Þjóðviljinn - 03.01.1975, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 03.01.1975, Blaðsíða 3
Föetadagur 3. >an*ar 1975 ÞJ6ÐVILJINN — StDA 3 ÓVENJU MIKIÐ AF VARNINGI LÁ í VÖRUHÚSUM UM ÁRAMÓTIN Risastórar pantanir heimilistœkja seldust ekki nú fyrir jólin Siðari hluti ársins sem var að liða og þá ekki sist desember- mánuður var einstaklega erfið- ur fyrir þá aðila, sem þurfa að liggja með óafgreiddar vörur i pakkhúsum. Landsmenn hafa haldið að sér höndum undan- gengna mánuði og margir stór kaupmenn hafa farið fremur illa út úr minnkandi kaupgetu almennings. Fyrir utan Toll- vörugeymsluna standa ýmsar vörur, sem ekki komast undir þak vegna þrengsla, og liggja þar t.a.m. frystikistur undir skemmdum vegna sölutregðu. Pakkhús Eimskips og Hafskips eru troðfull svo að til vandræða horfir og er „misheppnaðri” jólasölu aðallega kennt um þrengslin. Engum vafa er undirorpið, að viða hefur óskynsamlega verið haldið á spöðunum og ekki er fritt við að fremur illá hafi verið á hinum dýrmæta gjaldeyri haldið undanfarið og þá ekki sist þegar heildsalarnir gerðu jóla- innkaupin. 1 tollvörugeymslunni var okkur sagt af starfs- mönnum að 2-4 frystikistur eyðilegðust daglega ef veður- guðirnir brostu ekki sinu bliðasta og er auðvelt að geta sér til um þau verðmæti, sem þar fara i súginn vegna ógæti- legrar hegðunar i kjölfar kaup- æðisins, sem gekk hér yfir á sinum tima. Fyrir jólin 1973 seldust öll raf- knúin heimilistæki, sem til voru i landinu upp. Brauðristar og vöfflujárn, hrærivélar og ryk- sugur, uppþvottavélar og frysti- kistur, — allt seldist upp og raf- væðingarþörf heimilinna virtust engin takmörk sett. Kaupmenn gerðu risastórar pantanir i byrjun siðasta árs en sl. vor voru þó öll heimilistæki gjör- samlega uppseld að nýju. Fólk miðaði innkaup sin væntanlega við yfirvofandi gengisfellingu og vörugeymslur, heildsalar og smásalar stóðu tómhentir af heimilistækjum þegar sumarið gekk i garð. Enn gerðu nokkrir aðilar risa- pantanir, en sölutregða fór að gera vart við sig og þeir, sem ekki höfðu séð hana fyrir sitja nú uppi með töluvert af vörum, sem ekki seljast. Skemmst er að minnast þess, þegar fyrirtæki eitt hér i borg tók upp á þvi að gefa kjötskrokka i kaupbæti með frystikistum sinum og þótt sá verslunarmáti væri stöðv- Framhald á 11. siðu. Héi r er • allt í s tal kas ta ] la«' • í var sagt i tollvörugeymslunni, en annað kom upp á teninginn Við hringdum inn f tollvöru- geymslu og fengum þær upp- lýsingar að hjá þeim væri ekki óeðliiegt ástand á nokk- urn hátt. Hjá þeim væru engir bilar um þessar mundir og ut- anhúss væru þær vörur einar geymdar, sem ekki þyrftu nauðsynlega að vera innan- dyra. Aðspurður um frystikistu- mál sagði viðmælandi blaðs- ins að fyrir þeim orðrómi um að þær lægju undir skemmd- um væri ekki nokkur fótur. Annað kom þó i ljós þegar inn i tollvörugeymslu var komið. Starfsmaður þar tjáði okkur að allt væri þarna yfir- fullt og frystikistur lægju út um allt undir skemmdum. „Það eyðileggjast svona 2-4 á dag ef veður er vont” sagði hann og lýsti yfir ófremdar- ástandi á staðnum. Siðan brugðum við okkur inn til forstjórans og báðum um að fá að liósmynda frysti- kisturnar, sem enginn vildi kaupa. Það var ekki tekið i mál og var okkur tjáð að myndatökur i portinu væru bannaðar. Til þess að við fengjum að mynda kisturnar yrði að fá leyfi kaupmannsins sem þær ætti. Aðspurður sagði forstjórinn okkur að hann gæti ekki gefið okkur upp hver ætti kisturnar, — til þess hefði hann alls ekkert leyfi. Þar með var máíið komið i strand og sú mynd, sem hér birtist er tekin með aðdráttar- linsu utan af götu inn um að- keyrsluhliðið og gerði snjókóf og litil birta ljósmyndaranum erfitt fyrir. Það er trúlega álika vanda- samt að ná myndum af Jackie Onassis naktri á eyðieyju eins og að fá að festa á filmu frysti- kistur i porti tollvörugeymsl- unnar. A.m.k. er sama aðferð- in nauðsynleg. —gsp 2000 bílar óseldir um áramót Sala á siðasta ári 11000 bilar — i ár verða fluttir inn 2-3000 Við hringdum i nokkur bila- umboð, s.s. Velti (með Volvo), Davið Sigurösson (Fiat) P. Ste- fánsson (Austin Mini og Land Rover) Svein Egilsson (Ford) og fleiri og fengum við ailsstað- ar einstaklega greið svör. Hjá Velti fengum við þær upp- lýsingar að töluvert hefði dregið úr sölu er á leið og væri búist við nokkurri sölutregðu á næsta ári. Markaðurinn virtist mettaður i bili og Volvo innflytjendur hög- uðu sér nákvæmlega eins og kaupendurnir — þ.e. héldu fast að sér höndum og byggju sig undir að lifa spart. Fiat umboðið hafði sömu sögu aö segja. Rúmlega 1000 bilar seldust á árinu sem var að liða og nú væru 200 bilar á lager sem ætti að vera þriggja til fjögurra mánaða lager. „Við gerðum það gott á siðasta ári og erum alveg tilbúnir til að lifa spart á þvi ári, sem nú fer i hönd”. P. Stefáns- son flytur inn Austin Mini og Land Rover og var mikil sala hjá þeim á árinu 1974, enda voru Fiat og Mini með allra sölu- hæstu bilunum og greinilegt var að litlu sparneytnu bilarnir voru sú tegund farartækja, sem fólk kaus sér helst. 884 Mini bilar seldust á árinu og þar af aðeins 100 eftir gengisfellingu, sem setti mikið strik i reikninginn. Lagerinn hjá fyrirtækinu sam- anstendur eingöngu af árgerð- um 1975 og telst P. Stefánsson þvi á grænni grein þótt harðæri fari i hönd. Ford bilarnir hafa eins og aðrir bilar hækkað gifurlega i verði og hækkanir frá árgerðum ’74 yfir til ’75 eru miklar. Þannig hækkar Cortina úr 720 þúsund- um i 850 þúsund og er það einn af ódýrustu bilunum hjá Ford, sem getur siðan selt lands- mönnum bifreiðir að verðmæti allt að þremur og hálfri miljón. Lagerinn er ekki óeðlilegur að sögn skrifstofustjórans, enda var farið varlega i sakirnar eftir gengisfellingu. Innf lytjendur tilbúnir Þrátt fyrir þann mikla bila- kost, sem liggur i vöruskemm- um Eimskips og Hafskips, eru bilainnflytjendur bvi ekki óró- legir að þvi er virðist. Flestir eru bilarnir árgerð 1975 og standa þvi fyrir sinu út árið og þeir, sem liggja með ’74 módelin eru hinir ánægðustu yfir sinu hlutskipti, þvi verðið er mun lægra á gömlu bilunum en þeim nýju. Bilakaupmenn eru tilbúnir að mæta sölutregðu á nýja árinu og spá yfirleitt þvi, að 4-5000 bilar muni seljast. 1 viöbót verða þvi ekki fluttir til landsins nema 2- 3000 eintök af bifreiðum og er það óneitanlega ekki há tala miðað við þá 11000 bila, sem fluttir voru inn á hinu mikla „kaupæðis- og kreppuári”, sem var að liða. —gsp Mynd þessi var tekin með aödráttarlinsu inn i port tollvöru- geymslunnar, þar sem frystikistur standa I röðum undir skemmdum. Sagt er að tvær til fjórar kistur skemmist á dag, ef eitt- hvaðer að veðri. A bak við lyftarann er stafli af frystikistum, sem aðeins eru huldar þunnu plasti. Við sjáum ekki betur en að i marg rifnum kössum t.v. séu einnig ilát undir matarforða islendinga, sem ekki ætla þó að seijast á næstunni. GEYMSLUR YANTAR Hafskip og Eimskip bera sig illa Hjá Eimskipafélagi Islands var rætt við Ingólf Möller vöru- afgreiðslustjóra. „Þetta nýliöna ár hefur vissu- lega verið frekar erfitt og vöru- geymslur okkar hafa pndan- tekningarlitið verið troðfullar. Innflutningur var óvenjumikill og hreyfing á vörunum var góð og mikið var að gera i vöruaf- greiðslu allan fyrri hluta ársins. Að septembermánuði loknum fór þó heldur að draga úr og svo virðist sem siðustu sendingar af heimilistækjum og bilum hafi litið sem ekkert hreyfst. Þó er það vissulega mismunandi eftir tegundum. Einkum er það mikið af frystikistum sem liggur hjá okkur, en svo virðist sem sala um sláturtiðina hafi orðið minni en kaupmenn bjuggust við. Annars er náttúr- lega erfitt fyrir mig aö vera aö giska á svona hluti, en svona virðist mér þetta lita út. Utan dyra hjá okkur i Eimskip eru einir 1600 bilar og svo auðvitaö timbur, steypu- styrktarjárn og annað það, sem Framhald á 11. siðu. „Við gefum engar upplýsingar hér99 Undantekningarlitið fengum við afar greið og vinsamleg svör á þeim stöðum, sem hringt var á tii að fá upplýsingar um söluna á siöasta ári. Hjá féiagi stór- kaupmanna var þó annað uppi á tcningnum. Július S. ólafsson frkvstj. varð þar fyrir svörum og var hann fámáll um innflutning stórkaupmanna á árinu sem var að liða og vildi alls ekki tjá sig á nokkurn hátt um jólasöluna. Bauð hann blaðamanni hins vegar i kappræður um hvað væri „eðlileg kaupgeta” og þóttist þar með heldur en ekki hafa kveðið hann i kútinn. Stór- kaupmenn leggðu það ekki i vana sinn að velta vöngum yfir eðlilegu eða óeðlilegu ástandi, þvi væri tekið möglunarlaust sem að höndum bæri. Sagði Július sér þó ekki kunnugt um nokkurn kaupmann, sem ætti i erfiðleikum vegna litillar sölu. „Annars gefum við hér hjá fé- lagi stórkaupmanna engar upp- lýsingar um þetta mál, — þú verður að leita fanga annars staðar”, voru lokaorð Júliusar i miður vinsamlegu samtali við tiðindamann Þjóðviljans. —gsp

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.