Þjóðviljinn - 30.11.1974, Blaðsíða 3
Laugardagur 30. nóvember 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Nakin erum við...
GÍRÓ 20.005
ii.i ii.r iiisroiM \
KIRK.ll W íR
Hjálpum klædlaiisuin
0 'CJ
Fatasöfnunin til Eþiópíu
j 1
■ [T
Wt im.
r ^ |k ;
wflsS M 1
Hjálparstofnun kirkjunnar biður fólk að gefa
Föt handa
Eþíópíufólki
Hjálparstofnun kirkjunnar
hefur ákveöiö að gangast fyrir
viðtækri söfnun á fatnaði til bág-
staddra i Eþiópiu.
Strangar reglur gilda um inn-
flutning á notuðum fatnaði til
Eþiópiu. Hjálparstofnun kirkj-
unnar þarf að fá vottorð islenskra
heilbrigðisyfirvalda um að
ströngustu kröfum hreinlætis sé
fullnægt. Að öðrum kosti verður
innflutningur fatnaðarins ekki
leyfður. Aðeins heill og hreinn
fatnaður kemur þvi til greina.
Tildrög voru þau, að beiðni um
fatagjafir barst fyrir rúmum
mánuði frá séra Bernharði Guð-
mundssyni, sem starfar við út-
varpsstöðina „Radio Vioce of the
Gospel” i Addis Ababa.
Séra Bernharður hefur verið i
stöðugu sambandi við Christian
Relief Commitee i Addis Ababa,
sem er samstarfsstofnun all-
margra hjálparsamtaka og starf-
andi eru i Eþiópiu.
Stefnt er að þvi að safna fatn-
áöi, sem fylli eina flugvél eða
fleiri frá Cargolux en Flugleiðir
hf og Cargolux hafa boðist til að
flytja einn slikan farm eða fleiri
til Asmara, sem er höfuðborg
héraðsins Eritreu i Eþiópiu, á
sérstökum vildarkjörum, — sem
byggjast á nýtingu fragtrýmis i
tengslum við aðra flutninga.
Þrátt fyrir hagkvæmt flutn-
ingsgjald er reiknað með að
heildarkostnaður að meðtöldum
pökkunar og umbúðakostnaði,
muni nema kr. 150,- hvert kiló.
Afleiðingin er sú, að óhjákvæmi-
legt er að biðja hvern gefanda að
greiða flutningsgjald nokkurn
veginn i samræmi við þyngd þess
fatnaðar, sem gefinn er.
Hjálparstofnun kirkjunnar mun
jafnframt veita móttöku framlög-
um frá fólki, sem óskar að styðja
þetta málefni, en hefur ekki tök á
að gefa föt. Þvi fé, sem þannig
safnast, verðut varið til kaupa á
brýnum nauðsynjum, t.d. teppum
eða matvælum i samráði við
hjálparsamtök i Eþiópiu og sr.
Bernharð Guömundsson. Fram-
lögum til þessarar söfnunar er
veitt móttaka á giróreikningi nr.
20005 og á annan venjulegan hátt.
Það er von Hjálparstofnunar
kirkjunnar að hver fjölskylda á
landinu muni gefa sem svarar 1-2
kilóum af fatnaði og með þvi móti
muni takast að fylla eina flugvél.
Söfnunin mun standa frá 5. til
12. des. n.k. og munu sóknar-
prestar og söfnuðir um land allt
sjá um söfnun, hver á sinum stað.
Hjálparstofnun kirkjunnar
leggur sérstaka áherslu á að fólk
gefi buxur, peysur, skyrtur á bæði
kyn, ullarteppi og barnafatnað.
Fatnaður úr plasti eða gúmii er
afþakkaður og einnig undirföt
kvenna, höfuðföt, sokkar, vett -
lingar, skór og stássklæðnaöur,
svo sem samkvæmiskjólar.
Sigurpáll viö nokkrar myndir sina) I Hamragörðum.
Sigurpáll í Hamragörðum
í gær opnaði Sigurpáll A. Is-
fjörð fyrstu einkamálverkasýn-
ingu i Hamragörðum. A sýning-
unni eru 28 oliumálverk og tvær
vatnslitamyndir, flestar til sölu.
Myndirnar eru flestallar málaðar
á tveimur siðustu árum. Sýningin
verður opin á laugardögum og
sunnudögum 14-18, lokuð á mánu-
dögum,en aðra virka daga opin 18
til 22. Sýningin sendur til áttunda
desember.
ísland — þjóðsagan og veruleikinn
„Að slökkva það
falska ljós”
1. des. hátíð stúdenta í
Háskólabíói kl. 14 á morgun
Eins og fram kom hér I blað-
inu á sinum tima unnu vinstri-
menn I röðum háskólastúdenta
góðan sigur yfir ihaldsöflunum i
kosningum um tilhögun hátiðar-
halda 1. desember. Framboð
þeirra hafði að einkunnarorö-
um: tsland — þjóðsagan og
veruleikinn.
Nú er undirbúningur á loka-
stigi og á morgun er fullveldis-
dagur þjóðarinnar, afsakið
borgarastéttarinnar. Einhvern
veginn hefur það æxlast svo til
að stúdcntar eru þeir einu sem
halda i heiðri þennan merka
áfanga í baráttu isl. auðvalds-
stéttar undan miðstjórnarvald-
inu I Kaupmannahöfn. Haldið
gæti maður að það stæði öðrurn
nær en e.t.v. má lita á þctta sem
enn eitt dæmi um þá menning-
arlegu ördeyðu sem einkennir
islenska yfirstétt á þessari gull-
öld valfrelsisins.
En hvað um það þá hefjast
hátíðarhöld dagsins á slaginu
tvö á morgun i Háskólabiói. Þá
verður flutt samfelld dagskrá
um þjóðhátiðarhald o.fl. þar
sem saman fer flutningur texta
sem stúdentar hafa unnið upp á
undanförnum vikum og upplest-
ur ýmiss skáldskapar, bundins
og óbundins, og inn I þetta verð-
ur fléttað tónlist. Tónlistarflutn-
ingur er i höndum Arnar
Bjarnasonar trúbadúrs og
Megasar sem mun syngja við
undirleik p o p p f 1 ok k s i n s
Pelican.
Ræðumaður dagsins verður
Þorsteinn frá Hamri rithöfund-
ur. I upphafi verður lesið ávarp
1. des. nefndar og höfum við
fengið leyfi til að birta upphaf
þess sem er svohljóðandi:
,,Að þessu sinni hafa stúdent-
ar helgað 1. desember einkunn-
arorðin lsland — þjóðsagan og
veruleikinn. Eftir að hafa setið
undir þeim þjóðhátiðarræðum
sem á þjóðina hafa dunið i ár
þar sem spilltir forsvarendur
hins stéttskipta auðvaldsþjóðfé-
lags kepptust við að telja þjóð-
inni trú um að hún hafi alltaf
verið samstæö og sameinuð i
lifsbaráttunni hlýtur sú spurn-
ing að vakna, hversu langt á að
ganga i blekkingunni? Þvi stiga
nú stúdentar það spor að reyna
eftir þvi sem kostur er að
slökkva á þvi falska Ijósi sem
ævinlega er varpað yfir sögu
landsmanna þegar nauösynlegt
þykir að sameina andstæða
hagsmunahópa þjóðfélagsins”.
Eins og undanfarin ár veröur
dagskrá hátiðarinnar útvarpað
beint og þvi fótfúnum bent á að
opna viðtæki sin klukkan 14 á
morgun.
Að venju er svo haldinn dans-
leikur um kvöldið og fer hann að
þessu sinni fram i Sigtúni við
Suðurlandsbraut. Þar munu
Pelicanar leika fyrir dansi af al-
kunnri snilld.
Annar fastur liður hátiðar-
haldanna er útgáfa hátiðarblaðs
og verður ekki vikið frá þeirri
reglu nú. Blaðið verður gefið út I
30 þúsund eintökum og dreift ó-
keypis i hús viða um land.
—ÞH
Bókmenntakynning
í Norræna húsinu
Þessa dagana stendur yfir
ferðamálaráðstefna, og fer hún
fram á Hótel Sögu. Þar hefur
komið fram hugmynd um að reisa
ferðamannamiðstöð við Kleifar-
vatn.
1 sambandi við hana eru
hugmyndir um að gera þar golf-
velli, búa til sundlaugar reisa
hótel og sá jafnvel til .suðræns
gróðurs. Má benda á, að hugsan-
legt væri að leigja út köfunartæki
handa gestum, ef einhvern skyldi
fýsa að kanna hugsanlegt tækja-
safn i Kleifarvatni.
I hugmyndinni um feröa-
mannamiöstöð er gert ráð fyrir
þvi, að hún veröi hvorki meira né
minna en 6000 fermetrar að gólf-
flatarmáli.
Likanið að stöðinni brotnaði á
leið þess hingað frá Bandarikjun-
um, en hugmyndin um ferða-
mannamiðstöðina er einmitt það-
an komin. Forsjálir menn höfðu
þó látið festa likanið á filmu, og
hér með er mynd af likani mið-
stöðvarinnar og er þetta merki-
legasta kúnst að virða fyrir sér.
—úþ
Norræna húsið efnir nú eins og
undanfarin ár til kynningar á at-
hyglisverðum bókum á bóka-
markaði Norðurlanda. Kynning-
ar þessar hafa sendikennarar
Norðurlandanna við Háskóla Is-
lands annast.
Að þessu sinni verður breytt út-
af þvi sniði, sem hingað til hefur
verið haft á, og kynningin höfð i
tvennu lagi.
1 dag kl. 16:00 verða kynntar
danskar og norskar bókmenntir
og siðar, laugardaginn 7. desem-
ber kl. 16:00,finnskar og sænskar
bókmenntir.
Danski rithöfundurinn Ebbe
Klövedal Reich, sem dvelst hér á
vegum Norræna hússins og
Dansk-islenska félagsins, verður
gestur á kynningunni i dae oe
finnski rithöfundurinn prófessor
Lars Huldén, formaður finnsk-
sænska rithöfundasambandsins,
á siðari kynningunni, en hann
verður hér i boði Norræna húss-
ing og Háskóla tslands. Báðir
þessir rithöfundar kynna m.a.
eigin verk.
Útför
dr. Páls
á vegum
ríkisins
Rikisstjórnin hefur ákveðið
með samþykki vandamanna
dr. Páls lsólfssonar, tón-
skálds, að jaröarför hans fari
fram á vegum rikisins.
Ctförin veröur gerð frá
Dómkirkjunni þriðjudaginn 3.
desember kl. 14.00. Athöfninni
veröur útvarpað.