Þjóðviljinn - 30.11.1974, Síða 11
Laugardagur 30. nóvember 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
KR
fékk
hroða-
legan
skell
í EB
tslandsmeistarar KR fengu
hroöalegan skell I Evrópumeist-
aramótinu i körfuknattleik sl.
fimmtudagskvöld, er þeir mættu
UBSC frá Austurriki og töpuöu
meö 98 stiga mun, 34:132 sem er
mesti sigur sem um getur I EB i
körfuknattleik og kæmi ekki á
óvart þótt um heimsmet væri aö
ræöa. Hvaö þarna hefur gerst er
hreint óskiljanlegt.
Hinn gamli draugur 14:2 i
knattspyrnunni er næsta léttvæg-
ur boriö saman viö þessi ósköp.
Þess má geta aö I leikhléi var
staöan 68:11 ?????
fimleikasýning
Islandsmótið í
körfuknattleik:
Fjórir
leikir í
körfu-
knatt-
leiks-
keppn-
■ ■
inm
Um þessa helgi fara fram 4
leikir I 1. dcildarkeppninni i
körfuknattleik. 1 dag leika I
Njarövik, Valur og UMFN og
Snæfell og Armann, hefst fyrri
leikurinn kl. 14.
A morgun veröur svo leikiö á
Seltjarnarnesinu og mætast þá
Valur og Snæfell og HSK og ÍR og
hefst fyrri leikurinn kl. 18.
Eitt Barnahjálparkortanna I ár. Myndin á þvl er nefnd Friöarhöllin
og er eftir Sees Vlag frá Hoilandi.
Ummæli kaupfélagsstjórans á
Blönduósi um afkomu bænda:
Eiga sér
enga stoð
— segir Árni Jónasson erindreki
Stéttarsambands bænda
A 33. kaupfélagsstjórafundi
SIS, sem haldinn var i Reykja-
vfk 22. og 23. nóv. sl. hélt Arni
Jóhannsson kaupfélagsstjóri á
Blönduósi ræöu, sem vakti
mikla athygli fundargesta, en
þar sagöi hann áö afkoma
bænda, einkum fjárbænda á
félagssvæöi sins kaupfélags
væri mjög siæm. Myndin sem
hann dró upp var „afar dökk”
eins og segir i Sambandsfrétt-
um.
Árni sagði aö kaupfélagið
hefði orðið að fjármagna i
vaxandi mæli afurðasölu
bænda og viðskiptastaða
þeirra við kaupfélagið væri
orðin iskyggileg og ætti enn
eftir að versna. Sagði Árni að
hér væri um alvarlegt mál að
ræða og lausn á þvi þyldi enga
bið. Lánamál bænda yrði að
taka til gagngerðrar endur-
skoðunar.
Við bárum þessi ummæli
undir Arna Jónasson erind-
reka Stéttarsambands bænda.
— Já, ég hef heyrt sagt frá
þessari ræðu en kann enga
skýringu á þessum ummæl-
um, Ég held að þetta sé ekki
rétt, eigi sér raunar enga stoð.
Það eina sem ég get látið mér
detta i hug er það að bændur
hafa staðið i miklum fjárfest-
ingum á undanförnum 3 árum,
hafa byggt mikið og endurnýj-
að vélakost sinn, þannig að
þeir skulda kannski þess
vegna meira en vant er og
hafa þvi versnandi stöðu 1
hans kaupfélagi, en að afkoma
bænda i þessu héraði hafi
versnað á þessum siðustu
tveimur árum, þvi hef ég ekki
trú á.
Við höfum skýrslur fyrir ár-
in 1972 og 1973 sem sýna að af-
koma bænda um allt land var
betri þessi ár en um langt ára-
bil. Ég hef að visu ekki ná-
kvæmar skýrslur fyrir árið
1974 en ég veit ekki um neitt
sem gerst hefur sem rýrt gæti
svo afkomuna frá árinu áður,
að slik ummæli sem þessi séu
rétt, sagði Arni að lokum.
Það er þvi full ástæöa til að
spyrja hvað svona málflutn-
ingur á að þýða eða hverju
hann á að þjóna. —S.dór
Frá Barnahjálp
Sameinuðu þjóðanna:
íslensk fyrir-
mynd að
UNICEF-korti
Nú eru 25 ár liðin frá stofnun
Barnahjálpar Sameinuðu þjóð-
anna. Eftir hörmungar siðari
heimsstyrjaldar var stofnskrá
Sameinuðu þjóðanna undirrituð
af 50 þjóðum 26. júni 1945 og rúmu
ári siðar eða 11. des. 1946 var
stofnaður sérstakur hjálparsjóð-
ur fyrir börn og unglinga, sem
höfðu orðið hart úti i styrjöldinni.
Siöar varð þessi hjálparsjóður
notaður til þess að aðstoða bág-
stödd börn i hinum ýmsu hlutum
heimsins, og enn biða óleyst mörg
mikilvæg verkefni. Þvi eins og
fram hefur komið i fréttum er
mikil neyð meðal barna hinna
svokölluðu þróunarlanda.
Að uppástungu Aake Ording frá
Noregi ákvað Allsherjarþingið að
skapa möguleika á viðtækri þátt-
töku einstaklinga og félaga að
þessu nýja hjálparstarfi UNI-
CEF. Undirtektirnar urðu frá-
bærar. Karlar og konur á öllum
aldri og börn viðsvegar i heimin-
um hétu aðstoð sinni, sömuleiðis
lofuðu félagasamtök, skólar og
kirkjufélög framlagi. Kven-
stúdentafélag íslands er i flokki
hinna mörgu félaga i heiminum,
sem styrkja UNICEF með þvi að
annast sölu á kortum og dagatöl-
um sjóðsins. Stjórn Barnahjálpar
Sameinuðu þjóðanna (UNICEF)
á íslandi er i höndum stjórnar
Kvenstúdentafélagsins og hefur
hún unniö mikið starf á undan-
förnum árum, enda hefur sala
kortanna aukist mjög. Fyrir-
myndir að UNICEF-kortunum
eru gerðar af listamönnum viðs-
vegar að úr heiminum, og er það
framlag þeirra til sjóðsins. A
næsta ári verður islensk fyrir-
mynd að UNICEF korti. Það er
krosssaumuð rúmábreiða með
mynd af fæðingu Frelsarans. Var
hún i eigu Vigfúsar Schevings
sýslumanns, sem var ráðsmaður
Hólaskóla 1762—65. Rúmábreiðan
er i eigu Þjóðminjasafnsins og er
til sýnis þar.
Ahugi fólks fyrir þessu mikil-
væga hjálparstarfi má aldrei
dvina. 011 framlög smá og stór,
hvort heldur þau fára til kaupa á
UNICEF-korti eða ekki, verða
einhverju bágstöddu barni i þró-
unarlöndunum að liði. Hér á landi
þurfa miklu fleiri að taka höndum
saman um að styrkja UNICEF.
Samúð okkar með börnum þróun-
arlandanna er mikil, það sýndi
m.a. „herferð gegn hungri”, Bi-
afra-söfnun R.K.l og samþykkt
A.S.Í. um hjálp við þróunarlönd-
in.
Aflestum jólakortum er minnst
á frið á jörðu, gleði og hamingju.
Þegar við sendum jólakortin i ár
til vina og kunningja, sendum við
um leið von um betra lif til handa
fátæku barni i ókunnu landi með
þvi að senda jólakort Barnahjálp-
arinnar. (Fréttatilkynning)
Mi 1
Kolbeinn Ingi Kristinsson verslunarstjóri og Einar Bergmann.
Verslun opnuð áður
en íbúarnir flytja
Enn af menningu akureyringa
Tónlistarfélagið
líka lagt niður
Það virðist sem myndlistar-
tnenn á Akureyri hafi haft nokkuð
til sins máls, er þeir sögðu akur-
eyringa andlega dauða og lögðu
niður Myndlistarfélagið.
A aðalfundi Tónlistarfélagsins
á Akureyri var um það rætt, að
leggja niður starfsemi þess félags
amk. um stundarsakir. t fréttatil-
kynningu Tónlistarfélagsins seg-
ir: ,,í almennum umræðum komu
fram raddir um að leggja yrði
starfsemina niður al' fjárhags-
ástæðum um stundarsakir að
minnsta kosti, en þó voru hinir
flciri, sem vildu gera tilraun til að
haida uppi umfangslitilli, en
markvissri starfsemi, s.s. örfáum
tónieikum með þekktum lista-
mönnum, kynningum I skólum
bæiarins, skemmtistarfsemi
o.þ.h.”
Þegar Þjóðviljinn ræddi við
Bjarna Einarsson, bæjarstjóra
akureyringa um andlát Myndlist-
arfélagsins, sagði hann að mynd-
listarmenn hefðu verið fjárhags-
lega afskiptir þar eð bærinn yröi
að verja miklu fé til tónlistarmál-
anna, einkum Tónlistarskólans.
Nú hefur Þjóðviljinn fengið bréf
frá einum aðstandenda Myndlist-
arfélagsins sáluga, en þar segir i
tilefni af viðtali Þjóðviljans við
Bjarna bæjarstjóra: ,,Ég leyfi
mér að senda yður eintök af þvi
vikublaði sem framsóknarmenn á
Akureyri gefa út. 1 siöasta blað-
inu sannaðist það, sem ég vissi,
að þó að frétt þess eðlis að félag
eins og Myndlistarfélagið hætti i
mótmælaskyni og það hafi verið
til umræðu á aðalfundi Tónlistar-
félagsins að leggja það niður, þá
gefur blaðið sér ekki rúm il að
hugleiða málin i næsta töl__laði.
Ætlunin er nefnilega sú að þagga
Framhald á bls. 13
t gær opnaði Kjöt og fiskur nýja
stórverslun að Seljabraut 54 i
Breiðholti II. Verslunin er til húsa
i nýju stórhýsi og eru þar á boð-
stólnum nýlenduvörur, kjöt og
fiskur eins og reyndar nafn versl-
unarinnar ber með sér. Gerist
þetta á 48. starfsári Kjöts & fisks.
Það mun vera næsta óalgengt
að verslanir séu opnaðar i hverf-
um borgarinnar áður en ibúar
koma i hverfin, en svo er málum
háttað i Seljahverfinu, þvi segja
má að Kjöt og fiskur sé sá, sú eða
það fyrsta, sem tekur sér bólfestu
þar. Er þetta sannarlega lofsvert
framtak.
Verslunin mun reyna nýjung
nokkra. í versluninni verður
komið fyrir svonefndum kjara-
pöllum, þar sem viðskiptamönn-
um verður gefinn kostur á að fá
vörur á lægra verði en gengur og
gerist. Verður breytt til um vörur
á pöllunum öðru hverju.
Fyrstu framkvæmdir við versl-
unina hófust þann 20. april i vor,
og hefur mikill skriður veriö á
þeim siðan.
Eigandi verslunarinnar er Ein-
ar Bergmann.
Verslunarstjóri i hinni nýju og
glæsilegu búð verður Kolbeinn
Ingi Kristinsson. —úþ