hefur nú tekið upp þá nýbreytni að færa sýningar- tima sinn til. Nú verða sýningar þess eftirleiðis klukkan 18. klukkan 20 og klukkan 22. Kvikmyndahús Heykjavikur hafa árum saman haft hina föstu sýningartima eins. Þau byrja klukkan 17, sýna aftur kulkkan 19 og siðast klukkan 21 — nema Hafnarbió, sem stundum bætir við miðnætursýningu, sem hefst klukkan 23. Við vonumst til að þetta gangi vel hjá okkur, sagði talsmaður Stjörnubiós, sem Þjóðviljinn ræddi við, — og það er að vonum, að fólk kunni að meta svolitla til- breytinu i þessum efnum. Sýningartimi kvikmyndahúsanna hefur verið svo fastur i sniðjum um áratuga skeið, að þessi breytti sýningartimi hlýtur að vekja áhuga. Það var fyrst i gær, sem Stjörnubió hóf sýningar klukkan 18. Miðasalan opnaði klukkan 17 — og myndin sem bióið sýnir núna heitir X,Y og Zee og þar fara með aðalhlutverk þrumu- stjörnurnar Elisabet Taylor og Michael Caine. Og eftirleiðis fara menn ekki i fimm-bió i Stjörnubió, heldur sex-bió. —GG Þeim ermarg.ttil lista lagt, tlðindamönnum sjónvarpsins og hér bregð- ur Ólafur Hagnarsson undir sig betri fætinum og skellir sér ,.hinum megin við linsuna”. AUSTFIRÐIR: Gífurleg aukning umferðar Minnisvarði afhjúpaður á Ingólfshöfða í gærmorgun fóru tveir þættir þjóðhátiðar fram á Ingólfshöfða. Af- hjúpaður var minnis- varði um Ingólf Arnar- son og hafið þjóðarhlaup sem endar á laugardag- inn á Arnarhóli. Minnismerkið er reist á vegum þjóðhátiðarnefndar og er það stuðlabergssúla, um þrir og hálf- ur metri á hæð. A hana er letruð svohljóðandi tilvitnun i Land- námabók: „Ingólfur tók þar land er nú heitir Ingólfshöfði”, og einnig „Ellefu alda minning 1974”. ögæftir á Raufarhöfn Miklar ógæftir hafa verið und- anfarna daga á Raufarhöfn, og hafa þvi trillur og minni bátar litt eða ekki getað róið til fiskjar. Atvinnulif hefur þó haldist á staðnum, þar sem togari þeirra Rafuarhafnarbúa, Rauðinúpur, hefur aflað sæmilega. Indriði G. Þorsteinsson fram- kvæmdastjóri þjóðhátiðarnefnd- ar flutti stutt ávarp áður en minnisvarðinn var afhjúpaður en það verk vann Sigurður Björns- son bóndi að Kviskerjum. Gat Indriði þess i ávarpi sinu að Sig- urður hefði átt fyrsta frumkvæðið að þessu minnismerki og þvi væri eðlilegt að hann afhjúpaði það. Að þessari athöfn lokinni tók Birgir tsleifur Gunnarsson borgarstjóri til máls og flutti stutt ávarp i tilefni hlaupsins. Að þvi loknu tendraði Ari Magnússon formaður Ungmennafélags öræfasveitar eld i blysi og tók siðan til fótanna niður höfðann. Hljóp hann fyrsta spölinn niður á sandinn þar sem félagi hans og sveitungi tók við þvi. Hlaupið verður með blysið til Reykjavikur sem er 385 km leið. Alls taka tæplega 300manns þátt i þessu hlaupi og eru það félagar ungmennafélaganna i sýslum þeim sem hlaupið er um sem þar fá að spretta úr spori. Samkvæmt áætlun átti að hlaupa til Vikur I Mýrdal i gærkvöldi en i dag á aö hlaupa til Hveragerðis. Á Kambabrún taka iþróttafélögin i Reykjavik við blysinu og hlaupa með það siðasta spölinn en kl. 14 á laugardag verður svo kveiktur með þvi langeldur á Arnarhóli sem loga á þar til þjóðhátið lýkur i Reykjavik. —ÞH St j örnubí ó Ari Magnússon tendraði eldinn viö þessar hlóðir og hljóp siöan fyrsta spölinn frá Ingólfshöföa. Tvær flugmálanefndir En vegir víða slœmir Einsog að likum lætur, hefur opnun hringvegarins aukið verulega umferð um Austfirði, enda virðist sem flestir sæmilega akandi Islendingar hafi það á dagskrá sumarsins, að fara a.m.k. einn hring kringum landið. Fjármúlaráðuneytiö, f járlaga og hagsýslustofnun, hefur séð ástæðu til að skipa nefndir til at- hugunar á skipulagningu og rekstri flugmálastjórnar og á flugrekstri landhelgisgæslu. Jón E. Böðvarsson deildarstjóri er formaður þcirra beggja. Nefndunum er gert að skila fyrstu niðurstöðum innan 6 mánaða. Með Jóni eru i land- helgisgæslunefndinni, þeir Pétur Sigurðsson forstjóri landhelgis- gæslu, Ölafur W. Stefánsáon skrifstofust jóri og Leifur Magnússon varaflugmálastjóri, en i flugmálastjórnarnefndinni þeir Leifur og Ólafur S. Valdi- marsson skrifstofustjóri. Hefur fjárlaga- og hagsýslu- stofnun áður haft þann hátt á við lausn hagsýsluverkefna ein- stakra rikistofnana og koma á fót samstarfshópi, þar sem fulltrúar frá viðkomandi stofnun, fagráðu- neyti og fjl.—hsý.-st. ynnu saman aö málunum — segir i fréttatil- kynningu frá f jármálaráðu- neytinu. Blaðið hafði samband viö Helga Seljan, alþingismann á Reyðar- firði, vegna þessa, og sagðist hann aldrei hafa vitað til annars eins ferðamannastraums. Lét Helgi vel yfir þessari breytingu. Hún hefði marga kosti i för með sér, en hinu væri ekki að neita, að nú kæmi enn betur i ljós, hve nauðsynlegt væri að lagfæra vegakerfið á Austfjörðum. Að visu hefðu miklir fjármunir runn- ið til vegagerðar þar á undan- förnum árum, en betur mætti ef duga ætti. Helgi minnti t.d. á, aö ýmsir kaflar Austfjarðavegarins hefðu hvorki komist inná Austur- landsáætlun né hina almennu vegaáætlun og hefðu bilstjórar úr Reykjavik látið þær skoðanir i ljós, að sumstaðar væri varla meira en jeppafært. Helgi lagði áherslu á, að opnun hringvegarins sýndi vel, að full þörf væri á að auka, heldur en hitt, vegaframkvæmdir i landinu. og leggja yrði höfuðáherslu á að sjálft vegasambandið verði bætt að mun, áður en langt er haldið i hraðbrautarframkvæmdum. —Asb.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.