Þjóðviljinn - 08.12.1974, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 08.12.1974, Blaðsíða 15
Snnnudagur 8. desember 1974. ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 15 BÓKAHILLAN LoCtur Guðinundsson: Þrautgóðir á raunastund, ti. bindi. Rvík 1974. Örn og Örlygur. Ritsafnið. Þrautgóðir á raunastund, sem Steinar J. Lúðvíksson blaðamaður hefir skráð og samið, er þegar orðin gagnmerk heim- ild um merkilegan þátt í baráttnsögu þjóðar vorrar á þessari öld. Þar hefir verið rakin sjóslysasaga nokkurra áratuga, lýst hetjulcgri baráttu, hörmulegum atburðum en einnig gleðilegunt sigrum. í þessu bindi, sent Loftur Guðmundsson rithöfundur semur, er brugðið á nýtt ráð og skýrt frá ævi og störfum þriggja manna.'sent hæst ber í því að skipuleggja björgunarstarf og koma á fót al- mennum slysavörnum. Þeir eru: Síra Oddur Gíslason, Sigurður Sigurðsson skáld frá Arnarholti og Jón E. Bergsveinsson erind- reki. Gerð er allrækileg grein fyrir ævi þeirra og störfunt, en einkunt þó öllu því, er laut að slysavörnum. Síra Oddur er braut- ryðjandinn, í aðra röndina ævintýramaður, en á hinn bóginn raunsær athafnamaður, sem evfjir markið og ryður brautina, svo að því verði náð, þótt honum auðnaðist ekki að leiða þjóðina fram til sigurs. Enda skilningur og stuðningur annarra lítill. Sigurður skáld braust í að stofna Björgunarféíag Vestmannaeyja, og leysti þar af hendi mikið starf og merkilegt, sem ekki mun sfður lifa en hin ágætu kvæði hans. í björgunarstarfinu samein- aðist glöggskyggni og framsýni skáldsins við raunsæja athafnasemi. LofturGuómundsson Þrautgóðir á raunastund ÞEIR HOft) MERKlD FCliti' bipdi bjbtgunar-..otj. sjóslysusqtjtj: lan<ls,ór heltjýó mlnoíngu þritjyjp manrto. *cm héfu nieikí islysayqrnti ó lofl, þeinti tciu OdtU V. Oitlosörtqr,SigvrSörJSíyuiðs- íouar fró' AnioihoUi Oy 'Jón»' t. Bcrq- svcins'.onttr, órfndicko SVFI Jón E. Bergsveinsson varð brautryðjandi á tveimur sviðum ís- lenskrar útgerðar, hann Jærði fyrstur íslendinga meðferð síldar og kom með því fótum undir síldveiðamar, og síðar verður hann einn aðalstofnandi Slysavarnafélags íslands og erindreki um mörg ár, og má fullyrða, að liann liafi mótað starf þess og stefnu öðrum mönnum fremur. Þessir þrír menn voru liarla ólfkir að gerð, uppeldi og ævistörfum, en eitt áttu þeir sameiginlegt, óbil- andi áhuga, framsýni og fórnfýsi til að vinna allt, sem þeir máttu fyrir hugsjón sína, sem þeim öllum var sameiginleg: að forða slysum og bjarga, þar sem bjargað varð. Og ótalin eru mannslífin, sem starf þeirra hefir bjargað, og mikil er þakkarskuld þjóðar- innar við þá. Af þeim sökum er þetta þörf og góð bók, sem i senn heldur uppi minningu^þeirra mætu manna og bendir fram á við og eggjar til dáða. TTll er bókin hin læsilegasta, en helst mætti finna að því, að hún sé of stutt. Einar frá Hergilsey: Blærinn í laufi. Rvfk 1974. Öm og Örlygur. Þetta er önnur skáldsaga höfundar, sem er bóndi vestur á Barða- strönd, en hefir það hjáverkastarf að tjá hugsanir sinar í skáld- söguformi. Sagan gerist f litum firði, sem er að leggjast í eyði fyrir tfmanna rás. Hún er því jöfnum höndum þjóðlífslýsing á barátu fólksins og einkamálum söguhetjanna, þar sem mjög g:ctir árekstra í tilfinningum og vfxlspora. Höfundur segir vcl frá og bregður upp mörgum skyndimyndum af persónum og atvikum án málalcnginga. I’ersónum, ólíkum að eðli og gerð, er teflt saman og fcr honum það yfirlcitt liaglega úr hendi. Undiraldan er átthagaástin og viðnámið gegn eyðingu byggðarinnar. Og sagan endar þar sem söguhetjan stendur föstum fótum á jörð sinni. Einar gjörþekkir það fólk, sem hann lýsir og umhverfi þess. Það ásamt góðri frásagnargáfu er styrkur sögunnar. Þetta er ritdómur úr HEIMA ER BEZT, sem birtist hér sem auglýsing. GÓÐ BÖK ER GÓÐ GJÖF Örn og Örlygur, Vesturgötu 42, Sími: 25722 SITT ÚR HVERRI ÁTTINNI Hvað er verra? „Airport” var metsölubók, sem siBan var gerð eftir kvik- mynd meB metaBsókn. Og nú á aB fylgja þeim árangri eftir með „Airport 1975” eftir sömu stjörnuuppskrift. Stjörnurnar i nýju myndinni eiga reyndar að verBa ennþá fleiri, þ.á.m. Myrna Loy, Gloria Swanson, Karen Black og Charlton Heston. Gloria Swanson leikur fræga konu, hlutverk, sem fyrst var reyndar boBiB Gretu Garbo. En Greta neitaði, enda fannst henni handritiB ósannferBugt. Ekki sist i atriBi á flugvellinum, þar sem tvær nunnur fylgjast með er blaBamenn og ljósmyndarar umkringja þá frægu. — Hún hlýtur að vera leik- kona, segir önnur nunnan. — EBa það sem verra er! svarar hin. Eins og nokkur skapaður hlut- ur geti veriB verra en að vera leikkona, sagði Greta. Gott í kuldanum Á hliBi nektarnýlendu nokk- urrar I námunda viB Le Havre i Frakklandi gat aB lesa eftirfar- andi skilti: t dag verBur svalt i veBri. Þvi ráBleggjum viB félögum nýlend- unnar að klæBast bikini eða suhdskýlu. Gleymdi frúnni 34 ára nýsjálendingur, John Mackenzie, varB fyrir nokkru aB viBurkenna fyrir rétti i Auck- land, aB hann væri sekur um tvi- kvæni, en baB jafnframt um milda málsmeBferB. Fyrir nokkru hafBi Mackenzie gengist undir raflostlækningu á geBsjúkrahúsi, sem varB til þess, aB hann gleymdi fullkom- lega tilveru fyrri konu sinnar. Dómarinn lét sér nægja tvö ár skilorBsbundiB. Góður gestgjafi Listin viB aB vera góBur gest- gjafi er fólgin i þvi aB láta gest- unum finnast þeir vera eins og heima hjá sér, jafnvel þegar maBur óskar þess helst af öllu, aB þeir væru það. Orson Welles VISNA- ÞÁTTUR S^^T^T—S.dór.-.:, ■ FRELSARINN VAR FYRIRMYND ... Oft hefur veriB boriB lof á skagfirðinga fyrir hagmælsku og þeim hampaB að verBleikum. En mér finnst sem nágrönnum þeirra, húnvetningum, oftast gert of lágt undir höföi vegna þess aö þar i sýslu hafa margir visnasnillingar búið. Einn af þeim var Gisli Ólafsson frá Eiriksstööum. Margar stökur Gisla eru perlur sem aldrei hætta að skina. Ég ætla nú að birta nokkrar af stökum Gisla, kannski ekki þær bestu en samt allar góBar. Bindindi Lengi hafiö bátinn ber, bili ekki neglan. Góöu dæmin gefur hér góötemplarareglan Lýöurinn eltir lögin blind, leynir eöli sjúku. Frelsarinn var fyrirmynd, en fór þó ekki i stúku. Vor Lækir flæöa og fara i dans fanna bræöist sporið. Innri gæöi anda manns endurfæöir voriö. Synjað um styrk frá alþingi 1934: Litils viröi Ijóö mitt er lifir hinna fremdin. Enda fór hún framhjá mér fjárveitinganefndin. Skyrtan Ytra virtist verjan fin vera snyrtum dregin. Er þá skyrtan innri þin eins vel hirt og þvegin? Geymt en ekki gleymt Yfir harma soliinn sjá sé ég bjarma af vonum, meöan varmann finn ég frá fyrstu armlögonum. Staka Þrælkun óöum þyngir skap þagnar ljóöa hreimur. Andans gróöur dýrstan drap djöfulóöur heimur. Staka Hryggst ég gat og fögnuö' fylist fundiö, giataö, brotiö, áfram ratað, einnig villst, elskaö, hataö, notiö. Maurapúkinn Einn aö vanti eyririnn. ekki er von þér liki, ef þú flytur auöinn þinn inni himnariki. Þoka A vegamótum mæðunnar margir hnjóta i sporum. Eggjagrjót er allsstaöar undir fótum vorum. Á ferð og flugi Hér um stund ég staöar nem stari, spyr og svara. Ég veit ekki hvaöan ég kem né hvert ég er aö fara. Leiftur glampa á bylgju boga, báran hampar mörgum knör. Mánans lampi mildum loga merlar kamp á græöis vör. Ráðlegging. (sléttubönd) Háttinn detta láttu létt, Ijóöin nettar settu, þáttinn flétta reyndu rétt, rimið gretta sléttu. Staka Lundin káta leikur sér, ljóös af státar afli. Tapist gátin, andinn er óöar mát i tafii. Sléttubönd. Fljóöin bianda mættu mér mjööinn andans, búna. Ljóöin stranda, andinn er eitthvað vandur núna. Sprettinn Léttir þrifur þrátt, þýtur sléttar grundir. Glettinn réttir bifur, brátt brýtur kletta undir. Stilling spilla villan vill, Valla snilli hylla. Gylling hyllir illan, ill alla tryllir villa. BOTNAR Og þá er komið að botnunum við fyrripartinn: Ýmsum þykja atómljóöin einskisviröi: Axla verður þarna þjóöin þunga byröi, Einkum þeim sem ekki bruðla eðalsteinum rims og stuöla. V.L. Þannig myndi ég einmitt yrkja ef ég þyröi. tslands skálda auðugs anda óþörf byröi. Ungra manna ódráttur úr Óspaksfirði. J.E. Þvi botninn er suöur i Borgarfiröi J.A. Aldrei neitt ég um þau hiröi, andlát þeirra litils viröi S.H. Ósköp litiö ég heid þjóöin um þau hiröi. Leifur Guömundsson. Um þau aöeins heimskir hiröi. N. Svo er mælt á Seyðisfiröi N. Samviskunnar sára byröi. N. Þetta skulum viö hafa fyrir lokaorö hjá hinum snjalla hag- yröingi, Gisla Olafssyni frá Eiriksstöðum. Hinn ágæti hagyrðingur úr Kópavogi, Valdimar Lárusson, hefur orðið viö bón okkar um að fólk sendi nýjar eöa áöur óbirtar visur. Hann sendi okkur bréf sem i voru þessar prýöilegu vis- ur. Við sjó. Ægir hvitum ölduföldum úfnum skýtur vitt um sviö. Upp aö þýtur kletti köldum, kólgan brýtur ströndu viö. Engum bjóöa þau ég þyröi þó aö einhver um þau spyrði. N. Listrænt form þau lemstri og myröi að læra og muna engin hirði. Magnús J. Jóhannsson. Svo vil ég að endingu leiðrétta botn eftir V.L. frá siöasta þætti, þar átti að standa: Hans er vani aö hyggja flátt og hygla eigin skinni.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.