Þjóðviljinn - 16.02.1975, Síða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 16. febrúar 1975
LÚÐVÍK JÓSEPSSON:
Gengislækkunarstjórn
Þessi mynd birtist I MorgunblaOinu 29. ágúst 1974, daginn eftir aO rlkis-
stjórn Geirs Hallgrimssonar var mynduö. Myndinni fylgdi svolátandi
texti: „Ólafur Jóhannesson fyrrverandi forsætisráöherra afhendir
Geir Hallgrimssyni, hinum nýja forsætisráöherra, lyklavöldin i for-
sætisráöuneytinu um fimmleytiö I gær”. — Reynsla undanfarinna
fimm mánaöa hefur sýnt aö Geir fékk ekki aöeins lyklavöldin úr hendi
Ólafs, hann fékk einnig vöidin yfir Framsóknarflokknum.
Þá hefur rikisstjórn ihalds og
Framsóknar tekist að hnekkja
hinu gamla meti viðreisnar-
stjórnarinnar i gengislækkunar-
hraða. Viðreisnarstjórnin lækk-
aöi gengið fjórum sinnum á 12 ár-
um og eitt sinn liöu aðeins 11
mánuðir á milli gengislækkana.
Núverandi rikisstjórn hefur
þegar lækkað gengið tvisvar og
nú liðu aðeins 5 mánuöir og 10
dagar á milli gengislækkana.
2. september lækkaði hún geng-
ið um 17%, sem jafngildir 20,5%
hækkun á erlendum gjaldeyri. Og
nú er gengislækkun krónunnar
20%, sem jafngildir 25% hækkun
á erlendum gjaldeyri.
Stjórnleysi og fálm
Þann tima, sem núverandi rik-
isstjórn hefurverið við völd, hefur
stefna hennar i efnahagsmálum
vægast sagt verið fálmkennd og
hikandi.
Fyrstu viðbrögð hennar voru
gengislækkun og raunveruleg
kaupbinding þar sem visitölubæt-
ur á laun voru ekki leyfðar. Siðan
fylgdi i kjölfarið runa af allskonar
verðhækkunum, enda hækkaði
framfærsluvisitalan á fyrstu
þremur mánuðum stjórnarinnar
um 15,4% þrátt fyrir það að kaup-
gjald stæði óbreytt að ööru leyti
en þvi, sem láglaunabætur til
hinna lægst launuðu komu til.
Eftir 5 1/2 mánaðar stjórnar-
tima er svo komið, að kaupmátt-
ur launahefuralmennt lækkað um
25% og að minnsta kosti um
12—15% hjá þeim lægst launuðu.l
rauninni hefur kjaraskerðing lág-
launafólks verið ennþá meiri en
þessar tölur segja til um, af þeim
ástæðum, aö verðhækkanir hafa
orðiö mestar á nauðsynjavörum,
eins og matvörum og ýmiskonar
þjónustu, sem allir verða að
kaupa.
Ráðstafanir stjórnarinnar i
efnahagsmálum hafa haft mikil
áhrif til skerðingar á lifskjörum
almennings, en þær hafa hins
vegar haft harla litil áhrif til
hagsbóta fyrir atvinnulifið i land-
inu.
Þrátt fyrir stöðvun visitölubóta
á laun og þrátt fyrir 17% gengis-
lækkun, nefur gjaldeyrisvara-
sjóðurinn farið siminnkandi og
staða útflutningsatvinnuveganna
hefur farið versnandi.
Rikisstjórninni hefur tekist
með stórfelldri vaxtahækkun, gif-
urlegri hækkun á ýmsum þjón-
ustugjöldum, söluskattshækkun
og misráðnum sjóðamyndunum,
að gera erfiða stöðu atvinnuveg-
anna enn verri en hún áður var.
Vandinn í
efnahagsmálunum
Það hefursannarlega ekki skort
á stórorðar lýsingar á þeim
vanda, sem við er að glima I efna-
hagsmálunum — að minnsta kosti
ekki I málgögnum rikisstjórnar-
innar.
Gjaldeyrisvarasjóðurinn er
þurrausinn að sagt er. Gifurlegur
hallarekstur er I sjávarútvegi og
allur atvinnurekstur er á heljar-
þröminni samkvæmt þeim lýs-
ingum sem gefnar eru i blöðum
og útvarpi. Og i beinu framhaldi
af öllum þessum hryllingslýsing-
um er svo verið að skella yfir
einni gengislækkuninni enn, og
enn er talið að almenn kjara-
skerðing sé óhjákvæmileg.
En hver er þá sannleikurinn I
raun og veru um stöðuna i efna-
hagsmálum? Hver er vandinn,
sem leysa þarf og hvaö er helst til
ráöa að leysa þann vanda?
í umræðum um þessi mál er
helst svo að skilja á málflutningi
stjórnarblaöanna, að s.l. ár — ár-
ið 1974—hafi veriðslæmt ár og að
á þvi ári höfum við orðiö fyrir gif-
urlegu áfalli vegna markaðs-
hruns.
Þetta er I aðalatriðum rangt.
Arið 1973 var óumdeilanlega sér-
staklega hagstætt ár, og það ár
högnuðust flestar greinar at-
vinnulifsins.
Um árið 1974 segir Þjóðhags-
stofnunin i nýlega útgefinni
skýrslu:
„Þjóöarframleiöslan 1974 varö
um 3—3 1/2% meiri aö raunveru-
legu verögildi en áriö 1973”
„Verölag útflutnings hækkaöi
aö meöaltali á árinu um 34% i
krónum — um 21—22% I erlendri
mynt—”,
Þessar tölur sýna, að árið 1974
var ekki óhagstætt i framleiðslu
og heldur ekki I markaðsmálum,
þegar á heildina er litið, og þegar
það er borið saman við góða árið
1973.
Vissulega féll fiskblokkin i
verði á Bandarikjamarkaði á ár-
inu og vissulega féll fiskimjöl i
verði frá þvi sem það komst hæst
I stuttan tima i árslokin 1973 og i
ársbvrjun 1974. En ymsar aðrar
útnutningsvörur hækkuöu lika i
veröi.
Það sem fyrst og fremst gerði
árið 1974 lakara fyrir þjóðarbúið,
en árið á undan, var mikil verö-
hækkun á innfluttum vörum. Það
hækkaði I erlendri mynt um
34—35%.
En það sem þó réði mestu um
gjaldeyrislega erfiðleika, sem
upp komu á árinu, var óvenjuleg-
ur og gífurlega mikill innflutning-
ur og gjaldeyrisnotkun á öllum
sviöum. Verðmæti innflutnings-
ins jókst á árinu um 66%.
Sá vandi, sem nú er við að fást I
efnahagsmálum þjóðarinnar er
aömlnumati I aðalatriðum þri-
þættur.
t fyrsta lagier staðan i gjaldeyr-
ismálum. Gjaldeyrisvarasjóð-
urinn er búinn.
t ööru lagier rekstrarstaða sjáv-
arútvegsins og þó einkum
hallarekstur nokkurra greina
hans.
t þriöja lagi er svo staðan I kjara-
málum launafólks og þá fyrst
og fremst þeirra, sem búa við
lág laun.
Vandinn I gjaldeyrismálum er
vissulega mikill, m.a. af þeirri
ástæðu að hér hefur verið fylgt
þeirri stefnu, að heimila frjálsan
innflutning á nær öllum vörum og
mjög frjálsa meðferð á gjaldeyri.
Þessi stefna leiddi til þess á s.l.
ári, að rúmlega 3,0 miljöröum
króna I gjaldeyri var varið til
bilainnflutnings og um 1,7 mil-
jaröi til ferðalaga erlendis. Til
samanburðar má nefna, að til
hinna gífurlega miklu skipakaupa
á árinu, þ.e.a.s. til kaupa á tugum
fiskiskipa og tugum flutninga-
skipa, sem samtals kostuðu um
5,4 miljarða króna, var ekki varið
nema 0,9 miljörðum i gjaldeyris-
greiðslu, vegna þess að 80—90%
af andvirði skipanna var tekið að
láni erlendis. Gengislækkunarleið
rikisstjórnarinnar mun ekki
bjarga gjaldeyrisvarasjóðnum
eins og nú standa sakir. Eigi að
reisa þann sjóð við að nýju og það
fljótlega, þá verður óhjákvæmi-
lega að stööva um nokkurn tima
gjaldeyrissölu til bflakaupa og
draga úr gjaldeyrisnotkun til ut-
anlandsferöa og draga úr inn-
flutningi á lftt nauösynlegum
varn ingi.
Slika stefnu vill Sjálfstæðis-
flokkurinn ekki samþykkja, þvi
hann vill að þeir sem peningana
hafa geti verið frjálsir i sinni
eyðslu.
Sá vandi I efnahagsmálum,
sem varðar rekstursafkomu at-
vinnuvegannaer alltaf umdeilan-
legur. Atvinnurekendur, hvort
sem það eru útgerðarmenn, eða
aðrir, telja hag sinn aldrei of góð-
an. Þeir geta aldrei greitt hærra
kaup, að eigin sögn, og þeir segj-
ast alltaf tapa.
Þjóöhagsstofnunin hefur gert
nokkra grein fyrir áætlunum sin-
um um rekstursafkomu sjávarút-
vegsins. 1 þeim áætlunum kemur
skýrt fram, að öllu máli skiptir
varðandi útkomuna, á hvaða
forsendum er byggt, t.d. varðandi
væntanlegt aflamagn, áætlaö
markaösverö og uppfæröar af-
skriftir.
í þeirri áætlun Þjóðhagsstofn-
unar, sem mest hefur verið rædd,
er gert ráð fyrir, að heildartap
sjávarútvegsins alls geti numið
1721 miljón króna.miðað við árs-
rekstur. Þá hefur verið gert ráð
fyrir að sjávarútvegurinn sem
heild taki greiðslur úr Verðjöfn-
unarsjóði samtals 968 miljónir
króna.
Við þessar tölur er það að at-
huga, að þetta tap kemur fram
þegar reiknaðar hafa veriö 2690
miljónir króna I afskriftir.
Þessa sömu útkomu mætti eins
orða á þann veg, aö sjávarútveg-
urinn sem heild, þ.e.a.s. allar
veiöar og öll vinnsla hafa 969
miljónir kr. I rekstrarafgang, upp
i afskriftir.
Greiðslan úr Verðjöfnunarsjóði
er I rauninni ekki sérstaklega
mikil þegar þess er gætt, að I
sjóðnum voru 2600 miljónir króna
um siðustu áramót.
Þaö er skoðun min, að ekki sé
ástæða til að reikna nema hálfar
þær afskriftir, sem Þjóðhags-
stofnunin færir upp, miðað við
það árferði sem nú er. I góöæri
mætti reikna með hærri afskrift-
um.
Ég tel þvi að vandi sjávarút-
vegsins sé engan veginn eins mik-
ill eins og ýmsir talsmenn rikis-
stjórnarinnar og forystumenn út-
gerðarinnar vilja telja hann. Ég
hef af þeim ástæðum gert grein
fyrir tillögum, sem ég' tel að
framkvæma heföi átt til hagsbóta
fyrir sjávarútveginn og ekki
hyggja á gengislækkun. Ég tel að
lækka ætti vexti um 3—4% og
létta af útgerðinni margvlslegum
aukagreiðslum, sem nú ganga i
allskonar sjóði, en hækka fisk-
verð jafnframt um 12—14%. Jafn-
framt tel ég að með stuðningi rik-
isins eigi að stórauka hagræðingu
i rekstri og stjórn fyrirtækja, —
ekki sist fiskvinnslustöðva.
t kjaramálum er brýn þörf að
ná samkomulagi við verkalýðs-
samtökin um sanngjarnar launa-
bætur til láglaunafólks og um ör-
yggi gegn hækkun verðlags á
brýnum nauðsynjavörum. Þann-
ig ætti að lækka og i sumum til-
fellum að afnema sölusaktt af
brýnum nauösynjavörum. Gera
yrði rikissjóði slikt kleift m.a.
með lækkun I rekstrarútgjöldum
um 1500—2000 miljónir króna og
með hækkun á skatti á hæstu tekj-
um og e.t.v. með auka-innflutn-
ingsgjaldi á lítt nauðsynlegum
vörum. Jafnframt yrði að stöðva
þvi sem næst hækkun á öllum
þjónustugjöldum. Með vaxta-
lækkun ætti einnig aö fylgja nokk-
ur lækkun á verslunarálagningu.
Gengislækkunar-
stefnan og Fram-
sóknarflokkurinn
1 rauninni þarf enginn að vera
hissa á þvi, þó að ihaldiðhaldi enn
fast við gengislækkunarstefnuna.
Forystumenn Sjálfstæðisflokks-
ins sjá aldrei aðra leið en lækkun
kaupgjalds verkafólks. Gengis-
lækkunarleið þeirra miðar fyrst
og fremst að minnkun kaupmátt-
ar almennings — að raunveru-
legri kauplækkun. íhaldsforingj-
amir telja „sanngjarnt” að mat-
vara og aðrar lifsnauösynjar
hækki hlutfallslega jafnmikið i
verði og bflar og ýmsar beinar
eyðsluvörur. En hvað kemur til
að Framsóknarflokkurinn beygir
sig fyrir þessum Ihaldskenning-
um? Er þannig komið fyrir for-
ingjum Framsóknarflokksins, að
þeir telji eðlilegt að minnka þann-
ig kaupmátt verkafólks, bænda
og sjómanna, að náð veröi jafn-
vægi i gjaldeyrismálum þjóðar-
innar eftir þeirri leið?
Afleiðingar gengislækkunar-
innar, sem nú hefur verið ákveð-
in, verða þær, aö allar innfluttar
vörur hækka strax um 25%
þ.e.a.s. olian til þeirra, sem verða
að hita hús sin með oliu hækkar
um 25%, og kornvaran hækkar
um 25%, áburðurinn hækkar um
25% og innfluttur fatnaður hækk-
ar um 25%, — án þess aö laun eigi
aö hækka á móti.
Telja foringjar Framáóknar-
flokksins það réttlátt, að þessar
vörur, sem hér voru nefndar,
hækki hlutfallslega jafnmikið og
lúxusbilar, skrautmunir, tisku-
klæðnaður og gjaldeyrir til utan-
landsferða?
Er Framsóknarflokkurinn orð-
inn svo samdauna ihaldinu eftir
aðeins 6 mánaða stjórnarsam-
starf, að hann sætti sig við ihalds-
stefnuna ómengaða á öllum sviö-
um? #
Gengislækkunarleið rikis-
stjórnarinnar mun ekki reynast
haldbetri nú en áður, — það er þvi
von að menn spyrji: Hvað liöur
langt til næstu gengislækkunar?
Lúövik Jósepsson
Lokað
vegna jarðarfarar
Vegna jarðarfarar Harrys O. Frederik-
sens framkvæmdastjóra verða eftirtaldar
stofnanir lokaðar eftir hádegi þriðjudag-
inn 18. febrúar:
Skrifstofur Iðnaðardeildar, Ármúla 3,
Fataverksmiðjan Gefjun, Snorrabraut 56,
Gefjun, Austurstræti 10,
Vöruafgreiðsla Iðnaðardeildar Hring-
braut 119
Jötunn, Höfðabakka 9.
SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉLAGA