Þjóðviljinn - 22.09.1974, Side 13

Þjóðviljinn - 22.09.1974, Side 13
Sunnudagur 22. september 1974. ÞJÓÐVILJINN — StDA 13 Hátún 12 Framhald af 5. siðu. sameiginlegri aðstöðu, sem snið- in væru til hagræðis fyrir fatlað fólk. Hinsvegar byggi fatlað fólk aðeins i þriðjungi ibúðanna, hitt væri boðið til leigu á almennum markaði. Sagði hann að slik hús væru auðvitað framtiðarlausnin, en einhvers staðar yrði að byrja og vinnu- og dvalarheimilið i Há- túni 12 væri besta framtakið af þessu tagi á íslandi. Hitt fyrir- komulagið hefði þó, þegar allt kom til alls, reynst dönum ódyr- Pipulagnir Nýlagnir, breytingar hita veitutengingar. Simi 36929 (milli kl. 12 og 1 og eftir 7 á kvöldin). MIKIÐ SKAL TIL 4 SAMVINNUBANKINN ara, jafnvel þó aö það kostaði heimahjúkrun að einhverju leyti. Það segir sig lika sjálft, þrátt fyrir alla viðleitni stjórnvalda i þjóðfélögum eins og okkar, til að skilja fólk að eftir sem einföldust- um mynstrum, að það eru flestir aðrir hlutir i mannlegu lifi, en lik- amlegt ástand hvers og eins, sem tengir manneskjurnar, og hverj- um einstaklingi þvi hollast að búa við sem fjölbreytilegast félags- legt umhverfi. —ráa F óstureyðingar Framhald af bls. 9. framfylgt og ekki hægt að fram- fylgja þeim, og slikt ástand stuðlaði að virðingarleysi almennings fyrir lögum og reglum. Lausn á læknisfræðilegu vandamáli Umbótasinnar lýstu þvi lika yfir hvað eftir annað að ekki kæmi til greina að láta trúar- skoðanir ákveðins hóps skipa þjóðinni fyrir verkum og kröfðust þess að litið væri á fóstureyðingu sem löglega lausn á læknisfræði- legu vandamáli. Einnig lögðu þeir til að getnaðarvarnalögunum frá 1967 væri breytt i frjálsræðis- átt, þannig að sjúkrasamlög tækju þátt i kostnaðinum, leyft Bókhaldsaöstoð með tékkafærslum BÚNAÐARBANKINN REYKJAVÍK Indversk undraveröld Vorum að taka upp mjög glæsilegt og fjöl- breytt úrval af austurlenskum skraut- og list- munum, m.a. útskorin borð, vegghillur, vör- ur úr messing, veggteppi, gólfmottur og margt fleira. ! Einnig úrval af indverskri bómull, batik-efn- um, rúmteppum og mörgum gerðum af mussum. Nýtt úrval af reykelsi og reykelsiskerjum. I Gjöfina, sem ætið gleður, fáið þér i Jasmin Laugavegi 133 (við Hlemmtorg). Tilkynning til hluthafa Iðnaðarbanka íslands hf. Þann 30. sept. n.k. fellur niður forkaups- réttur hluthafa að nýju hlutafé sbr. bréf bankans dags. 1. júni 1974 — Þeir hluthafar, sem áhuga hafa á nýju hlutafé, eru minntir á að tilkynna það bankanum án tafar. Iðnaðarbanki íslands h.f. UTBOÐ Tilboð óskast i að reisa og fuiigera Læknismóttökur á Breiðdalsvik og Stöðvarfirði. Hvor bygging um sig er sjálfstætt útboð. Utboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri og hjá oddvitun- um á Breiðdaisvik og Stöðvarfirði. Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri 8. október 1974, kl. 11:00 f.h. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS . / ' • ‘ IO ■ • I . • BORGARTÚNI 7 SÍKl 26844 væri að selja fólki undir lögaldri getnaðarvarnir og að kynferðis- fræðsla sú sem nú er að hefjast i frönskum skólum yrði aukin og endurbætt. (Ath. Þessi grein er skrifuð áður en herforingjastjórnin fór frá völdum). Eins og fyrr segir urðu málalok þau að frumvarpið var sent til frekari athugunar i nefnd. En þeir sem enn berjast fyrir umbótum á þessu sviði hafa sagt að þeir þingmenn sem valdi þessum seinagangi verði að standa almenningireikningsskilá hverju þvi dauðsfalli, sem leiði af ólöglegri fóstureyðingu. Það sé allt i lagi fyrir þingmennina að hugsa málið, en harmleikurinn haldi áfram fyrir allar þær konur sem af einhverjum ástæðum vilja fá fóstri eytt hvað sem það kostar. Þær eigi ekki um annað að velja en angist, niðurlægingu og þjáningar. Þær verði að taka afleiðingunum af skröpunum, nálum, blæðingum og óbætan- legum limlestingum. Eitt rauðvínsglas eftir samfarir tltlendingar lita oft á hinn frjálslynda Parisarbúa sem dæmigerðan Frakka, en gleyma þvi að mikill hluti þjóðarinnar býr i dreifbýli og hefur sáralitla þekkingu á getnaðarvörnum. Hollenskur læknir sem rekur fóstureyðingastöð i Amsterdam og tekur á móti þúsundum franskra kvenna árlega sagði frá þvi að ung, frönsk sveitakona hafi sagt sér að hún drykki samvisku- saml. eitt rauðvinsglas eftir samfarir, og neitaði að trúa honum þegar læknirinn sagði henni að það væri engin vörn gegn getnaði. (Elisabet Gunnarsdóttir þýddi úr „Spare Rib”) Búvörur Framhald af bls. 1. eins þungur liður, en um fjórði hluti af matvælum var hrein er- lend vara. Það gefur þvi auga leið að miðað við neysluvenjur visi- tölufjölskyldunnar er heildar- hækkunin á matvælum um 15% vegna þeirra vara sem stigu i verði I gær og 23. ágúst. Matvöruliðurinn i heild var i ágústbyrjun um 34% af visitölu vöru og þjónustu, þ.e. af almenn- um neyslu- og þjónustugjöldum fólks. ^Þá er húsnæðisliður ótal- inn, svo og fjölskyldubætur). Hins vegar er vitanlegt að láglauna- fólk þarf að verja mun stærri hluta af útgjöldum sinum til kaupa á matvælum. 1 Frakklandi hefur nýlega verið gerð athugun á þessu eftir tekjustigi og kom i ljós að hlutfallið er allt frá 15% hjá hátekjufólki upp yfir 50% hjá þeim sem höfðu minnst fyrir sig að leggja. Hækkunin sem varð i gær staf- ar af ýmsum orsökum en ein sú veigamesta er niðurfelling á væn- um hluta þeirrar niðurgreiðslu sem kom til framkvæmda 20. mai i vor og var ein af þeim ráðstöfun- um sem gerðar voru þá til þess að ekki þyrfti að auka verðlags-upp- bótina 1. júni. Nú var felldur nið- ur fjórðungur af viðbótarniður- greiðslunni á sauðfjár- og naut- gripaafurðum (þ.e. ket og mjólk o.þ.h.) og þrir fjórðu af viðbótinni á kartöflum, eða samtals um 30%, og nemur þetta um 700 miljónum króna miðað við með- alneyslu ársins. Talið er að heild- ar-niðurgreiðslurnar — eins og þær hafa verið undanfarna fjóra mánuði — hafi numið um 4.4 mil- jörðum króna á ársgrundvelli. 1 ágústbyrjun var ekki fjarri þvi að niðurgreiðslur rikisins næmu allt að helmingi útsölu- verðsins, en nú greiðir rikið lik- lega um 40% af verði landbúnað- arafurða, þeirra sem greiddar eru niður. Þær tvennar hækkanir á land- búnaðarafurðum sem nú hafa skollið yfir með tæplega mánaðar millibili valda samanlagt um 13,2 stiga hækkun á framfærsluvisi- tölu og 6 stiga hækkun á kaup- greiðsluvisitölu. Þetta gerir um 4,4% hækkun á framfærslukostn- aði sem ætti þá að hafa i för með sér 5,7% hækkun kaupgjalds — ef fullar bætur kæmu fyrir. Tölulegar upplýsingar i þessari grein eru að mestu leyti byggðar á útreikningum og áætlunum Hagstofu Islands. hj---- ÚTBOÐ Tilboð óskast i tæki og búnað fyrir alls 8 stk. kæli- og frystiklefa og ennfremur í 1 stk. plötufyrirtæki. Útboðsgagna skal vitja á skrifstofu vora. INNKAUPASTOFNUN REYK3AVÍKURBORGAR , Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800 T r ompet -■valdhorn Kenni i vetur á öll brass-hljóðfæri. Upplýs- ingar og innritun nemenda i sima 10170 i dag og næstu daga kl. 10-12 og 18-20. Viðar Alfreðsson (Diploma 1. einkunn L.G.S.M., starfsmaður Sinfóniu- hljómsveitar tslands, B.B.C. útvarpshljómsveit London, Sadlers Wells Opera London, New Philharmonie Orch. London) Atvinna Verkamenn óskast til starfa í Kópavogi og Hafnarfiröi. Ákvæöisvinna. LOFTORKA Sími: 84090 og 83522. Lausar stöður Hjá okkur erulausareftirtaldar stöður og er óskað eftir umsóknum um þær. 1. SKRIFSTOFUSTJÓRI: Óskað er eftir manni til að veita skrif- stofuhaldi voru forstöðu. 2. SKRIFSTOFUSTÚLKA. Óskað er eftir vanri skrifstofustúlku með vélritunarkunnáttu. 3. AFGREIÐSLUMAÐUR. Óskað er eftir ungum manni til að vinna aðallega við skurð og frágang á gögnum frá tölvu. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu vorri, Háaleitisbraut 9. Umsóknir sendist fyrir 28. þ.m. SKÝRSLUVÉLAR RÍKISINS OG REYKJAVÍKURBORGAR LAUST STARF Tilraunastöð Háskólans i meinafræði, Keldum, óskar eftir að ráða starfsmann til almennra bústarfa og aðstoðarviðdýratil- raunir. Upplýsingar gefur forstöðumaður i sima 17300. LAUST STARF Skrifstofumaður eða skrifstofustúlka ósk- ast til skrifstofu- og gjaldkerastarfa á aðalskrifstofu austurlandsveitu, Egils- stöðum. Upplýsingar veitir rafveitustjóri austurlands Selási 8, Egilsstöðum, simi 97-1300 eöa starfsmannastjöri. Rafmagnsveitur rikisins I.augavegi 116 Reykjavik

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.