Þjóðviljinn - 03.01.1975, Page 8
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 3. janúar 1975
Landsleikir
við USA í
kvennahand-
knattleik í
kvöld og á
sunnudaginn
íslenska kvennalandslið-
ið í handkna+tleik leikur
tvo landsleiki við það
bandariska nú um helgina.
Fyrri leikurinn er í Laug-
ardalshöll í kvöld og hefst
kl. 20.30, en hinn síðari
verður á sunnudaginn, og
fer hann f ram í iþróttahús-
inu í Njarðvíkum og hefst
kl. 14.
tslenska liðið sem leikur i kvöld
verður þannig skipað:
Markverðir:
Gyða Úlfarsdóttir, FH (4)
Jónina Kristjánsdóttir KR (3)
Aðrir leikmenn:
Sigrún Guðmundsdóttir, Val (17)
Ragnheiður Lárusdóttir, Val (3)
Björg Jónsdóttir, Val, fyrirliði (4)
Hansina Melsteð, KR (15)
Hjálmfriður Jóhannesdóttir, KR
(4)
Leikurinn i kvöld er fyrsti
landsleikur bandarisku stúlkn-
anna, sem eru að hef ja undirbún-
ing fyrir undankeppni ólympiu-
leikanna sem fram fara i
Montreol i Kanada 1976. bað ætti
þvi að vera fremur auðvelt fyrir
islenska liðið aö sigra i þessum
leikjum. Leikurinn i kvöld er 5ti
landsleikur islenska liðsins á
þessu keppnistimabili, og eru ár
og dagar siðan konurnar hafa
fengið eins mörg verkefni til að
glima við og nú.
Erla Sverrisdóttir, Arm. (9)
Guðrún Sigþórsdóttir, Arm. (8)
Arnþrúður Karlsdóttir, Fram
(12)
Oddný Sigsteinsdóttir, Fram (7)
Guðbjörg Jónsdóttir, ÍBK (1)
Islenska liðið hefur æft mjög
vel nú yfir hátiðarnar undir stjórn
landsliðsþjálfarans Sigurbergs
Sigsteinssonar og er þvi eins vel
undirbúið fyrir þessa ieiki og
frekast má vera.
1. deildarkeppnin
hefst á
ný á sunnudaginn
1. deildarkeppnin I handknattleik hefst á ný eftir jólahléið á
sunnudaginn kemur. Þá fara fram tveir leikir i Laugardalshöll,
Valur mætir Ármanni, og siðan mætast ÍR og Grótta.
Fyrri leikurinn, milli Vals og Ármanns, verður án efa mikiil bar-
áttuleikur. Valsmenn náðu sér uppúr öldudalnum rétt fyrir hléið,
sigruðu Gróttu og siðan FH og voru þá I miklum ham. Ármenningar
hafa hinsvegar komið mest á óvart allra liða i vetur, eru komriir
með 6 stig úr 5 leikjum og eru og verða án efa með I toppbaráttunni
ef þeir slaka ekki á frá þvi sem verið hefur. Þess vegna ætti þessi
leikur að geta orðið jafn og skemmtilegur.
Hinn leikurinn er enn þýðingarmeiri. Þar mætast botnliðin i 1.
deild, ÍR og Grótta. Bæði hafa hlotið eitt stig til þessa, og næstum
má fullyrða að það liðið sem tapar þessum leik fellur niður i vor.
Björg Jónsdóttir fyrirliði Islenska kvennalandsliðsins sést hér skora mark i lelknnm við hoiiendinga
fyrr I vetur.
Landsliðið í körfu-
knattleik farið utan
Tekur þátt í 4ra landa keppni í Danmörku
islenska landsliðið í körfu-
knattleik hélt til Danmcrkur I
morgun, þar sem það mun taka
þátt i 4ra landa keppni sem fram
fer þar um helgina. Löndin sem
taka þátt i keppninni eru auk is-
lands, Danmörk, V-Þýskaland og
Lúxembúrg.
Strax að 4ra landa keppninni
lokinni heldur landsliðið til Nor-
egs og leikur einn landsleik við
norðmenn áður en það heldur
heim.
Liðið hefur æft á hverjum degi
fyrir þessa keppni siðan fyrir jól
og er þvi mjög vel undir keppnina
búið. Telja má vist að v-þjóðverj-
ar vinni mótið, en menn gera sér
vonir um að islenska liðið nái
öðru sæti. Lúxembúrgarar eru
ekki sterkir, og þvi kemur slagur-
inn um 2. sætið til að standa milli
islendinga og dana, en gengið hef-
ur á ýmsu i leikjum þeirra undan-
farin ár og gæti það þvi orðið hinn
skemmtilegasti leikur.
þátttakenda á alþjóölegu vísindaráöstefnunni „Iþróttir í
nútíma samfélagi” til vísindamanna, íþróttakennara,
leiðbeinenda, íþróttalækna og forystumanna á sviöi
líkamsmenningar og íþrótta
Ávarp
Þátttakendur á alþjóðlegu
vísindaráðstefnunni „íþróttir
i nútima samfélagi”, sem
haldin var I Moskvu dagana
26.-30. nóv. 1974 og undir vernd
Heimsráðsins fyrir likams-
uppeldi og Iþróttir (CIEPS),
benda á, að likamsmenning og
Iþróttir séu meðal veigamestu
félagslegra og menningar-
legra þátta nú á tímum. Þeir
beina þvi tii visindamanna,
íþróttakennara, leiðbeinenda,
iþróttalækna og forystumanna
á sviði iþrótta,
— að stuðla að vináttu,
gagnkvæmum skilningi og
samstarfi milli þjóða og
verndun friðar I heiminum;
— að vinna að þvi, að
llkamsrækt og iþróttir sem
verða stöðugt þýðingarmeiri
þáttur I menningarlífi samfé-
iagsins, standi fólki á öllum
aldri til boða, hver sem at-
vinna og félagsleg staða þess
er;
— að útbreiða Iþróttir
vegna þýðingar þeirra fyrir
heilsu manna, ekki sist á okk-
ar tlmum þegar hreyfingar
skortur og minni llkamlcg
áreynsla er fylgifiskur vls-
indalegra og tæknilegra fram-
faraj
— að bæta likamsuppeldi
æskunnar I löndum ykkar og
auka íþróttaiðkun almenn-
ings, að efla iþróttakeppni
með tilliti til þess að hún hefur
uppeldislegt og visindalegt
gildi, stuðlar að alhliða þroska
og uppeldi iþróttamanna I
anda siðgæðishugsjóna;
— að allir fjölmiðlar stuðli
að því að auka uppeldisleg
áhrif iþrótta og gera öll
Iþróttamanuvirki, þar sem
iþróttakeppni fer fram, að
sannkölluðum menningar-
stöðvum;
— að efla iþróttavisindi, en
hlutverk þeirra er að kanna
svið likamsræktar og Iþrótta i
ljósi efnahagslegra fyrirbæra,
vlsindalegrar þekkingar og fé-
lagslegra breytinga.
Þátttakcndur alþjóðlegu
vlsindaráðstefnunnar „íþrótt-
ir I nútima samfélagi” treysta
þvi, að samfélagið I sinni
framþróun leggi meiri áhcrslu
á llkamsmenningu og iþrótta-
samskipti milli þjóða I þágu
gagnkvæms skilnings og vin-
áttu milli manna og verndun
friðar I heiminum.
Bikarleikir í
ensku
knattspyrn-
unni á
morgun
A morgun, laugardag, hefst
enska bikarkeppnin I knattspyrnu
fyrir alvöru, en þá koma 1. og 2.
dcildarliðin innl keppnina. Eins
og vanalega verður eflaust mikið
um óvænt úrslit, og það er einmitt
I bikarkeppni sem 3„ 4. og jafnvel
utandeildaliðin láta Ijós sitt
sklna. Má I þvi sambandi minna á
að I deildarbikarnum er ekkert 1.
deildarlið I undanúrslitum.