Þjóðviljinn - 24.09.1974, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 24.09.1974, Qupperneq 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 24. september 1974. Gamalt land 64 Skáldsaga eflir J.lt. Priesllev hver fannst þér hafa einna skást álit á mér? — Hilda Neckerson, svaraBi Tom samstundis. — Hún laumaö- ist burt úr versluninni og viö töl- uöum saman á kaffihúsi og okkur kom mjög vel saman. Hún viöur- kenndi, að hún heföi verið mjög ástfangin af þér i eina tiö. Hún hafði geymt bréfiö sem þú skrif- aðir henni frá Trinidad. Og hún fékk mig til aö lofa þvi, aö ég segöi henni allt um þig, ef ég heföi upp á þér. — Hilda, já? sagöi hann með hægö. — Já, auövitaö Hilda. Ég heföi mátt vita þaö. Svo hló hann. — Þetta eru annars furðulegar samræður milli feöga sem hafa ekki sést i meira en þrjátiu ár. Tom, drengur minn — þú ert full- stirölegur og ég er fulllosaralegur — en þetta bjargast. Nú verö ég aö fara inn. Viö sjáumst á morg- un. Og vertu ekki aö hugsa um neinn bil. Ég get gengið ef ég fer mér hægt. Hittumst á morgun. Þegar Tom var aftur kominn yfir þjóöveginn, þar sem bilar voru enn á ferð, virtust á flótta frá einu slysinu aö ööru, sá hann mannveru sitja á steinahrúgu skammt frá afleggjaranum. Þaö reyndist vera Judý. — Ennþá lituröu vel út, sagöi hann. — Jafnvel i tunglsljósi. — Ég ætti að lita enn betur út. Brúðkaup Þann 7/9 voru gefin saman i hjónaband i Arbæjarkirkju af séra Jóni Þorvaröarsyni Jóhanna Björk Bjarnadóttir og Þóröur Jó- hannesson. Heimili þeirra er að Háaleitisbraut 20, Rvfk. STUDIO GUÐMUNDAR Garðastræti 2, simi 20900. Alison fór I rúmið. Hún vill fara snemma á fætur og vinna. Og ég rölti niðureftir, miöur min af for- vitni, til að fá siðustu fréttir. Hvernig samdi ykkur Charles pabba? Nokkur illyröi og sært stolt? Hún tók undir handlegg hans og greip um lófa hans á göngunni. — Nei, ekkert slikt — og það er fyrst og fremst Alison að þakka. Það var snilldarbragð af henni að sækja hann á þennan hátt. I lokin sagði hann að visu aö ég væri full- striölegur. — Það ertu reyndar — meira en litið. — Honum var ekki alvara. — Ekki mér heldur. — Og bætti við, aö sjálfur væri hann fulllosaralegur. — Og þaö er ég Jika. Allt besta fólkið er þannig. svona, svona, ég skal hætta. í alvöru, Tom, og ég lofa að gripa ekki fram i. Þau voru komin alla leið áöur en hann var búinn aö segja henni þaö sem hann mundi af þvi sem faöir hans hafði sagt. — Viö Ali- son höföum reyndar giskaö á mest af þessu, sagöi Judý. — En þaö haföir þú lika gert. Þú kemur mér á óvart með glöggskyggninni — það er ánægjulegt. Kannski verður þetta svona áfram — alltaf eitthvað sem kemur manni nota- Þann 7/9 voru gefin saman i hjónaband i Langholtskirkju af sr. Sigurði Hauki Guöjónssyni Dorothea M. Högnadóttir og Sig- uröur Sigurjónsson. Heimili þeirra er aö Nökkvavogi 5, Reykjavik. STUDIO GUÐMUNDAR Bókhaldsaðstoó með tékkafærslum f^BÚNAÐARBANKINN yfXj REYKJAVÍK lega á óvart. Eiginlega skipti þetta mestu máli meö hana Hildu Neckerson. Annaöhvort okkar ætti aö hringja til hennar á morg- un. — Ég held aö þúgetir ekki gert það, Judý. Þaö útheimtir alltof miklar útskýringar i langlinu- samtali, á skrifstofuna hennar ofani kaupið og kannski situr Neckerson eiginmaður i næsta stól og grfpur fram i. — Við getum bjargað þvi — þú getur það aö minnsta kosti — með þvi aö segja, aö þetta standi I sambandi við Charles og gefa henni upp simanúmerið okkar, svo að hún geti skotist út og hringt til þin. Hún er vís til þess hún Hilda okkar — þú manst þegar hún laumaöist á kaffihúsið til þin. Og þegar hún hringir, þá gæti ég kannski fengiö að hlera samtalið og dæma um þaö, hvernig henni er innanbrjósts i raun og veru. Og þú skalt ekki halda að það þurfi neina sérstaka snilli til þess. Hamingjan sanna, ég hef svo sannarlega þurft að hlusta á alls konar kvenpersónur I simann, bæði I vinnunni og heima. Hvern- ig heldurðu aö tilveran hafi verið, þegar þær neyddust til aö skrifa bréf I staðinn? Hún benti á vin- bakkann. — Eigum við að fá okk- ur whiskýlögg? Hestaskál eða lokasopa eða hvaö þeir segja nú I Sydney? — Ég held ekki, Judý. Og þetta hefur eiginlega veriö langur dag- ur. — Ekki of langur, vona ég? Hún yggldi sig dálitið til hans — I rúm- ið — eða hvað. Þegar upp kom kyssti hún hann heitum kossi fyrir utan herbergis- dyrnar hans, klappaöi honum á herðarnar og var siðan horfin án þess að bjóða einu sinni góöa nótt. Hann var ringlaður, dálitið leið- ur, og rölti hægt inn til sin. Hann afklæddist næstum eins og i hægri leiðslu, heyröi hana fara inn i baðherbergiö og koma siðan fram aftur. Nú var röðin komin aö honum og hann fór þangaö inn lika. Fimm minútum seinna sat hann i náttförunum á rúmstokkn- um, staröi á vegginn milli hans og þessarar undarlegu stúlku, sem hafði eiginlega valdið honum von- brigðum, en þá opnuðust dyrnar. Fyrir ofan loftkenndan náttkjól- inn virtist andlit hennar einstak- lega tært og skýrt og dásamlegt. — Þú sagöir í dag að þig vantaði konu — ekki á þennan hátt að visu. Ég trúði þér ekki elsku Tom, þótt ég heldi ekki að þú værir að ljúga. En seinna stöðvaði ég þig einmitt þegar — þú manst? Það var ekki réttur staður eða stund. En nú er komið aö þvi. En samt i minu herbergi. Ég er afleit með að skilja ýmislegt eftir og þótt frú Hunangsdögg sé auli, þá getur hún lagt saman tvo og tvo i svefn- herberginu. Þessa leiö, dr. Adamson. — Það er Alison en ekki frú Hunangsdögg sem þú hlýtur að vera hrædd viö, sagöi hann á leiö- inni. — Alison, frú Hunangsdögg, frú Hewson-Smart, næstum allir — nema þú, ljósiö mitt. Og hún sneri sér við og féll I fang honum. Svo sem klukkustund siðar sagði hún syfjulega: — Heldurðu ekki að við eigum eftir að spjara okkur I þessu? — Hvort ég held! En þú verður að giftast mér. — Auðvitað. Hún færði sig nær honum, svo að hár hennar kitlaði hann undir hökunni. —- Ég ákvað það þegar þú ókst mér heim á föstudaginn. Hún kúrði sig upp I hann og stráöi um hann smákoss- um á milli þess sem hún malaði. Og hélt siöan áfram enn syfju- legri: — Það er eitt enn... við þurfum ekki aö ákveöa það I kvöld... Viö veröum ekki hér... Viö förum ekki til Ástraliu.... á- gætt... en með fjögur börn, frá kvöldinu i kvöld... þarf þaö endi- lega að vera Ghana eða Cam- bodia eða Ekvador?... Væri ekki hægt að reyna Austurriki eða Thailand eða Mexicó, ástin min? Lausn á síðustu krossgátu I = R, 2 = E, 3 = Y, 4 = K, 5 = J, 6 = A, 7 = V, 8 = 1, 9 = S, 10 = T, II = Á, 12 = L, 13 = H, 14 = É, 15 = F, 16 = M, 17 = 1, 18 = 0, 19 = P, 20= Ó, 21 = G, 22 = U, 23 = 0, 24 = N, 25 = 0, 26 = Æ, 27 = Þ, 28 = Ý, 29 = D, 30 = B, 31 = Ð. Þriðjudagur 7.00 Morgunútvarp, Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna ki. 8.45: Guðriður Guðbjörns- dóttir lýkur lestri sögunnar „Fagra Blakks” eftir önnu Sewell (14). Morgunpoppkl. 10.25. Morguntónleikar kl. 11.00: Alexandre Lagoya og Andrew Dawes leika „Sonata concertata” fyrir giter og fiðlu eftir Nicolo Paganini / Janos Starker og György Sebök leika Sónötu fyrir selló og pianó eftir Felix Mendelssohn-Bart- holdy / Arturo Benedetti Michelangeli og hljóm- sveitin Philharmónia leika Pianókonsert nr. 4 i G-dúr eftir Maurice Ravel. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Eftir hádegið. Jón B. Gunnlaugsson leikur létt lög og spjallar við hlustendur. 14.30 Síðdegissagan: „Smiöurinn mikli” eftir Kristmann Guðmundsson, Höfundur les. Sögulok (20). 15.00 Miödegistónleikar: islensk tónlist a. Hátiðar- forleikur eftir Pál ísólfsson. Sinfónluhljómsveit Islands leikur; Igor Buketoff stjórnar. b. Lög eftir Karl O. Runólfsson, Hallgrim Helgason, Arna Björnsson, Björgvin Guðmundsson og Emil Thoroddsen. Árni Jónsson syngur; Fritz Wesshappel leikur á pianó. c. „Unglingurinn i skóg- inum” eftir Ragnar Björns- son. Eygló Viktorsdóttir, Erlingur Vigfússon og karlakórinn Fóstbræður syngja. Gunnar Egilson leikur á klarinettu og Carl Billich á pianó. Höfundur stjórnar. d. Canto elegiaco eftir Jón Nordal. Einar Vigfússon og Sinfóniuhljóm- sveit Islands leika; Bohdan Wodiczko stjórnar. e. Lög eftir Inga T. Lárusson, Sigfús Einarsson og Sigvalda Kaldalóns. Lilju- kórinn syngur. Jón Ásgeirs- son stjórnar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.25 Popphornið. 17.10 Tónleikar. 17.40 Sagan: „Sveitabörn, heima og I seli” eftir Marie Hamsun.Steinunn Bjarman les þýðingu sina (8). 18.00 Tónleikar. Til- kynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Til umhugsunar. Sveinn H. Skúlason sér um þáttinn. 19.50 Ljóö eftir Þuriöi Guömundsdóttur. Geirlaug Þorvaldsdóttir leikkona les. 20.00 Lög unga fólksins.Ragn- heiður Drifa Steinþórsdóttir kynnir. 21.00 Skúmaskot: Siövenja er sögu rikari. Hrafn Gunn- laugsson ræðir við dr. Eirlk frá Bókfelli tal- og tungu- málasérfræðing og dr. Ólaf Barða Vilmundarson bók- mennta- og málvisinda- mann, sem brjóta vanda- málin til mergjar; siðasti hluti. 21.30 Kammertónlist.Trió op. 70 nr. 2 i Es-dúr eftir Beet- hoven. Léa Barditchefsky leikur á pianó, Jósé Pingen á fiðlu og Jean-Christophe van Hecke á selló. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir Kvöld- sagan: „September- mánuöur” eftir Fréderique Hébrard. Gisli Jónsson Islenskaði. Bryndis Jakobs- dóttir les( 5). 22.35 Harmonikulög. Adriano leikur. 22.50 A hljóðbergi: Hunangs- piilur og hoffmannsdropar. Austurriskur gamanþáttur með skrýtlum frá ýmsum löndum. Fritz Muliar, Gúnther Philipp, Peter Wehle og Maxi Böhm mæla af munni fram og syngja. 23.40 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. 20.00 Fréttir, 20.25 Veöur og auglýsingar. 20.35 Bændurnir. Pólsk fram- haldsmynd, byggð á sögu eftir Wladislaw Raymont. 10. þáttur. Dauöi Boryna. Þýöandi Þrándur Thorodd- sen. Efni 9. þáttar: Páskarnir voru haldnir hátiölegir i Lipce að vanda, þótt flestir vinnufærir karl- menn væru enn I varðhaldi. A annan dag páska fóru konur þorpsins aö heim- sækja fangana, og aö kvöldi þess sama dags ól Hanka son. Eldsvoði varð á búgarði greifans, en konur þorpsins reyndu eftir megni að hindra að nokkru væri bjargað úr eldinum. 21.30 Sumar á noröurslóöum. Breskur fræðslumynda- flokkur. 6. þáttur. Laxaævintýri. Þýðandi og þulur óskar Ingimarsson. 22.00 Enska knattspyrnan. 22.55 Dagskrárlok. Indversk undraveröld I Vorum aö taka upp mjög glæsilegt og fjöl- j breytt úrval af austurlenskum skraut- og list- munum, m.a. útskorin borö, vegghiliur, vör- 1 ur úr messing, veggteppi, gólfmottur og I margt fleira. I Einnig úrval af indverskri bómull, batik-efn- um, rúmteppum og mörgum gerðum af mussum. Nýtt úrval af reykelsi og reykelsiskerjum. ! Gjöfina, sem ætiö gleöur, fáiö þér I I Jasmin I.augavegi 133 (viö Hlemmtorg). iMn ffl! fM ðfH 0» (MflRl 0»

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.