Þjóðviljinn - 20.11.1974, Síða 15
Miðvikudagur 20. nóvember 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
Mynd af þeim fræga Gutta eftir Tryggva Magnússon.
ísafoldarprentsmiðja:
Fjögur söng-
ljóðahefti eftir
Stefán Jónsson
ísafoldarprentsmiOja gefur nú
út söngljóðahefti Stefáns Jóns-
sonar, Söguna af Gutta, Hjónin á
Hofi og Það er gaman að syngja,
enn einu sinni. Söguna af Gutta er
búið aö gefa út að minnsta kosti
átta sinnum sem sjálfstætt kver
og tvivegis að auki i safnritinu
Segöu það börnum. Hin heftin
hafa einnig verið gefin út hvað
eftir annað. Satt best að segja veit
enginn lengur hve oft þessi vin-
sælu kver hafa verið endurprent-
uð eða I hve stórum upplögum, en
svo mikið er vist að eintakafjöld-
inn skiptir oröiö tugum þúsunda.
Nú hafa þau verið ófáanleg á
bókamarkaði i mörg ár og bætir
þvi Isafoldarútgáfan á heftunum
úr brýnni þörf. Og vist er að þau
verða vel þegin af börnum nú sem
fyrr, svo sigildur er kveðskapur
Stefáns.
Fjórða smáheftið sem tsafold
gefur út nú meö visum eftir
Stefán Jónsson heitir Þrjú ævin-
týri og er það önnur útgáfa kvers-
Hér er Pési i klónum á kóngi i
sögunni af Pésa, sem er eitt hinna
þriggja söguljóöa I Þrjú ævintýri.
ins. 1 þvi eru sögukvæðin Það var
einu sinni drengur. Sagan af Hon-
um Pésa og Sagan af Grísnum
góða.
Einar Bragi sá um útgáfu söng-;
heftanna allra. Tryggvi Magnús-
son gerði teikningar nema við
Aravisur, en þær alkunnu teikn-
ingargerði Þórdis Tryggvadóttir.
,Enn um okkur Kalla’
Eftir Örn Snorrason
tsafold gefur nú út bók eftir örn
Snorrason þar sem hann heldur
áfram að segja börnum frá
bernskubrekum sinum og vinar
hans Kalia. Fyrir ail mörgum ár-
um sendi örn Snorrason frá sér
barnabók, sem nefndist: Þegar
við Kaili vorum strákar, og átti
hún miklum vinsældum að fagna.
Nú kitlar örn hláturtaugarnar á
ný með bókinni: Enn um okkur
Kalla. Hún er 68 blaðsiður með
myndskreytingum eftir Halldór
Pétursson. A bókarkápu segja
útgefendur að bókin sé bráð-
skemmtileg, full af lifi og spaugi-
legum atvikum.
Ariö 1973 skrifaði Valgarður
Haraldsson, námsstjóri á Akur-
eyri um bókina Þegar við kalli
vorum strákar: „Ég minnist þess
að fyrir allmörgum árum hafði ég
i bekk hjá mér dreng, sem átti i
erfiðleikum meö lesturinn. En
allt i einu brá svo við að strákur
varð fljúgandi læs á mjög
skömmum tima. Þegar ég innti
hann eftir þvi hvað komiö hefði
fyrir, svaraði drengur: ,,Ég fékk
bara svo skemmtilega bók, aö ég
varð að lesa hana aftur og aftur”
Og bókin var Þegar ég og Kalli
vorum strákar” Þaö er þvi ekki
óliklegt að krakkar vilji heyra
meira um Kalla.
Vippi leysir vandann
Þriðja og siðasta
Vippasagan eftir Jón
H. Guðmundsson
Hörpuútgáfan hefur sent frá sér
aðra útgáfu af þriðju bókinni I
söguflokknum af Vippa eftir Jón
H. Guömundsson.
Þetta er sagan Vippi leysir
vandann. Bókin er 109 blaðsiöur
með teikningum eftir Halldór
Pétursson. Prentverk Akraness
setti og prentaði en Bókbindarinn
h.f. batt inn. Vippi leysir vandann
er þriðja og siðasta bókin um
fjörkálfinn og ærslabelginn
Vippa, sem á miklum vinsældum
að fagna meöal barna. Áður eru
útkomnar bækurnar Vippi vinur
okkar og Vippi ærslabelgur.
apótek
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
varsla lyfjabúðanna I Reykja-
vfk vikuna 15.—21. nóv. er I
Lyfjabúöinni Iðunni og Garðs-
apóteki.
Það apótek, sem fyrr er nefnt,
annast eitt vörsluna á sunnu-
dögum, helgidögum og almenn-
um fridögum. Einnig nætur-
vörslu frá kl. 22 að kvöldi til kl. 9
að morgni virka daga, en kl. 10 á
sunnudögum, helgidögum og al-
mennum fridögum.
Kópavogur
Kópavogsapótek er opið alla
virka daga til kl. 19. A laugar-
dögum er opið frá 9 til 12 á há-
degi. Á sunnudögum er apótekið
lokað.
Hafnarfjörður
Apótek Hafnarfjaröar er opiö
frá 9—18.30 virka daga, á laug-
ardögum 10—12.30 og sunnu-
daga og aöra helgidaga frá
11—12 á hádegi.
sýningar
GENGISSKRANINC
Nr. 209 - 18. nóvemlwtr 1974.
SkraC frá Eining Kl. 13,00 Kaup Sala
18/11 1974 1 Bandaríkjadollar 117, 00 117,40
- - 1 SterlinEspund 271, 55 272,75 *
- - 1 Kanadadollar 118,30 118,80 *
- - 100 Danskar krónur 1998,25 2006, 85 *
- - 100 Norskar krónur 2169,15 2178, 45 *
- - 100 Sænskar krónur 2739, 55 2751,25 *
- •- 100 Finnsk mörk 3164,25 3177,75 *
- - 100 Franskir frankar 2498, 95 2509,65 *
- - 100 Belfi. frankar 311, 25 312,55 *
- - 100 Svissn. frankar 4413, 20 4432, 10 *
- - 100 Gvllini 4522, 45 454], 7Í *
- - 100 V. -Þvzk mörk 4732, 95 4753, 15 *
- - 100 Lírur 17, 62 17, 70 *
- - 100 Austurr. Sch. 662, 45 665, 25 *
- - 100 Escudos 472, 55 474, 55 *
- - 100 Pesetar 205, 40 ' 206, 30 *
- -• 100 Yen 39. 04 39, 21 *
2/9 - 100 Reikningekrónur- Vöruskiptalönd 99,86 100, 14
18/11 - 1 Reikningadollar- 117,00 1 17, 40
Vðruskiptalönd
* Breyting frá siGustu skráningu.
Hamragarðar
Steingrímur Sigurðsson sýnir 75
nýjar myndir. Sýningin opin
daglega frá 14—20 nema föstu-
daga, laugardaga og sunnudaga
frá 14—22.30 til sunnudags 23.
nóv.
Norræna húsið
Den Nordiske — sýning 26 nor-
rænna listamanna i kjallara,
opin frá 14—22 alla daga til 26.
nóv,
félagslíf
Kvennadeild Slysavarnafélags
Rvlkur.
Deildir heldur basar 1. desem-
ber i Slysavarnahúsinu. Þær fé-
lagskonur, sem gefa vilja muni,
eru beðnar að koma þeim á
skrifstofu félagsins i Slysa-
varnahúsinu á Grandagarði eða
láta vita i sima 32062 eða 15582.
Styrktarfélag vangefinna
Félagið minnir á fjáröflunar-
skemmtunina 1. desember. Vel-
unnarar félagsins eru beðnir að
koma munum i happdrættið
fyrir 22. nóv. annað hvort i
Lyngás eða Bjarkarás. — Fjár-
öflunarnefndin.
Kvenfélag Laugarnessóknar
Basar verður haldinn laugar-
daginn 23. þ.m. i fundarsal
kirkjunnar kl. 15 e.h. Aðallega
barnafatnaður, kökur, lukku-
pokar. o.fl. — Stjórnin.
Kvennadeild styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra
Fundur verður haldinn að Háa-
leitisbraut 13, fimmtudaginn 21.
nóv. kl. 20.30. — Stjórnin.
I dag, miðvikudag.
Háaleitishverfi
Miöbær, Háaleitisbraut — 13 30-
15.30.
Holt — Hlíðar
Stakkahliö 17 — 19-21
Æfingaskóli Kennaraskólans
16.15-18.
brúðkaup
Þann 7/7 voru gefin saman i
hjónaband I Frikirkjunni i
Hafnarfiröi af séra Guðmundi
Ó, ólafssyni Frlöa A. Sæmunds-
dóttir og Þorvaldur S. Egilsson.
Heimili þeirra er aö Hallveigar-
stig 4, Rvk.
Ljósmyndastofa Kristjáns.
Þann 1. júnl voru gefin saman
i hjónaband af sr. Jakobi Jóns-
syni, Jóhanna Jóhannsdóttir og
Jón Ingvason. Heimili þeirra er
að Njálsgötu 50.
Nýja myndastofan