Þjóðviljinn - 24.09.1974, Side 1
UOmiUINN
Þriðiudagur 24. september 1974 — 39. árg. 183. tbl.
Mengað vatn á Suðurnesjum?
Sérstœð arfleið i vefnaðarlist
Edward Kennedy gefur ekki
kost á sér í framboð
Ný bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar
Kaupgjaldsvísitala bundin
Verðlag leiki lausum hala
v!
:* J$8É
4 \J i
f^laSlk' £ fjwH
áÉárl : \ihl
Þeir notuðu tækifæriðí Kaldárrétt ofan við Hafnar-
fjörð, og flettu reifinu af henni þessari, enda orðin
þungfær i ullinni.
SJÁ 3. SÍÐU
Dagsbrún samþykkti
uppsögn samhljóða
Verkamannafélagib Dagsbrún
helt félagsfund f Reykjavfk á
sunnudaginn. Fundinn sóttu um
300 manns og var samþykkt sam-
hljóöa aö segja upp samningum
frá og meö 1. nóvember næstkom-
andi.
Eövarð Sigurðsson, formaður
félagsins, gerði grein fyrir stöðu
kjaramálanna. Hann rakti þær
hugmyndir, sem fram hafa komið
á viðræðufundunum með rikis-
stjórninni. Sagði hann að greini-
lega yrði um kjaraskerðingu að
ræða samkvæmt þeim hugmynd-
um og mikil óvissa um fram-
tlðina. Sterkar tilhneigingar væru
til þess hjá rikisstjórninni að
festa kaupgjaldið, en láta alla
enda lausa vegna verðlagsins.
Það er ekki ánægjulegt að þurfa
að vera með lausa samninga, en
þetta er okkar nauðvörn, sagði
formaðurinn. Hann lagði áherslu
á að verkalýðshreyfingin yrði á
næstu vikum að fylgjast vandlega
með þvl sem gerist I efnahags-
málunum á næstunni.
1 ræðu sinni minnti Eðvalð
meðal annars þá hættu sem gæti
stafað af því að kaupmátturinn
yrði skertur. Þetta kæmi m.a.
niöur á atvinnulifinu I Reykjavik
þar sem þjónustustarfsemin væri
mjög mikil. Sérdeilis væri
byggingariðnaðurinn viðkvæmur
i þessu sambandi. Eðvarð sagði
að vissulega yrði að gera ein-
hverjar efnahagsráðstafanir en
ástæðulaust væri að taka
raunarollu atvinnurekenda allt
of hátíðlega. Það er fullvist að við
höfum aldrei búið betur að at-
vinnutækjum en einmitt nú, sagði
Eðvarð.
Miklar umræður urðu á
fundinum sem s.tóð hátt i þrjá
tlma. A fundinum töluðu Guð-
mundur Hallvarðsson, Einar Al-
bertsson, Njáll Gunnarsson,
Friðrik Kjarrval.Sigurjón Jóns-
son, Ólafur Samúelsson, Ólafur
Ingólfsson, Kristinn Kristvinsson,
Benedikt Kristjánsson
Að lokum var uppsagnartil-
lagan samþykkt samhljóða, en
öðrum framkomnum til lögum
vlsaö til stjórnar félagsiris eða
visað frá.
Tilkynnt hefur verið
að i dag verði sett
bráðabirgðalög um svo-
kallaðar láglaunaupp-
bætur. Samkvæmt upp-
lýsingum sem blaðið
hefur aflað sér munu
bæturnar nema 3500
krónum á mánuði á
tekjur allt að 50 þús. kr.
mánaðartekjum. Á
bilinu milli 50 þús. og 54
þús.kr. mánaðarlauna á
uppbótin að deyja út.
Fyrirhugað er að uppbót þessi
komi einnig á eftir og næturvinnu
og mun það vera skv. ósk ASÍ. I
staðinn var grunnupphæðin
lækkuð úr 4000—4500 en það voru
þær upphæðir sem fyrst heyrðust
frá rlkisstjórninni. Einnig mun
rlkisstjórnin hafa lýst þvi yfir á
fundum aðila að hún mun skerða
núverandi niðurgreiðslur um
fjórðung I stað þess að skera þær
niður um helming eins og hótað
hafði verið i upphafi.
Kaupgjaldsvisitala verður
bundin fram til 1. júli n.k. Þannig
verða engar launahækkanir á
þessu timabili. Viðræðuaðili
blaðsins sagði að samráöin við
samtök launafólks hefðu verið
fólgin I þvi að þeir hefðu verið
kallaðir á fund með fulltrúum
rlkisstjórnarinnar, til að snakka
eins og gert er stundum yfir kaffi-
bolla. Þar hefðu fulltrúar
stjórnarinnar varpað fram hug-
myndum, sem taka hefði átt af-
stöðu til á staðnum. Viðræðurn-
ar hefðu verið yfirborðskenndar
og hrein sýndarmennska og
aldrei verið til þess ætlast að
verkalýössamtökin fengju neinu
ráðið. Hvort ASl hafi fengið ein-
hverju um þokað eins um getur I
upphafi fréttarinnar, og þannig
samið óbeint um kjaraskerðing-
una, vildi upplýsingaaðili ekki
fullyrða. Rétt er að geta þess, að
rlkisstjórnin mun ekki hafa viljað
binda sig, gagnvart bindingu
verðlags. Launþegum er þvi
ætlað að axla þessar þungu
byrðar einum, enda hefur áróður
stjórnarinnar gengið út á það, að
laun verkafólks væru orsök allra
meinsemda þjóðfélagsins. En
mismunandi túlkun á þessu var
eitt af deiluefnum I umræðum um
myndun vinstri stjórnar.
Síldar-
söltun
á Horna-
firði
9 bátar fengu um 300 tunnu
sildarafla I reknet fyrra sólar-
hring. I.önduðu bátarnir á
Höfn I Hornafirði, og var salt-
aö á Höfn i gær.
Eftir húlft ár
rönkuðu
vl-ingar við sér
Ragnari
Arnalds
stefnt
12 af forgöngumönnum „Varins
lands” hafa nýlega látiö birta
Ragnari Arnalds alþingismanni,
formanni Alþýöubandalagsins,
stefnu þar sem þeir ákæra hann
fyrir meiðandi ummæli I útvarps-
þætti i febrúar sl. Er Ragnar 12ti
maöurinn sem VI ákærir. Veriö er
aö vinna aö greinargeröum fyrir
10 sakborninga, en greinargerö
frá verjanda Helga Sæmundsson-
ar hefar þegar borist borgar-
dómi.
Mál Ragnars Arnalds verður
þingfest 17.oktióber, en mál hinna
ellefu voru öll þingfest seint I júní
sl.
Þjóðviljinn spurði Ragnar Arn-
alds um það hvernig hans máli
væri varið. Ragnar sagði aö upp-
tökin væru þau, aö vl-ingar heföu
reiðst sér svo heiftarlega þegar
hann ljóstraöi upp um tölvu-
vinnslu þeirra I ræðu utan dag-
skrár á alþingi, og „gerðu þeir þá
itrekaðar tilraunir til að fá mér
stefnt fyrir þau ummæli en þá var
þinghelgin fyrir. Sama gilti um
þau Svövu Jakobsdóttur og Lúð-
vik Jósepsson, sem einnig ræddu
vl-málin á þingi og „móðguðu”
forgöngumennina. Vl-ingar sendu
efri deild alþingis, þar sem ég á
sæti, beiðni um að ég y.rði sviptur
þinghelgi, en hvorki forseti né
neinn þingdeildarmaður vildi
taka upp málið. Ég benti þeim á
að þessi skollaleikur væri hreinn
óþarfi, þar sem ég hafði endur-
tekið ummæli min að verulegu
leyti i þingsjá útvarpsins. En það
hefur tekið þá yfir 6 mánuði að
undirbúa málið!”
— Kröfurnar?
— Þeir krefjast þess aö tiltekin
Framhald á 11. siðu.