Þjóðviljinn - 16.02.1975, Side 10

Þjóðviljinn - 16.02.1975, Side 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 16. febrúar 1975 x _______i____ i 'msggm . arson, læknir Heimilislæknisþjónusta á Reykjavikursvæðinu hefur mjög verið i sviðsljósinu að und- anförnu, og verður það að telj- ast vonum seinna. Umræður um heilbrigðismál hafa oftast til þessa fjallað annað tveggja um læknaskort dreifbýlisins eða sjúkrahúsbyggingar. Orsök þess að dreifbýlið hefur verið svo mjög á dagskrá að þessu leyti er að sjálfsögðu sú, að þar var um tima tilfinnanlegur skorturá læknum, trúlega mest vegna aðstöðuleysis. Nú hafa málin hins vegar skipast þann- ig, að það er sagt auðveldara að fá heimilislækna til starfa úti á landi en á Reykjavikursvæðinu, og er enginn vafi á, að þvi veld- ur vinnuaðstaðan að mestu eða öllu. Olnbogabarn Heimilislækningar hafa til skamms tima verið olnboga- barn I heilbrigðiskerfinu bæði á tslandi og annars staðar. Þróun siðustu áratuga hefur leitt til dýrkunar á tækni og sérhæf- ingu. Aukinn þekkingarforði gat af sér æ fleiri sérgreinar á sifellt þrengri sviðum, sem heimilislæknirinn sat ævinlega ,,Sést ekki fyrr en það fer” En það fór með heimilis- læknastéttina eins og rykið hjá Þorsteini Valdemarssyni, sem ,,sést ekki fyrr en það fer”. Það var fyrst þegar þessi vanmetna starfsstétt var i þann veginn að þurrkast út á höfuðborgarsvæð- inu, að fólk tók að gera sér grein fyrir þvi að hún var nauðsynleg- ur þáttur i heilbrigðiskerfinu. Skortur á heimilislæknum olli á- standi, sem af sumum var kall- að neyðarástand. Og við skulum gera okkur grein fyrir þvi, að þetta neyðarástand er ekki vegna læknaskorts, heldur vegna skorts á heimilislæknum. Starfandi læknar með lækninga- leyfi i Reykjavik eru ca. einn á hverja 550 ibúa, og eru þá ekki meðtaldir þeir læknakandidatar og læknastúdentar, sem vinna læknisstörf, en þeir skipta mörgum tugum. Hins vegar er heimilislæknastéttin fámenn, mig minnir, að talað hafi verið um 23 heimilislækna i Reykja- vik, en það mun svara til þess, að ca. einn heimilislæknir sé á hverja 3000-4000 ibúa. Ofgnótt sérfræðinga á sjúkrahúsum og utan þeirra getur ekki bætt upp þetta neyðarástand að neinu marki. Greinarhöfundur, Guðmundur Helgi Þórðarson, er starfandi heim- ilislæknir i Hafnarfirði og Garðahreppi. Heimilislækningar uppi með það, sem sérfræðing- amir vildu ekki sinna. Með auknum fjölda sérgreina minnkaði stöðugt svarfssvið heimilislæknisins, og þar kom, að farið var að tala i alvöru um að leggja þessa starfsstétt alveg niður, þar sem til væru sérfræð- ingar i öllum hugsanlegum greinum læknisfræðinnar; kök- unni skipt upp og ekkert skilið , eftir handa heimilislæknunum, þeir höfðu sem sagt ekki jörð til að ganga á. Ef spurt var um hlutverk heimilislæknis, vafðist mönnum tunga um tönn, og er svo raunar enn. Þessi loft- kennda undirstaða stéttarinnar ásamt rýrnandi áliti á starfs- greininni s.l. 2-3 áratugi olli að sjálfsögðu minnkandi aðsókn að henni;heimilislæknum fækkaði. En þar með er ekki öll sagan sögð. A siðustu áratugum hafa orðið stórstigar framfarir i læknisfræði, bæði greiningar- tækni, meðferð og skipulagn- ingu. Þessi þróun hefur að mestu farið fram hjá heimilis- læknunum. A meðan sjúkrahús- læknar státa sig af dýrlegum höllum yfir starfsemi sina á- samt fjölmennu starfsliði og imponerandi véltækni, hefur heimilislæknirinn setið einn og aðstoðarlaus, lengst af með hlustarpipuna eina að vopni, anakrónisminn uppmálaður. Frá árabát til skuttogara Segja má, að með lögum um heilbrigðisþjónustu, sem gengu i gildi 1. janúar 1974, hafi i fyrsta skipti á Islandi verið gerð alvarleg tilraun til að snúa við þeirri þróun, sem hér hefur ver- ið lýst með ákvæðunum um, að öll heimilislæknisþjónusta skuli innt af hendi á heilsugæslu- stöðvum, þar sem læknar ynnu I hópum ásamt öðrum heil- brigðisstéttum. Með þessum lögum er raunar i fyrsta sinn reynt að örva til skipulags i þessari starfsgrein og þar með aðgera heimilislæknum fært að hagnýta sér að einhverju marki nýjungar i faginu. Breytingunni frá hinum einstæða lækni til heilsugæslustöðvarinnar má likja við breytinguna frá árabát til skuttogara eða aðra hlið- stæða þróun I atvinnulifinu. Tækniframfarir og aukin þekk- ing ááamt breyttum þjóöfélags- háttum hefur sprengt af sér gamalt kerfi og neitað nýrra að- ferða. Rök — vegna sjúklings Það yrði langt mál, ef telja ætti fram öll þau rök, sem mæla með tilvist hcilsugæslustöðva. Hins vegar finnst mér timabært að ræða opinskátt nokkur slik rök, og þá ekki sist þau atriði, sem snúa beint að sjúklingun- um, þar sem mér virðist fólk ai- mennt og þar með taldir for- ráðamenn bæjar- og sveitarfé- laga, ekki gera sér grein fyrir þvi, hvað vinnst með þessari skipulagsbreytingu. Ég mun hér gera að umræðuefni nokkur framkvæmdaatriði, sem snerta náið þá, sem leita til heimilis- lækna og hafa trúlega verið nokkuð til umræðu manna á milli. Um það hefur verið kvartað, að erfitt sé að ná sambandi við lækni, ef veikindi ber að hönd- um, einkum ef um bráð veikindi er að ræða. Þótt merkilegt megi virðast i fljótu bragði, er þetta oft og tfðum erfiðast á þeim tima sólarhringsins, þegar heimilislæknirinn er á vakt, þ.e. frá kl. 8 að morgni til kl. 5 sið- degis. Þetta sambandsleysi liggur að miklu leyti i kerfinu, sem unnið er eftir. Heimilis- læknirinn á að ansa sjúklingum sinum á timabilinu frá kl. 8 til kl. 5. A þessu timabili þarf hann að sinna þrem þáttum starfsins, ef vel á að vera, þ.e. svara sim- tölum, sinna viðtölum á stofu og annast vitjanir i heimahús og aðra fyrirgreiðslu utan lækn- ingastofunnar. A meðan hann er I vitjunum úti i bæ, getur hann að sjálfsögðu ekki ansað simtöl- um eða sinnt öðru á stofunni, og þar með eru sjúklingar hans sambandslausir við heilbrigðis- kerfið. Með tilkomu heilsugæslu- stööva skapast möguleikar á þvi, að læknar skiptist á um að ansa þeim vitjanabeiðnum, sem ekki þola bið, svo að sjúklingar þurfi aldrei að standa frammi fyrir þvi, að ná hvergi sambandi við kerfið eða fá enga úrlausn mála sifina, ef snögg veikindi bera að höndum. Siminn Siminn er vandamál hjá öll- um læknum, sem vinna aðstoð- arlausir. Sé hann látinn glymja lækningastofunni allan daginn, gerir hann ógagn með tvennum hætti, veldur streitu og ergelsi hjá lækninum, þvi að fáir þola slikt arg til lengdar, og i öðru lagi torveldar það samband læknisins við þá sjúklinga, sem leita á stofuna. Það kannast sjálfsagt flestir við það, þegar siminn slitur látlaust i sundur samtal þeirra við lækninn og það stundum svo, að þeir kom- ast aldrei að efninu, en slita samtalinu að lokum, án þess að nokkuð markvert hafi gerst. A hinn bóginn getur verið brýn nauðsyn fyrir fárveikan sjúk- ling úti I bæ að ná simasam- bandi við lækni og það stundum fyrr en seinna. Simaþjónusta á heilsugæslustöð gæti leyst þenn- an vanda mjög auðveldlega þannig að sjúklingum, sem hringja til læknis, er ansað, og jafnframt væri hægt að skapa læknum vinnufrið á lækninga- stofunni. Rannsóknir Oft ber það við, að sjúklingar þurfi rannsóknir af ýmsu tagi auk þeirra, sem læknir getur framkvæmt á stofu sinni. Við núverandi aðstæður verða heimilislæknar að senda sjúk- linga sina til slikra rannsókna i ýmsar áttir, svo að úr þvi verð- ur heldur hvimleiður þeytingur milli rannsóknarstofnana, bið- stofusetur, vinnutap, ergelsi og streita. Þennan þeyting mætti stórlega minnka með tilkomu heilsugæslustöðva, þar sem ráðnir væru meinatæknar, sem ýmist framkvæmdu • þessar rannsóknir á staðnum eða tækju sýni og sendu til rannsókna- stofnana. Upplýsingar Skrásetning og varðveisla upplýsinga um heilsufar sjúkl- inga er einn veikasti hlekkurinn I núverandi heimilislæknisþjón- ustu. Lög mæla þó svo fyrir, að allir læknar skuli halda sjúkra- skrár yfir sjúklinga þá, sem til þeirra leita. Allir, sem til þekkja, munu og vera sammála um nauðsyn þess að varðveita upplýsingar um heilsufar sjúkl- inga, svo oft sem læknar standa frammi fyrir þvi að verða að geta sér til um, hvað hafi komið fyrir sjúklinga þeirra I fyrri veikindum, hvað rannsóknir hafi þá leitt i ljós, o.s.frv. Skort- ur á upplýsingum af þessu tagi veldur m.a. tvlverknaði i heil brigðisþjónustunni, sem kostar bæði fé og fyrirhöfn og tefur oft greiningu og meðferð. Ýmislegt fleira mætti benda á i þessu sambandi. Hér er gamla ein- menningskerfið þrándur i götu, eins og viðar. Einyrkjalæknir hefur engan tima til að skrá eða hafa reglu á spjaldskrá yfir sjúklinga sina. Ritaraþjónust- unni á heilsugæslustöðvunum er ætlað að bæta úr þessu með þvi að skrásetja og halda til haga öllum upplýsingum af þessu tagi. Er takmarkið, að skjala- safn heilsugæslustöðvanna varðveiti i aðgengilegu formi allar fáanlegar upplýsingar um heilsufar þess fólks, sem til þeirra eiga sókn. Hér hefur verið minnst á örfá atriði varðandi heimilislækn- ingar og heilsugæslustöðvar. Að sjálfsögðu er þetta aðeins brot af þvi, sem segja mætti um þetta efni. Hér hefur hins vegar verið dvalið við nokkra þeirra þátta, sem snerta sérlega náið samskipti sjúklings við lækni eða stöð. Það er svo með þessa breyt- ingu eins og flestar róttækar, fé- lagslegar breytingar, að þær mæta andstöðu eða tregðu, sumum finnst gamla kerfið betra, öðrum finnst breytingin of dýr o.s.frv. Þessi tregða verður ekki yfirunnin, nema tii komi ákveðinn þrýstingur frá almenningi. Það má aldrei hætta að gagnrýna það kerfi, sem fyrirer.og benda á hugsan- legar leiðir til úrbóta. Heil- brigðismál eru ekki sérmál lækna eða heilbrigðisyfirvalda, hcldur félagsleg vandamál, sem varða hvern borgara. ALÞÝDUBANDALAGIÐ: Kvöldverðarfundur með norrænum gestum Alþýðubandalagiö boðar til f undar með fulltrúum frá öllum Norðurlöndum, sem hér eru á fundi Norður iandaráðs. Til fundarins eru boðaðir fulltrúar frá öllum þeim stjórnmála- flokkum, sem standa til vinstri við sósialdemókrata og eiga fulltrúa i Norðurlandaráði. Á fundinum verður meðal annars rætt um viðhorf sósíal- ista á Norðurlöndum til efna- hagskreppunnar. Fundurinn verður haldinn að Hótel Esju þriðjudaginn 18. febrúar og hefst kl. 17. Að fundinum lokn- um verður gestum boðið til kvöldverðar. Félagsmenn Alþýðubanda- lagsins og aðrir sem taka vilja þátt í fundinum eru beðnir að hafa samband við skrifstofu flokksins að Grettisgötu 3, sími 28655.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.