Þjóðviljinn - 30.10.1974, Síða 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur. 30. október. 1974.
[P
il
Asenal — Wolves
1
1 besta leik sinum i vetur gegn
West Ham á laugardaginn,
missti Arsenal Alan Ball útaf
með meiddan ökkla og er þetta
þriöja áfall hans á þessum fæti.
Ball er ekki talinn leika meira
með Arsenal á næstunni og jafn-
vel hreinlega ekki meira i vetur.
Slik blúðtaka er svo sannarlega
erfið fyrir liðið, sem berst um á
botninum af eldmóði. Úlfarnir
voru heillum horfnir i leik sin-
um gegn Q.P.R. á laugardaginn
og verðskulduðu fyllilega sigur,
en urðu þó að sætta sig við 1-2
tap.
Birmingham—Chelsea 1
Chelsea er að reyna að ná upp
leikaðferð, sem byggist á opn-
um sóknarleik og mörgum
mörkum. A laugardaginn skor-
aði liðið 3 mörk gegn Stoke, en
vörnin var að sama skani léleg.
og fékk á sig önnur þrjú, þannig
að sigur varð ekki að veruleika.
Everton — Manch. City 1
Það er e.t.v. nokkuð um of
djarft að spá City tapi i þessum
leik, þvi liðið er um þessar
mundir i öðru sæti og fylgir
Liverpool fast eftir. Jafntefli
Ipswich og Manch. City á laug-
ardaginn gaf Liverpool annars
byr undir báða vængi, og City er
núna eina liðið, sem ógnar veldi
þess. Everton virðist vera að
missa af lestinni og hefur hrap-
aö niður i 5. sæti, svo nú er að
duga eða drepast.
Ipswich—Liverpool x
Þessi leikur er tvimælalaust
aðalleikur 12. getraunaseðils-
ins. Ipswich á enn möguleika á
að ná efsta sætinu á nýjan leik,
en það gerist þvi aðeins að sigur
eöa a.m.k. jafntefli náist i þess-
um leik. Liverpool er ekki sterkt
á svellinu á útivelli, og hefur
tapað þar tveimur leikjum það
sem af er. Það virðist há Liver-
pool mest, hve illa gengur aö
skora mörk og sigrarnir eru oft
naumari en gangur leikjanna
hefur gefið tilefni til.
Leeds—Derby 1
A útivelli hefur Leeds enn
ekki unnið leik en af 6 leikjum
heima hafa 4 unnist og er þaö
harla góður árangur. Leeds er
þó I botnbaráttunni ennþá, en
virðist vera að ná sér á strik og
þá einkum fyrir harðfylgi og
keppnisskap varnarmannanna
Norman Hunter og Gordon
McQueen, sem áttu báðir stór-
leik gegn Liverpool á laugar-
daginn, þótt ekki dygði það til
sigurs.
Leicester— Burnley 2
Með jafntefli sinu gegn Ever-
ton náði Burnley sér upp I efri
hluta stigatöflunnar og virðist
liklegt til að halda sér þar
áfram. Leicester er hins vegar
fremur ólánlegt að því er virö-
ist. Liðið nær einhvern veginn
ekki saman eins og skyldi, og
það heyrist viða, að einingin sé
ekki upp á það allra besta i
þessum herbúðum.
Newcastle—Luton 1
Luton Town, nýliðarnir I 1.
deild, eiga ekki sjö dagana sæla
um þessar mundir. Liðið er i
dauðasætinu svonefnda, og
margir segja það nú þegar
dæmt til að falla á ný i 2. deild.
Aðeins einn leikur hefur unnist
það sem af er keppnistimabils-
ins og er það svo sannarlega
dapurlegur árangur.
Q.P.R. — Coventry x
Eitt virðist Q.P.R. hafa, sem
hverju liði er nauðsynlegt til ár-
angurs, en það er heppnin. Liðiö
mátti allavegana þakka henni
einni fyrir sigurinn yfir Clfun-
um á laugardaginn og var það
ekki i fyrsta sinn, sem liðið sigr-
ar með aðstoð hinna góðu
Manch. Utd, er á góðri leið með að vinna einhvern glæstasta sigur sem unnist hefur f 2. deild fyrr og
siðar. Þessi mynd er tekin árið 1967 og það er gamli framkvæmdastjórinn þeirra, Tommy Docherty,
sem þarna baöar sig I fagnaðarlátum og aðdáunarhrópum áhorfenda, — þeirra sömu og sfðar heimtuöu
að hann yrði settur af.
verndarengla sinna. Coventry
virðist ætla að komast langt á
hinni siendurteknu hornspyrnu-
taktik sinni, en það var einmitt
hún sem færði liöinu tvö mörk
og þar með tvö stig I leiknum
gegn Carlisle um siðustu helgi.
Sheff. Utd.— Carlisle 1
Sheff. Utd. bauð aðdáendum
sinum upp á skinandi góða
knattspyrnu á laugardaginn og
sigraði þá á heimavelli lið
Birmingham með þremur
mörkum gegn tveimur. Heima-
völlurinn hefur enda verið liðinu
happadrjúgur, þar hafa fengist
12 stig úr 8 leikjum og aðeins
einn tapast, en á útivelli hefur
aðeins einn íeikur unnist og ræð-
ur það mestu um það, hve stutt
Sheff. Utd. hefur náð upp stiga-
töfluna.
Stoke—Tottenham 2
Enn biða menn eftir að
Tottenham fari i gang, en sú bið
er orðin löng og margir orðnir
vonlausir um framfarir I þeim
herbúðum. Tottenham hefur
fengið mörg tækifæri hér i get-
raunaspánni en misnotað þau
langflest! Við skulum þó gefa
þeim eitt tækifæri enn, þótt það
sé óneitanlega meira af þrjósku
en skynsemi, sem ég spái liðinu
sigri i þessari viðureign.
West Ham — Middlesbrox
Middlesbro, sem vann aðra
deildina i fyrra ætlar að ná langt
i þeirri fyrstu undir öruggri og
vinsælli stjórn Jackie Charl-
tons. Það er einkennilegt með
Middlesbro, að þvi gengur mun
betur á útivelli en heima og á
móti tveimur unnum leikjum á
heimavelli hafa fimm unnist á
útivelli.
Fulham — AstonVilla 1
Aston Villa biandar sér i bar-
áttuna um efstu sætin i 2. deild
þótt ekki keppi það við Manch.
Utd., sem hefur nú 4 stiga
forskot. En á útivelli er Villa al-
gjörlega ómögulegt lið, það nær
aldrei að sýna góða knattspyrnu
nema á sinum heimavelli, og i
trausíi þess, að ekki verði
breyting á, spái ég Fulham
sigri, þótt fyrirfram verði Villa
að teljast sterkari aðilinn.
tJrslitin á laugardag-
inn i 1. deild urðu þessi:
Arsenal — WestHam 3-0
Burnley — Everton l-l
Chelsea — Stoke 3-3
Coventry — Carlisle 2-1
Derby — Middlesbro 2-3
Ipswich — Man City 1-1
Liverpool — Leeds 1-0
Luton — Tottenham l-l
Newcastle — Leicester 0-1
Sheff. Utd. — Birmingham 3-2
Wolves — QPR 1-2
Þannig er staðan i 1,
deild eftir leikina á
laugardaginn:
Liverpool 14 10 1 3 22-8 21
Man.City 15 8 4 3 19-16 20
Ipswich 15 8 2 5 19-10 18
Middlesbro 14 7 4 3 22-16 18
Everton 15 4 10 1 20-17 18
Stoke 14 6 5 3 23-18 17
Burnley 15 7 2 6 24-24 16
Sheff. Utd. 15 6 4 5 22-16 16
Derby 15 5 6 4 23-21 15
Newcastle 14 5 5 4 19-20 15
WestHam 15 5 4 6 25-25 14
Birmingham 15 6 2 7 22-23 14
Wolves 15 4 6 5 16-17 14
Coventry 14 4 6 4 20-24 14
Carlisle 15 5 3 7 13-14 13
Leicester 13 4 4 5 17-18 12
Chelsea 14 3 6 5 16-23 12
Leeds 14 4 3 7 16-16 11
QPR 14 3 5 6 13-17 11
Tottenham 14 4 2 8 17-21 10
Arsenal 14 3 3 8 15-20 9
Luton 15 1 7 7 13-22 9
Don Revie, nýi landsliðsþjálfarinn:
„Við verðum heims
meistarar árið 1978'
i dag mun Don Revie
stjórna enska landsliðinu í
fyrsta sinn, en það mun
leika gegn tékkum síðdeg-
is. Hann er hinn brattasti
um þessar mundir, — að
vísu hættur hjá Leeds eftir
margra ára starf, en við-
fangsefni hans nú er ekki
síður mikilvægt, — nefni-
lega sjálft landslið eng-
lendinga.
Mjög einfalt en þó skorinort
skilti hangir uppi i búningsklefa
Leeds á heimavelli sinum á El-
land Road. Þar stendur með feitu
og risastóru letri „KEEP
FIGHTING”, sem á Islensku
mætti útleggjast „BERJIST TIL
SIÐASTA BLÓÐDROPA!” Það
var hörkutólið Revie, sem setti
þetta skilti upp daginn sem hann
tók við framkvæmdastjórn Leeds
árið 1961. Og vissulega hafa leik-
mennirnir haft þessa skipun I
heiðri, eins og best sást um dag-
inn þegar við birtum árangur
liðsins siðustu 10 árin, en hann er
hreint út sagt stórkostlegur.
Nú hefur Revie tekið við stjórn
enska landsliðsins og eru miklar
vonir bundnar við þennan arftaka
Sir Alf Ramsey. „Don smitar á-
vallt frá sér óbilandi baráttu-
gleði, hann er harður i horn að
taka, orðljótur á köflum, en hin
besta sál inn við beinið”, segja
þeir, sem til hans þekkja.
Hræddur til að
byrja með
„Þegar mér var á sinum tima
boðið að koma til Leeds sem
framkvæmdastjóri vissi ég vart
hverju átti að svara”, segir
Revie. „Ég hafði ekki hugmynd
um i hverju starf mitt yrði fóigið.
Ég þekkti þó nógu marga fram-
kvæmdastjóra til að hafa vit á að
vera skithræddur við að taka
þetta starf að mér. Ég fór á fund
Matt Busby, sem hefur meiri
reynslu en flestir aðrir, og bað
hann að segja mér sitt álit og gefa
Með Leeds hefur Don Revie oft átt góðar stundir og margsinnis tekið á
móti veröiaunum og titlum. Hér er hann þó ekki að taka á móti
verðlaunum fyrir lið sitt, heldur viðurkenningu sem
„framkvæmdastjóri ársins”, en hana hefur hann hlotið þrivegis.
mér heilræði. Æ siðan stend ég i
þakkarskuld við þennan stór-
kostlega mann.
Það varð siðan lán mitt i þessu
starfi, að ég fékk að ráða sjálfur.
Það var ávallt tekið fullt tillit til
min, og ég mætti ekki þeirri and-
úð eða óánægju, sem svo oft vill
risa ef eitthvað fer úrskeiðis.
Viðfangsefni mitt nú er þó trú-
lega enn stærra. Það verður
vissulega erfitt að ná ensku
knattspyrnunni upp á þann pall,
sem hún hefur svo lengi staðið á.
Ég geri mér grein fyrir að það
verður að byggja allt frá grunni
og það er einmitt það, sem ég
held að geti orðið erfitt. Ekki þó
sjálf uppbyggingin, heldur niður-
rifið, sem óhjákvæmilega er und-
anfari allra róttækra breytinga.
Braut Englands upp á toppinn
verður ekki stráð rósum, en hún
er alls ekki ófær og ég er sann-
færður um að við munum komast
á leiðarenda innan tiðar”.