Þjóðviljinn - 24.09.1974, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 24.09.1974, Qupperneq 3
Þriðjudagur 24. september 1974. ÞJÓDVILJINN — SIÐA 3 FJÁRDRÁTTUR REYKVÍKINGA Getraunir Einn með 11 rétta Reykvikingur einn datt heldur betur i lukkupottinn i gær þegar taliö var uppúr kassanum hjá Getraunum, þvi að hann reyndist vera sá eini sem hafði seðil með 11 réttum lausnum og þar sem enginn hafði 12 rétta hlaut hann 319 þúsund kr. Vinningsupphæðin var að þessu sinni 456 þúsund kr. og þar sem 7 seðlar fundust með 10 réttum leikjum hlýtur handhafi hvers þeirra 19 þúsund kr. betta er dálaglegur auka- skildingur, þar sem vinningarnir hjá Getraunum eru skattfrjálsir. —S.dór Sjómenn á Grundarfirði vilja segja upp samningum Hinn 17. sept. sl. hélt sam- bandsstjórn Sjómannasambands tslands fund þar sem einróma var samþykkt að skora á sjómanna- félögin aö segja upp gildandi kjarasamningum og það fljótt að samningarnir verði lausir ekki siðar en 1. nóv. nk. Og i gær barst sjómannasam- bandinu skeyti frá Verkalýðs- og sjómannafélaginu á Grundar- firði, þar sem þess er óskað að sambandið segi upp samningum fyrir félagið og er þetta fyrsta sjómannafélagið sem verður við áskoruninni. —S.dór Fossvallarétt við Lögberg er jafnan fjölsótt, og flest haustin núorðið má vart á milli sjá, hvort sauðféð er fleira en manfólkið, en sennilega hefur sauðkindin þó vinninginn enn. Ari tók þessar myndir um helgina, en Reykvik- ingar og nærsveitamenn rétta fé sitt þessa dag- ana, sem og aðrir landsmenn. V aranleg, ekki tímabundin kj araskerðing Sagði Ingólfur Ingólfsson form. Vélstjórafélags Islands um bráðabirgðalög rikisstjórnarinnar — Þar sem gera má ráð fyrir að flestar stéttir nái að bæta kjör sin aftur eftir þær árásir sem á þau hafa verib gerðar að undan- förnu, þykir okkur sjómönnum vægast sagt hart að þurfa einir að verða fyrir varanlegri kjara- skerðingu, sagði Ingólfur Ingólfsson formaður Vélstjóra- félags Islands er við leituðum álits hans á bráðabirgðalögum rikisstjórnarinnar um ráðstaf- anir i sjávarútvegi, sem gefin voru út i sfðustu viku. 1 1. grein þessara laga ver gert ráð fyrir að verðlagsráð skuli ákveða fiskverð og þar eru þvi settar alveg ákveðnar skorður um að fiskverð megi ekki hækka um nema 11% mest. Þarna er auðvitað gripið fram fyrir hendurnar á þeirri stofnun sem ákveða á fiskverð samkvæmt lögum, og þetta er alger skerðing á lögboðnum rétti okkar til að hafa áhrif á verðlagningu, þannig að þarna er verið að taka verðákvöröunarvaldið úr höndum réttra aðila. Þá kveða aðrar greinar þessara laga einnig á um verulega kjara- skerðingu sjómanna. Til að mynda i 2. grein þar sem stofn- fjársjóðs framlagið er hækkað um 5% bæði innan lands og erlendsis. Þar er gengið beint inni skiptakjörin, þar sem þessi hluti er tekinn af óskiptum afla, og er ekkert annað en frekleg árás á sjómenn. Sama er að segja um hækkunina á útflutningsgjaldinu, þar er einnig gengið beint á skiptakjörin og ég er ekki viss um að almenningur geri sér ljóst hvað þarna er um stóra hluti að ræða, þvi að útflutningsgjaldið er lagt á fobverðmæti annarsvegar en magngjald hinsvegar. Þetta samanlagt nemur sem næst 9% i fiskverði. Þá er búið i heild að draga sem nemur 14% úr fiskveröinu sem ekki kemur til skipta. Með hliðsjón af þvi að á þessu ári hafa sjómenn ekki fengið neinar kjarabætur, þar sem fisk- verðshækkun sú sem ákveðin var um siðustu áramót hefur ekki skilað sér i tekjum sjómanna vegna minnkandi afla, sem nemur um 13,5% á ve’trarvertið, þá er hlutur sjómanna mjög rýr gerður. Við höfum viljað sjá hvað fram kæmi og höfum þvi ekki tekið ákvörðun um uppsögn samninga en mér þykir óliklegt annað en að samningum verði öllum sagt upp þegar þetta allt er komið fram. Ég get að visu ekki fullyrt um það á þessari stundu en ætla má að svo verði, sagði Ingólfur að lokum. —S.dór 17% far- gjalda hækkun Með ácetlunarbilum BSÍ Borgarbörn hafa ekki slður skemmtun af að koma I réttir, en sveita- börn. Kannski er ekki annar eins ævintýrabragur yfir réttarferð borg- arbarnsins og sveitabarnsins, en þ'að er gaman eigi að sföur. Fargjöld með áætlunarbif- reiðum BSl hafa nú hækkaö um 17%. Umsókn um fargjaidahækk- anir hefur lengi beðið af- greiðslu, en var ekki endan- lega afgreidd frá rikisstjórn- inni fyrr en undir siðustu helgi. Nú kostar 205 krónur að fara með áætlunarbil frá Reykja- vík tii Keflavlkur, en kostaði áður 175 krónur. Þaö kostar 2050 krónur að aka með rútubil til Akureyrar, en kostaði áður 1770 krónur. Sé keypt far fram og tii baka fæst þó nokkur afsláttur. —GG SÆTTUM OKKUR EKKI YIÐ ÞETTA Sagði Jón Sigurðsson formaður Sjómannasambands íslands um bráðabirgðalög rikisstjórnarinnar Ég get auðvitað ekki sagt annað en allt það versta um þessi bráða- birgöalög, sagði Jón Sigurðsson formaður Sjómannasambands ts- lands er við leituðum álits hans á bráöabirgöalögum I sjávarútvegi sem rlkisstjórnin gaf út i siðustu viku. Þessi lög skerða kjör sjó- manna mjög mikib ofan á allt annað sem gert hefur verið að undanförnu og skeröa kjör vinn- andi fólks. — Lögin skerða verulega kjör togarasjómanna og þeirra sjó- manna sem eru svo heppnir að vera á bátum sem afla meira en sem nemur kauptryggingu, en kauptrygging háseta á bátunum er aðeins 51 þúsund á mánuði I grunn. Vinnuskylda þeirra er svo frá 12 og uppi 18 stundir á sólar- hring. Og ef ekkert veröur aðgert af hálfu samtaka sjómanna vegna þessara laga, þá verður aðeins um kauptryggingu að ræða á mun fleiri bátum en verið hefur, en lögin skerða fyrst og fremst hlut fiskimanna. Þess vegna er einsýnt að hækka verður kaup- trygginguna verulega frá þvi sem nú er. — Hvað takið þið þá til bragðs? — A fundi sambandsstjórnar Sjómannasambands Islands, sem haldinn var 17. sept. sl. var ein- róma samþykkt að hvetja félögin til uppsagna á samningum, þann- ig að þeir verði lausir ekki siðar en 1. nóvember nk. Og nú eru fé- lögin þegar byrjuö að segja upp samningum. Þessi áskorun sam- bandsstjórnarinnar var þó fyrst og fremst vegna gengisfellingar- innar og nú þegar þessi bráða- birgðalög bætast ofan á, þá er sannarlega ekki eftir neinu að biða, sagði Jón Sigurðsson aö lok- um. —S.dór.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.