Þjóðviljinn - 08.12.1974, Síða 18

Þjóðviljinn - 08.12.1974, Síða 18
18 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 8. desember 1974. SJÓNVARP ÚTVARP „INNRÁSIN FRÁ MARS” Áhrifaríkasti dagskrárliður allra tíma fluttur í þættinum „Á hljóðbergi” Dagskrá útvarpsins þessa vik- una er um sumt forvitnileg. A6 sjálfsögðu er þar fyrst aö nefna Dags þátt Þorleifssonar. I dag, Orson Welles - myndin var tekin 1938 þegar hann stjórnaöi „Inn rásinni frá Mars”ávegum CBS sunnudag, annast hann umsjón þáttar um Kúbu. „Kúba, sykur- eyjan f Karibahafi”, heitir þátturinn sem Dagur stýrir á- samt Ólafi Gislasyni, kennara, en þeir Ólafur og tveir aðrir islend- ingar dvöldu á Kúbu i sumar og unnu þar I byggingarvinnu. A mánudaginn talar Guörún Halldórsdóttir, skólastjóri um daginn og veginn, en síöan er þáttur Páls Heiðars Jónssonar, sem nefnist „Blöðin okkar”. Fréttamenn útvarpsins stjórna nú þætti sem fjallar um byggða- mál, og hefur margt athyglisvert borið á góma i þeim þætti. Byggðamál eru á dagskrá á mánudaginn klukkan 22.15. A þriðjudaginn er óhætt að benda á a.m.k. þrjá forvitnilega útvarpsþætti. Sverrir Kristjáns- son sagnfræðingur heldur áfram með erindi sin, „Svipleiftur úr sögu Tyrkjans”, Björn Þorsteins- son, sagnfræðingur og kennari (ekki prófessorinn) annast þátt- inn „Að skoða og skilgreina”. Þessi þáttur er ætlaður ungling- um, og leitast Björn við að út- skýra fyrir unglingum ýmsa hluti og hugtök sem rætt er um i dag- legu tali, en kemur á daginn, að ekki eru allir málum þrautkunn- ugir og ýmsir hlutir þurfa útskýr- ingar við. Magnús Tómasson, mynd- listarmaður sér um myndlistar- þátt á þriðjudaginn kemur og svo er röðin komin að Hljóöberginu. Að þessu sinni er Björn Th. Björnsson með „helviti rosaleg- an” þátt, eins og hann segir sjálf- ur, en Þjóðviljinn mun á þriðju- daginn fjalla um „Innrásina frá mars”, útvarpsdagskrá sem Björn Th. hefur komið höndum yfir og flytur á þriðjudagskvöld- ið. Þessi dagskrá er sennilega hin áhrifarlkasta sem flutt hefur ver- ið. Henni var útvarpað 30. okt. 1938 og afleiðingin var fullkomin móðursýki og brjálæðing fjölda manna. Sjónvarp í vikunni Sjónvarpið er fremur sviplaust næstu vikuna. Einna helst er aö geta „Eins konar jass”, en það er nýr þáttur þar sem innlendir jasskarlar reyna aö finna sveifl- una. Og nöfnin kannast allir jass- menn við: Erlendur Svavarsson, Rúnar Georgsson, Gunnar Þórðarson og fleiri. Jassinn er á miövikudaginn klukkan 22.30, en á undan jassinum verður sýnd ný, bandarisk sjónvarpsmy nd, „Bréfin”. Gamla, bandariska myndin sem sjónvarpið sýnir á laugar- daginnerfræg, „Liljur vallarins” og hún er lika óvenjulega ung, var gerð 1942. —GG Aö misnota aöstööu sína Fátt þykir ódrengilegra en ef einhverjir menn komast I á- kveðna valdaaöstöðu og misnota hana sjálfum sér til framdráttar. Skiptir þá litlu máli hvort það er gert til aö þjóna áhugamálum sinum og duttlungum eða I auög- unarskyni, þótt það siöast talda þyki kannski Ijótast I augum al- mennings. Nokkrir valdamiklir menn hjá hljóðvarpinu hafa notfært sér að- stööu sína hjá stofnuninni til hins itrasta og náð að sameina það tvennt að koma þar áhugamálum sinum á framfæri og fá vel greitt fyrir. Hér á ég við þá Þorstein Hannesson, fyrrum óperusöngv- ara og Guðmund Jónsson, fram- kvæmdastjóra hljóövarpsins og óperusöngvara. Þessir menn hafa um árabil tekið blómann úr kvölddagskrá laugardaganna og verið þar með þætti sem nefndir hafa veriö nöfnum eins og „Tónlistarrabb, Þorsteinn Hannesson bregður plötum á fóninn”, eða eitthvað i þá áttina. Undanfarna laugar- daga hafa þessir þættir verið kl. 21.15 á laugardagskvöldum, besta tima kvöldsins fyrir alla fjöl- skylduna. Þaö er ekki bara að stjórnendur þessara þátta sem hafa föst laun hjá stofnuninni, hafi i auka- greiðslur 5—7000 kr. fyrir þessa þætti, heldur er þarna um óperu- tónlist aö ræða, laugardagskvöld eftir laugardagskvöld, sem afar takmarkaöur hópur fólks hefur á- huga á, en þeir Þorsteinn og Guðmundur dá þessa tónlist ann- arri tónlist meira, enda báöir lærðir óperusöngvarar. Þetta heitir að misnota aðstöðu sina á freklegan hátt. Og þótt það sé hætt núna sem betur fer, þá voru þessir þættir oftast endur- teknir fyrir hádegi næsta mánu- dag á eftir og auðvitað bættist þar með við greiðsluna fyrir þáttinn. Þá hefur enn einn starfsmaður hljóðvarpsins, einn úr músik- mafiunni, sem svo er kölluð, Gunnar Guðmundsson fram- kvæmdastjóri sinfóniuhljóm- sveitarinnar, sem er rekin af rikisútvarpinu, notað aðstöðu sina um árabil til þess að leika sina uppáhaldstónlist fyrir út- varpshlustendur, þ.e.a.s. þá sárafáu sem nenna að hlusta á þann þátt, á mánudagskvöldum og einnig þessi þáttur var um langt skeið endurtekinn og er kannski enn, síðar I næstu viku. Ekki veit ég hvort þessir herra- menn eru á svona lágu kaupi hjá stofnuninni aö þeir veröi aö bæta sér það upp meö þvi að misþyrma eyrum hlustenda kerfisbundiö eða hvort þeir taka sjálfa sig og þá tónlist sem þeir dá svona al- varlega, að þeim sé sama þótt þeir hreki nokkur þúsund hlust- endur frá hljóðvarpinu þann tima sem þetta glymur, eöa hvort skýringin er sú að þeir viðurkenni ósigur hljóðvarpsins fyrir sjón- varpinu og hugsi sem svo — það hlustar enginn á þetta helvíti hvort sem er. En hvað af þessu sem er skýringin, þá er hér um ó- geðfellda misnotkun á valdaað- stööu að ræða sem efstu ráða- menn stofnunarinnar ættu að taka fyrir. S.dór n a t um helgina /unnudðgw 18.00 Stundin okkar. Tóti bak- ar, Róbert bangsi og félagar hans lenda I ævintýrum, Söngfuglarnir syngja og Bjartur og Núi steikja hnet- ur. Einnig veröur I Stund- inni flutt saga, sem heitir „Sykurhúsið”, og spurn- ingaþáttur með þátttöku barna úr Iþróttafélaginu Gerplu og barnastúkunni Æskunni. Loks sýnir Frlða Kristinsdóttir, handavinnu- kennari, hvernig hægt er að búa til skrautlega kúlu. Umsjónarmenn Sigriður Margrét Guðmundsdóttir og Hermann Ragnar Stefáns- son. Stjórn upptöku Kristln Pálsdóttir. 18.55 Skák. Stutt, bandarísk mynd. Þýöandi Jón Thor Haraldsson. 19.05 Vetrarakstur. Fræðslu- og leiðbeiningamynd frá Umferðarráði um akstur I snjó og hálku. Þulur Arni Gunnarsson. 19.25 Hlé. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Dagskrárkynning og auglýsingar. 20.35 Heimsókn. Aning i Eyj- um. Að þessu sinní heim- sækja sjónvarpsmenn Vest- mannaeyinga. Brugðið er upp myndum af endurreisn- arstarfinu I Heimaey og rætt við vestmannaeyinga, innfædda og aðflutta. Umsjón Ómar Ragnarsson. Kvikmyndastjórn Þrándur Thoroddsen. 21.25 Heimsmynd I deiglu. Finnskur fræðslumynda- flokkur I sex þáttum um vls- indamenn fyrri alda og uppgötvanir þeirra. Fyrst er greint frá hugmyndum manna um umheiminn til forna, en síðan koma til sög- unnar vlsindamennirnir Nikulás Kópernikus, Tycho Brahe, Johann Kepler, Galileo Galilei og Isaac Newton, og er hverjum þeirra helgaður einn þáttur myndaflokksins. 1. þáttur. Fornar hugmyndir um skip- an veraldar. Þýðandi Jón Gunnarsson. Þulur Jón Hólm. (Nordvision — Finnska sjónvarpið) 21.50 Sunnudagstónleikar. Mynd um norska hljóm- sveitarstjórann Olaf Kiel- land. Fyrst er brugðið upp mynd frá hljómsveitar- æfingu, en siðan er rætt við Kielland um llf hans og starfsferil. Loks leikur svo norska útvarpshljómsveitin undir stjórn hans. 23.20 Að kvöldi dags. Sr. Tómas Guömundsson I Hveragerði flytur hugvekju. 23.30 Dagskrárlok. mónu<l<>9uí 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Dagskrárkynning og auglýsingar. 20.40 Onedin-skipafélagið. Bresk framhaldsmynd. 10. þáttur. Frægur farþegi. Þýðandi óskar Ingimars- son. 21.40 Iþróttir. Fréttir og myndir frá Iþróttaviðburðum helgar- innar. Umsjónarmaður Ómar Ragnarsson. 22.15 Hvað gera norðmenn? Norsk heimildamynd um áætlanir þær, sem þarlendir menn hafa á prjónunum um útfærslu fiskveiðilögsög- unnar. Þýðandi og þulur Jón O. Edwald. (Nordvision — Norska sjónvarpið) 22.50 Dagskrárlok, um helglna /unnudoguf Sunnudagur 8. desember 8.00 Morgunandakt Séra Sigurður Pálsson vlgslu- biskup flytur ritningarorö og bæn. 8.10 Fréttir og veðurfregnir. 8.15 Létt morgunlög Ýmsir listamenn flytja lög eftir Hándel, Grieg, Zeller, Cho- pin, og fleiri. 9.00 Fréttir. Crdráttur úr for- ustugreinum dagblaðanna. 9.15 Morguntónleikar. (10.10 Veðurfregnir). a. Italskar kaprlsur eftir Rimský- Korsakoff. Fllharmonlu- sveitin Berlln leikur, Con- stantin Silvestri stjórnar. b. Sinfónía I e-moll op. 64 eftir Tsjalkovský. Filharmoniu- sveitin I Berlin leikur, Her- bert von Karajan stórnar. c. „Þýska messan” eftir Schubert. Sinfóniuhljóm- sveit Berllnar og kór Heið- veigar-dómkirkjunnar flytja, Karl Forster stjórn- ar. 11.00 Messa I Frikirkjunni i Reykjavlk. Prestur: Séra Þorsteinn Björnsson, Organleikari: Sigurður Isólfsson. Tilkynningar. Tónleikar. 13.15 A ártið Hallgrlms Péturssonar. Herra Sigur- björn Einarsson biskup flyt- ur lokaerindiö I erindaflokki útvarpsins, og nefnist það: Trúarskáldið. 14.00 öldin sem leið.Þættir úr austfirsku mannlifi á nltjándu öld með þjóðlaga- ívafi. Kristján Ingólfsson tók saman og flytur ásamt Magnúsi Stefánssyni. Tón- list er flutt af Þokkabót og einnig af hljómböndum. 15.00 Öperan „Meistarasöng- vararnir frá Nurnberg” eftir Richard Wagner.Ann- ar þáttur. Hljóðritun frá tónlistarhátiöinni i Bayreuth s.l. sumar. Stjórn- andi: Silvo Varviso. — Þor- steinn Hannesson kynnir. 16.15 Veðurfregnir. Fréttir. A bókamarkaðinum Andrés Björnsson útvarpsstjóri sér um þáttinn. Dóra Ingva- dóttir kynnir. 17.40 tJtvarpssaga barnanna: „Hjalti kemur heim” eftir Stefán Jónsson GIsli Hall- dórsson leikari les (19). 18.00 Stundarkorn með gitar- leikaranum Louise Walker. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagákrá kvöldsins. 19.00 Fréttir,. Tilkynningar. 19.25 „Þekkirðu land?” Jónas Jónasson stjórnar spurn- ingaþætti um lönd og lýði. Dómari: Ólafur Hansson prófessor. Þátttakendur: Dagur Þorleifsson og Þór- arinn Ölafsson. 19.50 Islensk tónlist Hljóm- sveit Rikisútvarpsins leik- ur. Hans Antolitsch stjórn- ar. a. „Jón Arason”, for- leikur eftir Karl O. Runólfs- son. b. Tilbrigði eftir Jón Leifs um stef eftir Beet- hoven. c. „tir myndabók Jónasar Hallgrlmssonar” eftir Pál Isólfsson. 23.30 Kúba, sykureyjan I Karibahafi. Dagur Þor- leifsson og Ólafur Gfslason sjá um þáttinn og drepa á meginatriði I sögu Kúbu meö ívafi af þarlendri og tómansk-ameriskri tónlist. Lesari með þeim: Guðrún Jónsdóttir. 21.35 Spurt og svaraðErlingur Siguröarson leitar svara við spurningum hlustenda. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Danslög Hulda Björnsdóttir velur lögin. 23.25 Fréttir I stuttu máli. Dagskrárlok. Mánudagur 9. desember 7.00 Morgunútvarp Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7,30, 8.15 (og forustugr. landsmálabl.), 9.00 og 10.00. Morgunbænkl. 7.55: Séra Jón Einarsson I Saurbæ flytur (a.v.d.v.) Morgunleikfimi kl. 7.35 og 9.05: Valdimar örnólfsson leikfimikennari og Magnús Pétursson planóleikari (a.v.d.v.). Morgunstund barnanna kl. 9.15: Sigurður Grétar Guðmundsson held- ur áfram að lesa „Litla sögu um litla kisu” eftir Loft Guömundsson (5). Tilkynn- ingar kl. 9.30. Létt lög milli liða. Búnaðarþátturkl. 10.25: Ólaf- ur E. Stefánsson ráðunautur talar um nautakjötsfram- leiöslu og neysluviðhorf. Morgunpopp kl. 10.40. A bókamarkaöinum kl. 11.00: Lesið úr þýddum bókum. Dóra Ingvadóttir kynnir. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Viö vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: Cr • endurminningum Krúsjeffs. Sveinn Kristinsson les þýð- ingu slna (2). 15.00 Miðdegistónleikar: Wil- helm Kempff leikur á píanó Þrjú intermessó op. 117 eftir Brahms. Dietrich Fischer- Dieskau syngur söngva úr lagaflokknum „Magelone Georges Barboteu og Gene- vieve Joy leika sónötu fyrir horn og planó op. 17 eftir Beethoven. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.25 Popphornið. 17.10 Tónlistartlmi barnanna Ólafur Þórðarson sér um tlmann. 17.30 Að tafli Ingvar Asmundsson flytur skák- þátt. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.40 Mælt mál. Bjarni Ein- arsson flytur þáttinn. 19.45 Um daginn og veginn Guðrún Halldórsdóttir skólastjóri talar. 20.05 Mánudagslögin. 20.25 Blöðin okkar Umsjón: Páll Heiðar Jónsson. 20.35 Heilbrigðismál: Augn- sjúkdómar IV. Ragnheiður Guðmundsdóttir augnlækn- ir talar um augnsjúkdóma meðal barna. 20.50 A vettvangi dómsmál- anna Björn Helgason hæsta- réttarritari flytur þáttinn. 21.10 Sónata I a-moll eftir Bach Philipp Hirschhorn leikur á fiðlu. — Frá tón- listarhátlðinni I Schwetzing- en s.l. vor. 21.30 íltvarpssagan: „Ehren- gard” eftir Karen Blixen. Kristján Karlsson islensk- aði, Helga Bachmann leik- kona les (3). 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir Byggðamál Fréttamenn útvarpsins sjá um þáttinn. 22.45 Hljómplötusafnið i um- sjá Gunnars Guðmundsson- ar. 23.40 Fréttir I stuttu máli. Dagskrárlok.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.