Þjóðviljinn - 30.10.1974, Page 1

Þjóðviljinn - 30.10.1974, Page 1
Miðvikudagur 30. október 1974 — 39. árg. 214. tbl. Byggingayfirvöld i Reykjavík: Viðurkenna óteiknaðar íbúðir 1 fjölda mörg ár hefur þaö viö- gengist, aö byggingarmeistarar, sem byggja og selja blokkir taki undan ákveöið pláss I sameign þessara blokka og geri siöan úr þvi annaöhvort ibúðir eöa ein- staklingsherbergi sem þeir leigja siöan út eöa selja, sem er algeng- ara. Þetta er skýlaust brot, þar sem þarna eru seldar fbúðir sem aldrei hafa veriö teiknaöar og þvi ekki samþykktar. Eins ber ibúum hvers stigahúss öskipt sameign, nema annaö sé tekiö fram i samn- ingum sem i fæstum tiifelium er gert. Þegar svo bröskurunum hefur tekist að selja þessar ibúöir, aö visu ódýrari en samþykktar ibúö- ir, þar sem engin lán fást út á þær, þá sækja kaupendur um til byggingafulltrúa Reykjavikur- borgar að viökomandi ibúö sé samþykkt, og þaö er gert ef ibúö- in er ekki meira niðurgrafin en sem nemur 50 sm. og ef hún hefur löglega lofthæð. Byggingafulltrúi Reykjavikur- borgar sagöi okkur að á milli 25 og 30 svona ibúðir væru sam- þykktar árlega i Reykjavík. Er þaö gert til þess aö kaupendur þeirra fái lán útá ibúöirnar. Eins og áður segir er þaö mun oftar aö seljendur blokkanna taka ekki fram i sölusamningi að þeir eigi svo og svo mikiö pláss i sam- eigninni og út af þessu hafa oft risið deilur, vegna þess að þeir sem kaupa löglegu Ibúöirnar eiga einir allan lóðarrétt og bifreiöa- stæðarétt i sameiginlegri lóð hússins. ósamþykktu ibúðirnar eiga þar engan rétt, þær voru ekki á teikningunni þegar húsið og lóð þess var samþykkt. Og þá vaknar sú spurning, eru þessar ibúðir gefnar upp til skatts ef þær eru aðeins leigðar? Og sama má segja um einstaklings- herbergin. Hvernig stendur á þvi að byggingayfirvöld borgarinnar ýta undir svona nokkuð með þvi að samþykkja þessar ibúðir sið- ar? Er ekkert eftirlit til að hálfu byggmgayfirvalda sem kemur I veg fyrir að ibúðir sem enginn hefur samþykkt og hvergi hafa komið fram á teikningum séu smiðaðar? —S.dór immk- Gengiö i þinghús. Fremstir eru: Jón G. Sólnes, Tómas Árnason, Ragnar Arnalds, Þór Vigfússon, Jón Arnason og Eliert B. Schram. Sjá frétt af setningu alþingis á bakáiðunni. Hússein viðurkennir rétt PLO til Vesturbakkans RABAT 29/10 — Hússein Jórdaniukonungur hefur gengiö aö þeim kosti aö viöurkenna ásamt öörum arabaleiðtogum PLO, heildarbaráttusamtök palestinumanna, sem einu sam- tökin, er gætu fariö meö lögiegt umboð fyrir palestínsku þjóðina. Einnig hefur konungur viður- kennt rétt PLO til þess aö koma á fót ríkisvaldi — og þar meö raun- ar þjóöriki — á hverjum þeim hluta palestinsks lands, sem israel kann að láta af hendi. Þetta er samkvæmt frétt frá Rabat, þar sem æðstu leiðtogar Arabarikja halda nú ráðstefnu, þá 7. I röðinni. Náðist þetta samkomulag i viðræðum þeirra Hússeins og Jassers Arafat, leið- toga PLO, og lýstu aðrir leiðtogar einum rómi yfir samþykki sinu. Þessi tiðindi þykja veruleg, þar eð fram að þessu hefur Hússein staðið fast á þvi að vesturbakki Jórdanar verði afhentur Jórdaniu og boriö þvi við að Israel muni aldrei fást til að afhenda PLO þetta svæöi. Sambýlishúsið viö Þverbrekku Af Þverbrekkumálnnum Byggingarmiöstöðin sf. i Kópa- vogi hefur neitað aö afhenda fbú- um Þverbrekku 4, sem fyrirtæk- iö byggöi, afsal af ibúöum sem þeir hafa keypt i húsinu. Mál þetta er nú hjá lögfræðingum, sem freista þess með dómi, að ibúarnir fái sér dæmd afsölin. Eins og sagt var frá i gær, er eigandi að Byggingarmiðstöðinni fyrrum forseti ba*jarstjórnar Kópavogs, Guttormur Sigur- björnsson, nú yfirinaður Fast- eignamats rikisins fyrir tilstuðlan flokksbróður sins, fyrrv. fjár- máiaráðherra, Halldórs E. Sig- urðssonar. tbúðaeigendurnir gripu til þess ráðs er þeir sáu að hverju stefndi að láta þinglýsa kaupsamning- um. Þetta fyrirtæki byggði og Þverbrekku 2, en þar hafa afsöl verið afhent. Fyrrum forseti bæj- arstjórnar Kópavogs gerði samn- ing sem verktaki við Kópavogs- bæ, um að hann keypti fyrir fé- lagsmálastofnun bæjarins eina ibúð I hvoru húsi, númer 2 og 4, og mun bæjarfélagið i heild þvi eiga hagsmuna að gæta i máli þessu gegn fyrrverandi forseta bæjar- stjórnarinnar, og likur til að fjár- hagslegt tap bæjarsjóðs af við- skiptum við þennan fyrrv. emb- ættismann bæjarins verði all- nokkurt. Þær framkvæmdir, sem þegar hafa verið gerðar af undirverk- tökum eru margar hverjar ó- greiddar ennþá. Má i þvi sam- bandi nefna, að sá aðili, sem seldi lyftuna i Þverbrekku, en um er að ræða 10 hæða hús, hefur hótað að láta loka henni, verði ekki greitt fyrir hana og uppsetningu henn- ar. Þessari greiðslu og öðrum visar Guttormur til ibuðareigendanna og segir að þeir eigi að greiða, én þeirhalda þvi hins vegar fram, að Byggingarmiðstöðinni beri að greiða það, sem undirverktakar eigi inni fyrir vinnu við Þver- brekkuna, svo og það, sem óunn- ið er. Visa þeir i þessu sambandi til kaupsamnings, þar sem kveðið er á um ákveðna hámarkshækkun ibúðanna á byggingartimanum, og hér sé um að ræða mun meiri hækkun er þar sé heimiluð, sam- þykkt og undirrituð af kaupend- um og seljanda. Frá ákvæðum þessa samnings og kröfuupphæðum verður vænt- anlega hægt að greina i blaðinu á morgun. _úþ V erkalýðsmálaráðstefnan: Hefst á föstudag Verkalýðsmálaráðstefna Alþýðubandalagsins verður haldin um næstu helgi, 1. og 2. nóvem- ber. Ráðstefnan hefst á Hótel Loftleiðum kl. fjögur siðdegis á föstudaginn. Gert er ráð fyrir að henni ljúki á laugardag klukkan fimm sið- degis. Tilkynnið þátttöku til skrifstofu Alþýðu- bandalagsins, Grettisgötu 3, simi 28655, i siðasta lagi i dag, miðvikudaginn 30. október. í BLAÐINU í DAG Viðtál við Euwe, um I®-* 5 Moskvu einvígið I þokunni leynist hinn pólitiski galdur. Sjá frásögn af greinargerð Inga R. Helgasonar, hrlí máli VL-manna gegn Þjóðviljanum Yfirmenn ISAL þögulir um eiturefnin, sem geymd eru við álverið

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.