Þjóðviljinn - 10.09.1974, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 10.09.1974, Blaðsíða 12
UÚÐVIUINN Þriðjudagur 10. september 1974 Almennar upplýsingar um lækna- þjónustu borgarinnar eru gefnar i simsvara Læknafélags Reykja- vikur, simi 18888. Kvöldsimi blaðamanna er 17504 eftir klukkan 20:00. Kvöld- nætur- og helgidagavarsla' lyfjabúðanna i Reykjavik vikuna 6.—12. sept. er i Háaleitisapóteki og Vesturbæjarapóteki. Tannlæknavakt fyrir skólabörn I Reykjavik er i Heilsuverndarstöðinni i júli og ágúst alla virka daga, nema laugardaga, kl. 9-12 f.h. Slysavarðstofa Borgarspitalans er opin allan sólarhringinn. Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á Heilsuverndarstöðinni. Simi 21230. Framkvæmdanefnd byggingaáætlunar að ljúka 1221 íbúðir full- gerðar í haust Bygging verkamannabústaða hefst í haust Hafnar við- ræður BSRB og rikisstjórnar Fyrsti viðræðufundur full- trúa ríkisstjórnarinnar og BSRB var haldinn i gær kl. 2 og stóð i hálfan annan tima. Fleiri fundir verða boðaðir á næstunni. Að þvi er Kristján Thorla- cius formaður BSRB sagði Þjóðviljanum voru viðræðurn- ar i gær á algjöru byrjunar- stigi, en viðræðunefnd BSRB benti á ákvæði um visitölu- greiðslur i samningum sinum og að Bandalagið myndi halda sig viö þá svo lengi sem i þess valdi stæði. Lögðu fulltrúar BSRB á það megináherslu að ef til efna- hagsráðstafana kæmi mættu þær ekki bitna á þeim sem hafa lágu launin. —vh Margar hækkanir Gifurlegt magn af bensini seldist í Reykjavik og ná- grenni á sunnudaginn og mynduðust viða langar bið- raðir við bensinstöðvarnar. Fremur litið var þó um kaup á brusa eða önnur ilát að sögn afgreiðslumanna, en flestir vildu fylla bíla sina áður en bensínlitrinn hækkaði um 12 krónur, úr 36 i 48 kr. Oliufélögin telja sig reyndar þurfa þrem til fjórum krónum meiri hækkun, en verðlags- nefnd hefur ákveðið þetta verð að sinni. Von er á verðhækkun á ým- issri annarri vöru alveg á næstunni, að sögn Kristjáns Gislasonar verðlagsstjóra, sem kvaðst þó ekki mega gefa upp hvaða vörutegundir verða næstar i röðinni. Hagnaður 6,7 milj.kr. A aðalfundi Sildarverk- smiðja rikisins i gær kom fram að afkoma verksmiðj- anna var mjög góð sl. ár, eða um 6,7 milj. kr. og höfðu þá verið teknar um 48 milj. kr. i afskriftir. Samkvæmt bráða- birgðauppgjöri er rekstraraf- koma þessa árs óhagstæð, og nemur tapið um 25 milj. kr. að þvi er segir i fréttatilkynningu frá SR. Allar afurðir SR á þessu ári hafa verið seldar á tiltölulega mjög góðu verði svo notuð séu orð fréttatilkynningarinnar. Nú eru eftir i birgðum 600 tonn af þorskmjöli og 100 tonn af loðnumjöli. Framkvæmdanefnd byggingaráætlunar hefur nú fullgert 1221 íbúð frá því nefndin var sett á fót. I haustverða 1160tveggja og þriggja herbergja íbúðir afhentar kaupendum og þá eru íbúðir nefndarinnar orðnar 1221. Upphaflega var áætlað að Fram- kvæmdanef ndin byggði 1250 ibúðir, og sagði Rik- harður Steinbergsson, framkvæmdastjóri nefndarinnar, að enn væri ekki ákveðið hvenær eða Kaupmannahöfn 8/9 — Skoðana- könnun sem gerð var i Danmörku i fyrra mánuði leiddi i ljós að cf þá hefði verið efnt til þjóðarat- kvæðagreiðslu um aðild landsins að EBE hcfðu 53% aðspurðra verið henni andvigir en aðeins 31% hlynntir henni. Hlutfall hlynntra og andvigra hefur svo til alveg snúist við siðan atkvæði um aðild að EBE voru greidd 2. október 1973 en þá voru Buenos Aires 8/9 — Mikið hefur verið um ofbeldisaðgerðir siðustu daga I Argentinu. Hafa herská samtök úr hægri og vinstri væng hreyfingar peronista staðið að baki þeim en nú virðist öll sú hreyfing vera að fara úr böndun- um. Skæruliðahreyfing sem nefnist Monteneros og hefur sósialisma á stefnuskrá sinni lysti þvi yfir á föstudag að hún hygðist hverfa undir jörðina, en stuttu áður hafði málgagn hreyfingarinnar verið hvort nefndin byggir þær 29 íbúðir sem vantar upp á upphaflegu áætlunina. Ibúðir Framkvæmdanefndar og Húsnæðismálastjórnar hafa verið seldar með rýmilegum lánakjörum. Samkvæmt aug- lýsingu frá Húsnæðismálastjórn, þá skal kaupandi greiða 5% af áætluðu ibúðarverði innan þriggja vikna frá þvi honum er gefinn kostur á ibúðakaupum. Onnur 5% greiðir hann við af- hendingu. Þriðju 5% greiðir hann ári eftir afhendingu og fjórðu 5% greiðir hann tveimur árum eftir afhendingu. 80% fær kaupandinn svo lánuð til 33 ára. 57% hlynntir aðild en 33% and- vigir. Þá voru i dag birtar niðurstöður úr könnun á fylgi danskra stjórn- málaflokka. Sýna þær að fylgi sósialdemókrata fer þverrandi frá fyrri skoðanakönnunum, en hins vegar vex SF, kommúnistum og kristilegum ásmegin. Siðan siðasta könnun var gerð þann 5. ágúst hafa sósialdemókratar og réttarsambandið tapað einu pró- senti en SF, kommúnistar og bannað af stjórnvöldum. Talið er að þeÍF hafi staðið að árásum á tvo banka og Ikveikjum i bilum og strætisvagni I La Plata. Höfðu þeir áður verið viðstaddir greftrun fjögurra félaga sinna sem voru myrtir af hægri sinnum i fyrra mánuði. Einnig er talið að þeir hafi verið að verki þegar sprengjum var varpað inn á skrifstofur fréttastofu i Santiago del Estero og dagblaös i Mar del Plata. Hægri armur peronista var Bygging verkamannabústaða Nú þegar Framkvæmdanefndin er að ljúka verkefni sinu, mun við taka ný byggingaráætlun sem verður á vegum Stjórnar verka- mannabústaða. Sú stjórn er skipuð fulltrúum frá Reykja- vikurborg, fulltrúaráði verka- lýðsfélaganna og Húsnæðismála- stofnun og hefur þessi stjórn nú byrjað að auglýsa útboð. t haust verða steyptir grunnar fjölbýsishúsa, sem i verða sam- tals 308 ibúðir. Kjör kaupenda verkamanna- ibúðanna verða svipuð og Fram- kvæmdanefndaribúðunum, þ.e. kaupandi greiðir 20% út, en fær 80% lánuð. —gg kristilegir bætt við sig einu. Ef kosið hefði verið 2 þm. hefðu þingsæti skipst þannig milli flokkanna (núverandi þing- mannafjöldi innan sviga): Sósial- demókratar 55 (46), R6ttækir vinstri 14 (20), thaldsflokkurinn 11 (16), Réttarsambandið 4 (5), Kommúnistaflokkur 9 (6), SF 11 (11), Miðdemókratar 4 (14), Kristilegi þjóðarflokkurinn 7 (7), Vinstri 37 (22), og Framfara- flokkur Glistrups 23 (28). heldur ekki aðgerðarlaus um helgina. A laugardag sprakk sprengja á heimili rektors háskóla i Buenos Aires en hann er félagi i æskulýðssamtökum vinstri peronista i háskólanum. Fjögurra mánaða sonur rektors- ins lét lifið i sprengingunni og miklar skemmdir urðu á heimili hans. Eru hægri menn taldir bera ábyrgð á tilræðinu. Þessir atburðir eru taldir fyrir- boðar þess sem stjórnvöld hafa Framhald á 11. siðu. Danmörk: Meirihluti andvígur Argentina: Peronistar að tvístrast 88 farast í fiugslysi Eðvarð Svava Aþenu 9/9 — Flugvél frá banda- riska flugfélaginu Trans World Airlines hrapaði I gær I Jónlska hafið suður af ttaliu er hún var á leið frá Tel Aviv til New York með millilendingum I Aþenu og Róm. 88 manns voru Ivélinni og eru þeir allir taldir hafa farist. Strax komst á kreik sú saga að um skemmdarverk palestinu- araba hafi verið að ræða og styrktist hún viö það að áþekkt samtök sem kalla sig Ungir ara- biskir ættjarðarvinir lýstu þvi yf- ir að þau bæru ábyrgð á slysinu. Þessu mótmæltu flugvallaryf- irvöld i Aþenu og kváðust hafa farið vandlega yfir vélina. Frelsishreyfing Palestinu, PLO, lýsti þvi einnig yfir að engin hreyfing palestinuaraba bæri ábyrgð á siysinu. Samtök þau sem kváðust bera ábyrgð á slysinu komu við sögu er gerð var misheppnuð tilraun ti! að ræna hollenskri flugvél i fyrra. Ekkert meira er vitað um sam- tökin. Mikil leit er nú gerð að flaki flugvélarinnar og svonefndum „svörtum kassa” sem gefur upp- lýsingar um ferðir vélarinnar. Það eins sem vitað er um hvernig slysið bar að er að flugmaðurinn sendi út neyðarkall eftir hálftima flug frá Aþenu og kvað einn af fjórum hreyflum vélarinnar standa i ljósum logum. Kvaðst hann ætla að reyna að nauðlenda i grisku eynni Korfu en siðan heyrðist ekki meira til vélarinn- ar. reuter Alþýðubandalagið í Reykjavík Fundur á fimmtudag Alþýðubandalagiö i Reykjavik heldur félagsfund næstkomandi fimmtudag kl. 20.30 i Lindarbæ. Svava Jakobsdóttir, alþm., fjallar um stjórnarskiptin og stjórn- málaástandið — og Eðvarð Sigurðsson, formaður Dagsbrúnar, um stöðuna og horfurnar i verkalýös- og kjaramálum. Inntaka nýrra félaga. — önnur mál. Stjórnin. Ford — ákvörðun hans mis- jafnlega tekið Ford náðar Nixon Washington 9/9 — Ford bandarikjaforseti ákvað I gær að náða forvera sinn Nixon og firra hann öllum frekari mála- rekstri. Astæðuna fyrir þess- ari ákvörðun sagði hann vera þá að hann vildi forða þjóð sinni frá þeim „kvölum” sem það mundi kosta hana að þurfa að horfa upp á margra mánaða réttarhöld yfir Nixon. Blaðið Washington Post kom með aðra skýringu á þessari ákvörðun og var hún á þann veg að heilsa Nixons myndi ekki þola frekari óvissu um hvort honum yrði stefnt fyrir rétt eða ekki. Ákvörðun Fords fékk mjög misjafnar undirtektir og stuttu eftir að Ford skýrði frá henni sagði Terhorst blaða- fulltrúi hans af sér i mótmæla- skyni. Einnig voru margir þingmenn andvigir henni, ma. á þeim forsendum að hún væri óréttlát gagnvart þeim undir- mönnum Nixons sem sitja nú i fangelsi eða eiga eftir að mæta fyrir rétti. Þessi ákvörðun Fords mun engin áhrif hafa á mál sex að- stoðarmanna Nixons sem mæta eiga fyrir rétti 30. þm. re uter Nixon — Washington Post seg- ir hann vera að fara á taug- inni. ám—mmmmmmmmrnmmmtmmm ÞAO B0RGAR SIG AÐVERZIA Í KR0N

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.