Þjóðviljinn - 20.11.1974, Síða 1

Þjóðviljinn - 20.11.1974, Síða 1
UOWIUINN Miðvikudagur 20. nóvember 1974 —39. árg. 232. tbl. HÚSNÆÐIS- LEYSIÐ í REYKJAVÍK Könnun á hass- neyslu 23,9% reykviskra ungmenna 18-24 hafa neytt hass 23.9% reykvískra ung- menna á aldrinum 18-24 ára hafa prófað kannabis. Þetta kemur fram í BA-rit- gerð Þórunnar Friðriks- dóttur í félagsfræði en könnunin var gerð síðari hluta árs í fyrra og fyrri hluta þessa árs. Aðdragandi þessarar könnunar ersamþykktsem gerð var á þingi Æskulýðssambands Islands i april 1973. Þar var stjórn sam- bandsins falið að fylgjast náið með fikniefnamálum og halda ráðstefnu um þau. Stjórnin skipaöi nefnd til aö gera tillögur um á hvern hátt ÆSÍ gæti staðið að þessum málum. Taldi hún nauðsynlegt að safna saman þeim upplýsingum sem til voru um þessi mál og afla nýrra með könnun. Stjórn ÆSl ákvaö siðan að láta gera könnun á fikniefnaneyslu ungs fólks i Reykjavik og tók Þór- unn það að sér og vann sem BA- verkefni. Fjörugróður eyðist í grend við álverið Er mengun I Hafnarfirði komin á hættustig? Bóndi á Alftanesi fullyrðir aö fjörugróður láti stórlega á sjá og kindur á nesinu séu grásilfraöar á lagðinn árið um kring af ryki frá álverinu. S.dór tók myndina af þessum rollum á Álftanesi i gær. SJÁ FRÉTT Á 13. SlÐU Landsfund iirimi hefst á morgun Ströng fundardagskrá frá fimmtudegi til sunnudags Landsfundur Alþýðu- bandalagsins hefst á morgun — fimmtudag — með setn i nga r ræð u formanns Alþýðubanda- lagsins, Ragnars Arnalds. Að öðru leyti er dagskrá flokksþingsins sem hér segir: Fimmtudagur Kl. 17. Fundarsetning, afgreiðsla kjörbréfa og kosning starfsmanna fundarins. — Skýrsla formanns um flokks- starfið og yfirlitsræða um stjórnmálaviðhorfið. — Kosning starfsnefnda fundarins. Kl. 20.30. Almennar umræður um stjórnmálaviðhorfið. Framsögumenn Lúðvik Jósepsson og Magnús Kjartansson. Föstudagur Kl. 10. Tillaga stefnuskrár- nefndar. Framsögumaður Hjörleifur Guttormsson. — Tillögur til lagabreytinga lagðar fram og kynntar. Kl. 14. Landsfundinum skipt i starfshópa: 1. Starfshópur stjórnmála- nefndar. Stjórnandi ólafur Einarsson. Umræðuefni: Stjórnmálaályktun, utanrikis- mál, landhelgismál og her- stöðvamál. 2. Starfshópur verkalýðsmála- nefndar. Stjórnandi Snorri Jónsson. 3. Starfshópur félagsmála- nefndar. Stjórnandi Ægir Sigur- geirsson. Helgi Seljan ræðir um þróun byggðamála og byggða- jafnvægi. Geir Gunnarsson ræðir um sveitastjórnarmál og lands- hlutasamtökin. A kvöldfundi verður Sigurður Guðgeirsson form. húsnæðismálastjórnar gestur fundarins og ræðir um húsnæðismál. Framhald á 13. siðu. 1 opnu Þjóðviljans i dag er grein eftir Guðmund J. Guö- mundsson um húsnæðisleysið I Reykjavik. Grein þessi er ein sú fróðlegasta sem lengi hefur verið skrifuð um þetta efni. Þar segir Guðmundur m.a. — Mér finnst aö við lausn húsnæðismála hafa verið einblint á nýbyggingar húsnæðis án þess að þvi hafi verið nægur gaumur gefinn hvaða ráðstafanir mætti gera til að hindra að nýting á eldra húsnæði rýrnaði óeðlilega mikið. — Hann sýnir svo fram á að 1940 voru 5,0 manns á ibúð i Reykjavlk en 1973 3,17. Við nokkrar götur I Reykjavik hefur Ibúum fækkaö um meira en helming. Til að mynda við Marargötu, Asvalla- götu, Freyjugötu, Laufásveg, Leifsgötu svo nokkur dæmi séu nefnd. Þetta er aöeins brota brot af þeim fróðleik sem fram kemur I greininni. Sjá opnu Álverið í Straumsvík: VATNIÐ rannsakað Akvörðun um hvað gert skuli við kerbrotin tekin á mánudag I viðtali við Baldur John- sen, f orstöðu mann Heilbrigðisef tirlit ríkis ins, í dag kom meðal annars fram að nú er að hefjast rannsókná hollustu drykkjarvatns, sem notað er i álverinu. Það kemur frá borholu I hrauninu við álverksmiðjuna og getum hefur verið að þvi leitt að það kunni að mengast vegna kerbrotaúrgangsins, sem settur hefur verið I gryfjur og á ösku- hauga Hafnfirðinga. Þá sagði Baldur Johnsen að á fundi með heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar n.k. mánudag yrði tekin ákvörðun, um hvort ráðist verði i að byggja sérstaka stein- þró á sjávarkambi norðan álvers ins, þar sem eiturefni i kerbrotunum verði leyst upp með sjó- og loftblöndun, og kerbrotin siðan grafin á afviknum stöðum eftir að gengið hafi verið úr skugga um með efnagreiningu að þau séu óskaðleg. Baldur Johnsen sagöi að litið væri svo á að eiturefnin, ýmis blásýru- og flúorsambönd, leystust upp I frumefni við veðrun af lofti og sjó, og yrðu óskaðleg. Vissulega væri æskilegt að vistfræðileg rannsókn yrði gerð á fjöru- og sjávarlífi við álverið. „Legsteinn” Þórbergs Sjá greinargerð meistara Þórbergs á 3. siðu. Heyrnarkönnun á iárniðnaðarmönnum: GEIGV ÆNLEGAR NIÐURSTÖÐUR Niðurstöður heyrnarkönnunar, sem Heilsuverndarstöðin fram- kvæmdi, og tók til járniðnaðar- manna og bankamanna, eru geig- vænlegar fyrir járniðnaðarmenn. Linuritið sem hér birtist, sýnir mun á heyrn bankamanna (brotna linan) og járniðnaðarmanna (óslitna linan). Um sextugt heyra 60% þeirra járniðnaðarmanna, sem unnið hafa helming starfsævi sinnar i hávaða, tvo til þrjá tima á starfsdegi ekki tón, sem er nokkuð hærri en talað mál á hærri mörkunum. —GG

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.