Þjóðviljinn - 30.10.1974, Qupperneq 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur. 30. október. 1974.
Miðvikudaginn 30. okt. hefst námskeið að
Norðurbrún 1, fyrir konur, sem taka eða
hafa hug á að taka börn i daggæslu. Kennt
verður á miðvikudögum og föstudögum,
Kl. 30—22. Kennsluefni: Föndur, leikir,
söngur, sögur.
gfflj Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
| i § Vonarstræti 4 sími 25500
KÓPAYOGUR!
Blaðberar óskast i Hvammana og
viðar.
Upplýsingar i sima 42073
DJOÐVIUINN
Bókhaldsaóstoð
með tékkafærslum
FTbúnaðarbankinn
\ý\j REYKJAVÍK
mmM
Indversk undraveröld
Vorum aö taka upp mjög glæsilegt og fjöl-
breytt úrval af austurlenskum skraut- og iist-
munum, m.a. útskorin borð, vegghillur, vör-
ur úr messing, veggteppi, gólfmottur og
margt fleira.
Einnig úrval af indverskri bómull, batik-efn-
um, rúmteppum og mörgum gerðum af
mussum.
Nýtt úrval af reykelsi og reykelsiskerjum.
Gjöfina, sem ætiö gleöur, fáiö þér i
Jasmin
I.augavegi 133 (við Hlemmtorg).
IaTI
OTin
fBI
\Sw laupnum
Stundið heilsurœkt
Nú þegar vetur gengur i garö, er nauösynlegt aö gera sitthvaö til
þess að standa af sér kvilla og farpestir, sem árstiöinni fylgja. Eitt
af þvi, sem gera þarf, hlýtur að vera aö rækta upp sæmilega likams-
hreysti. Staöir til þess eru að sjálfsögðu sundlaugar og iþróttahús,
en þeir sem ekki treysta sér til þess að vera húsbændur yfir sjálfum
sér þegar um er aö ræöa aö piska sig áfram til þess að stæla slaka
vööva, geta snúiö sér til hinna ýmsu heilsulinda og heilsuræktar-
stöðva. — Þessi mynd er tekin i Heilsuræktinni i Glæsibæ, en hún
sýnir þrjá kappa hvila sig i gufubaði eftir strangar likamsæfingar.
Guðmundur
skáld skreið
uppí bólið
Eins og menn muna varð fyrir
fáum misserum allmikil
sprenging I ritstjórn málgagns
Sjálfstæðisflokksins á Suöur-
landi, blaöinu Suöurlandi, en þá
vék Ingólfur á Hellu hirðskáldi
flokksins á Suöurlandi, ritstjóra
téös blaðs, Guðmundi Daniels-
syni, frá blaðinu, en Guðmund-
ur haföi um langan tima veriö
ritstjóri þess.
Tilefni deilna þeirra þá var
yfirgangur Ingólfs og ritskoöun-
arstefna hans, lik þeirri, sem
Morgunblaðið segir að stunduð
sé í Rússlandi og viöar þar aust-
urfrá. Haföi Guömundur um
þetta hin stærstu orð á sinum
tima, og var fátt til sparað af
orögnótt rithöfundarins, þá
hann lýsti þessum verknaði
Hellujarlsins.
En nú er Guðmundur skriðinn
upp i ból jarlsins enn á ný. I sið-
asta tölublaði Suðurlands eru
tvær greinar eftir hinn fyrrum
stóryrta rithöfund og jarlafelli.
Hvaö valdið hefur afturhvarfi
rithöfundarins, er Laupnum
ekki kunnugt, en trúlega hefur
smákarli ekki þótt vænlegt að
standa utan hirðar Hellujarls-
ins, og hjartað kannski smátt.
íslehskur barna-
kór vestanhafs?
,,Mig langar til að gefa Islend-
ingunum hérna afmælisgjöf, nú
þegar landnám þeirra i Mani-
toba er að verða 100 ára gam-
alt,” segir Elma Gislason i for-
siðuviðtali við Lögberg-Heims-
kringlu, en það er vikurit, sem
vestur-islendingar halda úti i
Winnipeg.
Um þetta segir ennfremur i
blaðinu:
,,Hún sagðist hafa verið að
velta þessu fyrir sér þegar Alf-
heiður kona Garðars Garðars-
sonar I St. Vital, hringdi til
hennar og spurði hvort ekki
væri til Islenskur barnakór i
Winnipeg, sem Dianna litla
dóttir þeirra hjóna gæti fengið
inngöngu I, sagði að sig langaði
til að barnið glataði ekki áhug-
anum fyrir Islenskum ljóðum og
lögum.
Þá afréð Elma að reyna að
koma á fót islenskum barnakór I
Winnipeg og hafa hann fullþjálf-
aðan til að koma fram á
skemmtunum landnámshá-
tiðarárið 1975. Ef allt gengur að
vonum er hópnum ætlað að
koma fyrst fram á Frónsmótinu
i Winnipeg seint i janúar, en
Þjóðræknisdeildin Frón styrkir
kórinn fjárhagslega.
Eftir þvi sem komist verður
næst, hefur ekki verið til Is-
lenskur barnakór I Winnipeg
siðan á dögum hins vinsæla
barnakórs Ragnars H. Ragnars
nokkru fyrir seinni heimsstyrj-
öldina.”
Poppari vill
skrifast á
Jón Magnússon Breiðuvik i
Rauðasandshreppi i Vest-
ur-Barðastrandarsýslu, sem er
14 ára að aldri, óskar eftir
bréfaskiptum við stúlkur 14—19
ára.
Jón segist hafa áhuga á
popp-tónlist.
Salon Gahlin
Ilættan er sú að við séum ekki
bara afkomendur apanna, held-
ur að við séum lika á leið til
þeirra aftur.
Hafið þér séð breytt
og betra
sunnudagsblað
Þjóðviljans?
Biöjiö um blaöiö á næsta
blaðsölustað
Áskriftarsími 17500
r
WÐvmm
Þýska alþýðu-
lýðveldið 25 ára
— Síðbúin afmœl-
iskveðja
Sigurður Baldursson, hæsta-
réttarlögmaður hefur beðið Þjóð-
viljann fyrir þessa afmælis-
kveðju:
1 hinum sögulega Potsdam-
samningi, sem gerður var i lok
heimsstyrjaldarinnar siðari 1945,
var svo kveðið á, að tekið skyldi
fyrir rætur nazismans. Þýska
alþýðulýðveldið hefur staðið við
þetta ákvæði. Þvi miður er ekki
hægt að segja hið sama um Þýska
sambandslýðveldið.
I striðslok sameinuðust
kommúnistar og sósíaldemókrat-
ar á hernámssvæði Sovétrikjanna
I einn flokk, Sósialiska eining-
arflokkinn. Þessi flokkur gerði
bandalag við aðra flokka um að
reisa þetta landssvæði úr rústum
styrjaldarinnar og skapa nýtt
þjóðfélag, helgað sósialiskri upp-
byggingu og friði við umheiminn.
Þýska alþýðulýðveldið var
stofnað, 7. október 1949, en áður
höfðu vesturveldin staðið að
stofnun annars þýsks rikis, Þýska
sambandslýðveldisins.
Hinn 7. október 1949 var mynd-
uð rikisstjórn 5 flokka undir for-
ystu Sósialiska einingarflokksins
(SED). Þessir 5 flokkar hafa sið-
an unnið saman að stjórn lands-
ins, en þeir eru auk Sósialfska
einingarflokksins Samband
kristilegra demókrata (CDV),
Lýðræðislegi bændaflokkurinn
(DBD), Frjálslyndi lýðræðis-
flokkurinn (LDPD) og Þjóðlegi
lýöræðisflokkurinn (NDPD).
Þessi samvinna, sem staðið
hefur i aldarfjórðung, er fyrir-
bæri, sem ýmsum hefur reynst
erfitt að skilja i þeim löndum, þar
sem það er lenska, að hver stjórn-
málaflokkur troði skóinn niður af
hinum, jafnvel þar sem annars er
mjótt á munum i skoðunum.
Saga Þýska alþýðulýðveldisins
er að visu ekki löng, þó mætti
alþýða auðvaldsrikja margt af
henni læra. Þar er t.d. fjármagnið
virkjað i þágu fólksins, en fólkið
ekki f þágu fjármagnsins. Þar er
engin verðbólga, og sýnir það, að
verðbólga og gengisfellingar eru
ekki óhjákvæmilegt böl eins og
eldgos og harðindi. Húsaleiguok-
ur er ekki til. Húsaleiga er i hæsta
lagi 10-12% af tekjum. Læknis-
hjálp og lyf eru ókeypis. Sama er
að segja um skólagöngu á öllum
stigum.
Félagslegt öryggi er hyrn-
ingarsteinn samfélagsins.
Jafnframt þvi sem lífskjör fara
jafnt og þétt batnandi, er málum
þannig stýrt, að hver og einn sér
hagsmunum sinum best borgið
með þvi að vera góður þegn, en
ekki öðrum fremri i svindli.
Af þessu lífsviðhorfi leiðir m .a.,
að dómgæsla og löggæsla er þar
stórum minna vandamál og hlut-
fallslega kostnaðarminni en t.d. á
Islandi.
Af framan sögðu er skiljanlegt,
að ráðamenn i auðvaldslöndum
hafi ekki verið ginnkeyptir fyrir
að viðurkenna tilvist rikis eins og
DDR og þverskallast i lengstu lög
við að taka upp stjórnmálasam-
band við það, þó að nú fyrir
skömmu hafi þeir neyðst til þess.
Ég vil að lokum þakka þá hlýju
og einlæga gestrisni, sem ég hef
notið i DDR á undanförnum ár-
um, og óska þessu landi friðar og
farsældar á komandi timum.
Sigurður Haldursson