Þjóðviljinn - 07.11.1974, Qupperneq 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 7. nóvember 1974.
Hvað dvelur
Húsmœðra-
félagið?
Siöan framsóknarihalds-
stjórnin komst til valda hafa
verðhækkanirnar dunið á
landsfólkinu sem aldrei fyrr, og
nú hækka meira að segja
þrumarinn og vinar-
brauðsendarnir. Það hækkar allt,
sem almenningur notar daglega
En hvernig stendur á þvi að
ekkert heyrist núna i
valkyrjunum i Húsmæðrafélagi
Reykjavikur, Dagrúnu
Kristjánsdóttur og Margréti
Einarsdóttur og öðrum? Eru
þessar valkyrjur lifs eða liðnar?
Þær lágu þó ekki á liði sinu i tið
vinstristjórnarinnar, ef ein-
hverjar verðhækkanir urðu. En
hversvegna efna þær ekki nú til
mótmælaaðgerða við Alþingis-
húsið? Er þeim kannski alveg
sama um verðhækkanir, ef það er
bara ihaldið sem framkvæmir
þær?
Lesandi.
Leiðrétting
Þegar Þjóðviljinn birti nöfn
þeirra, sem kjörnir voru fulltrúar
Alþýðubandalagsins I Reykjavik
á Landsfund Alþýðubandalags-
ins, sem hefst i Reykjavík 21.
þ.m. féll niður nafn Einars Oi-
geirssonar, fyrrverandi alþingis-
manns. Þetta leiðréttist hér með.
Námsmannaráð
SÍNE í Alaborg
mótmœlir FM
,,Fundur haldinn í
námsmannaráði SINE í
Álaborg fimmtudaginn
24.10. '74 lýsir andstyggð
sinni á undirskriftasöfnun
þeirri er f ram fer á Islandi
nú undir nafninu ,,Frjáls
menning". Þykir okkur
ekki á bætandi
niðurlægingu íslensku
þjóðarinnar á þessu ári þar
sem við höfum undir-
skriftasöfnun „Varins
Lands" sem að okkar áliti
sýnir glöggt áhrif
hersetunnar á þjóðina."
Salon Gahlin
— Sá sem ekki þolir að fólk bak-
tali sig, ætti ekki að gerast leigu-
bílstjóri.
ŒitF laupnum
Bindindismenn
veita verðlaun
Nýlega fór fram verðlauna-
veiting vegna góðaksturs Bind-
indisfélags ökumanna. 1. verð-
laun hlaut Magnús Helgason,
brunavörður, Snælandi 2 R.vik.
Til kaffisamsætis, sem haldið
var af þessu tilefni, var boðið
keppendum og starfsmönnum
góðakstursins. BFÖ vill þakka
öllum sem aðstoðuðu við fram-
kvæmd keppninnar en þó sér-
staklega þeim, er utan samtak-
anna standa, en sýna þó alltaf
sérstaka velvild, og þá einkum
Bifreiðaeftirliti rikisins og lög-
reglunni i Reykjavik.
Haustmót
Taflfélags
Kópavogs hafið
Vilja banna leigu á laxveiðiám til útlendinga
Töluverð gróska hefur verið
hjá Taflfélagi Kópavogs i ár.
Skákþingið var haldið i mars
og þvi slitið með hraðskákmóti.
Sigurvegari I meistaraflokki
varð Július Friðjónsson og er
hann þvi skákmeistari Kópa-
vogs 1974, en hraðskákmeistari
varð dr. Ingimar Jónsson. A
æfingarmóti i mai náði 4 manna
sveit T.K. að halda jöfnu á móti
ólympiusveitinni. Æfingar
hófust i byrjun september i vist-
legum húsakynnum
æskulýðsráðs að Alfhólsvegi 32
og eru þær á hverju
fimmtudagskveldi, nema
á meðan mót standa yfir.
Haustmót T.K. hófst s.l.
sunnudag 3. nóvember i
Vighólaskóla. Teflt er i öllum
flokkum og má búast við mikilli
þátttöku. Deildakeppni' S.l.
hófst i Kópav. með keppni T.K.
og Hreyfils og i 2. umferð tefldi
T.K. við Skáksamb. Suðurl.
T.K. hefur hlotið 30 1/2 vinning
úr 40 skákum sem af er
deildakeppninni. Að lokum má
geta þess að 3 af 12 keppendum i
landsliðsflokki á skákþingi Isl.
’74 eru i T.K. Má það kallast
góður árangur hjá svo ungu
félagi.
Austfirðingar á
Hótel Sögu
annað kvöld
1 tilefni af 70 ára afmæli Aust-
firðingafélagsins verður haldið
austfirðingamót á Hótel Sögu
föstudaginn 8. nóvember,
þ.e.a.s. annað kvöld.
A blaðamannafundi hjá for-
manni félagsins, Guðrúnu
Jörgensen, afhenti hún Þórarni
Þórarinssyni, fyrrverandi
skólastjóra á Eiðum, stofn-
framlag félagsins til söfnunar,
sem öll átthagafélög af Austur-
landi gangast nú fyrir i þvi
skyni að reisa minnisvarða um
Inga T. Lárusson, tónskáld, i
ir veiði útlendinga i islenskum
ám, eftir sem áður verði þeim
seld veiðileyfi, samkvæmt
ákvörðun stjórna hinna ýmsu
veiðifélaga, eða skrifstofu
Landssambands veiðifélaga,
enda hliti viðkomandi þeim
reglum, sem settar eru um
varnir gegn smithættu erlendis
frá.
Fundurinn samþykkti að
vinna að stóraukinni fiskrækt á
vatnasvæðum undir leiðsögn
sérmenntaðra manna. Sérstak-
ar þakkir voru færðar Eldis-
stöðinni i Kollafirði, sem fús-
lega hefir sent upplýsingar og
fróðleik til eldisstöðva og áhuga
teknir i notkun. I kjallara eru
geymslur, og þar er lika gert
ráð fyrir lestrarsal. A efstu hæft
er skrifstofa. Þá er áformuft
plötudeild svo og lesherbergi
fyrir fræðimenn. Yfirumsjón
með innréttingum hefur Knútur
Jeppersen, arkitekt. Meðfylgj-
andi mynd var tekin á opnunar-
degi, 21. október”.
Freyr kominn
út
1 nóvember-hefti búnaðar-
blaðsins Freys. gefur að Hta
svolátandi kafla I forystugrein,
sem ber yfirskriftina Meinfygli:
„Lög segja annars, að svart-
bakur sé réttdræpur á öllum
timum árs, en hvað stoðar þaft
þegar aðeins má skjóta hann?
Reynslan sýnir, að sú eyðingar-
aðferð er út i hött. Aðrar og
virkari aðferðir skuiu til. Þar
þarf reglugerðarákvæði, sem
mæla fyrir um annað atferli við
eyðingu þessa meinfyglis —
nýja reglugerð, það er allt og
sumt, en þar standa i vegi ráöa-
lausir aðilar, sem segja hitt og
þetta alveg út i bláinn, þegar
um ræðir gagnvirkar athafnir á
þvi sviði, sem lýtur að fækkun
umrædds flugvargs. Fyrirmæli
þau, sem þeir hafa aft undan-
Aðalfundur Landssambands
stangveiðifélaga var haldinn á
Akureyri dagana 26. og 27.
október.
Meðal helstu mála, sem rædd
voru á þinginu, var leiga á lax-
veiðiám til útlendinga. Var al-
ger samstaða um að vinna að
þvi að tekið yrði fyrir slikar
leigur, hvort heldur beint til út-
lendinga eða gegnum svokall-
aða umboðsmenn. Fundurinn
taldi það algera réttlætiskröfu,
sem vinna bæri markvisst að,
að islendingar sjálfir sætu fyrir
leigu á öllum veiðivötnum.
Þetta ber þó engan veginn að
skilja þannig, að tekið verði fyr-
heimabæ hans, Seyðisfirði.
Þórarinn er formaður nefndar
er þessi átthagafélög skipuðu til
þess að sjá um framkvæmd
þessa verks, en bróðir Þórarins,
Jón Þórarinsson, bóndi á Skörð-
um i Reykjahverfi, bar fyrst
fram tillögu i máli þessu.
Það er von Austfiröingafé-
lagsins, að sem flestir veiti mál-
inu stuðning og hafi samband
við stjórnir átthagafélaganna
eða Þórarin Þórarinsson,
Skaftahlið 10 Rvik, I sima 21391.
Ennfremur vonast félagið til
þess að sem flestir mæti á af-
mælishátið félagsins.
Hilmar í nýjum
húsakynnum
Hilmar Jónsson, rithöfundur
og bókavörður i Keflavik, sem á
myndinni sést afgreiða við-
skiptamenn Bókasafns Kefla-
vikur, sendi okkur eftirfarandi
upplýsingar um safnið:
,,Um þessar mundir er Bæjar-
og héraðsbókasafnið I Keflavik
að flytja i ný húsakynni að
Mánagötu 7. Það er 3ja hæða
hús. Hver hæð er 120 fermetrar.
Arið 1972 keypti Keflavikurbær
hús þetta fyrir bókasafn. A mið-
hæðinni eru útlánasalir, og það
eru þeir, semnú hafa verið
manna viðsvegar um landið, er
eftir sliku hefir verið leitað;
einnig samþykkti fundurinn að
færa Skúla Pálssyni, Laxalóni
þakkir fyrir mjög óeigingjarnt
brautryðjandastarf i þágu fisk-
ræktar og vonar að frumkvæði
hans verði öðrum hvatning til
dáða á þessu sviði.
Stjórninni var þökkuð ágæt
störf og var hún endurkjörin,
hana skipa: Hákon Jóhannsson,
Reykjavik formaður, aörir I
stjórninni eru: Friðrik Sigfús-
son, Keflavik, Bergur Arn-
björnsson, Akranesi, Gunnar
Bjarnason, Reykjavik og Birgir
J. Jóhannsson, Reykjavík.
förnu látift setja um eyftingaraft-
ferðir, eru út i hött, efni og aft-
ferðir þvi likastar sem börn og
óvitar hafi að verki verið á þeim
hlutum”.
Nýr Samúel
Samúel
ÓIaísv<
„Brw
umde
bióm)
U?MYMB
PELIC
TÍZKAI
I HÁR-
KLIPP'
INGUN
Pjötlu
sumar
mikla
Welmwíu
CHAh
sm
ísm
Hér gefur aft lfta forslftu 4.
tölublaðs 6. árgangs af timarit-
inu Samúel. Megnið af efni þess
skýrir sig á forsiðu. Þess skal
getið að 14 blaðsiður af 32 eru i
litum.