Þjóðviljinn - 15.02.1975, Qupperneq 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 15. febrúar 1975
I?
1. deild í körfuknattleik í dag:
Heita nær 200 þús.
krónum á lið sitt ef
það sigrar ÍR-ingana
Einstakur áhugi fyrir körfuknattleik i Njarðvíkum — uppselt á
alla heimaleiki UMFN, og bæjarbúar standa allir að baki liðinu
Undanfarna daga hafa njarðvíkingar safnað nær
200 þúsund krónum sem þeir heita á lið sitt UMFN ef
það sigrar í R í leik þessara liða í 1. deildarkeppninni i
körfuknattleik sem fram fer í dag. Leikurinn er mjögi
þýðingarmikill fyrir bæði liðin,því að nú er svo komið/
að UMFN á mikla möguleika á að blanda sér í topp-
baráttuna í deildinni. Liðið hefur sýnt góða leiki und-
anfarið/ einkum heimaleiklenda er það hvatt til dáða
af heimamönnum sem fylla áhorfendapallana á
hverjum leik. Á leikinn i dag er löngu uppselt og svo
hefur verið á nær hvern einasta heimaleik UMFN í
vetur.
En það eru fleiri leikir sem
fram fara i 1. deildarkeppninni i
körfu um þessa helgi. Að lokn-
um leik UMFN og tR i Njarð-
vikunum I dag leika Valur og
Snæfell. Valsmenn hafa þegar
misst af möguleikanum á að
vinna mótið og þeir geta heldur
ekki fallið.erusem sé komnir i
þá aðstöðu að fljóta á milli sem
kallað er. Snæfellingar eru aftur
á móti i fallbaráttunni og munu
eflaust selja sig dýrt i dag og
gætu allt eins tekið stigin af Val
miðað við hvernig Vals-liðið
hefur leikið i vetur.
Á morgun fara einnig fram
tveir leikir i 1. deild. Þá mætast
i iþróttahúsinu á Seltjarnarnesi
Armann og Snæfell og ætti þar
að liggja á borðinu Ármanns-
sigur. Þá mæta stúdentar botn-
liðinu HSK og má mikið vera ef
ekki verður þar um yfirburða
sigur hjá IS að ræða.
Snæfell
HSK
446:
555:
546 2.
682 0.
Staðan í 1. deild:
IR
KR
UMFN
A
ÍS
Valur
8 7 1
9 7 2
9 6 3
8 5 3
9 5 4
667:617
795:709
721:688
672:615
671:664
14.
14.
12.
10.
10.
9 3 6 731:728 6.
Þróttur
í herferð.
til Akur-
eyrar
um
helgina
Ármann-Valur
Vík.—Fram í 1.
deildannaðkvöld
jpr**
2. deildar lið Þróttar fer til
Akureyrar um þessa helgi og
leikur i dag gegn KA en á
morgun gegn Þór. Leikurinn i
dag milli Þróttar og KA er
einskonar úrslitaleikur 2.
deildar keppninnar, þvi sigri
Þróttur fær ekkert stöðvað lið-
ið i ferðinni úppi 1. deild. En
sigri KA eða ef Þróttur tapar
fyrir Þór á morgun, eykst
spennan i 2. deild til mikilla
muna og er þó all-nokkur fyrir.
Hér syðra fara fram tveir
leikir á morgun á milli Breiða-
bliks og KR og Fylkis og
Stjörnunnar.
Tveir leikir fara fram annað
kvöid I Laugardalshöllinni i 1.
deildarkeppninni í handknattleik.
t fyrri ieiknum eigast við Ármann
og Valur en I þeim siðari Vikingur
og Fram. Báðir þessir leikir eru
afar þýðingarmiklir fyrir Val og
Víking. Armann blandar sér tæp-
iega héðan af i toppbaráttuna og
möguleikar Fram til þess hafa
minnkað verulega eftir tapið fyrir
Armanni á dögunum.
I fyrri leik Armanns og Vals
unnu Valsmenn mikinn yfirburða
sigur, og náðu þá einum slnum
besta leik i vetur. Hætt er við að
róðurinn verði þeim þyngri nú,
þar sem Armenningar geta leikið
jiennan leik algerlega afslappaðir
en pressan eykst sifellt á Vals-
mönnum eftir þvi sem nær dregur
lokum mótsins og þeir halda sér i
toppbaráttunni, en staða Vals er
þannig að liöið má ekki við þvi að
tapa leik úr þessu ef þeir ætla að
vera með I keppninni um titilinn.
Einn leikur er afar þýðingar-
mikill fyrir Vikinga sem standa
best allra liða i deildinni eins og
er, með aðeins 5 stig töpuð. I fyrri
leik þessara liða sigraðí Fram, en
nú hafa Framarar misst Björgvin
Björgvinsson og það breytir
miklu.
En tivernig sem menn velta
þessum málum fyrir sér má vlst
telja að báðir leikirnir verði jafn-
ir og skemmtilegir.
r
Hljómskála-
hlaup ÍR
í 2. sinn
á morgun
Hljómskálahlaup tR fer fram
annað sinn á þessu ári á morgun,
sunnudag, og hefst kl. 14 við
Hljómskálann.
Sfðast tóku 66 þátt i hlaupinu,
en það er opið ölium sem áhuga
hafa á að taka þátt i þvi.
Þessi mynd er úr leik tS og Vals
um sfðustu helgi. Bæði þessi liö
eru I eldlinunni um þessa helgi.
Einn
leikurí
úrslita-
keppn-
inni
i blaki
um
helgina
A morgun sunnudag fer
fram. einn ieikur I úrslita-
keppni islandsmótsins i blaki
og fer hann fram I Iþróttahúsi
Kennaraháskólans, og hefst
kl. 16. Þar eigast viö Víkingur
og ÍS og telja fróöir menn aö
þetta verði mjög jafn og
skemmtilegur leikur tveggja
sterkra liða sem bæði komi til
með að berjast I toppbarátt-
unni.
Næsti leikur i keppninni fer
svo fram á þriðjudaginn aust-
ur á Laugarvatni, en þar eig-
ast þá við UMFL og UMFB.
Islands-
meist-
aramót
kvenna
í blaki
Islandsmeistaramót kvenna
I blaki fer nú fram I annað
sinn. Einu liði frá héraðs-
sambandi eða félagi er heimil
þátttaka.
Þátttökutilkynningar þurfa
að berast Guömundi E. Páls-
syni Stórholti 32 Reykjavlk
fyrir 1. marz.
Þátttökugjald kr. 1000 skal
fylgja tilkynningunni ásamt
nafni og heimilisfangi for-
svarsmanns liðsins.
Landinu verður skipt I svæöi
þegar þátttaka liggur fyrir og
reynt að hafa ferðalög sem
minnst.
Leikið er upp á þrjár unnar
hrinur.
Dregiö
í bikar
keppniKKÍ
Dregið hefur verið 1 bikar-
keppni KKt og leika þessi liö
saman I fyrstu umferð: Fram-
Þór,UMFG-tBK, UMFN-UBK,
Valur-IR, Snæfell-Armann,
Haukar-KR-b, UMFS-IS og
tA-KR-a og þess má gcta að
þetta er I fyrsta sinn sem
skagamenn taka þátt I lands-
móti I körfuknattleik og leikur
þeirra og KR veröur sá fyrsti
sem fram fer á Akranesi.