Þjóðviljinn - 02.08.1974, Page 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 2. ágúst 1974.
mqðviuinn\
MALGAGN SÓSÍALISMA
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS.
(Jtgefandi: (Jtgáfufélag Þjóðviljans
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann
Ritstjórar: Kjartan ólafsson
Svavar Gcstsson (áb)
Fréttastjóri: Eysteinn Þorvaldsson
Ritstjórn, afgreiðsla, augiýsingar:
Skólavörðust. 19. Sími 17500 (5 línur)
Prentun: Blaðaprent h.f.
ÁFRAMHALD VINSTRA SAMSTARFS TRYGGIR BEST AÐ GENGIÐ
VERÐI AÐ KRÖFUM LAUNÞEGA
Miðstjórn Alþýðusambands Islands hef-
ur sent frá sér ályktun, þar sem þess er
krafist, að aðgerðir stjórnmálamanna i
efnahagsmálum verði ekki til að skerða
kjör láglaunamanna.
Það fer vel á þvi, að forystumenn laun-
þega sendi frá sér slikar yfirlýsingar, þeg-
ar verið er að ræða myndun rikisstjórnar
og þá um leið aðgerðir i efnahagsmálum.
Þetta minnir á, að öll barátta verkalýðs-
hreyfingarinnar hefur pólitiskt inntak.
ópólitisk eða fagleg verkalýðsbarátta er
ekki til. Hitt skiptir svo miklu, að pólitisk
markmið verkalýðshreyfingarinnar séu
skýr og ákveðin og forystumenn hennar
geri sér ljósa grein fyrir, hvernig þeim
markmiðum verði best náð.
Miðstjórn A.S.l ber fram þá grund-
vallarkröfu að full atvinna haldist og að
ekki sé gripið til neinna þeirra aðgerða,
sem stefnt geta atvinnuöryggi i hættu.
Ályktað er, að verkalýðssamtökunum
beri að berjast af alefli gegn öllum hugs-
anlegum tilraunum stjórnvalda og at-
vinnurekenda til að skerða laun eða kjör
láglaunafólks.
Með þessari ályktun gerir miðstjórn Al-
þýðusambandsins kröfu um, að láglauna-
fólk fái að halda þeirri kaupmáttarauk-
ingu, sem orðið hefur i tið Vinstri
stjórnarinnar. Staðreyndin er sú, að i ára-
tugi hefur kaupmáttur verkamannalauna
aldrei verið meiri. Tekjur Reykvikinga
voru á siðasta ári um 33% hærri en árið
áður. Viða úti á landi uxu meðaltekjur enn
meir, i sumum byggðarlögum allt að
40-50%. Þetta er mesta tekjuaukning, sem
náðst hefur um áratugaskeið.
Aftur á móti hefur launajöfnuður ekki
aukist sem skyldi. Margir starfshópar
hafa margfaldar verkamannatekjur. En
það breytir ekki þeirri staðreynd, að
tekjuaukning láglaunamanna hefur i tið
fráfarandi rikisstjórnar verið mjög mikil,
mun meiri en rýrnun krónunnar vegna
verðbólgunnar.
Ef litið er til Viðreisnaráranna, sést, að
þá rikti einatt það ástand, sem forsvars-
menn verkalýðsins vara nú við. Atvinnu-
leysi var á stundum það gifurlegt, að
menn fóru til annarra landa hópum saman
i atvinnuleit. Svokölluð efnahagsvanda-
mál voru þá leyst með gengisfellingum,
sem rýrðu kjör launþega stórlega, kjara-
rýrnun þeirra lægstlaunuðu var hlutfalls-
lega mest.
Ef fara á að kröfum verkalýðshreyf-
ingarinnar, er ljóst, að ekki dugir að beita
Viðreisnaraðferðum. Og ekki er unnt að
tryggja, að stjórnvöld beiti ekki aðferðum
Viðreisnar, nema þvi aðeins að my-ndun
vinstri rikisstjórnar takist.
Sjálfstæðismenn hafa verið tregir til að
skýra frá, hvað þeir telji að gera eigi i
efnahagsmálum. Þó hefur mátt greina af
málflutningi þeirra, að þeir myndu gripa
til gömlu Viðreisnar bragðanna, ef þeir
kæmust i rikisstjórn. Ef mynduð verður
stjórn undir forystu Sjálfstæðisflokksins,
má islenskur verkalýður eiga von á stór-
felldum gengisfellingum með tilheyrandi
kjaraskerðingu og miklum samdrætti i at-
vinnulifinu, sem hefði i för með sér um-
talsvert atvinnuleysi.
Ábyrgð þeirra stjórnmálamanna, sem
nú ræða um myndun nýrrar vinstri stjórn-
ar er þvi mikil. Ef þeir komast að sam-
komulagi, verður unnt að ganga að kröf-
um verkalýðshreyfingarinnar, en komist
þeir ekki að niðurstöðu og Sjálfstæðis-
flokkurinn myndaði stjórn, þarf verka-
lýðshreyfingin ekki að fara i neinar graf-
götur um, hvað mun gerast.
Alþýðuflokkurinn, sem á hátiðis og tylli-
dögum ber hag launþega fyrir brjósti, fær
nú tækifæri til að tryggja að gengið verði
að kröfum samtaka þeirra. Þvi verður
ekki að óreyndu trúað, að framámenn
flokksins hafni þessu tækifæri.
„Hátíð Varins lands”
Jón frá Pálmholti var
einn þeirra sem stóö á
barmi Almannagjár á
sunnudaginn og hélt uppi
borða með áletruninni
ísland úr Nato — herinn
burt.
. Lögregian brá við hart,
þegar þessi borði kom á
loft, og hafa fjölmiðlar
fjallað um atburði, en
misjafnlega, að álitil Jóns,
og vi11 hann koma athuga-
semd á framfæri.
Það er rangt, sem sagt hefur
verið i fjölmiðlum, sagði Jón, að
þessi mótmæli hafi verið á vegum
Fylkingarinnar.
Fólkið sem fór með borða á
brún Almannagjár var aðeins
fámennur hópur, sem vildi vekja
athygli Alþingis og almennings á
baráttunni gegn herstöðvum.
Við komum þarna sem frjálsir
þjóðhátiðargestir. Brugðum upp
áletruðum borðum nokkru eftir
að Alþingi hafði verið sett. A
borðunum stóð, Island úr Nató og
Herinn burt. Við vorum á efri
barmi Almannagjár, og þvi fjarri
hátiðarsvæðinu. Af veru okkar
þar, gat þvi engin truflun stafað,
nema ef það sem á borðanum
stóð, hefur valdið óróa á hátið-
inni.
Vísir neitar að leiðrétta
rangfærslu
Þau orð sem blaðamaður Visis
hefur eftir Bjarka Eliassyni,
lögregluþjóni, að þarna hafi
aðeins verið fastir gestir lög-
reglunnar, sem hún hefði vitað að
ekki þýddi að tala við, eru hreinn
uppspuni. Enda hefur margt
þessa fólks aldrei verið handtekið
fyrir skyldar sakir eða aðrar. Og
sum okkar höfðu aldrei áður tekið
þátt i mótmælaaðgerðum.
Ég hafði tal af þeim starfs-
manni Visis, sem þetta hafði eftir
Bjarka, og staðfesti hann, að
Bjarki hefði verið viðsfjarri, er
hann mælti þessi orð, og því gat
hann ekki vitað um hvaða fólk
hann var að tala.
Þessi starfsmaður Visis, sem
ég talaði við, sagði, að Visir teldi
ekki ástæðu til að fjalla frekar um
þetta mál, þegar ég bað um að
þessi villandi ummæli lög-
reglumannsins yrðu leiðrétt.
Þvi hefur verið lýst hér i
blaðinu, hvernig handtakan fór
fram, og sagtfrá hótun Magnúsar
Einarssonar, varðstjóra, um að
kasta manni fyrir björg — hefði
hann framkvæmt þá hótun, hefði
sá atburður trúlega geymst i
minni þjóðarinnar næstu 11
aldirnar.
Þegar við gengum um
hátiðarsvæðið um morguninn,
blasti við tjald eða skúr, þar sem
fest var upp stór auglýsing frá
Morgunblaðinu. Ég hef ekki heyrt
að sú auglýsing hafi verið fjar-
lægð.
Og hópur ungs fólks, sem
kennir sig við Jesú Krist, dreifði á
hátiðinni áróðri á ensku máli.
Lögreglan var feimin að tala um
þetta fólk, en hins vegar kom það
fram i.gær, að Morgunblaðið
hefur fundið Jesúbörnin og bírt-
ir af þeim stóra mynd. Væri
fróðlegt að vita, hvort Mbl. sýnir
þeim þennan heiður, vegna
áhuga þess á kærleika Guðs, eða
hvort það er vegna þess að þau
útbreiddu áróþurinn á ensku.
Valdarán Indriða?
Lögreglan gaf þá skýringu á
sinum aðgerðum, að hún hefði
fyrirmæli frá framkvæmdastjóra
þjóðhátiðarinnar. Svo virðist þvi
sem framkvæmdastjórinn hafi
tekið sér alræðisvald þennan dag
og stjórnað með tilskipunum. A
meðan hann réði, sátu rikisstjórn,
alþingismenn og forseti landsins
lokaðir inni á sérstöku svæði, eins
og sums staðar er gert við póli-
tiska fanga. Oft eru notaðir til
þessa iþróttavellir. Er þetta ekki
valdarán?
Það kom svo i ljós, að til-
skipanir framkvæmdastjórans
miðuðust aðeins við hagsmuni
Jón frá Pálmholti
þess fyrirtækis, sem kallar sig
Varið land. Mér sýnist þvi að
aðgerðin á gjárbakkanum hafi
afhjúpaðþá staðreynd, að á Þing-
vöilum hafi ekki verið þjóðhátið,
heldur hátið Varins lands.
Hagkaup auglýsir
Sólbekkir kr. 1.900
Sólstólar kr. 1.500
Svefnpokar frá kr. 2.350
Tjöld, svampdýnur, bakpokar,
ferðatöskur og veiðibúnaður
Opið til kl. 10 í kvöld
Lokað laugardag
Atvinna
Sveitarstjóri óskast
Suðureyrarhreppur I Súgandafirði óskar
eftir að ráða sveitarstjóra frá og með 1.
september. Umsóknum þarf að skila til
oddvita Suðureyrarhrepps fyrir 15. ágúst.
Ólafur Þ. Þórðarson
YANTAR HÁSETA
á linubát frá Vestfjörðum
Upplýsingar i sima 6105 eða 6177