Þjóðviljinn - 20.11.1974, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 20.11.1974, Qupperneq 11
Miðvikudagur 20. nóvember 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 Varnarleikurinn var algerlega í molum og þjóðverjarnir höfðu enn meiri yfirburði en í fyrri leiknum Yfirburðir a-þýska landsliðsins í handknatt- leik komu enn betur i Ijós í leiknum i gærkvöldi heldur en í fyrri leiknum. Þeir vissu nákvæmlega hvar veiki hlekkurinn var í islenska liðinu og notfærðu sér það til hins ítrasta meðan þeir voru að ná yfirburða stöðu, en mestur varð munurin 9 mörk í leiknum í gær, 21:12 þjóðverjum í vil. Þá voru innan við 10 mínútur eftir af leiknum og þá var eins og þýska liðinu finndist komið nóg og það hreinlega hætti að ógna. Þá fyrst náði landinn að rétta hlut sinn svolítið, þannig að lokatölurnar urðu ekki nema 24:20 og má það kallast vel sloppið eins og dæmið leit út um miðjan síðari hálfleik. Sannleikur- inn er sá, að í þvi landsliði sem einvaldurinn hefur stillt upp í þessa tvo landsleiki vantar flesta bestu varnarmenn lands- ins svo það er varla nema von að svona fari, en það er öllu verra þegar þeir sem málunum ráða læra ekkertaf mistökum sínum. Og þótt sóknarleikurinn væri betri hluti leiks islenska liðsins var hann langt frá þvi aö vera eins góður að þessu sinni og i fyrri leiknum. Viðar Simonarson og Einar Magnússon sáust varla f- þessum leik, Viðar skoraði ekkert mark og Einar aðeins 2, bæði úr viti, auk þess sem honum mistókust tvö vitaköst. Það mæddi þvi mikið á Axel Axelssyni og hann stóð sig mjög vel meöan úthaldið entist, en auðvitað þreyttist hann mjög i siðari hálf- leik og þá gerði hann nokkrar skyssur sem eingöngu er hægt að skrifa á þreytuna. Björgvin Björgvinsson stóð sig vel á linunni að vanda, Ólafur H. Jónsson einnig og Páll Björgvins- son komst þokkalega frá leiknum. Á þessum mönnum mæddi mest. Byrjun leiksins lofaði sannar- lega ekki góðu um framhaldið. Þjóðverjarnirkomust i 3:0, 4:1 og 5:2. Þá sáust tölurnar 6:3 og 7:3 og I leikhléi var munurinn 4 mörk 13:9. Þjóðverjarnir léku frábærlega vel I byrjun siðari hálfleiks. Sannkölluð kennslustund i sókn, vörn og þá ekki siður markvörslu og alltaf breikkaði bilið, 14:9, 15:9 17:11, 19:12, 20:12 og 21:12 og þá voru 12-13 minútur til leiksloka og þjóðverjunum fannst greinilega komið nóg, toppmennirnir teknir útaf og þá fyrst fór aðeins að ganga hjá islenska liðinu. Tölurnar 21:15, 22:17, 24:18 og lokatölrnar 24:20 sigur þjóðverja. Eins og áður segir báru þeir Axel ólafur, Björgvin og Páll af i islenska liðinu. Ragnar Gunnars- son varði sæmilega, mun betur en Birgir Finnbogason, en þó er alls ekki hægt að segja að mark- varslan hafi verið góð. Hjá þjóðverjunum voru það sem fyrr þeir Lakenmacheer og Ganschow sem af báru, þeir eru hreinir snillingar og mér er til efs að hingað hafi komið öllu betri handknattleiksmenn. Annars er liðiö sem heild eitt það allra besta sem sótt hefur okkur heim, ef þá ekki það albesta. Mörk Islands: Axel 7, Ólafur 3, Björgvin 3, Jón Karlsson 2, Páll 2, Einar 2, Pétur 1. Markhæstir þjóðverjanna voru þeir Lakenmacheer með 6 mörk og Ganschow með 5. Dönsku dómararnir skiluöu sinu hlutverki sæmilega en þó hvergi eins vel og i fyrri leiknum. Ahorfendur voru eins margir og Laugardalshöllin frekast rúmar. —S.dói Ólafur Jónsson skorar af llnu. (mynd: Einar) UMSJÓN SIGURDÓR SIGURDÓRSSON Það eru furöulegustu augnablik, sem Einar Magnússon nær að nýta sem skotfæri. Hér sendir hann bolt ann framhjá varnarmönnum þjóðverja og verður ekki annaö sagt en að aöstaöan virðist erfið. (mynd: gsp)

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.